Morgunblaðið - 09.12.2010, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 09.12.2010, Qupperneq 35
AF JÓLUM Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Jól, jól, skínandi skær nálgastnú óðfluga með öllum sínumhamagangi. Þessi hátíð ljóss og friðar stendur varla undir nafni fyrr en diskarnir eru komnir í uppþvottavélina á aðfangadag, þegar fullorðnir leggjast örmagna upp í sófa og börn garga á pakka. Nei, annars, hamaganginum lýkur þegar börnin eru sofnuð. Hvar er þessi margumræddi friður? Ekki er hann í jólaauglýsingunum, jólapop- plögunum, jólatrjáaskemmt- ununum, jólahreingerningunum, jólamatarinnkaupaferðum, jólapakkainnkaupaferðum, jóla- boðunum og öllu hinu jólaveseninu. Friðarins verður víst að leita ann- ars staðar á þessum myrkasta tíma ársins, ef friður gefst til þess fyrir öllum ófriðnum. Friðurinn kemur jú að innan, ekki utan. Ég skil Trölla því ágætlega að hafa stolið jólunum, hann fékk aldrei frið fyrir öllum jólahamaganginum! Og ég finn til samkenndar með Skröggi, fjárhagslegrar samkenndar þ.e.a.s..    Ég hef aldrei verið mikið jóla-barn, a.m.k. ekki frá því ég var barn. Jólabarn. Að vísu hafa börnin mín breytt aðeins viðhorfi mínu til jólanna, maður gleðst auð- vitað yfir tilhlökkun þeirra og þeg- ar kirkjuklukkurnar hringja á að- fangadag og maður er nýbaðaður í sínu fínasta pússi, þá er þetta bara býsna huggulegt. Ég get hins vegar ekki sagt að ég trúi því að ósýnileg, alltumlykjandi og alvitur vera hafi getið konu einni í Austurlöndum barn og að hún hafi fætt það í fjár- húsi og fengið þrjá vitringa í heim- sókn sem rötuðu þangað út frá stjörnuskini. Það er aðeins of æv- intýralegt fyrir minn smekk, afsak- ið. En ég reyni heldur ekki að telja trúuðum trú um að þetta sé vit- leysa, hver hefur rétt á sinni trú al- veg eins og hver hefur rétt á sínu trúleysi. Ég trúi samt sem áður á það sem jólin boða, þ.e. ást og frið meðal manna, að sýna vænt- umþykju sína í verki. En sú trú er að vísu öllum trúarbrögðum eldri, að gjöra öðrum það sem þú vilt að þeir gjöri þér o.s.frv. Því miður finnst mér oft á tíðum að þessi sanni tilgangur jólanna hverfi í öllu ruglinu fyrir jólin. Áherslan virðist öll lögð á að umgjörðin verði í lagi, allir fái eitthvað nógu tilkomumik- ið í jólagjöf. Jólin eru kannski hátíð kaupmanna? Nú er þetta gömul tugga, en gömul tugga er nú aldrei of oft tuggin.    Ég er þó ekki algjör jólafýlu-poki (eða vonandi ekki), kann að meta jólin í þau skipti sem þau veita manni birtu og yl. Og þá er ég ekki bara að tala um á aðfangadag og jóladag, þegar maður finnur fyrir ást og umhyggju ættingja og vina, heldur einnig aðventuna. Fátt er nefnilega notalegra en að sökkva djúpt í algleymisjólasælu og -fegurð. Það fékk ég að upplifa um daginn þegar ég hlýddi á nokkra unga drengi úr Drengjakór Reykjavíkur syngja á aðventu- tónleikum í Hallgrímskirkju. Þegar þessar blíðu raddir fylltu hið mikla rými fann ég