Morgunblaðið - 11.11.2010, Page 40
Reuters
Sjóaður De Niro hefur túlkað
eftirminnilegar persónur.
Hinn margreyndi, bandaríski
kvikmyndaleikari Robert De
Niro mun fá verðlaun kennd
við Cecil B. DeMille fyrir ævi-
starf sitt á næstu Golden
Globe verðlaunum en þau
verða afhent 16. janúar á
næsta ári. De Niro er orðinn
67 ára og á að baki 81 kvik-
mynd, skv. kvikmyndavefnum
Internet Movie Database.
Kollegi hans Kevin Spacey til-
kynnti verðlaunin í vikunni og
sagði De Niro meðal stórkost-
legustu leikara allra tíma.
Meðal þeirra sem hafa hlotið
Cecil B. DeMille verðlaunin
eru Al Pacino og leikstjór-
arnir Martin Scorsese og Ste-
ven Spielberg. Spacey sagði
De Niro öðrum leikurum fyr-
irmynd, hann hefði á ferli sín-
um verið óhræddur við að um-
breyta sér, bæði líkamlega og
andlega. Verðlaunin hlýtur
De Niro ekki aðeins fyrir leik
heldur einnig leikstjórn og
kvikmyndaframleiðslu. Kynn-
ir á Golden Globe verður
Ricky Gervais.
DeNiro heiðraður á Golden Globe
Erfiður Rubik-kubburinn er
býsna erfið þraut að leysa.
Kvikmyndavefurinn Em-
pire segir frá því að hugs-
anlega verði gerð kvikmynd
um Rubik-kubbinn. Kubb
þennan ættu margir að
kannast við, afar erfið
þraut sem felst í því að ná
einum lit á allar hliðar
kubbsins. Kubbinn bjó Erno
nokkur Rubik til, ungversk-
ur skúlptúristi og prófessor
í byggingarlist árið 1974.
Þetta virðist í fyrstu ekki
krassandi efni í bíómynd en
það þótti ekki heldur stofn-
un samskiptasíðunnar Fa-
cebook en þó varð úr marg-
lofuð kvikmynd.
Empire bendir á að kubb-
urinn hafi komið við sögu í
mörgum kvikmyndum, þó
hann hafi ekki beinlínis ver-
ið aðalumfjöllunarefnið. Má
þar nefna Dude, Where’s
My Car? og The Pursuit of
Happiness, WALL-E og
Duplicity. Og ekki þykir
ólíklegt að Hollywood-
stjarna leiki í myndinni um
kubbinn góða.
Kvikmynd um Rubik-kubbinn?
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2010
BRUCE WILLIS,
MORGAN FREEMAN,
JOHN MALKOVICH
OG HELEN MIRREN
ERU STÓRKOSTLEG
Í ÞESSARI ÓTRÚLEGA
SKEMMTILEGU GRÍN
HASARMYND
HHHH
- HOLLYWOOD REPORTER
HHHH
- MOVIELINE
HHHH
- NEW YORK POST
BRÁÐSKEMMTILEG ÞRÍVÍDDAR TEIKNI-
MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI OG AKUREYRISÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG SELFOSSI
„SPRENG-
HLÆGILEG...
FYNDNASTA
MYND SÍÐAN
THE HANGOVER“
- JONATHAN HEAF – GQ
„DREPFYNDINN“
- TOTAL FILM
GÓI
JÓHANNES HAUKUR
BESTA SKEMMTUNIN
DUEDATE kl.5:50-8-10:20 10 ÓRÓI kl.8 -10:20 10
DUEDATE kl.8 -10:20 VIP THETOWN kl.8 16
RED kl.8 -10:30 12 THETOWN kl.5:30 VIP
ÆVINTÝRISAMMA-3D m. ísl. tali kl.63D L FURRYVENGEANCE kl.6 L
LETMEIN kl.8 -10:30 16 DINNERFORSCHMUCKS kl.10:30 7
KONUNGSRÍKIUGLANNA-3D kl.5:503D m. ísl. tali 7 ALGJÖRSVEPPIOG... kl.6 L
/ ÁLFABAKKA
ÆVINTÝRI SAMMA - 3D ísl. tal kl. 3:553D - 6:153D L
DUE DATE kl. 4 - 5:45 - 8 - 8:20 - 10:15 10
RED kl. 3:45 - 6 - 8:05 - 10:30 12
KONUNGSRÍKI UGLANNA - 3D ísl. tal kl. 43D 7
ÓRÓI kl. 8 7
THE SWITCH kl. 6 - 10:20 10
LET ME IN kl. 10:40 L
/ EGILSHÖLL
DUE DATE kl. 8 - 10:20 10
SOCIAL NETWORK kl. 8 7
THE AMERICAN kl. 10:20 L
/ KEFLAVÍK
ROBERT
DOWNEY JR.
OG ZACH
GALIFIANAKIS
EIGA EFTIR AÐ
FÁ ÞIG TIL AÐ
GRENJA ÚR
HLÁTRI
FRÁ TODD PHILIPS, LEIKSTJÓRA THE HANGOVER
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Söngvakeppni Sjónvarpsins hefst
laugardaginn 15. janúar 2011. Aug-
lýst var eftir lögum í keppnina og
bárust alls 174 lög. Valnefnd valdi
fimmtán lög og eru þar ýmsir þekkt-
ir menn einsog Jógvan Hansen,
Ingvi Þór Kormáksson (smásagna-
höfundur) og Orri Harðarson. En
við spjölluðum við nokkra þeirra.
