Morgunblaðið - 09.12.2010, Síða 27

Morgunblaðið - 09.12.2010, Síða 27
við manninn mælt, þegar þau stigu upp í efstu tröppuna opnust dyrnar og amma Úlla tók á móti okkur. Það voru skemmtilegar andstæður og í raun áhugaverð samsuða sem mættu okkur í Lönguhlíðinni. Það var ilmur af reykelsi í stofunni sem alltaf heill- aði okkur, heimagerðir frostpinnar í frystinum, gamlir skartgripir og glingur í skápunum og langoftast voru til kanilsnúðar með súkkulaði í eldhúsinu. Það voru ótal atriði í Lönguhlíðinni sem heilluðu ungar sálir. Herbergin voru mörg og sum hver jafnvel framandi. Fataskápur- inn á ganginum var ótæmandi að því er virtist og alltaf hægt að finna eitt- hvað nýtt til að skoða og leika sér með. Amma átti stóran poka sem var fullur af leikföngum; hestar, kindur, kýr og önnur dýr voru þar í miklum mæli, indíánar og tindátar. Amma Úlla málaði mikið af myndum, gerði hún margar tilraunir til að gera úr okkur listamenn með misjöfnum ár- angri en mikið höfðum við gaman af því að mála með henni og sýna henni árangurinn. Við systkinin nutum návistarinnar við ömmu Úllu bæði í ferðum fjöl- skyldunnar inn á Akureyri og eins var amma tíður gestur heima í Dæli allan ársins hring. Yfir sumarmán- uðina var amma iðulega með reið- hjólið sitt með sér og við fórum hjól- andi með henni um dalinn, oft og tíðum áleiðis inn að Vaglaskógi. Amma hafði unun af að ferðast og sum okkar voru svo lánsöm að kom- ast í utanlandsferðir með henni. Hannes fór með ömmu í viku ferm- ingarferð til Álfheiðar og Bjössa í Kaupmannahöfn og Bjarni fór í sam- bærilega ferð og hitti þau með henni í Frankfurt. Minningar okkar bræðranna úr þessum ferðum munu lifa með okkur um ókomin ár enda var þetta með fyrstu ferðum okkar út fyrir landsteinana. Þegar við eldri bræðurnir vorum í framhaldsskóla inni á Akureyri bjuggum við einn vetur hjá ömmu í Lönguhlíðinni. Það var einstaklega gott fyrir okkur að endurnýja kynn- in við ömmu með þeim hætti, þó svo hún hafi verið á flakki mikinn hluta vetrarins. Elsku amma, nú kveðjumst við að sinni með tár á hvarmi og söknuð í brjósti. Við, sem áfram höldum þennan veg, munum geyma minn- ingarnar um ókomin ár. Hvíl í friði, elsku amma, Hannes, Bjarni, Úlla, Sigríður og Steinþór. Elsku besta Úlla amma. Ég man þegar ég var lítil og fannst svo ótrúlega gaman að koma í heimsókn til þín á gistiheimilið á Ak- ureyri. Þú áttir alltaf svo flotta hluti og kunnir framandi tungumál. Foreldrar mínir sögðu mér alltaf hvað þú hefðir verið sterk, hvernig þú hefðir barist við þrjú mismunandi krabbamein en ég skildi það aldrei almennilega fyrr en seinna í lífinu. Svo fékkst þú parkinsonsveiki og ég vissi ekki alveg hversu alvarlegur sjúkdómur það var og fannst ósköp skrítið þegar fólk vildi að þú seldir gistiheimilið þitt. Eftir því sem lengra leið varðst þú alltaf veikari og veikari, sem var leiðinlegt fyrir allra en leiðinlegast fyrir þig. Það var ósköp leiðinlegt hvað þú þurftir að lifa lengi sem fangi í eigin líkama og því gott að þú gast farið í friði. Mér þótti mjög vænt um það að sjá hvað þú varst falleg og friðsæl þegar þinn tími var kominn. Þú varst frábær kona og þín verð- ur sárt saknað. Ég elska þig, amma mín. Kveðja, Marta Laufey Tómasdóttir Árdal. Elsku Úlla amma okkar, nú ertu farin. Farin á fallegan stað, laus við þjáningar og veikindi. Eins