Morgunblaðið - 09.12.2010, Qupperneq 34
34 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2010
Gísli Hrafn, Einar og Jón opna
samsýningu í Gallerí Tukt, Hinu
Húsinu, Pósthússtræti 3-5 laug-
ardaginn 11. desember á milli
kl.16.00 og 18.00. Verkin á sýning-
unni eru öll unnin á þessu ári og eru
afar fjölbreytt að efniviði og inni-
haldi. Sýningin stendur til 1. janúar
2011 og er opin alla virka daga. All-
ir eru velkomnir á opnunina eða
síðar.
Sýningaropnun
í Gallerí Tukt
Fólk
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Hljómsveitin Ég, sem rekin er af Róberti Erni
Hjálmtýssyni og er í raun eins manns sveit
hans, gaf í haust út sína þriðju breiðskífu,
Lúxus upplifun. Róbert mætti kalla költ-
listamann, þeir fáu sem hlýtt hafa á tónlist
hans og sótt tónleika tilbiðja hann sem snill-
ing (ég þar með talinn) á meðan restin af
heiminum missir því miður af. Kannski að
breyting verði á nú, a.m.k. er hið bráðfallega
„Tíu fingur og tær“ farið að hljóma á Rás 2
og í kvöld verður platan kynnt með pompi og
prakt á Sódómu.
„Það tók langan tíma að koma þessu út,“
segir Róbert í laufléttu og æði-hnyttnu spjalli.
„Það voru ýmsir sem höfðu sýnt því áhuga að
gefa út en svo bökkuðu þeir allir. Ég gef
hana því sjálfur út en Kimi dreifir.“
Róbert segir ekki mikinn mun á vinnslu
plötunnar og þeirra sem á undan komu, hann
hafi þó verið meira einn í þetta sinnið og nú
var klósettaðstaða í hljóðverinu.
„Það kemur fram í upplýsingabæklingi að
upptökur hafi farið fram á bilinu 2005 til
2008. Þannig að það mætti ætla að eitthvað
hafi gerst á undanförnum tveimur árum og
það eru fleiri plötur í vinnslu. Ímynd fíflsins
er ein þeirra og svo er það platan Er þetta
Ég?, þar sem ég mun ekki snerta á neinum
hljóðfærum. Umslagið verður síðan spegill.“
Lög Róberts fara sínar eigin leiðir, þau
skipta óforvarandis um takt og gripin eru
ekki alveg eftir gítarbókunum.
„Ætli þetta sé ekki bara minn stíll? Ég vil
ekki vita neina tónfræði, ég vil ekki vera í
neinu boxi né tilheyra neinu. Ég held að vísu
með Liverpool en það er fæðingargalli. Ég vil
ekki hafa þetta eins og skákborð, þar sem allt
er fyrirfram ákveðið. Lögin fara bara eitt-
hvað, ég byrja á einhverju og fer svo bara
eitthvað með lagið.“
Aðspurður hvort hljómsveit hans eigi ekki
erfitt með að læra lögin segir að hann að hún
sé enga stund að pikka þetta upp.
„Strákarnir hafa verið með mér frá byrjun
og vita að hverju þeir ganga. Menn segja
bara: „Já, það er Róbertsgripið hér og þetta
grip þar. Ekkert mál“.“
„Ég vil ekki vera í neinu boxi,“ segir Róbert í Ég
Morgunblaðið/Ernir
Snillingur Róbert Örn Hjálmtýsson.
Tónlistarnördarnir og ofursnill-
ingarnir í Agent Fresco ætla að
kikkstarta jólaopnunartíma Havar-
ís næstkomandi fimmtudag kl. 21
með ókeypis tónleikum. Þeir eru
að kynna nýútkomna breiðskífu
sína um þessar mundir, en A Long
Time Listening hefur fengið af-
bragðs dóma og viðtökur og rýnir
blaðsins ræddi um rokkplötu þessa
árs og þeirra síðustu. Platan verð-
ur á „einhverju agalega fínu til-
boði“ eins og segir í tilkynning-
unni.
Agent Fresco
spilarí Havarí
Hann Steve Brodsky, söngv-
ari/gítarleikari úr hinni goð-
sagnakenndu Cave In, mun leggja
leið sína til Íslands og troða upp
á Sódómu Reykjavík fimmtudag-
inn 16. desember nk. Tónleikarn-
ir eru í beinu framhaldi af tón-
leikaferð um Bretland ásamt
Scott Kelly úr Neurosis og Shri-
nebuilder.
Þungarokksgoðsögn
til landsins
Northern Wave-stuttmyndahá-
tíðin mun fara fram í fjórða sinn
í Grundarfirði (á Snæfellsnesi)
4.-6. mars næstkomandi. Í kring-
um hundrað myndir hafa nú þeg-
ar borist en skilafrestur er 1. jan-
úar næstkomandi. Frekari
upplýsingar um hátíðina og um-
sóknareyðublöð má finna á nort-
hernwavefestival.com. Meðfylgj-
andi mynd er frá verðlauna-
afhendingu í fyrra.
Northern Wave
framlengir skilafrest
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Samnefnd plata Apparatsins, eða
Apparat Organ Quartet eins og
hann kallast á ensku (Orgelkvart-
ettinn Apparat á íslensku), kom út
árið 2002 á vegum TMT Entertain-
ment, sem þá var undirmerki Thule,
en var svo endurútgefin með aukn-
um hljómgæðum þremur árum síð-
ar á vegum 12 tóna. Allar götur síð-
an platan kom upprunalega út hafa
aðdáendur verið að bíða eftir nýjum
skammti en sveitin varð fljótlega af-
ar vinsæl tónleikasveit þrátt fyrir
óvenjulega mannaskipan. Platan,
Pólýfónía, er nú loks komin út og
fagna efalaust margir mikið og inni-
lega og ekki þá síst meðlimir sjálfir.
