Morgunblaðið - 09.12.2010, Síða 17
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Tunga úr ísnum við Grænland teygir
sig nú í austur og er skammt frá
Horni. Þyrla Landhelgisgæslunnar,
TF-GNA, fór á þriðjudag í gæslu- og
hafíseftirlit út af Vestfjörðum og
reyndist ísröndin næst landi um 21,7
sjómílur norður af Horni. Þar sem
ísinn er næst landi er hann nokkuð
gisinn og virðist þar hafa orðið um-
talsverð nýmyndun á ís, að sögn
Ingibjargar Jónsdóttur, landfræð-
ings hjá Jarðvísindastofnun Háskóla
Íslands, sem var með í könnunar-
fluginu.
Fyrir utan Straumnes var ísinn
þéttur en þegar komið var að hafís
um 43,6 sjómílur frá Barða var ís-
breiðan samfrosin með stórum ís-
hellum. Sáust þar fimm stórir borg-
arísjakar sem voru frá 30 metrum og
upp í 110 metra á hæð ofan sjávar, að
sögn Landhelgisgæslunnar. Gera
má ráð fyrir að um 80% af ísnum séu
neðan sjávarmáls og því gæti stærsti
jakinn náð 500 metra niður í sjóinn
eða enn lengra, að sögn Ingibjargar.
Það fer þó talsvert eftir því hver eðl-
isþungi sjávarins á svæðinu er.
Gæti brotnað úr
borgarísjökunum
Ekki er talin stafa mikil hætta af
sjálfum borgarísjökunum þar sem
þeir sjást vel í ratsjá og þeir voru vel
innan við ísröndina. Þeir voru þó
nokkuð sprungnir og ekki ólíklegt að
brotni úr þeim sem eykur hættuna,
smájakar sem sjást ekki eða illa í
ratsjá geta valdið miklu tjóni á skip-
um.
Ingibjörg stundar rannsóknir á
hafís og notkun gervitunglamynda
hjá Jarðvísindastofnun. „Það er í
sjálfu sér ekkert óeðlilegt við að ís-
inn komi á þessum árstíma þó að al-
gengara sé að hann nálgist landið
eftir áramótin,“ segir Ingibjörg.
„Hann er svolítið snemma á ferðinni
en þetta er alls ekki neitt einsdæmi.
Vindafar hefur verið heldur óvenju-
legt, vindurinn hefur verið hagstæð-
ur fyrir ísinn. Þá er það dæmigert að
ístunga komi út úr meginísþekjunni
og leggist þarna í Austur-Íslands-
strauminn.
Það sem var sérstakt var óvenju-
mikil nýmyndun íss. Sjórinn þarf að
vera ansi kaldur til að það fari að
myndast nýr ís í honum, hann er svo
saltur. Hitastigið hlýtur því að vera
komið niður í mínus 1,8 stig. Hærra
má það ekki vera ef sjór með seltu-
stig eins og gerist þarna á að geta
myndað ís, því saltari sem sjórinn er
þeim mun kaldari þarf hann að vera
til að geta frosið.“
– En eru líkur á að ísinn verði
landfastur?
„Þetta er ekki neitt óskaplega
mikill ís, það sést vel á gervitungla-
myndum,“ segir Ingibjörg. „Við
reynum alltaf að lesa eins mikið út úr
þeim og hægt er þó að þær komi ekki
í staðinn fyrir ískönnunarflug.“
Á ratsjármyndum úr ENVISAT-
gervitunglinu, myndum sem Ingi-
björg fékk frá útstöð Evrópsku
geimvísindastofnunarinnar, ESA, í
Kiruna í Svíþjóð og færði inn á
kortagrunn frá Landmælingum Ís-
lands, sést hafísinn nokkuð vel, óháð
birtuskilyrðum og skýjahulu. Allir
borgarísjakarnir sjást eins og hvítir
deplar en ekki er hægt að mæla hæð
þeirra, þá þarf að fljúga yfir svæðið.
Nýmyndun íss merkir að yfirborðið
er þar sléttara en ella og kemur oft
fram sem dökkir blettir á ratsjár-
myndunum frá ESA-tunglinu.
Hvítabirnir á land?