sárt og það er að missa þig, veitir það okkur mikla hugarró að vita af þér í friði. Minningarnar streyma upp í hugann, fallegar minningar frá barnæsku okkar í Lönguhlíðinni. Okkur fannst æðis- legt að geta labbað til þín hvenær sem er og eytt tíma með þér á gisti- heimilinu, þú hafðir svo einlægan áhuga á að kynnast gestunum og þeirra ólíku menningu. Ekki að ástæðulausu að fólk kom ár eftir ár hvaðanæva að úr heiminum á gisti- heimilið til þín. Það var alltaf svo skemmtilegt að sjá þig tala tungu- mál sem við skildum ekki orð af. Minningar um gönguferðir í Kjarna- skóg, sláturgerð, laufabrauðsút- skurð og piparkökumálun fylla hjörtu okkar hlýju. Við dáðumst allt- af að því hvað þú varst dugleg að ferðast og hreyfa þig. Við vorum svo stoltar af að eiga ömmu sem var allt- af í sundi, á gönguskíðum og að hjóla. Það gerði það samt ennþá erf- iðara að horfa upp á þig veikjast og missa máttinn. Mín sterkasta minning er þó grænmetissúpan þín sem var eitt það besta sem ég gat fengið. Ég man að ég bað alltaf um grænmetissúpu þegar ég kom til þín og er enn hand- viss um að enginn getur gert betri súpu en þú, – Sandra. Við elskum þig, takk fyrir að hafa alltaf verið til staðar fyrir okkur. Innilegar samúðarkveðjur til allra ættingja og aðstandenda. Með ástarkveðju, þínar Sandra og Díana. Þegar ég nú kveð Úllu frænku mína, koma fyrst upp í hugann myndir frá æskuárunum. Meðal fyrstu minninga minna, eftir að ég kom með foreldum mínum í Laufás vorið 1928, eru heimsóknir okkar úr sveitinni til Geirs föðurbróður míns á Akureyri. Í þau skipti sem við fór- um í kaupstaðarferð með trillunni frá Nollarvík til Akureyrar, lá leiðin alltaf beint til Geirs og Hönnu þar sem við nutum gestrisni þeirra. Geir og faðir minn voru einlægir vinir og ég man hvað þeir voru alltaf glaðir þegar þeir hittust. Hanna var útlærð í matreiðslu og flutti með sér ýmsar nýjungar í matargerð frá Dan- mörku. Var gott að koma í heimsókn og í mat til þeirra hjóna. Við bræð- urnir í Laufási vorum nokkurn veg- inn jafnaldrar barnanna þeirra, Hans, Úllu og Hreins. Þau komu líka oft í sveitina til okkar á sumrin. En árin liðu og við fórum hvert sína leið eins og gengur. Faðir minn gifti Úllu og Hannes Árdal í Laufási þriðjudaginn 27. október 1953, þremur dögum eftir að móðir hennar var jörðuð. Mann sinn missti Úlla skyndilega í febrúar 1972 frá 5 ungum börnum þeirra á aldr- inum frá 5 til 16 ára og varð þá að sjá fyrir þeim ein. Sýndi hún mikinn dugnað við að framfleyta sér og börnum sínum. Hún var lengi síma- vörður á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, en seinustu starfsárin rak hún gistiheimili við Lönguhlíð á Ak- ureyri. Þar tók hún alltaf vel á móti gestum sínum og stóð sig svo vel í því hlutverki, að oft kom sama fólkið til hennar frá útlöndum ár eftir ár. En Úlla þurfti líka að takast á við erfið og alvarleg veikindi um ævina, en þeim tók hún með miklum kjarki og æðruleysi. Komst hún í gegnum öll veikindi sín á undraverðan hátt. Úlla lagði mikla rækt við að halda uppi minningunni um listsköpun föð- ur síns. Hún safnaði saman fjöl- mörgum munum, sem hann hafði gert, og opnaði sýningu á þeim í maí 1988 í Gamla Lundi á Akureyri. Í tengslum við ættarmót Þormarsætt- arinnar í júní 1998 afhenti hún síðan Héraðsskjalasafni Austfirðinga á Egilsstöðum möppu með