friðinn, eftir langa og þreytandi vinnuviku. Fátt er nefni- lega fallegra en himneskur söngur barnakórs, nema ef vera skyldi ný- fætt barn í jötu. Sú fegurð er svo há að maður kemst ekki yfir hana, svo breið að maður kemst ekki í kringum hana og svo djúp að mað- ur kemst ekki undir hana. Gleðileg jól. Hátíð friðar og ófriðar » Fátt er nefnilegafallegra en him- neskur söngur barna- kórs, nema ef vera skyldi nýfætt barn í jötu. Fallegt Jesúbarnið friðsælt á svip í jötunni á ítölsku helgimyndakorti, ártal óþekkt sem og listamaðurinn. MENNING 35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2010 Sýnd kl. 6 Sýnd kl. 6 Sýnd kl. 8 og 10:10Sýnd kl. 8 og 10:10 EINN BESTI SPENNUTRYLLIR ÁRSINS... SEM GEFUR FYRRI MYNDINNI EKKERT EFTIR! FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA! HVERSU LANGTMYNDIR ÞÚ GANGA FYRIR ÞÁ SEM ÞÚ ELSKAR? ÞRÆLMÖGNUÐ SPENNUMYND HHH Sýnd kl. 8 og 10:30 Sýnd kl. 6 Hann leitar Hefnda Þeirra sem sviku Hann frábær Hasarmynd! HHH “Heldur manni í heljargreipum. Ég sef með kveikt ljósin á næstunni...” T.V. - Kvikmyndir.is -bara lúxus Sími 553 2075 www.laugarasbio.is Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum SMÁRABÍÓ Nánar á Miði.is 5% Nánar á Miði.isBORGARBÍÓ FASTER kl. 8 - 10 PARANORMAL ACTIVITY 2 kl. 8 - 10 THE NEXT THREE DAYS KL. 5.45 síðasta sýning JACKASS 3D KL. 5.45 síðasta sýning 16 16 12 12 Nánar á Miði.is FASTER kl. 5.50 - 8 - 10.10 FASTER LÚXUS kl. 5.50 - 8 - 10.10 PARANORMAL ACTIVITY 2 kl. 5.50 - 8 - 10.10 THE NEXT THREE DAYS KL. 8 - 10.40 NIKO OG LEIÐIN TIL STJARNANNA KL. 3.50 - 6 JACKASS 3D ÓTEXTAÐ KL. 5.50 - 8 - 10.10 ARTHÚR 3 KL. 3.40 ÚTI ER ÆVINTÝRI 2 KL. 3.50 AULINN ÉG 3D ÍSL. TAL KL. 3.50 16 16 16 12 L 12 L L L FASTER kl. 8 - 10.10 AGORA KL. 9 NIKO OG LEIÐIN TIL STJARNANNA KL. 6 ARTHÚR 3 KL. 6 SKYLINE KL. 8 - 10.10 UNSTOPPABLE KL. 10.10 EASY A KL. 6 YOU WILL MEET A TALL DARK STRANGER KL. 8 BRIM KL. 6 16 14 L L 12 L 12 L 12 HÁSKÓLABÍÓGLERAUGU SELD SÉR ÍSL. TALÍSL. TAL EPÍSK STÓRMYND EFTIR LEIKSTJÓRA THE OTHERS FRÁBÆR TEIKNIMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA MEÐ ÍSLENSKU TALI T.V. - KVIKMYNDIR.IS Hann leitar hefnda á þeim sem sviku hann. Frábær hasarmynd! "MYND SEM HITTIR Í MARK!" -H.H, MBL Ástralska leikkonan Cate Blanchett kemur til með að leika í kvikmynd- inni The Hobbit eða Hobbitanum. Blanchett mun leika álfkonuna Gala- driel, sömu persónu og hún lék í Lord of the Rings-þríleiknum. Gala- driel er hins vegar ekki að finna í bók J.R.R. Tolkiens, Hobbitanum. Reuters Álfkona Cate Blanchett. Blanchett í Hobbitanum Aretha Wilson, konan sem réðst á bandaríska leikarann Leonardo Di- Caprio í teiti í Hollywood fyrir fimm árum og skar hann í andlitið með brotinni flösku, hefur verið dæmd til tveggja ára fangelsisvistar. Sauma þurfti 17 spor í andlit DiCaprio. Skorinn DiCaprio varð fyrir árás. Tveggja ára fangelsi Reuters

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.