Morgunblaðið - 11.11.2010, Síða 41
Helgi Valur & The Shemales -
Electric Ladyboy Land
bbbnn
Helgi Valur Ásgeirsson á að
baki giska fjölskrúðugan feril.
Hann kvaddi sér fyrst hljóðs árið
2005 með Dem-
ise of Faith,
sem innihélt
sakleysislega
söngvaskálda-
tónlist í ætt við
Damien Rice.
Hann átti svo
eftir að venda kvæði sínu heldur
betur í kross, fékkst við rapp-
listina og í fyrra kom út platan
The Black Man is God, The White
Man is the Devil, þar sem mátti
heyra einslags samslátt rapps og
trúbadúramennsku („trapp“?).
Og enn kveður við nýjan tón.
Hér er á ferðinni nokkuð tor-
kennilegt popp; rækilega útsett og
með feitum hljómi, með strengjum
og brassi og öllum græjum. En
undir niðri slær þó hjarta trúbad-
úrsins. Torkennilegt sagði ég, og
þá í jákvæðri merkingu, sumt hér
minnir á Jónas Sigurðsson en
undirtónninn er þó dekkri. Það
sem dregur plötuna niður er að
þrátt fyrir oft og tíðum glúrnar
hugmyndir og skemmtilega leiki
með brass, strengi og útsetningar
eru sum lögin fullflöt og lítt eftir-
minnileg („Smoke the Past Away“
t.d.) og sumt af æringjasprellinu
sem er potað inn virkar ekki.
Hæsta fluginu nær Helgi svo í
lokalaginu, „Wet Thick Sensual
Lips“, skotheldur smellur sem
ætti að eiga greiða leið í útvörp
landsmanna ef eitthvert réttlæti
er til.
Friðrik Dór - Allt sem þú átt
bbbbm
Ég er að reyna að átta mig á
þeim öflum sem valda því að ég
fíla þessa plötu Friðriks Dórs í
ræmur. Örvænting manns á fer-
tugsaldri sem vill fylgjast með?
(nei!). Naskt skynbragð Friðriks á
hvað virkar og hvað virkar ekki í
alvöru poppi (mjög líklega). Eða
bara þessi ferski andvari sem ég
finn við það að
heyra eitthvað
algerlega nýtt
á íslenskum
tónlistarmark-
aði; eitthvað
sem er á skjön
við allt þetta
gítarpopp, harðkjarna og arinelda-
popp sem maður er vanur (ég held
að svarið sé komið hér).
Ég tek ofan fyrir Friðriki Dór
fyrir að gefa út útúrtanað,
hnakkavænt gæða „ruslpopp“ sem
er auk þess „átótjúnað“ í drasl.
Án þess að blikna. Það er ekki
vottur af kaldhæðni í gangi hérna,
og það svínvirkar. Lagatitlarnir
eru hæfilega heilalausir og text-
arnir auðvitað sömuleiðis. En mel-
ódíurnar krækja í mann, hljóð-
vinnsla er öll hin besta og þetta
skammlausa „attititjúd“ sem Frið-
rik býr yfir er heillandi. Hippster-
arnir geta þóst fíla þetta af því að
þetta fer í heilhring (í þeirra
heimi) en þeir sem eru ekki jafn
uppteknir af slíku geta fílað þetta
fyrir það sem þetta er. Skiptir
engu, platan gengur upp í báðum
tilfellum. Svo ég vitni í sjálft
skáldið: „Hann er alveg með’etta!“
Gildran - Vorkvöld
bbbmn
Við endaðan níunda áratuginn
var mosfellska rokksveitin Gildran
hiklaust með allra bestu rokk-
sveitum lands-
ins. Geysiþétt,
vopnuð ástríðu-
fullu og „stóru“
rokki sem
minnti á köfl-
um á U2 og var
skýrasta birt-
ingarmynd þess á hinni stórgóðu
Hugarfóstur frá 1988, sem var
önnur plata sveitarinnar.
Hér er á ferðinni upptaka frá 30
ára afmælistónleikum sveitarinnar
sem haldnir voru í vor, í Hlégarði
að sjálfsögðu. Bústinn pakki, með
20 lögum sem endast í alls 78 mín-
útur og fara Gildrumenn yfir allan
ferilinn. Byrja t.a.m. á titillagi
Huldumanna, fyrstu plötu sveit-
arinnar.
Elsta efni sveitarinnar kemur
langbest út, lög eins og „Snjór“,
„Mærin“ og „Ævisagan“ eru sí-
gild. Haganlega samin og drama-
tísk rokklög með innihaldsríkum
textum bornum uppi af tjáningar-
ríkri og sterkri söngrödd Birgis
Haraldssonar. Frábær rokksöngv-
ari þar á ferð.
Þegar líða fór á ferilinn hristu
Gildrumenn alvarleikann aðeins af
sér og slettu meira úr klaufunum,
sem fer þeim svona og svona verð
ég að viðurkenna og lagatitlar eins
og „Steggjastuð“ og „Chicas“
segja sína sögu. En fyrst og síðast
er þetta vel til fallinn minnisvarði
um frábæra sveit og góður andi
tónleikanna svífur fallega um
hljóðrásirnar.
Fyrir Gildruóða má geta þess
að í lok plötunnar er að finna nýja
hljóðritun, „Blátt blátt“.
