Morgunblaðið - 09.12.2010, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2010
Nú er komið í ljós að þeir semkosnir voru til setu á stjórn-
lagaþinginu svokallaða eru enn um-
boðslausari en talið var.
Vitað var að Al-þingi hafði bú-
ið þannig um hnút-
ana að stjórnlaga-
þingið væri í raun
ekki þing nema að
nafninu til. Það væri
í raun bara einhvers
konar fundur eða ráðstefna. Al-
þingi ákvað að völd ráðstefnunnar
væru engin og að ekkert þyrfti að
gera með ályktanir sem frá henni
kæmu. Hún hefði ekki umboð til
neins.
Öllum mátti þá þegar vera ljóstað stjórnlagaráðstefnan var
aðeins kölluð saman til að dreifa at-
hygli almennings frá raunveruleg-
um og mikilvægum viðfangsefnum
sem stjórnvöld réðu ekki við.
Að kvöldi kjördags var ljóst aðþjóðin hafði hafnað hugmynd-
inni um að þörf væri á slíkri ráð-
stefnu. Næstum tveir þriðju hlutar
kjósenda hundsuðu kosninguna.
Þar með var orðið ljóst að fulltrúar
á ráðstefnunni hefðu hvorki umboð
frá Alþingi né kjósendum.
Nú er komið í ljós að einungistæplega 20% kjósenda kusu
einhvern þeirra 25 sem völdust á
ráðstefnuna. Rúmlega 80% kjós-
enda kusu engan þeirra sem þar sit-
ur. Það er án efa einstakt í sögu
lýðræðislegra kosninga.
Þó að það hafi ekki verið ætluninmeð þessari rándýru leiksýn-
ingu ríkisstjórnarinnar má segja að
niðurstaðan af henni sé sú, að hér
eftir dettur engum í hug að það að
viðhafa persónukjör eða að hafa
landið eitt kjördæmi séu nothæfar
hugmyndir.
Yfir 80% kjósenda
án „þing“fulltrúa
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 8.12., kl. 18.00
Reykjavík 2 súld
Bolungarvík 2 alskýjað
Akureyri -2 skýjað
Egilsstaðir -9 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. -2 alskýjað
Nuuk 5 skúrir
Þórshöfn 0 skúrir
Ósló -20 skýjað
Kaupmannahöfn -1 skýjað
Stokkhólmur -7 skýjað
Helsinki -2 alskýjað
Lúxemborg 0 snjóél
Brussel -1 þoka
Dublin -1 léttskýjað
Glasgow -2 léttskýjað
London 2 skýjað
París 0 snjókoma
Amsterdam -1 heiðskírt
Hamborg -2 skýjað
Berlín -2 snjókoma
Vín 3 þoka
Moskva -2 þoka
Algarve 17 þrumuveður
Madríd 12 léttskýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 17 léttskýjað
Aþena 15 heiðskírt
Winnipeg -20 léttskýjað
Montreal -8 skafrenningur
New York 0 heiðskírt
Chicago -7 léttskýjað
Orlando 11 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
9. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:06 15:35
ÍSAFJÖRÐUR 11:47 15:04
SIGLUFJÖRÐUR 11:32 14:45
DJÚPIVOGUR 10:44 14:56
Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðar-
kaupstaðar fyrir árið 2011 var lögð
fram á fundi bæjarstjórnar í gær
ásamt þriggja
ára áætlun
fyrir árin 2012
til 2014.
Í tilkynn-
ingu frá bæn-
um kemur
fram m.a. að rekstrarniðurstaða A-
og B-hluta fyrir árið 2011 sé já-
kvæð um 306 milljónir kr. Heildar-
eignir samstæðunnar eru áætlaðar
um 43,8 milljarðar kr. í árslok
þessa árs. Skuldir og skuldbind-
ingar eru áætlaðar um 35 millj-
arðar kr. og eigið fé er 8,7 millj-
arðar.
Vatnsgjald og holræsagjöld
og lóðarleiga verða hækkuð
Útkomuspá fyrir árið 2010 gerir
ráð fyrir að rekstrarniðurstaða A-
og B-hlutans verði jákvæð um
1.467 m. kr. en í árið 2009 var nið-
urstaða í A- og B-hluta neikvæð
um 1.513 m. kr. Frá árslokum 2009
hafa heildarskuldir bæjarins
minnkað í 35.975 m.kr. eða um
5.688 m.kr. vegna niðurgreiðslu
skulda og hagstæðs gengis.
Samkvæmt tilkynningu er gert
ráð fyrir óbreyttum tekjum vegna
fasteignaskatts. Stofn til útreikn-
ings fasteignagjalda sem innheimt
eru á árinu 2011 miðast við fast-
eignamat eigna sem birt var í sum-
arbyrjun en endurmat ársins leiddi
til að matsstofn Hafnarfjarðar-
bæjar lækkaði umtalsvert á milli
ára.
Til að vega á móti þessari lækk-
un er gert ráð fyrir hækkun á
álagningarhlutfalli fasteignaskatts,
vatnsgjalds, holræsagjalds og lóð-
arleigu.
Seinni umræða um fjárhags-
áætlun Hafnarfjarðarbæjar fer
fram 15. desember næstkomandi.
Hækka
fasteigna-
skatta 2011
Gera ráð fyrir
jákvæðri rekstrar-
afkomu