Pétur Örn Guðmundsson
Pétur Örn er einn lagahöfunda í
keppninni í ár. Pétur Örn hefur ver-
ið lengi í tónlistarbransanum. Hann
var hér á árum áður mikið í söng-
leikjum en stofnaði hljómsveitina
Buff ásamt félögum sínum árið 1999.
Einna þekktastur er hann fyrir að
hafa verið með í Dúndurfréttum sem
hafa haldið marga dúndurtónleika,
meðal annars með Sinfóníunni árið
2007. En Evróvisjón þekkir hann
vel, því hann hefur sungið bakradd-
irnar í sigurlaginu í fjögur skipti á
síðustu tíu árum. En þetta er í fyrsta
skiptið sem hann er með sitt eigið
lag í keppninni. „Mig hefur lengi
langað til að senda lög í keppnina en
það hefur ekki orðið af því fyrr en
núna,“ segir Pétur Örn. „Ég sendi
þessi tvö lög inn í einhverju bríaríi
núna. Annars veit ég ekkert hvaða
orð þetta bríarí er, fyndið að maður
skuli nota það?“ Aðspurður hvort
hann sé með vinningslagið í ár segir
hann að hann sé ánægður með lögin
sem hann sendi inn. „En maður veit
aldrei hvernig þetta fer, en það er
gaman að af þessum 170 lögum sem
voru send inn, hafi bæði lögin mín
komist í 15 laga úrtakið,“ segir Pét-
ur Örn.
Sigurjón Brink
Sigurjón var í fyrra með lagið
Waterslide sem fór í úrslitaþáttinn.
Hann hefur starfað í tónlistarbrans-
anum allt sitt líf. Sigurjón byrjaði í
hljómsveitinni In bloom ungur að ár-
um og var síðan í Bítlaprógramminu
með Jóhannesi Ásbjörnssyni eða Jóa
á Hamborgarafabrikkunni. Að-
spurður hvað hafi komið til að hann
ákvað að taka þátt segir hann að
konan hans, Þórunn Erla Clausen,
hafi sagt honum að drulla sér inn í
skúr og semja eitthvað. „Við gerðum
þetta bara á síðustu stundu, ég
þarna að semja lagið inni í bílskúr og
hún inni í eldhúsi að semja textann.
Svo náðum við að koma þessu inn
bara korteri fyrir lokun,“ segir Sig-
urjón. Spurður hvort þetta sé týp-
ískt Evróvisjón-lag hjá honum segir
hann að það sé ekki til neitt lengur
sem heiti týpískt Evróvisjón-lag.
„Lögin sem hafa verið að vinna und-
anfarin ár eru ekki í neinum einum
anda. Ég hef aldrei sett mig í neinar
stellingar þegar ég er að semja, ég
leyfi þessu bara að koma eins og
þetta kemur. En ég held að lagið
henti keppninni, ef ég ætti að lýsa
því þá myndi ég kalla það pínu
kántrí-skotið, hresst og skemmtilegt
lag. En svo getur það breyst núna á
næstunni þegar maður sest niður og
vinnur lagið. Það er skemmtilegt
tímabil framundan. Janúar er yf-
irleitt frekar dauður tími fyrir tón-
listarmenn þannig að það er gott að
hafa eitthvað fyrir stafni á þeim
tíma. Allir eiga einhverskonar ástar-
haturs-samband við Evróvisjón-
keppnina. Jafnvel þeir sem þola
hana ekki horfa á hana og hafa skoð-
un á henni,“ segir Sigurjón.
Tómas Hermannsson
Tómas lagahöfundur er þekktari
sem útgefandi en hann á bókaútgáf-
una Sögur sem hefur ofan á útgáfu
þekktra höfunda gefið út hljóm-
sveitir einsog Mannakorn, Ívar
Bjarklind og Jón Ólafsson. „Ég hef
samt fimm sinnum áður átt lag í
keppninni,“ segir Tómas. „En ég
geri nú meira af því að gefa út tónlist
en að semja hana. Þetta er meira
hobbý hjá mér. Mér finnst þetta
rosalega gaman og held alltaf stór
Evróvisjón-partí.
En í þetta sinn náði ég að draga
snillinginn Orra Harðarson í að
hjálpa mér í að klára þetta lag. Lag-
ið er búið að hljóma í huga mér í
mörg ár. Orri útsetti það og kláraði
það. En hann gerði svo mikið fyrir
lagið að mér fannst ótækt að hann
væri ekki nefndur meðhöfundur.
Varðandi framhaldið þá erum við
núna búnir að fá Rakel Mjöll Leifs-
dóttur til liðs við okkur en hún er í
hljómsveit sem heitir Útidúr. Hún
ætlar að syngja með okkur lagið. Við
erum í góðum fíling og ætlum að
halda frábært Evróvisjón-partí og
svo kemur bara í ljós hvort aðrir fíla
lagið. Evróvisjón er bara leikur,
skemmtilegasti leikur sem til er þar
sem öll fjölskyldan kemur saman til
að kjósa besta lagið. Þetta er frábær
veisla,“ segir Tómas.
Morgunblaðið/Eggert
Búið að velja 15
bestu lögin í
söngvakeppnina
Í janúar hefst Eurovision veislan
Pétur Örn Guðmundsson Sigurjón Brink
Euroveisla Páll Óskar
er okkar þekktasta
Eurovision hetja.