Morgunblaðið - 11.11.2010, Síða 38

Morgunblaðið - 11.11.2010, Síða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2010 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Svavar Pétur Eysteinsson er Breiðhyltingur, tónlistarmaður og jafnframt skapari hljómsveitar- innar Prinspóló og setti nýverið á vefsíðu hljómsveitarinnar, prins- polo.com, fyrstu breiðskífu hljóm- sveitarinnar, Jukk. Hægt er að hlusta á lögin á plötunni á vefsíð- unni en platan kemur út í föstu formi á vegum Kimi Records undir lok vikunnar. Svavar samdi og flutti lögin sjálfur en hóaði svo í nokkra tónlistarmenn til að full- klára verkið, þau Lóu Hjálmtýs- dóttur úr FM Belfast, Loga Hösk- uldsson úr Sudden Weatherchange og Kristján Frey úr Reykjavík!. Lóa leikur á hljómborð, Kristján á standandi trommur og Logi á gít- ar. Pillur og Prince Polo Það er heilmikið grín í textasmíð Svavars á plötunni, m.a. sungið um merkilega strandferð ónefndrar manneskju sem býður strandgesti upp á pillur og Prince Polo þegar sígaretturnar klárast. „Þetta er allt tekið einhvers staðar úr reynslu- bankanum og svo hleð ég ofan á það til þess að láta textann ganga upp. Þannig að þegar ég les yfir textann núna veit ég varla lengur hvað er rétt og hvað rangt,“ segir Svavar um textasmíðina. Tónlistina segir hann e.k. lo-fi hátíðnipopp. „Þetta er bara frekar einföld laga- smíði, að mestu leyti. Ég hafði svo sem ekkert sérstakt að leiðarljósi þegar ég fór að búa til þessa tón- list, þetta er bara svona músík sem kemur áreynslulaust.“ – Þú segir í tölvupósti að jukk sé „skortur á ótilkvaddri hugsun“. „Já, jukk er svona frasi sem tók sér bólfestu í höfðinu á mér í sum- ar og ég fór að kalla alla skapaða hluti jukk. Allt í einu var allt í kringum mig orðið að jukki. Svo fór ég að pæla í því hvað þetta væri, maður fær oft orð eða frasa á heilann, og reyna að skilgreina þennan frasa, jukk, eftir að ég var búinn að klína honum á plötuna og ýmislegt annað í kringum mig. Þá hélt ég að ég væri kominn í blind- götu með hugsanir mínar og út- skýrði þetta þá svona, skortur á „spontaneous“ hugsun, án þess þó að verða of heimspekilegur.“  Hljómsveitin Prinspóló sendir frá sér breiðskífuna Jukk  Skapari Prinspólós fékk jukk á heilann Jukk Liðsmenn Prinspóló í algjöru jukki, eða hvað? Skortur á ótilkvaddri hugsun  Heimildamyndin Árásin á Goða- foss, í leikstjórn Björns Brynjúlfs Björnssonar, fékk frábærar við- tökur þegar hún var sýnd fyrr á þessu ári. Um myndina sagði Sæ- björn Valdimarssonar kvikmynda- gagnrýnandi: „Mér er til efs að jafn yfirgripsmikil og hádramatísk heimildamynd hafi áður verið gerð hérlendis.“ Myndin hefur nú verið gefin út á tvöföldum mynddiski með miklu aukaefni. Fyrir utan heimildamyndina sjálfa eru 60 mín- útur af aukaefni á diskinum: Viðtal við Maríu Guðmundsdóttur fyrir- sætu og ljósmyndara, en Óli sonur læknishjónanna Friðgeirs og Sig- rúnar, var í fóstri hjá foreldrum Maríu vestur á Djúpuvík. Ef allt hefði farið eftir áætlun hefði Óli verið þar vestra þegar Goðafossi var sökkt, en ekki farist ásamt for- eldrum sínum og systkinum. Þá er á diskinum áður óbirt viðtal við Jó- hann Guðbjörnsson sem var háseti á Goðafossi í þessari örlagaríku ferð, en hann lést fyrir nokkrum ár- um. Einnig er á diskinum fjöldi ljós- mynda frá stríðsárunum á Íslandi sem margar hverjar hafa ekki sést fyrr og viðtal við Þór Whitehead sagnfræðing um ýmislegt for- vitnilegt sem tengist þessum dramatíska atburði. Diskurinn er með íslensku og ensku tali. Árásin á Goðafoss komin út á diski Fólk  Tvær af elstu þungarokks- hljómsveitum Íslands, Sólstafir og XIII ætla nú að veita fjölskyldufólki og unglingum tækifæri til að mæta á sannkallaða þungarokksveislu á sannkristilegum tíma. „Við erum m.a. að gefa helgarpöbbum færi á að gera eitthvað uppbyggilegt með börnunum sínum,“ segir Aðalbjörn Tryggvason, söngvari Sólstafa. Tónleikarnir verða á Sódómu Reykjavík laugardaginn 13. nóv- ember milli 16.00 