Morgunblaðið - 09.12.2010, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 09.12.2010, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2010 www.baendaferdir.is s: 570 2790 Sp ör eh f. A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R 10. - 26. mars 2011 Fararstjórar: Sigríður Margrét Guðmundsdóttir & Kjartan Ragnarsson Mexíkó dularfull og litskrúðug Mexíkó er sannkölluð paradís þeirra sem hafa áhuga á menningu, sögu, landi og þjóð. Við kynnumst mótsagnakenndri náttúru landsins, fjöllunum, regnskógunum og opnu sléttunum. Fáum einnig innsýn í lífið í landinu og skoðum þær fjölmörgu áhugaverðu minjar sem forfeðurnir létu eftir sig, m.a. hina fornu menningu Azteka og Maya. Skoðuð verða stórkostleg hof og píramídar, sem færa sönnur á háþróaða menningu innan stjörnufræði, stærðfræði og byggingarlistar. Sólarpíramídinn og Tunglpíramídinn verða skoðaðir, áhugaverð söfn, hið 200 ára gamla tré, Tule, farið í bátsferð eftir Sumidero gljúfrinu og þorp indíána heimsótt. Dvalið fyrstu næturnar í Mexíkóborg og þaðan haldið til Tequesquitengo, áfram til Oaxaca, Tuxtla og San Cristóbal de la Casas, þar sem einmitt fararstjórar ferðarinnar bjuggu. Þar settust nýlenduherrar að og þar búa Maya indíánar enn í dag í fjallshlíðunum allt um kring. Ferðin heldur áfram til Palenque, Chichen Itzá og Merida þar sem minjar hinnar fornu borgar Maya verða skoðaðar. Síðasti áfangastaður okkar er borgin Cancun og gefst þar tækifæri til að slappa aðeins af á glæsilegum stað áður en haldið er heim á leið. Kynningarfundur verður haldinn 9. desember kl. 20:00 í Síðumúla 2, 2. hæð. FRÉTTASKÝRING Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is Nokkur munur er á milli landshluta hvað lesskilning, stærðfræðilæsi og læsi á náttúrufræði varðar, sam- kvæmt niðurstöðum PISA-rann- sóknarinnar, sem kynntar voru í vik- unni. Að sama skapi hefur þróunin verið nokkuð ólík frá því Ísland tók fyrst þátt í könnuninni árið 2000. Námsmatsstofnun sér um fram- kvæmd rannsóknarinnar hér á landi, en alls tóku 65 þjóðir þátt í henni nú. PISA er ætlað að meta lesskilning og læsi 15 ára nemenda í stærðfræði og náttúrufræði, með það fyrir aug- um að meta hvað bestu nemendur eru færir um og hvar úrbóta er mögulega þörf hjá þeim verr standa sig. Aukinn breytileiki milli skóla Í rannsókninni er Íslandi skipt upp í 9 landshluta, sem samsvara kjör- dæmaskiptingu landsins eins og hún var fram að síðustu breytingu. Þá urðu kjördæmin færri og stærri, sem torveldar samanburð milli ára. Samkvæmt niðurstöðum nýjustu könnunarinnar er hægt að skýra 18% af breytileika í lesskilningi íslenskra nemenda með því í hvaða skóla þeir eru. Þetta hlutfall hefur aukist tölu- vert frá árinu 2000, þegar það var 7%. Skýrsluhöfundar leggja áherslu á að með þessari þróun sé fylgst, þar sem ekki sé æskilegt að breytileikinn verði of mikill. Til þess ber jafnframt að líta að tölur af fjölmennustu svæð- unum eru áreiðanlegastar, þar sem þau eru ekki jafn næm fyrir breyt- ingum á milli árganga, eða „náttúru- legum breytileika,“ eins og skýrslu- höfundar komast að orði. Hvað lesskilning varðar hefur þró- unin á landsvísu verið jákvæð frá árinu 2006, eftir að honum hafði farið aftur frá árinu 2000. Breytingarnar eru óvíða miklar, en jákvæð umskipti á höfuðborgarsvæðinu vega þungt, þar sem 2⁄3 allra nemenda búa þar. Aðeins á Vestfjörðum og Norður- landi eystra dregur úr lesskilningi, en breytingin er afar lítil, og raunar ómarktæk. Breytingar tæpast marktækar Breytingar á milli kannana eru mest áberandi þegar horft er til stærðfræðilæsis. Á Suðurnesjum og Vestfjörðum hefur það minnkað samfellt frá árinu 2003. Í þessum landshlutum, auk Norðurlands eystra og á Austurlandi hefur stærð- fræðilæsi minnkað mest frá árinu 2006. Á landinu öllu var marktæk breyting til hins verra á árabilinu 2003 til 2006, en frá 2006 til 2009 er hún ekki marktæk. Þar vegur smá- vægileg framför í fjölmennustu landshlutunum, t.d. á höfuðborgar- svæðinu, upp á móti afturförinni sem orðið hefur sums staðar á landinu. Suðurnesin reka lestina Læsi í náttúrufræði var fyrst mæld árið 2006. Samanburður við þróun stærðfræðilæsis sýnir að þess- ar greinar virðast haldast nokkuð í hendur. Breytingar á landsvísu eru ekki stórvægilegar, en sýnilegust er afturförin á Vestfjörðum og Norður- landi eystra. Náttúrufræðilæsi er hins vegar áberandi minnst á Suð- urnesjum, en sá landshluti rekur einnig