Morgunblaðið - 09.12.2010, Síða 11
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2010
Laugavegi 63 • S: 551 4422
NÝ
SPARILÍNA
Skoðið
sýnisho
rnin á
laxdal.
is/elba
Útsala
Bonito ehf. | Friendtex | Faxafen 10 | 108 Reykjavík
sími 568 2870 | www.friendtex.is
Opið: mánudaga – föstudaga 11:00 - 18:00
laugardag kl.11:00 - 16:00
Allt að
afsláttur
40%
á haust- og
vetrarlistanum
Gráðostur er skemmtilegt hráefni í
sósur og hér notum við hann líka
til að fylla nautasteikurnar. Það
þarf að hafa nokkur snör handtök
þegar rétturinn er eldaður – því
best er að útbúa allt rétt áður en
diskarnir fara á borðið – og því er
gott að vera búinn að undirbúa allt
áður, mæla upp það sem á að fara í
sósuna og hafa til taks.
6-800 grömm af nautalund, skorin
í fjórar steikur
1 pakki gráðostur
1 skalottulaukur, fínsaxaður
1/2 dl gin
2 dl rauðvín
2 dl matreiðslurjómi
2 msk sojasósa
smjör, pipar og salt
Skerið rauf í hliðina á hverri
steik sem rúmar um eina matskeið
af gráðosti. Lokið raufinni með
tannstönglum.
Brúnið steikurnar í smjöri á
pönnu þar til þær hafa tekið á sig
góðan lit, svona 3-5 mínútur eftir
þykktinni á steikunum. Passið upp
á að osturinn bráðni ekki og renni
úr. Bætið skalottulauknum út á
pönnuna og leyfið honum að mýkj-
ast í um mínútu.
Hellið nú gininu út á pönnuna og
leyfið því að gufa alveg upp. Ef þið
viljið vera flott á því þá „flamber-
ið“ þið steikurnar með því að
kveikja varlega í gininu áður en því
er hellt yfir. Slökkvið samt á vift-
unni áður. Það breytir engu um
bragðið hvort þið flamberið eða
ekki – þetta er meira „sjóv“ fyrir
gestina.
Takið steikurnar af pönnunni og
setjið á fat og inn í 180 gráðu heit-
an ofn. Hellið sojasósunni á pönn-
una og síðan rauðvíninu. Sjóðið
niður um 2/3. Bætið rjómanum og
afganginum af gráðostinum saman
við og eldið þar til úr er orðin þykk
sósa.
Takið kjötið úr ofninum og setjið
á (helst heita) diska. Saltið og
piprið eftir smekk. Hellið sósunni
yfir. Berið fram með kartöflubátum
og fersku klettasalati.
Steingrímur Sigurgeirsson.
Uppskriftin
Gráðostafylltar nautalundir
með gráðostasósu
Fleiri uppskriftir má finna á Matur
og vín-vef Morgunblaðsins: mbl.is/
matur og á www.vinotek.is.
Bónus
Gildir 9. - 12. desember verð nú áður mælie. verð
After eight, 400 g ...................... 498 559 1.245 kr. kg
Jólakaffi 400, g ......................... 598 659 1.495 kr. kg
Kristjáns steikt laufabr., 15 stk.... 1.598 1.679 106 kr. stk.
Bónus graflxsósa, 350 g............. 259 298 740 kr. kg
Bónus nýb. kornkubbar, 4 stk...... 198 259 50 kr. stk.
Bónus kjarnabrauð, 500 g.......... 159 198 318 kr. kg
Kofareykt úrb. hangilæri ............. 2.518 2.998 2.518 kr. kg
Kofareyktur úrb. hangiframp. ...... 1.618 1.998 1.618 kr. kg
Bónus ís, 2 ltr. ........................... 298 379 149 kr. ltr
Gillette mach 3 rakblöð, 4 stk. .... 998 1.298 250 kr. stk.
Fjarðarkaup
Gildir 9. - 11. desember verð nú áður mælie. verð
Svínakótelettur úr kjötborði......... 998 1.458 998 kr. kg
Nautagúllas úr kjötborði ............. 1.598 1998 1.598 kr. kg
FK hamborgarhryggur, kjötborð ... 998 1.298 998 kr. kg
Fjarðarkostur hangilæri úrb. ........ 2.558 3.198 2.558 kr. kg
Fjarðarkostur hangiframp. úrb. .... 2.094 2.618 2.094 kr. kg
Kjarnafæði London-lamb............ 1.359 1.698 1.358 kr. kg
Ali-hamborgarhryggur m/beini .... 1.499 1.998 1.499 kr. kg
Fjallalambs hangilæri úrb. .......... 2.878 3.198 2.878 kr. kg
Fjallalambs hangiframp. úrb. ...... 2.128 2.364 2.128 kr. kg
Fjallalambs fjallalæri.................. 1425 1.583 1.425 kr. kg
Kostur
Gildir 9. - 12. desember verð nú áður mælie. verð
Freyju hrís, 120 g ...................... 159 229 159 kr. stk.
Freyju staur, 2 í pk. .................... 89 149 89 kr. stk.
Kostur túnfiskur ......................... 129 149 129 kr. stk.
Kostur ananas, 3 í pk. ................ 249 298 249 kr. stk.
Great Value Cheerios ................. 389 479 389 kr. stk.
Husets kaffi, 400 g .................... 349 395 349 kr. stk.
KF hamborgarhryggur................. 998 1.189 998 kr. kg
Aro þvottaduft, 10 kg ................. 2.198 2.598 2.198 kr. stk.
