Morgunblaðið - 09.12.2010, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2010
JÓLAPRÝÐI
PÓSTSINS 2010
Jólaprýði er fallegt jólaskraut fyrir heimilið
og tilvalið í jólapakkann.
Sveinbjörg Hallgrímsdóttir myndlistar-
maður á Akureyri er höfundur jólaóróanna
og jólafrímerkjanna 2010.
Jólaóróarnir eru seldir 4
saman í pakka á kr. 3.100
og stakir í pakka á kr. 850.
Seltjarnarneskaupstaður er fyrir
sitt leyti tilbúinn til að ráðast ein-
hliða í að endurreisa sjóvarnargarð
fyrir framan Nesveg 107, að sögn
Arnar Þórs Halldórssonar, skipu-
lagsstjóra Seltjarnarness. Enn sé þó
vonast eftir að sátt náist við húseig-
andann um nauðsynlegar fram-
kvæmdir.
Eigandi hússins við Nesveg 107,
eða öllu heldur einkahlutafélagsins
sem á húsið, er Guðmundur Krist-
jánsson, útgerðarmaður í Brimi.
Hann lét í leyfisleysi ryðja niður sjó-
varnargarðinum fyrir framan húsið
sitt árið 2009 og setja eins konar
brimbrjót í fjöruna fyrir framan.
Örn Þór segir að húseigandinn
hafi lagt fram tillögur að nýrri
lausn við Siglingastofnun sem
stofnunin hafi samþykkt fyrir sitt
leyti. Honum hafi á hinn bóginn
ekki tekist að fá samþykki frá með-
lóðarhafa á nærliggjandi lóð vegna
framkvæmdanna. Því liggi ekki fyr-
ir samþykkt tillaga að nýjum sjó-
varnargarði. Örn Þór segir að í til-
lögunni hafi verið gert ráð fyrir
allbreiðri rennu niður í fjöru en
jafnframt að lóðin yrði stækkuð út í
sjó og næði að hluta yfir á næstu
lóð. Einnig hafi verið lögð fram til-
laga að framkvæmdum sem rúmast
allar innan umræddrar lóðar.
Nauðsynlegt sé að ráðast í fram-
kvæmdir fljótlega enda sé allra
veðra von.
Örn Þór segir að í sjálfu sér sé
eðlilegt að íbúar á sjávarlóðum vilji
komast ofan í fjöru og málið hafi
hreyft við yfirvöldum. Verið sé að
kanna hvernig megi breyta sjávar-
varnargörðum þannig að auðveld-
ara sé fyrir almenning að komast
ofan í fjörur á Seltjarnarnesi.
Vonast eftir að sátt náist
Kannað hvernig megi auðvelda aðgengi að fjörum
Morgunblaðið/Ómar
Brimvörn Stuttu áður en varnargarðinum var að hluta rutt í burtu hafði Siglingastofnun bætt í garðana.
Tæplega 40 milljónir króna söfn-
uðust í þjóðarátakinu Á allra
vörum, sem fram fór í sumar. Átak-
ið vakti athygli hvarvetna en í ár
var því ætlað að safna fé til styrktar
kaupum á nýju húsnæði Ljóssins,
endurhæfingar og stuðnings-
miðstöð fyrir fólk sem fengið hefur
krabbamein. Tugir þúsunda manna
tóku þátt í átakinu með kaupum á
varaglossi frá DIOR, auk þess sem
ráðist var í sérstakan söfnunarþátt
á Skjá einum þar sem um
33.000.000 kr. söfnuðust.
Tómas Hallgrímsson og Erna
Magnúsdóttir frá Ljósinu tóku í
gær við tæplega 40 milljónum frá
Gróu Ásgeirsdóttur, Elísabetu
Sveinsdóttur og Guðnýju Páls-
dóttur.
40 milljónir til Ljóssins
Fjölgun námsstaðna í heimilislækn-
ingum er talin ein áhrifaríkasta leið-
in til þess að draga úr læknaskorti og
styrkja heilsugæsluna. Árlega þurfa
að bætast við 10 til 12 heimilislæknar
til þess að halda í horfinu en til að
styrkja heilsugæsluna enn frekar
þyrfti að bæta við 8 til 10 læknum til
viðbótar á hverju ári. Til þess að ná
þessum markmiðum þarf því að taka
20 lækna inn í sérnám í heimilis-
lækningum ár hvert næstu fimm ár-
in.
Nefnd sem skipuð var til að gera
tillögur um leiðir til að efla stöðu
heilsugæslunnar skilaði af sér í gær.
Guðbjartur Hannesson heilbrigðis-
ráðherra hefur ekki tekið afstöðu til
tillagnanna.
Nefndin leggur fram tíu leiðir til
að efla heilsugæsluna. Meðal annars
er lagt til að sjúklingum verði stýrt
meira til heilsugæslunnar og að und-
irbúin verði innleiðing sveigjanlegr-
ar tilvísanaskyldu á næstu þremur
árum. Lagt er til að skipaður verði
vinnuhópur til að þróa kerfið.
Heilsuverndarstarf verði eflt og
skoðaðar forsendur fyrir flutningi
verkefna heilsugæslunnar til sveit-
arfélaganna innan fimm ára.
Þurfa á öllu sínu að halda
Lögð er áhersla á að heilsugæslan
á höfuðborgarsvæðinu þurfi á öllum
sínum heimilislæknum að halda. Nú
starfa 12 sérfræðingar í heimilis-
lækningum sjálfstætt og sinna um 22
þúsund sjúklingum. Fyrrverandi
heilbrigðisráðherra sagði upp samn-
ingum við þessa lækna þannig að
þeir falla úr gildi nú um áramótin.
Nefndin leggur til að kjör sjálf-
stætt starfandi heilsugæslulækna
verði færð til samræmis við það sem
gerist innan Heilsugæslu höfuðborg-
arsvæðisins og að gerð verði krafa
um að þeir sinni forvörnum og
heilsuvernd í ríkara mæli en verið
hefur. Myndu þeir þá þurfa að starfa
að heilsuvernd inni á heilsugæslu-
stöð ákveðinn tíma í viku hverri.
Heilsugæslulækn-
um verði fjölgað
Samið á nýjum grundvelli við sjálfstæða
Morgunblaðið/Eggert
Heilsugæsla Sjúklingar eiga að
leita fyrst til heilsugæslunnar.