lestina í almennum lesskiln- ingi og stærðfræðilæsi. Skýrsluhöf- undar benda á það að þótt breytingar geti verið litlar sé vert að skoða nán- ar þau svæði þar sem þróunin er sú sama frá einu tímabili til annars. Slíkt geti varla verið tilviljun, og hvert tilvik fyrir sig þurfi að skoða. Þróun læsis ólík eftir landshlutum  Ákveðin umskipti hafa orðið milli kannana á læsi 15 ára grunnskólanema  Þróunin þó ólík eftir landshlutum  Viðvarandi neikvæð þróun í ákveðnum landshlutum gefur tilefni til frekari skoðunar Skilningur á stærðfræði eftir landshlutum 600 580 560 540 520 500 480 460 440 420 400 Reykjavík Nágrenni Reykjavíkur Suðurnes Vesturland Vestfirðir Norðurland vestra Norðurland eystra Austurland Suðurland 2000 2003 2006 2009 52 0 52 2 50 4 5 15 51 5 52 0 50 5 51 1 49 6 50 5 48 6 4 81 50 4 50 1 50 2 50 0 50 0 52 3 51 1 4 86 52 8 51 8 52 4 51 5 51 4 51 2 51 9 49 5 52 4 52 3 49 5 50 3 50 7 49 1 50 0 50 7 PISA er umfangsmesta rann- sókn heims á lestrarfærni sem gerð hefur verið. Verkefni og spurningar í könnuninni eru þróaðar af sérfræðingum í þátt- tökuríkjunum, og þau lögð fyrir 15 ára nemendur. Rannsóknin er ekki einungis gagnleg til þess að bera lönd saman, heldur einnig hvernig staða mála innan lands breytist með tímanum, og eins innbyrðis þróun milli lands- hluta. Á Íslandi hefur neikvæð þróun framan af sl. áratug nú snúist við um mestallt land. Gagnlegur samanburður PISA-RANNSÓKNIN Guðni Einarsson gudni@mbl.is Séra Gísli Jónasson, prófastur og sóknarprestur í Breiðholtskirkju, óttast afleiðingarnar fyrir barna- starf kirkjunnar verði tillögur mann- réttindaráðs Reykjavíkur að reglum um samskipti leik- og grunnskóla og frístundaheimila borgarinnar við trúfélög samþykktar. Gísli segir að fyrir nokkrum árum hafi verið ákveðið að mynda samfelldan skóla- dag og beina tómstundastarfi inn á þann tíma. Hann telur að með tillög- unum eigi að útiloka tengingu kirkjustarfsins og starfsins í frí- stundaheimilum og skólum. Börn sótt í frístundaheimili „Hér í Breiðholtskirkju erum við með starf fyrir 6-9 ára börn. Starfs- maður fer í frístundaheimilið Bakka- sel og sækir börn sem vilja taka þátt í þessu starfi. Börnin gera það öll með skriflegu leyfi foreldra. For- eldrarnir sækja svo börnin í kirkj- una,“ sagði séra Gísli. Hann sagði að mannréttindaráð vilji afnema þessi beinu tengsl við kirkjuna. Frístundaheimilið Bakkasel heyr- ir undir frístundamiðstöðina Mið- berg í Gerðubergi, Helgi Eiríksson, forstöðumaður Miðbergs, sagði um- ræðuna um „skutlið“ alþekkta. Hann sagði það sama gilda um kirkjuna, íþróttafélög, skátafélög eða dans. „Við reynum að koma til móts við alla. Börnum sem eru skráð í kirkju- starf eða annað tómstundastarf á okkar starfstíma er fylgt í starfið,“ sagði Helgi. Hann kvaðst ekki líta svo á að í tillögum mannréttindaráðs væri frekar settur þröskuldur við kirkjustarf en annað starf. „Við styðjum við allt starf sem við getum. Ef foreldrar óska eftir að börn þeirra taki þátt í einhverju starfi í hverfinu þá reyn- um við að koma til móts við það. En við förum ekki með hóp af börn- um í kirkjustarf nema foreldrarn- ir hafi skráð þau, ekki frekar en í íþróttir eða annað.“ Samstarf við nærsamfélagið Gísli sagði að Breiðholtskirkja og Breiðholtsskóli ættu samstarf um Barnakór Breiðholtskirkju. Organ- isti kirkjunnar stjórnar kórnum sem æfir í skólanum utan skólatíma. Börnin koma úr frístundaheimilinu og annars staðar að til að taka þátt í kórnum. „Þetta er partur af því að vera í góðu samstarfi við nærsamfélagið,“ sagði Sigþór Magnússon, skólastjóri Breiðholtsskóla. Hann kvaðst telja eðlilegt að samstarf væri á milli skól- ans og kirkjunnar svo lengi sem það væri á forsendum skólans. „Enda hefur Reykjavíkurborg hvatt til þess í mörg ár að skólarnir séu í miklu samstarfi við nærsam- félagið,“ sagði Sigþór. „Ég skil ekki hvernig nærsamfélagið hættir þegar kemur að kirkjutröppunum.“ Hann sagði að skólinn hefði ekki notað kór- inn mikið, en það hafi þó komið fyrir að hann hafii sungið í skólanum. Sigþór kvaðst aðspurður vita til þess kirkjuferðir fyrir jólin hafi vald- ið erfiðleikum í sumum grunnskól- um. Hann sagði að ekki hafi verið farið í slíkar ferðir úr Breiðholts- skóla en þær hafi tíðkast í öðrum grunnskólum í Breiðholti. Óttast um fram- tíð barnastarfs Telur tillögu útiloka núverandi tengsl Sr. Gísli Jónasson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.