Morgunblaðið - 09.12.2010, Qupperneq 30
9. desember 1749
Skúli Magnússon var skipaður
landfógeti, fyrstur Íslendinga.
Hann gegndi embættinu í 44
ár.
9. desember 1982
Ásmundur Sveinsson mynd-
höggvari lést, 89 ára. „Einn af
mikilhæfustu listamönnum
þjóðarinnar,“ sagði í for-
ystugrein Morgunblaðsins.
Björn Th. Björnsson sagði í
Þjóðviljanum að verk Ás-
mundar væru „mikill klettur í
menningu okkar“.
9. desember 1982
Kvikmyndin E. T. var frum-
sýnd í Laugarásbíói. Það var
frumsýning í Evrópu á þessari
mynd sem var betur sótt en
flestar aðrar. „Langt og
spennandi ævintýr,“ sagði DV.
9. desember 2000
Mikið tjón varð þegar fisk-
vinnsluhús Ísfélags Vest-
mannaeyja brann, en það var
einn fjölmennasti vinnustað-
urinn í bænum. „Þetta er reið-
arslag fyrir bæjarfélagið,“
sagði Guðjón Hjörleifsson bæj-
arstjóri í samtali við Morgun-
blaðið.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
30 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2010
Sudoku
Frumstig
7 5 6 8
3 2 8
6 7
6 5 3
3 4
5 7 2
2
4 1 6 5 8
1 8 5 7
4 3 7 1
2 8 4
1 4 7 3
3 2
1 2 3 5 9
8 9
2 7 4 5
9 7
1 8
6
6 1 7 9 5
8 7
9 1 3
6 2 3
1 2
6 2
7 5 3 1 8
3 5 1 7 6 9 2 4 8
9 4 6 8 1 2 7 5 3
8 2 7 5 3 4 6 9 1
7 3 5 9 4 1 8 6 2
6 9 4 2 8 3 1 7 5
2 1 8 6 7 5 4 3 9
4 7 9 1 5 8 3 2 6
5 8 3 4 2 6 9 1 7
1 6 2 3 9 7 5 8 4
1 8 5 2 3 7 9 6 4
4 7 2 1 9 6 5 3 8
9 6 3 4 5 8 1 7 2
5 4 1 3 6 9 8 2 7
6 3 8 7 1 2 4 9 5
2 9 7 8 4 5 6 1 3
7 2 9 6 8 4 3 5 1
3 5 4 9 7 1 2 8 6
8 1 6 5 2 3 7 4 9
1 4 2 7 9 8 6 5 3
9 3 6 1 5 4 2 7 8
8 5 7 3 2 6 4 1 9
3 6 4 9 1 5 7 8 2
2 9 5 6 8 7 3 4 1
7 8 1 2 4 3 9 6 5
5 1 9 4 6 2 8 3 7
4 7 8 5 3 9 1 2 6
6 2 3 8 7 1 5 9 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 9. desember,
343. dagur ársins 2010
Orð dagsins: Vakið því, þér vitið eigi,
hvaða dag Drottinn yðar kemur.
(Matth. 24, 42.)
Nú er ljóst að heimsmeistara-keppni karla í knattspyrnu
verður haldin í Rússlandi árið 2018
og í Katar árið 2022. Áður en ákvörð-
unin var tekin var kastljósi fjölmiðla
beint að því hvernig ákvarðanir væru
teknar innan FIFA, alþjóðaknatt-
spyrnusambandsins, og voru sér-
staklega breskir fjölmiðlar duglegir
við að segja að spilling hefði grafið
um sig innan samtakanna. Í gær
sagði Junji Ogura, forseti japanska
knattspyrnusambandsins, sem einn-
ig situr í framkvæmdastjórn FIFA,
að fréttir breskra fjölmiðla hefðu
skemmt fyrir tilraunum Breta til að
fá að halda keppnina.
x x x
Kveikjan var að blaðamennSunday Times leiddu tvo menn,
sem sátu í framkvæmdastjórn
FIFA, í gildru. Annar þeirra, Níger-
íumaðurinn Amos Adamu, bauð at-
kvæði sitt um hver fengi að halda
HM fyrir 570 þúsund evrur, hinn,
Reynald Temarii frá Haíti, fyrir 1,6
milljónir. Þessir tveir menn voru úti-
lokaðir frá atkvæðagreiðslunni og
sviptir öllum embættum.