myndum af verkum Geirs frá árunum 1930 til 1950. Þar eru myndirnar í öruggri vörslu. Sjálf var Úlla mjög listhneigð og eftir hana liggja allmörg verk sem hún málaði í frístundum sínum. Úlla var mjög frændrækin og fylgdist vel með öllum af Þormars- ættinni. Samband okkar Guðrúnar við hana styrktist mjög með árunum og höfðum við alltaf mikla ánægju af að hitta hana í hvert skipti sem við komum til Akureyrar. Páll sonur hennar og fjölskylda hans hafa í mörg ár verið sérstakir og nánir vin- ir okkar. Höfum við stöðugt sam- band okkar á milli. Við Guðrún sendum börnum Úllu og fjölskyldum þeirra innilegar sam- úðarkveðjur. Hugur okkar verður hjá ykkur á kveðjustundinni. Guttormur Þormar. MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2010 ✝ Árni Árnasonfæddist 13. febr- úar 1925 í Þórshamri í Garði. Hann lést á Landspítalanum 29. nóvember 2010. Árni var sonur hjónanna Árna Árna- sonar, f. 18. des. 1875, d. 11. júní 1967, frá Varmahlíð undir Eyjafjöllum, og Guð- rúnar Þórðardóttur f. 6.júní 1887, d. 22. júlí 1972 frá Vegamótum á Akranesi. Systkini Árna: Kjartan Árnason f. 19. júní 1913, d. 1932, Björg Árnadóttir f. 24. okt. 1916, búsett í Keflavík, Þórður Árnason f. 29.maí 1919, d. 1936, Friðrik Árnason f. 9. janúar 1930, búsettur í Keflavík. Þann 26. desember 1959 kvæntist Árni Krístínu Jónsdóttur frá Hafn- arhólmi, f. 11. nóv. 1927, d. 9. des- ember 1999. Þeim varð ekki barna auðið, en Kristín átti fyrir Örn Vil- mundarson f. 26. okt. 1947. Fyrri kona Arnar var Erla María Kjart- ansdóttir f. 16. okt. 1946, þeirra dóttir er Kristín Guðbjörg, f. 18. feb. 1973, sambýlismaður hennar Kristófer Jóhannesson f. 1. mars 1967. Þeirra börn Theodóra Dröfn f. 27. apríl 1992, Eydís Anna f. 8. desember 1995 og Viktor Jóhannes f. 11. október 1999. Seinni kona Arnar var Björk Sigurjónsdóttir, f. 20. maí 1959, þeirra börn Sigurjón G. f. 17. jan- úar 1984 og Árný Ösp f. 3. apríl 1987. Árni og Kristín hófu búskap í Kefla- vík, en 1971 fluttu þau í Hjallabrekku í Kópavogi, en bjuggu síðustu árin í Furu- grund 68, Kópavogi. Árni hóf sjómennsku um fermingu hjá Guðmundi Jónssyni útgerð- armanni í Garði og átti sjó- mennskan hug hans allan. Hann tók mótorvélstjórapróf í Reykjavík 1944 og fiskimannapróf frá Stýri- mannaskólanum í Reykjavík 1950. Árni var háseti í síldarævintýrinu, en síðar stýrimaður. Árið 1953 réð hann sig sem skipstjóra á Trausta GK 9 og var farsæll skipstjóri í 20 ár. Hann réð sig á millilandaskip, en lét af sjómennsku 1976 og síð- ustu árin starfaði hann hjá ESSO sem bensínafgreiðslumaður. Útför Árna fer fram frá Digra- neskirkju í Kópavogi í dag, 9. des- ember 2010, og hefst athöfnin kl. 15. Mig langar að minnast Árna eða Adda eins og við kölluðum hann. Ég var gift stjúpsyni hans og þegar ég kom heim með dóttur okkar ný- fædda, spurði ég hann hvort hún mætti kalla hann afa. Innilegra svar var ekki hægt að fá en svarið var stórt já. Því miður varð honum ekki barna auðið. Hvílík gleði sem skein alltaf af honum yfir að eiga afabarn. Milli litlu Kristínar og hans mynduðust ótrúlega sterk bönd sem aldrei bar skugga á. Ég er ákaflega stolt að dóttir mín og hennar börn skyldu eignast svona yndislegan afa sem var allt í öllu hjá þeim. Ekki lét Addi sig muna um að keyra norður til þeirra hvenær sem var. Það veitti honum ómælda ánægju að