Morgunblaðið - 11.11.2010, Page 44
Mikil eftirvænting ríkir
meðal stuðningsmanna
þýska handknattleiksliðsins
TV Emsdetten vegna komu
Sigfúsar Sigurðssonar til
þess. Miðasala á næsta
heimaleik hefur heldur bet-
ur tekið kipp og hafa um
2.000 manns tryggt sér
aðgang að leiknum.
„Menn bíða spenntir eft-
ir að sjá tröllið,“ segir
Patrekur Jóhannesson,
þjálfari Emsdetten. 1
Sigfús laðar að
áhorfendur
Sigurganga Hamars í úrvalsdeild
kvenna í körfuknattleik heldur áfram. Í
gær vann Hamarsliðið Keflvíkinga í
Keflavík í miklum baráttuleik tveggja
efstu liðanna en hvorugt lið hafði tap-
að leik þegar kom að viðureigninni.
Haukar lentu í basli með neðsta lið
deildarinnar, Fjölni, KR vann Njarðvík
og Snæfell átti ekki í teljandi vandræð-
um með Grindavík á heimavelli. »4
Hamar sótti sigur í
greipar Keflvíkinga
María Ben Erlingsdóttir, landsliðs-
kona í körfuknattleik, fékk
sérstaka heiðurstilnefn-
ingu á dögunum fyrir
leik sinn með UTPA-
skólanum í Texas.
Viðurkenningin
ætti að vera góð
auglýsing fyrir
Maríu sem er á
sínu lokaári í
skólanum. „Ég
stefni á atvinnu-
mennsku í Evrópu
að þessu tímabili
loknu þannig að
það er frábært að
fá þessa viður-
kenningu,“ sagði
María í viðtali við
Morgunblaðið. »3
María Ben vekur athygli
í boltanum vestanhafs
FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 315. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2218
1. Brjóstin blekktu neytanda
2. Segir að auðmaðurinn hafi gefið
3. Þórhalli Jósepssyni sagt upp
4. Myrtu son sinn og hentu í brunn
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Sjónvarpið sýnir nýja, íslenska
gamanþætti, Tríó, í mars og febrúar á
næsta ári. Fjalla þeir um fertugan
blaðbera sem býr hjá móður sinni en
aðalleikarinn er Bergur Þór Ingólfs-
son. »38
Morgunblaðið/Kristinn
Nýir gamanþættir
á RÚV á næsta ári
Eyþór Ingi
Gunnlaugsson
söngvari og
hljómsveitin Deep
Purple Tribute
halda í kvöld tón-
leika á skemmti-
staðnum Sódómu
Reykjavík og
verða þar fluttir
margir þekktir slagarar þungarokks-
sveitarinnar Deep Purple. Tónleikarn-
ir hefjast kl. 22 og fer miðasala fram
við dyrnar.
Deep Purple Tribute
og Eyþór Ingi
Danski dansarinn Sonny Fredie-
Pedersen verður með danssmiðju í
líkamsræktarstöðinni World Class í
Laugardal, 12. og 13. nóvember nk.
Smiðjan hefst kl. 18.30 fyrri
daginn og kl. 13 þann seinni.
Pedersen rekur
dansstúdíó í
heimalandi
sínu og
mun kenna
hipphopp
og house
dans.
Dansað með Sonny
Fredie-Pedersen
Á föstudag Norðaustan átt 8-15 m/s og víða dálítil él, einkum norðanlands, en yfirleitt
þurrt og bjart um landið suðvestanvert. Frost 0 til 5 stig.
Á laugardag Minnkandi norðanátt og dálítil él norðantil en yfirleitt bjart sunnantil. Kóln-
andi veður.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 13-18, en 18-23 suðaustanlands. Él norðan- og aust-
antil en bjart með köflum á Suður- og Suðvesturlandi. Frost 0 til 7 stig.
VEÐURÍÞRÓTTIR
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Náttúrufræðistofnun Íslands hefur
staðið í stórræðum að undanförnu.