GRM - MS
bbbmn
Megas. Rúnar Þór. Gylfi Æg-
isson. Manni féllust hálfpartinn
hendur þegar maður las að þessir
þrír meistarar,
sem hafa allir
sem einn siglt
glæsilega á
milli skers og
báru á skraut-
legri vegferð
um lífið, væru
að leggja sam-
an í plötu. Eitt var á hreinu, út-
koman gæti bara verið á tvo vegu:
Annað hvort yrði þetta argasta
hörmung eða argasta snilld. Hún
datt svo í seinni flokkinn, þó að
þetta sé víðs fjarri því að vera
eitthvert tímamótaverk. Fyrst og
síðast er þetta skemmtileg plata,
þessir þrír meistarar tækla sína
lagabálka í sameiningu, skiptast á
línum og forsöng og það er auð-
heyranlegt að það var gaman að
gera þessa plötu. Maður sér þá
fyrir sér skellihlæjandi á milli
upptakna.
Að heyra Gylfa opna lag Megas-
ar „Spáðu í mig“ er t.a.m. unun á
að hlýða. Og ekki er síðra að
heyra Megas syngja lag Gylfa,
„Út á gólfið“ með sínu lagi.
Óborganlegt er orð sem er ekki
nógu sterkt. Megas lyftir „Minn-
ingu um mann“ upp á annað plan
með sinni mögnuðu rödd.
Bræðurnir Albert og Magnús
Ásvaldssynir, sem eiga rætur í
þungarokki, sjá svo til þess að
undirspilið er rífandi rokkað, í
takt við stemninguna. Stundum
borgar sig bara að kýla á það.
Cliff Clavin -
The Thiefs’s Manual
bbbmn
Cliff Clavin er að verða fjögurra
ára gömul sveit en þetta er henn-
ar fyrsta plata. Skemmst frá að
segja er þetta tilkomumikill frum-
burður rokksveitar, fullt af hlutum
á sínum stað sem gefa til kynna
að bandið sé vel þétt og saman-
hrist ef svo mætti segja.
Tónlist sveitarinnar er ný-
bylgjurokk af harðari gerðinni;
melódískt þó og eyrnavænt og
mætti jafnvel sjá fyrir sér yngri
og hvassari Diktu. Stíllega séð er
víða sótt fanga;
bæði í breskt
rokk (Editors,
Placebo) og
bandarískt
(það er nettur
síðgruggs-
keimur af
þessu og sömu-
leiðis nýþungarokks, Deftones
koma t.d. upp í hugann). En að
þessu öllu sögðu ná Cliffarar þó
að knýja fram sinn séríslenska
tón, það er eitthvað sem erfitt er
að útskýra á blaði, það bara er
einhvern veginn.
Spilamennskan er eiturþétt og
söngur prýðilegur. Gagnrýnis-
punktar sem má tiltaka eru þeir
að lögin verða fulleinsleit er á líð-
ur. Í þessu bandi er auðheyr-
anlega máttur og gróska til að
taka þetta upp á næsta stig. En
slíku er einfaldlega ekki að heilsa
á fyrstu plötum sveita, svona oft-
ast nær, þar sem menn eru enn að
slípa sig til.
En svo ég dragi þetta saman,
skotheldur frumburður frá einkar
efnilegri rokksveit sem hefur allt
að vinna og engu að tapa.
Virðing „Ég tek ofan fyrir Friðriki Dór fyrir að gefa út útúrtanað, hnakka-
vænt gæða „ruslpopp“ sem er auk þess „átótjúnað“ í drasl,“ segir Arnar.
Íslenskar plötur
Arnar Eggert Thoroddsen | arnart@mbl.is
Hér getur að líta gagnrýni á
nýútkomnar íslenskar plötur
af hinu og þessu tagi
HHHH
T.V. - KVIKMYNDIR.IS
HHHHH
- Leonard Maltin
HHHH
- Boxoffice Magazine
HHHH
- Wall Street Journal
SÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLL SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI
HHHH
- SJÁÐU/STÖÐ 2
HHHH
- H.S. MBL
HHHH
- R.E. FBL
HHHH
- T.V. - KVIKMYNDIR.IS
HHHH
- Ó.H.T. – RÁS2
SÝND Í EGILSHÖLL OG KRINGLUNNI
7
Steve Carrell og
Paul Rudd fara á
kostum ásamt
Zach Galifianakis
sem sló eftirminni-
lega í gegn
í “The Hangover”
SÝND Í ÁLFABAKKA
14.000
gestir
SÝND MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI7
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG KRINGLUNNI
Stephen King segir:
„Það gildir einu hvort að
þú sért unglingur eða
kvikmyndaáhugamaður
á fimmtugsaldri, þú
verður dolfallinn.”.
KODI
SMIT-MCPHEE
CHLOE GRACE
MORETZ
RICHARD
JENKINSSÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLL
T H E C I R C L E T O U R
S Ý N D I R Í D I G I T A L G Æ Ð U M
Í S A M B Í Ó U N U M K R I N G L U N N I
Í K V Ö L D K L . 2 0 . 0 0
M I Ð A S A L A Á
H T T P : / / M I D I . I S / B I O / 1 0 / 2 7 8 9
Aðeins þessi eina sýning
BONJOVI-THECIRCLETOUR Tónleikar kl.8 L
DUEDATE kl. 8 - 10:20 10
RED kl. 10:30 12
ÆVINTÝRISAMMA-3D ísl. tal kl. 63D L
THESWITCH kl. 5:50 - 8 10
LEGENDOFTHEGUARDIANS enskt tal kl.5:503D 7
THETOWN kl. 10:20 16
/ KRINGLUNNI
DUE DATE kl.8 -10:20 10
RED kl.8 -10:20 12
/ SELFOSSI
ÆVINTÝRI SAMMA ísl. tal kl. 63D 7
DUE DATE kl. 8 - 10:10 7
RED Síðustu sýningar kl. 8 - 10:10 12
ALGJÖR SVEPPI OG... kl. 6 L
/ AKUREYRI
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2010