Morgunblaðið - 09.12.2010, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 9. D E S E M B E R 2 0 1 0
Stofnað 1913 288. tölublað 98. árgangur
–– Meira fyrir lesendur
fylgir
með
Morgu
nblaði
nu í da
g
Allt um jólasveinana
á www.jolamjolk.is
dagar til jóla
15
TÓNLEIKAR
APPARATSINS
Í KVÖLD
SKULDIR
OG HÝR
KISI
SJARMATRÖLL
SELUR
BARNAFÖT
VIÐSKIPTABLAÐIÐ
OG FINNUR.IS Í BÍLSKÚR OG Á VEF 11VIÐTAL VIÐ ÚLF ELDJÁRN 34
Agnes Bragadóttir
Helgi Bjarnason
Stærsta ágreiningsmálið í Icesave-samningunum
er krafa Breta um að fá hlutdeild í vöxtum og betri
heimtum eigna gamla Landsbankans, samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins. Íslenska samninga-
nefndin hefur ekki fallist á þessa kröfu. Mun vera
tekist á um 15-20 milljarða króna í því efni.
Íslenska samninganefndin fór í gær til viðræðna
við Breta og Hollendinga í London með það að
markmiði, samkvæmt heimildum blaðsins, að
nefndarmenn gætu sett stafi sína undir samnings-
drög sem væntanlega yrðu nefnd viljayfirlýsing.
Seint í gærkvöldi var ekki komin niðurstaða og ekki
Vilja hlut í betri heimtum
Icesave-samninganefndin fór út með það markmið að
setja stafi sína undir drög að samningi um lok málsins
afráðið hvernig fundarhöldum yrði háttað í dag.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sagði
á Alþingi í gær að samninganefndin væri að reyna
að komast að niðurstöðu um það hvert gæti orðið
efnisinntak samnings. Hann yrði þó ekki undirrit-
aður á því stigi málsins. „Væntanlega yrði byrjað á
því að samninganefndin kynnti formönnum stjórn-
málaflokkanna þá niðurstöðu sem hún hefði komist
að, eða þann mögulega samning sem kynni þá að
vera hægt að gera,“ sagði hann. Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokks, segir
eina umboð samninganefndarinnar að kanna hvort
komið er nýtt tilboð frá Bretum og Hollendinum.
M Icesave »4
Fólkið sem mætti á jólahátíð fatlaðra í gær komst heldur betur í jólaskap og söng fullum hálsi um jólahjól með
Stefáni Hilmarssyni en hann var einn margra tónlistarmanna sem komu fram á hátíðinni. Þetta var í 28. sinn sem
hátíðin var haldin en tónlistarmaðurinn og strætisvagnastjórinn André Bachmann stendur fyrir henni.
Morgunblaðið/Kristinn
Jólahjólastuð á jólahátíð fatlaðra
Engar fjárveitingar liggja fyrir um
endurgerð Skúlahúss eða til annarra
stórframkvæmda á Alþingisreitnum,
en Skúlahús var um helgina flutt úr
Vonarstræti í Kirkjustræti. Brýnast
er talið að gera endurbætur á
Skjaldbreið við Kirkjustræti 8. Sig-
urður Einarsson hjá Batteríinu
Arkitektum segist vona að flutning-
urinn á Skúlahúsi „veki fólk til um-
hugsunar um götumynd Kirkju-
strætis og að aumingja Skjaldbreið
fái þær fjárveitingar sem hún á skil-
ið“. Áætlað er að Alþingi greiði 152
milljónir í húsaleigu 2011. »16
„Aumingja
Skjaldbreið“
Morgunblaðið/Eggert
Kirkjustræti Götumyndin hefur
breyst mikið á síðustu árum.
Umferð á höfuðborgarsvæðinu
dróst saman um 4,5% á milli ár-
anna 2008 og 2010 samkvæmt
nýjum mælingum Vegagerðar-
innar á þremur stöðum á höf-
uðborgarsvæðinu. Umferð um
hringveginn hefur minnkað enn
meira og er nú svipuð og hún var
2005.
Verð á bensíni er nú í hæstu
hæðum og að óbreyttu útsöluverði stefnir í að það hækki enn upp úr ára-
mótum þegar gjöld á bensín og dísilolíu hækka. Í fjárlagafrumvarpinu
fyrir árið 2011 er gert ráð fyrir að sala á bensíni aukist um 3,2% og á
dísilolíu um 5%. Aukin sala og hækkun gjalda afli aukinna tekna upp á
1,6 milljarða. Framkvæmdastjóri FÍB segir engar forsendur fyrir því að
sala á eldsneyti aukist. »6
Umferð á höfuðborgar-
svæði minnkaði um 4,5%
Dýrt Hækkar og hækkar.
Reglur ÁTVR um
sölu „árstíðabundinna“
vörutegunda gera að
verkum að framleið-
endur jólabjórs eiga erf-
iðara með að stilla fram-
leiðslu sína af, þar sem
umframbirgðum er skil-
að aftur snemma í janúar. Þessar
birgðir sitja framleiðendur þá uppi
með, þar sem ekki má selja þær
öðruvísi en í gegnum ÁTVR. Ásókn
í jólabjór hefur aukist gríðarlega í
ár og er útlit fyrir að einhverjar
tegundir seljist upp á næstunni,
fyrr en undanfarin ár. »4
Eiga erfitt með að
stilla af framleiðsl-
una á jólabjór
Ekki er kveðið á um það í regluverki Evrópu-
sambandsins að ríkissjóður tiltekins lands
beri ábyrgð á því að nægilegt fé sé fyrir
hendi í tryggingasjóðum til að greiða lág-
markstryggingu innistæðna. Það mat Tobi-
asar Fuchs, fræðimanns við Evrópska há-
skólann í Þýskalandi, kemur fram í grein í
lagatímaritinu EWS.
Telur Fuchs að tilskipun Evrópusambands-
ins skuldbindi því ekki íslenska ríkið til að
aðstoða tryggingasjóð innistæðueigenda
með því að leggja honum til fé. kbl@mbl.is
Ríki ekki ábyrg
SKRIFAÐ UM INNISTÆÐUTRYGGINGAR
Á annað þúsund fjölskyldur fengu
úthlutað mat hjá Mæðrastyrksnefnd
og Fjölskylduhjálp Íslands í gær og
þurfti töluverður hópur frá að
hverfa.
Ásgerður Jóna Flosadóttir, for-
maður Fjölskylduhjálparinnar, segir
viðbúið að þeim sem leiti til samtak-
anna á nýju ári fjölgi enn. Fleiri stígi
nú fram og leiti sér aðstoðar sem
hafi reynt að þreyja þorrann hingað
til. »6
Morgunblaðið/Kristján
Undirbúningur Frá matarúthlutun
Mæðrastyrksnefndar í gær.
Yfir þúsund
matarúthlutanir