Þessi 121 árs gamla stofnun flutti
fyrir skömmu í nýtt húsnæði, það
fyrsta sem sérstaklega er sniðið að
þörfum hennar. Þar með lauk hálfr-
ar aldar bið stofnunarinnar eftir var-
anlegu húsnæði, en hún hefur verið í
bráðabirgðahúsnæði fram til þessa.
Nýja húsið er um 3.500 fermetrar
að stærð. Hluti starfseminnar fer
fram á Akureyri og þar er þunga-
miðjan í plönturannsóknum stofn-
unarinnar.
Sjávarsvampar í Danaveldi
Að sögn Jóns Gunnars Ottós-
sonar, forstjóra Náttúrufræðistofn-
unar, fela flutningarnir í sér gjör-
byltingu í rannsóknum, fræðslu,
fræðilegu samstarfi og varðveislu
gripa.
Flutningarnir voru nokkuð um-
fangsmiklir, enda eru yfir fimm
milljónir gripa í eigu stofnunarinnar.
Nokkrir af mununum eru ekki enn
komnir á nýja staðinn, til dæmis er
veglegt safn íslenskra sjávarsvampa
enn í vörslu danska náttúrugripa-
safnsins. „Við höfum þurft að geyma
þá þarna úti vegna þess að við höfum
ekki haft aðstöðu til að geyma þá
hérna heima. En nú breytist það,“
sagði Jón Gunnar.
Sérstakur hópur
Starfsemi stofnunarinnar er
fjölbreytt, en meginhlutverkið
er að skrásetja náttúru Ís-
lands, vakta dýra- og
plöntustofna og veita
ráðgjöf, til dæmis
varðandi virkjana-
framkvæmdir og
veiðar á dýrum.
Einnig mælir
Náttúru-
fræðistofnun
magn frjókorna í lofti.
„Starfsmannahópurinn er fremur
sérstakur,“ segir Jón Gunnar. „Önn-
ur eins samsetning finnst líklega
ekki á neinum öðrum vinnustað hér
á landi. Hér vinna skordýrafræð-
ingur, kortagerðarfólk, hamskerar,
sveppafræðingar og fuglafræðingar,
svo fátt eitt sé nefnt.“
Í nokkra áratugi starfrækti Nátt-
úrufræðistofnun Íslands Náttúru-
gripasafnið við Hlemm, þar sem
berja mátti augum ýmsar gersemar.
Safninu var lokað fyrir nokkrum ár-
um og frá 2007 hefur sýningarþátt-
urinn verið í höndum Náttúruminja-
safns. Það er ekki enn komið á
laggirnar og ekkert hefur verið fast-
sett varðandi staðsetningu.
MNáttúrufræðistofnun er »14
Sjávarsvamparnir heim
Fimm milljónir
gripa fluttar
í Heiðmörk
Morgunblaðið/Eggert
Rannsóknir Á Náttúrufræðistofnun eru meðal annars gerðar rannsóknir á plöntum og dýrum.
Náttúrufræðistofnun Ís-
lands rekur rætur sínar til
ársins 1889 þegar Hið ís-
lenska náttúrufræðifélag
var stofnað. Fyrsti formað-
ur félagsins var Benedikt
Gröndal.
Starfsemi félagsins er
enn í fullum blóma, en
tilgangur þess er að
efla íslensk nátt-
úruvísindi,
glæða áhuga
og auka þekkingu manna á öllu
sem snertir náttúrufræði.
Starfsemi Náttúrufræðistofn-
unar er deildaskipt í samræmi
við lög. Upplýsingadeild sér um
vörslu og miðlun þekkingar og
fræðslu- og vistfræðideild sinnir
rannsóknum og vöktun á teg-
undum dýra og plantna. Safna-
og flokkunarfræðideild hefur
umsjón með vísindasöfnum
stofnunarinnar og tölvuskrán-
ingu.
Fjölbreytt starfsemi
HIÐ ÍSLENSKA NÁTTÚRUFRÆÐIFÉLAG VAR UPPHAFIÐ