– Er aukin hætta á að hvítabirnir
gangi hér á land?
„Það getur auðvitað gerst, við höf-
um séð það á undanförnum árum. En
mér skilst að hættan sé meiri ef ís-
tungan slitnar frá meginísnum. Þá
hafa birnir meiri ástæðu til að leita í
land, það gera þeir ekki nema þeir
séu komnir í vanda, t.d. ef þeir finna
ekkert æti á ísnum eða hann er að
bráðna undan þeim.
Hafís teygir sig í austur
Brotni úr borgarísjökum fyrir norðan Horn gætu þeir reynst varasamir skipum
Nálægt Horni
» Ísröndin er næst landi um
21,7 sjómílur norður af Horni,
25,3 sjómílur frá Straumnesi
og 43,6 sjómílur frá Barða.
» Þar er hafísinn orðinn sam-
frosinn og með stórum íshell-
um sem geta verið hættulegar
skipum.
» Fimm stórir borgarísjakar,
sá stærsti um 110 metrar að
hæð, sáust í ískönnunarflugi
Landhelgisgæslunnar.
» Borgarísjakarnir sjást vel á
ratsjá, skipum stafar meiri
hætta af smájökum þegar
stóru jakarnir brotna.
Borgarísjaki Liðsmenn Landhelgisgæslunnar sáu nokkra stóra borgarísjaka í ískönnunarflugi sínu fyrir norðan land í vikunni.
Minnir á sig Kort af hafisröndinni sem Ingibjörg Jónsdóttir hjá Jarðvís-
indastofnun Háskóla Íslands gerði.
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2010
Einar Örn Gíslason
einarorn@mbl.is
Saga Fjárfestingafélagsins Máttar
ehf. líður senn undir lok, en nýverið
var tilkynnt að bú þess hafi verið
tekið til gjaldþrotaskipta í kjölfar úr-
skurðar Héraðsdóms Reykjavíkur.
Félagið var að stórum hluta í eigu
þeirra Karls og Steingríms Weners-
sona í gegnum Milestone-fyrirtækja-
samstæðuna. Starfsemi félagsins
fólst í fjárfestingum í skráðum og
óskráðum hlutabréfum. Í árslok
2007 voru heildarskuldir Milestone
við íslenska banka tæpir 43 milljarð-
ar króna. Máttur var eitt gríðar-
margra félaga sem tengdust Mile-
stone eignatengslum, miðað við 20%
eignarhlut síðarnefnda félagsins. Í
skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis
kemur fram að áhættuskuldbinding-
ar Glitnis, það er að segja lánveit-
ingar, til Máttar hafi numið 14,5
milljörðum króna hinn 30. septem-
ber árið 2008. Hinir bankarnir mátu
Milestone og Mátt ekki tengda aðila,
þrátt fyrir eignatengslin.
Hlutir í BNT og Icelandair
Eigendahópur Máttar breyttist
nokkuð með tímanum. Á meðal ann-
arra eigenda voru Sjóvá, sem var í
eigu Milestone, í gegnum eignar-
haldsfélag. Aðrir eigendur voru Ein-
ar Sveinsson, sem jafnframt gegndi
stjórnarformennsku, og Gunnlaugur
Sigmundsson, fyrrverandi alþingis-
maður, sem gegndi jafnframt stöðu
framkvæmdastjóra. Ein stærsta
fjárfesting Máttar var hlutur félags-
ins í Icelandair, en Einar Sveinsson
var jafnframt stjórnarmaður í Ice-
landair þegar viðskiptin áttu sér
stað, samkvæmt tilkynningu til
Kauphallarinnar.
Auk tæplega fjórðungshlutar í
Icelandair, sem Íslandsbanki leysti
til sín í fyrra, er hlutur Máttar í
BNT, eignarhaldsfélagi N1, á meðal
stærstu fjárfestinga.