Krónan
Gildir 9. - 12. desember verð nú áður mælie. verð
Ungnautalund, erlend ................ 3.198 3.998 3.198 kr. kg
Grísakótilettur lúxus beinlausar ... 999 1.998 999 kr. kg
Ungnauta Rib Eye, erlend ........... 1.999 3.998 1.999 kr. kg
Sambands hangilæri úrb. ........... 2.398 2.998 2.398 kr. kg
Sambands hangiframpa. úrb. ..... 1.998 2.498 1.998 kr. kg
SS rifsberja lambalæri ............... 1.898 2.378 1.898 kr. kg
Gríms humarsúpa sælkerans ...... 558 698 558 kr. pk.
Jöklabrauð ................................ 339 399 339 kr. stk.
Lambi eldhúsrúllur jóla............... 369 398 369 kr. pk.
Gillette fusion rakvél + balm. ...... 2.298 2.995 2.298 kr. pk.
Nóatún
Gildir 9. - 12. desember verð nú áður mælie. verð
Lambafillet með fiturönd ............ 2.878 3.598 2.878 kr. kg
Lambalærissneiðar .................... 1.399 1.998 1.399 kr. kg
Nóatúns hamborgarhryggur ........ 1.598 1.998 1.598 kr. kg
Korngrís grísahnakki úrb. ............ 1.131 1.698 1.131 kr. kg
Húsavíkur hangilæri tvíreykt ........ 2.248 2.498 2.248 kr. kg
Húsavíkur hangilæri ................... 1.998 2.498 1.998 kr. kg
Húsavíkur hangiframpartur ......... 1.198 1.498 1.198 kr. kg
Sólfugl kalkúnabr. aprík/döðlu.... 2.968 3.298 2.968 kr. kg
Myllu marengs, hvítur/brúnn....... 589 639 589 kr. stk.
Smámál súkkulaðifrauð.............. 79 89 79 kr. stk.
Þín Verslun
Gildir 9. - 12. desember verð nú áður mælie. verð
Ísfugls kjúklingur, heill ................ 749 1.072 749 kr. kg
Lambahryggur úr kjötborði .......... 1.298 1.949 1.298 kr. kg
Lambalæri úr kjötborði ............... 1.098 1.698 1.098 kr. kg
MS sýrður rjómi 10% ................. 169 192 845 kr. kg
Hatting hvítlauksbrauð, 2 stk. ..... 369 459 185 kr. stk.
Torsleff vanilla, 100 g................. 219 258 2.190 kr. kg
La Baguette smábrauð, 10 stk. ... 435 565 44 kr. stk.
La Baguette snittubrauð, 4 stk. ... 398 559 100 kr. stk.
Helgartilboðin
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Fyrirtækið sem ég vannhjá fór á hausinn þegar égvar komin tuttugu vikur á
leið með strákinn minn Bergstein
Bjarma sem fæddist í ágúst í fyrra.
Að loknu fæðingarorlofi gekk mér
illa að fá vinnu og þá fékk ég þessa
hugmynd að stofna verslun, frekar
en að vera á atvinnuleysisbótum,“
segir Svava Þorsteinsdóttir en hún
og eiginmaður hennar Alexander
Þórsson opnuðu vefverslunina
Sjarmatröll.is í sumar. Þar fást
barnaföt og ýmislegt fleira tengt
börnum en nafn verslunarinnar
kemur frá syninum unga sem
stundum er kallaður Bjarmi sjarmi
sjarmatröll.
„Mér fannst barnaföt vera
orðin svo dýr og fannst því tilvalið
að gera eitthvað til að bæta úr því
fyrir fólk. Ég kynnti mér vinnu-
markaðsúrræði hjá Vinnumála-
stofnun, hvernig vinna á að þróun
eigin viðskiptahugmyndar, og mér
fannst frábært að fá tækifæri til að
koma mér sjálf út úr atvinnuleysinu.
Við hjónin erum vön því að stökkva
til þegar okkur dettur eitthvað snið-
ugt í hug og fórum bara á fullt með
þetta.“
Bóndinn fórnaði heilaga
svæðinu í bílskúrnum
Svava segir að flestar vörurnar
komi frá Bandaríkjunum og þar hafi
verðlagið ráðið mestu. „Ég þekki
líka sumar þessar vörur vel eins og
Carter’s vörurnar. Við ætluðum
upphaflega að einskorða okkur við
að vera með föt fyrir krakka frá núll
til tveggja ára, en okkur langaði að
stækka þetta aðeins og nú er þetta
fyrir krakka upp í sex ára.“
Hjá Sjarmatröllum fást ekki að-
eins föt heldur allskonar aukahlutir
líka eins og burðarpokar, rúmfata-
sett, þvottapokar, smekkir, pelar,
snuð og ýmislegt fleira.
„Við reynum að hafa augun opin
fyrir því sem ekki fæst hér og við
reynum líka að stilla verðinu í hóf.
Reyndar eru Carter’s fötin dýr í inn-
kaupum en við erum með margt
annað sem er töluvert ódýrara en í
verslunum hér, en margt er á svip-
uðu verði.“
Þau hjónin létu ekki duga að
stofna vefverslun heldur opnuðu líka
verslun í bílskúrnum hjá sér með all-
ar vörur sem fást hjá Sjarmatröll-
um. „Maðurinn minn fórnaði sínu
heilaga svæði í bílskúrnum fyrir
búðina en það hefur líka skilað sér,
því fólk vill fá að skoða og handfjatla
vöruna. Margir eru búnir að skoða
heima á vefnum og ákveða sig að
mestu leyti, en vilja samt skoða nán-
ar áður en það kaupir.“
Sjarmatröll á vefnum
og í bílskúrnum
Morgunblaðið/Golli
Bílskúrsbúð Svava ásamt syni sínum sjarmatröllinu Bergsteini Bjarma í versluninni í bílskúrnum heima.
www.sjarmatroll.is