vera hjá þeim og sérstaklega í réttum. Öll jól og áramót voru þau hjónin hjá þeim fyrir norðan og eftir að eiginkona hans lést hélt hann því áfram. Margar góðar minningar koma upp í hugann um þennan yndislega mann og allar eru þær góðar. Þessi ljúfi, hægláti maður sem stundum laumaði glettnum og góðlegum orð- um frá sér sem vöktu oft mikla kát- ínu. Enn og aftur vil ég þakka fyrir að hafa kynnst þessum frábæra manni og eiga leið með honum í tæp fjörutíu ár. Ég vil votta systkinum hans, Erni, Kristínu og fjölskyldu, og öll- um ættingjum mína innilegustu samúð. Megi yndislegar minningar ylja ykkur um ókomna tíð. Guð geymi þig, elsku Addi minn, og hvíl í friði. Erla María. Elsku Addi. Nú hefur þú horfið til nýrra starfa eftir farsælt ævistarf, bæði til sjós og lands. Líf þitt nú á enda er, elli brostinn klafi. Til átthaga þinna andi fer. ekki nokkur vafi. Fögur sveit mun fagna þér fyrir opnu hafi. Alltaf fast þú sóttir sjó, svo þig flestir muna. Vinnan hörð þér velferð bjó, við það máttu una. Hjartagæskan helst mun þó heiðra minninguna. (Bjarni Guðni Guðnason.) Hvíl í friði, kæri frændi, og hafðu þökk fyrir allt. Jórunn og fjölskylda. Elsku afi, þegar ég fékk þær fréttir að þú værir látinn þá vildi ég ekki trúa því þar sem við vorum hjá þér kvöldinu áður og þú varst svo hress. Það er erfitt að horfa á eftir þér svona fljótt. Það voru forréttindi að eiga þig sem afa, þú stóðst við hlið mér sem klettur ef eitthvað bjátaði á, ég gat leitað til þín og sagt þér allt því þú varst líka minn besti vinur. Það var alltaf jafn yndislegt að koma til þín og ömmu þegar þið bjugguð í Hjallabrekkunni og síðan í Furugrundinni. Ég minnist þess þegar ég var lítil og þú vannst á bensínstöðinni, þá keyptirðu alltaf eitthvað gott handa mér sem var sett í tóma plastdollu og ég gat gengið að því þegar ég vildi heima hjá ykkur. Minningarnar sem sitja eftir eru svo margar að þó ég vildi telja þær allar upp þá yrði það í heila bók. Það var alltaf gaman að fá þig í heimsókn til okkar hingað norður og við eigum eftir að sakna þess mikið að hafa þig ekki hérna hjá okkur. Þú varst vanur að koma alltaf norður um jólin og það var alltaf svo gaman í skötuveislunni hjá okkur, sumir fussuðu og sveiuðu yfir lyktinni en þú hlóst alltaf að þeim og gerðir mikið grín að þeim, sagðir að þetta væri herramannsmatur. Þér þótti alltaf gaman að koma í réttirnar og fylgjast með þegar safnið kom nið- ur, það verður tómlegt að hafa þig ekki með okkur næsta haust en þú verður með okkur í huganum. Við eigum öll eftir að sakna þín og þeirra yndislegu stunda sem við átt- um saman. Góður guð geymi þig og minning þín mun ávallt lifa í hjört- um okkar. Hvíldu í friði, elsku afi minn. Kristín, Kristófer og börn. Elsku afi, þú varst ávallt svo góð- ur og alltaf í svo góðu skapi. Ég man bara seinustu helgina sem við vor- um saman, ég hef aldrei séð þig eins hressan og kátan. Ég minnist þess oft hversu gaman var hjá okkur þegar við bjuggum saman fyrstu ár- in mín í framhaldskólanum. Þú varst svo indæll að leyfa mér að vera hjá þér. Það var svo gaman þegar við fórum í bíltúr niður á bryggjurnar og skoðuðum hvaða bátar voru í höfn og þú sagðir mér mörg bátaheiti og einnig margt um þá. Ég man líka hvað þú beiðst stundum tímunum saman uppi í hesthúsi bara til að fylgjast með mér og hestunum og á