og 18.00. Að- gangseyrir er 500 krónur. Síðar um kvöldið endurtaka hljómsveitirnar tvær leikinn og þá mun Stafrænn Hákon og Skálmöld spila með þeim. Þungarokk fyrir alla fjölskylduna til persónur út frá fólki sem hann hafi kynnst sjálfur á lífs- leiðinni. Mjög einfaldur maður Leikarinn Bergur Þór Ingólfs- son leikur aðalpersónu þáttanna, Friðbert, sem er afar mikill ein- feldningur. „Hann kláraði grunn- skólann og er sáttur við sitt, helsta takmark hans í lífinu er að komast til Danmerkur að heim- sækja drottninguna,“ segir Gest- ur um Friðbert. Hann sé virki- lega sáttur við lífið. Gestur segir Friðbert samsuðu úr nokkrum manneskjum sem hann þekki til, skrautlegum týpum sem eigi það sameiginlegt að vera miklir ein- feldningar og sáttir við sitt. „Ég myndi segja að þetta væri ekki venjulegt fólk í óvenjulegum að- stæðum heldur óvenjulegt fólk í venjulegum aðstæðum,“ segir Gestur um persónur þáttanna. Óvenjulegt fólk í venjulegum aðstæðum  Íslensku gamanþættirnir Tríó verða sýndir í Sjónvarpinu  Blaðberi á fer- tugsaldri er aðalpersónan  Bergur Þór Ingólfsson fer með burðarrulluna Morgunblaðið/Árni Sæberg Spaug Gestur Valur Svansson segir þættina m.a. sprottna af sögum sem hann hafi heyrt af nágrannaerjum. Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Á næsta ári, í febrúar og mars, mun Sjónvarpið sýna nýja, ís- lenska gamanþætti, Tríó, eftir Gest Val Svansson sem skrifar bæði handrit að þáttunum og leikstýrir auk þess að vera fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins sem framleiðir þá, Clear River Pro- ductions. Tökur á þáttunum hefj- ast eftir um viku. Í þáttunum segir af blaðberanum Friðberti Sigríðarsyni sem býr hjá móður sinni þó hann sé kominn á fer- tugsaldurinn. Hann dreymir um að komast til Danmerkur og hitta Danadrottningu. En þættirnir fjalla ekki bara um Friðbert og móður hans heldur einnig ná- granna þeirra í tveimur íbúðum í raðhúsalengju, fasteignasalann Ragnar sem er með allt niðrum sig fjárhagslega og unnustu hans Írisi sem er verslunarstjóri í vin- sælli tískuvöruverslun. Þau valda miklum usla í raðhúsalengjunni. Í hinni íbúðinni býr maður á miðjum aldri, Þormóður, en hann er líksnyrtir og býr einn með ketti sínum Stormi. Samfarastunur nágranna Gestur segir hugmyndina að þáttunum hafa kviknað fyrir tveimur árum, þegar hann bjó til persónu fyrir auglýsingaherferð Íslandspósts sem aldrei var þó ráðist í. „Ég bjó til kynningar- vídeó af gæjanum og var farinn að troða upp í afmælisveislum og brúðkaupum sem þessi gæi,“ segir Gestur. Þá hafi hann farið að velta því fyrir sér hvernig væri hægt að gera sjónvarpsþætti útfrá þessari persónu og rifjast hafi upp fyrir honum nágrannaerjur sem kunningi hans hefði lent í, afar hatrammar. „Þá mundi ég eftir atviki sem varð að blaða- máli hérna, þegar samfarastunur ná- granna heyrðust um allt. Þannig kom þema þáttanna, ná- grannaerjur, og upp- byggingin er svipuð og í Föstum liðum eins og venjulega (gamanþáttum sem sýndir voru í Sjónvarp- inu árið 1985),“ segir Gestur. Hann hafi búið Gestur segist hafa lagt mjög mikla vinnu í skrif handritsins að Tríói. Hann hafi fengið vilyrði frá RÚV um kaup á þáttunum fyrir um ári síðan en niðurskurður þar á bæ hafi sett strik í reikninginn. Þá lét hann þýða tvo þætti Tríós á ensku, eftir að hafa hitt dönsku leikkonuna Iben Hjejle, unnustu Klovn-leikarans Caspers Christensen. Christensen fékk handritið í hendur og segir Gestur að honum hafi þótt það magnað og haft áhuga á að framleiða þættina í Danmörku. Ekki varð þó af því, RÚV hafði samband aftur og spurði hvort hægt væri að framleiða þættina fyrir lítinn pening. Gestur var til í slaginn. Auk Bergs Þórs Ingólfssonar leika í þáttunum Sveinn Þ. Geirsson, Þórhallur Sverrisson, Tinna Hrafnsdóttir, Steinn Ármann Magnússon og María Guðmundsdóttir. KLOVN LEIKARAR GEFA GRÆNT LJÓS Casper var hrifinn Bergur Þór Ingólfsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.