Máttur kominn í þrot
Fjárfestingafélagið var umsvifamikið í fjárfestingum á ár-
unum fram að hruni Stór hluthafi í Icelandair og BNT
„Kosningafyrirkomulag eins og var
viðhaft við kjör til stjórnlagaþings
tel ég að hafi það marga galla að það
sé ekki fyrirmynd sem við eigum að
leita til þegar við
tökum ákvörðun
um breytingar á
kosningareglum
varðandi aðrar
kosningar í fram-
tíðinni,“ segir
Birgir Ármanns-
son, þingmaður
Sjálfstæðis-
flokksins. „Það er
frekar að við eig-
um að læra af
þessari reynslu og forðast að lenda í
pyttum sem ég tel að séu þarna fyrir
hendi.“ Mikið hefur verið rætt um
breytt fyrirkomulag kosninga á Ís-
landi undanfarið, ekki síst í aðdrag-
anda kosninga til stjórnlagaþings.
Vilja fækka kjördæmum í eitt
Meirihluti þeirra sem náðu kjöri
telur að landið allt eigi að vera eitt
kjördæmi, en sá háttur var einmitt
hafður á í nýafstöðnum kosningum
til þingsins. Töluverðrar óánægju
hefur hins vegar gætt með fyrir-
komulag kosninganna nú, og þykir
kosningakerfið sjálft hafa verið
einkar ógagnsætt. Þannig fengu
37.135 kjósendur, sem allir skiluðu
gildum kjörseðli, ekki neinn fulltrúa
á stjórnlagaþingið.
Birgir segist mjög opinn fyrir því
að ræða um breytingar á kjördæma-
skipan frá því sem nú er. Hann sé
hins vegar þeirrar skoðunar að þær
hugmyndir sem uppi hafi verið í þá
veru að ganga langt í persónukjöri
og gera landið um leið að einu kjör-
dæmi séu „verulega gallaðar“.
Heppilegra sé að halda sig við kerfi
hlutfallskosninga og einhvers konar
kjördæmaskiptingu. „Mér finnst sú
kjördæmaskipan sem við komum á
1999 á margan hátt óheppileg og er
opinn fyrir hugmyndum um að gera
þar breytingar á,“ segir Birgir.
Jafnara atkvæðavægi
Birgir segir vægi atkvæða mega
jafna innan ramma kjördæmaskipt-
ingar. Hann segir þá hugmynd ekki
síst til þess fallna að viðhalda
tengslum kjósenda og kjörinna full-
trúa. „Ég held að kjördæmaskipting
auðveldi það, þannig að það er innan
þess ramma sem ég tel við við eigum
að jafna atkvæðavægið. Það má sjá
fyrir sér alls konar útfærslur í því
sambandi, og engin leið heilög í mín-
um huga.“ einarorn@mbl.is
Ákveðið
víti til að
varast
Kosningarnar
til þess að læra af
Birgir
Ármannsson
Efnahags- og við-
skiptaráðuneytið
keypti sérfræði-
aðstoð fyrir tæp-
ar 54 milljónir kr.
frá byrjun síðasta
árs til loka sept-
ember sl. Hæstu
upphæðirnar eru
fyrir þjónustu
lögfræðinga og
hagfræðinga.
Lagt hefur verið fram svar við
skriflegri fyrirspurn Kristjáns Þórs
Júlíussonar, þingmanns Sjálfstæðis-
flokksins, um starfsmannahald og
aðkeypta sérfræðiþjónustu hjá efna-
hags- og viðskiptaráðuneytinu.
22 lögfræðingar og lögfræðistofur
fengu samtals 23,6 milljónir fyrir
sérfræðistörf og fimm ráðgjafarfyr-
irtæki fengu 23 milljónir fyrir sér-
fræðivinnu.
Hæsta einstaka upphæðin sem
greidd var á þessu tímabili er til ráð-
gjafarfyrirtækisins Oliver Wyman
sem var stjórnvöldum til ráðgjafar
við breytingar á fjármálakerfinu.
Fram kemur í svarinu að megin-
þorri verkefna, sem upp koma í
ráðuneytinu, er leystur af sérfræð-
ingum og starfsfólki stjórnarráðsins.
Ætíð komi þó upp verkefni þar sem
þörf sé á að leita til sérfræðinga og
ráðgjafa á viðkomandi sviðum, með-
al annars til að tryggja aðkomu hlut-
lausra sérfræðinga.
Keyptu sérfræðiráð-
gjöf fyrir 54 milljónir
Árni Páll Árnason