Rispur
„Við höfum verið svo vitlausir að
vera að lofa þessari plötu ár eftir
ár,“ segir Úlfur Eldjárn en með
honum í sveitinni eru þeir Hörður
Bragason, Sighvatur Ómar Krist-
insson, Jóhann Jóhannsson og Arn-
ar Geir Ómarsson sem sér um
trumbuslátt enda er kvartettinn
réttnefndur stærsti orgelkvartett
heims.
„Svo hættum við á endanum að
tala um plötuna, enda allir hættir að
taka mark á því að hún kæmi nokk-
urn tíma út.“
Úlfur segir að þeir félagar hafi
legið í plötunni í rispum og það hafi
komið að þeim tímapunkti að þeir
hafi séð að það væri óþarfi að hespa
þessu af þar sem fólk væri hvort eð
er orðið vant því að bíða.
„Þannig að við ákváðum að klára
þetta þannig að allir yrðu sáttir.
Þessi biðtími er ekki sökum ritstíflu
eða neins slíks, þvert á móti. Upp-
haflega ætluðum við að vera mjög
snöggir að þessu en það tók þó-
nokkurn tíma að koma fyrstu plöt-
unni frá (kvartettinn var stofnaður
1999). Planið var að byggja plötuna
á þessum tónleikagír sem við vorum
í og vinna hana tiltölulega hratt en
við komumst að því þegar á hólminn
var komið að þetta var ekki svona
einfalt. Við erum líka allir frekar
miklir stúdíókallar og vildum því
liggja yfir þessu.“
„Apparat House“
Úlfur segir að stundirnar hafi
verið ljúfar í „Apparat House“ eins
og hann nefnir það oftar en einu
sinni, raddblærinn sveipaður dulúð.
„Platan var unnin með fleiri
hljóðfærum en við getum notast við
á tónleikum; viðkvæm hljóðfæri
sem þola ekki miklar hitabreytingar
t.d., stór hljóðfæri sem við komumst
ekki með upp á sviðið o.s.frv. Þann-
ig að munurinn, þannig séð, á stúd-
íó-Apparatinu og tónleika-
Apparatinu er þónokkur.“
Sveitin er skipuð mektarmönnum
úr íslensku tónlistarlífi sem allir
eiga sinn feril og því eðlilegt að
spyrja hvernig gangi að vera sam-
vinnufús og auðmjúkur.
„Jú jú, þetta er fimm turna tal,“
segir Úlfur kímileitur. „Samstarfið
gengur vel – en ekki hratt. Jóhann
býr t.a.m. erlendis en fjarvinna hef-
ur gengið með miklum ágætum.
Hann vinnur þá í NTOV-hljóð-
verinu sínu á meðan við erum stað-
settir í „Apparat House“. Svo send-
um við pakka og hugmyndir á milli.“
Tilraun
Úlfur vill ekki beinlínis klína töf-
unum á það að þeir félagar séu upp-
teknir og erfitt hafi verið að koma
mannskapnum saman, frekar að
verklagið sé svona.
„En það var merkilegt að upplifa
það að það gerðist mjög mikið á
lokasprettinum, síðustu mánuðina
tóku sum lögin á sig nýja og annars
konar mynd.“
Þegar Apparatið kom saman í
fyrsta skipti átti það bara að vera
eitt kvöld, var liður í einni uppá-
komu Tilraunaeldhússins.
„Við fundum það strax, þegar við
vorum leiddir saman, að þetta var
hljómsveit sem okkur langaði til að
vera í,“ segir Úlfur. „Organistinn er
venjulega dálítið einmana í hljóm-
sveitum, er svona úti á kantinum og
þessi hljómsveit réðst gegn því, þar
sem við erum fjórir saman í for-
grunni. Við höfðum starfað sem
hljómborðsleikarar eða einmana
raftónlistarmenn og þetta var
skemmtileg tilbreyting frá því. Og
svo ég tali út frá mér persónulega
er þetta sú hljómsveit sem mig
langaði alltaf til að sjá á tónleikum –
með fullri virðingu fyrir öllum þeim
ágætu hljómsveitum sem ég hef
starfað með í gegnum tíðina.“
Tónleikarnir verða eins og áður
segir á Nasa í kvöld og hefjast kl.
21.00. Einnig koma Sykur, DJ Flug-
vél og geimskip og Junichi Mats-
umoto fram.
Fimm turna tal
Orgelkvartettinn Apparat heldur útgáfutónleika á NASA í kvöld Átta ár
frá síðustu plötu Biðtíminn ekki sökum ritstíflu að sögn Úlfs Eldjárns
Apparatmenn Hörður Bragason, Sighvatur Ómar Kristinsson, Úlfur Eldjárn, Arnar Geir Ómarsson og Jóhann Jóhannsson.
Siggi Eggerts hannaði
UMSLAGIÐ GÓÐA
Umslagið, sem hefur þegar verið valið umslag ársins
af tveimur íslenskum dagblöðum, var hannað af
Sigga Eggerts. Úlfur segir að Apparatmeðlimir hafi
verið að vandræðast með umslagið – sem er þeim
mikið hjartans mál – lengi vel en svo dottið niður á
Sigga. Hann hafi unnið umslagið nánast eins og
hann hafi verið meðlimur í Apparatinu, hafi verið fullkomlega á þeirri
línu sem Apparatliðar lögðu upp með. „Úrvinnsluhæfileikar hans voru
með miklum ágætum,“ segir Úlfur.