x x x
ÍDer Spiegel var fjallað um FIFAundir fyrirsögninni Syndafall í
Zürich. Þar er rakið mál ISL/IMM,
sem markaðssetti heimsmeistara-
keppnina þar til samsteypan fór á
hausinn 2001. Kom fram að ISL/
ISMM hefði samtals greitt 138 millj-
ónir svissneskra franka í mútur, þar
á meðal meðlimum í framkvæmda-
stjórn FIFA. Þeir sluppu við refs-
ingu gegn því að endurgreiða 5,5
milljónir svissneskra franka.
x x x
Víkverji gerir sér grein fyrir þvíað miklir peningar eru í húfi í
knattspyrnunni. Og miklir peningar
eru ávísun á spillingu. Að því er hins
vegar enginn sómi fyrir knattspyrn-
una og það er undarlegt að heyra að
frammámenn í knattspyrnunni taka
ákvarðanir um það hverjir fái að
halda heimsmeistaramót og hverjir
ekki á grundvelli þess hvort umfjöll-
un fjölmiðla er jákvæð eða neikvæð.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 fávís, 4 gleðjast
yfir, 7 mjúkir, 8 dökk, 9
rödd, 11 fæða, 13 flanar, 14
á fiski, 15 sorg, 17 grotta, 20
bókstafur, 22 tölum, 23
bleytukrap, 24 langloka, 25
fundvísa.
Lóðrétt | 1 stygg, 2 kven-
menn, 3 líffæri, 4 viljugt, 5
mjó, 6 virðir, 10 skrökv-
uðum, 12 sár, 13 óhljóð, 15
klettur, 16 leiktækjum, 18
úrkomu, 19 kaka, 20 æpa, 21
tjón.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 reffilegt, 8 lækur, 9 kamar, 10 net, 11 strit, 13 arinn,
15 stöng, 18 safna, 21 rót, 22 launi, 23 akarn, 24 handlanga.
Lóðrétt: 2 eykur, 3 fornt, 4 lykta, 4 gemsi, 6 flas, 7 grín, 12 inn,
14 róa, 15 sæla, 16 önuga, 17 grind, 18 staka, 19 flagg, 20 asni.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 a6
5. Be2 Rf6 6. Rc3 Dc7 7. 0-0 Bb4 8. Dd3
Rc6 9. Rxc6 dxc6 10. f4 0-0 11. e5 Hd8
12. Dh3 Bxc3 13. bxc3 Rd7 14. Be3 c5
15. Hf3 Rf8 16. Bd3 b6 17. Dh5 Bb7 18.
Hh3 g6 19. Dh6 Dc6 20. Hg3 Hd7 21. f5
exf5 22. Bg5 Re6 23. Bf6 f4
Staðan kom upp í einvígi Friðriks
Ólafssonar og hins argentíska Her-
mans Philniks sem haldið var í
Reykjavík árið 1957. Friðrik hafði hvítt
og knésetti svartan með snoturri mát-
fléttu. 24. Dxh7+! og svartur gafst upp
enda mát eftir 24. … Kxh7 25. Hh3+
Kg8 26. Hh8#.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Blái borðinn.
Norður
♠642
♥98
♦108532
♣Á105
Vestur Austur
♠ÁK109753 ♠DG8
♥62 ♥K74
♦4 ♦G6
♣974 ♣KG832
Suður
♠--
♥ÁDG1053
♦ÁKD97
♣D6
Suður spilar 7♦.
Stóri tvímenningur bandarísku
haustleikanna er keppnin um bláa borð-
ann (Blue ribbon pairs). Sigurvegarar í
Orlando voru „tilbúningur á staðnum“ –
bandaríski spilarinn Jay Broker og hol-
lenski landsliðsmaðurinn Jan Jansma.
Þeir fengu topp fyrir að segja alslemmu
í tígli, sem vannst á svíningu.
Broker hóf sagnir í suður með lát-
lausri opnun á 1♥. Vestur lét 2♠ duga,
Jansma og austur sögðu pass, en Brok-
er krafði með 3♠. Vestur sýndi vaxandi
kjark með dobli og Jansma meldaði tíg-
ulinn. Broker krafði áfram með 4♠ og
aftur doblaði vestur, hvergi smeykur.
Broker redoblaði, Jansma sagði 5♣,
Broker tók einn aukasnúning með 5♠
og Jansma staðfesti að hann ætti fyrsta
vald með 6♣. Miðað við sagnir vesturs
virtist ♥K líklegur í austur og Broker
skaut á 7♦. Beint í mark.
Helgi Harðarson bifvélavirki ætlar ekki að taka
sér frí úr vinnunni í dag þótt hann fagni hálfrar
aldar afmæli. Hann er nýkominn frá Bandaríkj-
unum og segist ekki kunna við að taka sér frí.