ég eftir að sakna þín þar og geta ekki litið til þín og séð þig sitja í bílnum þínum og bíða eftir mér. Við gerðum svo margt saman, manstu þegar við fór- um stundum í bíltúr til Keflavíkur á sólskinsdögum og fórum í heimsókn til Fidda og Árna. Ég man líka þeg- ar ég var yngri og ég kom til þín oft í heimsókn og þá fórum við alltaf saman í búðina fyrir ömmu og svo leyfðirðu mér alltaf að kaupa eina rós handa ömmu sem ég fékk að gefa henni. En það var alltaf svo gott að koma til þín því þar leið mér líka alltaf svo vel og hjá þér var allt- af til svali og ís í ísskápnum sem maður mátti alltaf fá. Ég á eftir að sakna þín ótrúlega mikið og að geta ekki kíkt í heimsókn til þín því þú ert besti afinn. En hérna er ljóð sem ég samdi til þín, elsku afi minn. Nú liggurðu á kistubotni hér, og ferð upp í þennan himin frá mér. Mér finnst þú hafa farið of fljótt, en minningarnar hverfa ei skjótt. Mér finnst eins og þú sért farinn frá mér, en veit ég að þú ert alltaf hér. Þú hresstir alltaf upp mína sál, í stað þess að kveikja í henni bál. Í draumi mun ég þig einnig dreyma, því í aldrei í lífinu mun ég þér gleyma. Í draumi til þín á nóttu ég svíf, og minnumst við hamingju í þessu lífi. Nú kveður þú þennan fallega heim, og ferð upp í þennan himingeim. Enn horfi ég í framtíð bjarta, því þú verður ávallt í mínu hjarta. Þín Theodóra. Það er blendin tilfinning að þurfa í upphafi aðventunnar að kveðja Adda frænda okkar í hinsta sinn. Addi var ömmubróðir okkar og hef- ur alla tíð verið hluti af okkar lífi og við eigum margar ljúfar og góðar minningar til að ylja okkur með á þessari kveðjustund. Addi var skipstjóri í hjartnær 40 ár og sjórinn og sjómennskan var honum hugleikin fram til síðasta dags. Hann var iðinn við að skjótast á bryggjurnar og kom oft og iðulega á bryggjuna í Sandgerði þar sem frændur hans stóðu í löndun. Hann varð að fá nákvæmar upplýsingar eftir hvern róður um aflann og helst hvar fiskaðist mest, sjómannsblóðið var alltaf til staðar. Addi fylgdist vel með þjóðfélagsumræðunni og var vel upplýstur um hin ótrúlegustu málefni líðandi stundar og var einn- ig viskubrunnur, þegar kom að því að rifja upp gamlar stundir. Sög- urnar frá síldarævintýrinu og ófáu sjómannssögurnar urðu oft sem lif- andi myndir í huga okkar. Honum þótti ekki leiðilegt að taka pólitíkina fyrir og var rökfastur með eindæm- um. Það var samt alltaf stutt í húm- orinn og ósjaldan sem spennandi orrahríð um stjórnmálin tóku á sig glettilega hliðstæðu og allir hlógu, það var sjaldan lognmollan í kring- um hann. Addi var hjartahlýr maður og vinarþelur hans laðaði okkur að honum. Börnin okkar sakna frænda síns sem var þeim svo góður. Í hug- um okkar er mikið þakklæti fyrir að hafa átt hann að og kveðjustundin er sár. Við huggum okkur þó við það að þrátt fyrir að við fögnuðum merkum tímamótum með þér í febr- úar sl. þegar þú fagnaðir 85 ára aldri, þá varstu ern og lifðir með reisn fram á síðustu stundu. Elsku Addi okkar, við þökkum yndislega samfylgd og góðar stundir og minn- ing þín verður ávallt ljós í lífi okkar. Elsku Kristín og fjölskylda, amma og Fiddi, við vottum ykkur öllum okkar dýpstu samúð. Þín frænd- syskini, Jónas Árnason, Elenora K. Árnadóttir, Árni Árnason, Björg Árnadóttir og fjöl- skyldur. Árni Árnason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.