Helgi hefur starfað hjá Frumherja í rúm sjö ár og
rekur skoðunarstöð fyrirtækisins við Gylfaflöt.
„Við fórum á bílasýningu í Daytona í Bandaríkj-
unum, stór hópur sem hefur farið á þessa sýningu
í þrettán ár,“ segir Helgi. „Við erum flestir með
bíladellu, en að þessu sinni var það konan mín,
Guðrún Sóley Guðnadóttir, sem stakk upp á að við
skelltum okkar, meðal annars vegna afmælisins.“
Um áhugamál segir Helgi að bílar og mótorhjól séu ofarlega á
blaði. „Mér finnst gaman að fara út á mótorhjólinu, en áhugamálin
eru þó flest tengd fjölskyldunni. Í dag á ég von á börnunum fjórum og
barnabörnunum tveimur í heimsókn, auk nánustu vina. Ég hef oft
haldið upp á afmælin, en læt þrengsta hópinn duga að þessu sinni.“
Helgi segir að starfið hafi lítið breyst í kreppunni. Hins vegar loði
við Íslendinga að vera á síðustu stundu með alla skapaða hluti. „Hér
fyllist alltaf allt síðustu daga mánaðar og það er eins og fólk vakni
ekki fyrr en rétt fyrir sekt.“
Helgi Harðarson bifvélavirki
Fimmtugsferð á bílasýningu
Flóðogfjara
9. desember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 2.14 0,7 8.33 4,0 14.52 0,7 20.53 3,5 11.06 15.35
Ísafjörður 4.15 0,5 10.27 2,3 17.00 0,5 22.43 1,9 11.47 15.04
Siglufjörður 0.56 1,1 6.29 0,4 12.47 1,4 19.08 0,2 11.32 14.45
Djúpivogur 5.43 2,2 12.00 0,6 17.46 1,9 10.44 14.56
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Það getur skipt sköpum að beita rétt-
um aðferðum til þess að ná árangri. Reyndu
að velja úr þannig að þú getir sinnt því sem
skiptir raunverulegu máli.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Mikilvægar manneskjur eru á sveimi í
kringum þig. Enginn er fullkominn og heim-
urinn ferst ekki þótt eitthvað sitji á hakanum.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Stilltu þig um að fá fjármál eða ótil-
greinda dauða hluti á heilann. Skemmtilegar
samræður og óvæntir endurfundir munu
setja svip sinn á daginn.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Nú verður ekki lengur hjá því komist
að leysa þau mál sem hvílt hafa á þér. Líttu í
kringum þig og sjáðu hvað lífið er í raun
dásamlegt og gaman að taka þátt í því.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú gantast með það að það séu vissir
hlutir sem þú vilt alls ekki vita. Láttu óreið-
una ekki fara í taugarnar á þér þar sem þetta
er aðeins tímabundið ástand.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Það hefnir sín alltaf að sópa vanda-
málunum undir teppið. Farðu varlega. Ef þú
gætir þess að halda þér vakandi munu ást og
auðæfi falla þér í skaut.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú nærð ekki árangri heima fyrir í dag
nema með því að vinna bug á spennu eða
ágreiningi í samskiptum við þína nánustu. Að
skipta um gír gæti gefið gull í mund.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Einhverjir draugar úr fortíðinni
eru að vefjast fyrir þér. Reyndu að láta sem
ekkert sé, því að mál munu upplýsast.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú ert örugg/ur um möguleika
þína, þó að aðrir séu það hugsanlega ekki.
Vinsældir þínar slá met, þú velur úr tilboðum.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Bara örlítil stefnubreyting hefur
afgerandi áhrif á það hvar þú endar að leið-
arlokum. Samstarfsfólki líkar margt í fari
þínu og óttast þig ekki.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þér gengur einstaklega vel í dag.
Eitthvað er að brjótast um í þér og nauðsyn
að þú fáir málin á hreint sem fyrst.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Hundruð kynslóða hafa trúað því að
maður fæðist inn í ákveðna stétt og að þar
við sitji. Þessu trúir þú ekki, sem betur fer.
Stjörnuspá
Ragnar Olsen
verður sjötugur
á morgun, 10.
desember. Í til-
efni þess að hafa
náð þessum
merka áfanga
ætlar hann að
taka á móti vin-
um og ættingjum með fjölskyldu
sinni í Röst á Hellissandi laugar-
daginn 11. desember frá kl. 18.
70 ára
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is