Morgunblaðið - 09.12.2010, Blaðsíða 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2010
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Það eru fáir leikmenn sem gera sér
grein fyrir því hvað vönduð lýsing er
mikilvæg fyrir upplifun áhorfenda í
leikhúsi. Leikhússtjórinn Ingmar
Bergman var meistari lýsingarinnar
og þegar hann færði sig yfir í bíó-
myndirnar olli hann straumhvörfum
í þeirri listgrein með snilldarlegri
notkun ljóssins sem hann vann í
samstarfi við kvikmyndatökumann-
inn Sven Nykvist. Í janúar verður
Ofviðrið frumsýnt eftir William
Shakespeare undir stjórn hins
þekkta litháíska leikstjóra Oskaras
Korsunovas.Uppsetning hans er
eins konar óður til leikhússins og
listarinnar og því hefur verið safnað
saman miklu magni af eldri leik-
húsmunum til að nota í sýningunni.
Dregnir hafa verið gamlir ljóskast-
arar úr geymslum Borgarleikhúss-
ins frá því fljótlega eftir stríð. Giss-
ur Pálsson, þáverandi ljósameistari
Leikfélags Reykjavíkur, lýsti með
þeim ófáa leikarana á sviði gamla
Iðnós.
Erfitt að lýsa lýsingunni
Björn Bergsteinn Guðmundsson
er ljósameistari Borgarleikhússins
en áður var hann í ein 20 ár hjá
Þjóðleikhúsinu en fór til Leikfélags
Akureyrar og í Konunglega leik-
húsið í Kaupmannahöfn áður en
hann kom í Borgarleikhúsið. Hann
segir að áferðin í þessum gömlu ljós-
um sé allt önnur en í þeim nýrri.
„Það er þessi gamla gula birta sem
er hverfandi fyrir þessu harðara
ljósi. Evrópusambandið er búið að
banna glóperu (tunglsteinljós).
Þessar perur eru svo orkufrekar að
það er búið að banna þær víða. Þær
verða bannaðar hér. En list ljóssins
hefur ekki breyst mikið í leikhúsinu,
þótt þróun í tækninni hafi verið mik-
il. Mesta þróunin sem hefur verið
síðustu árin er í þessum hreyfi-
ljósum. Þannig að ljósin hreyfa sig
automatískt. En mér finnst alltaf
erfitt að lýsa þessari þróun í list
ljóssins. Ég fór einu sinni á fyr-
irlestur hjá einum fremsta ljósa-
meistara heimsins, Francis Reed.
Hann sagði að það væri svipað með
list ljóssins í leikhúsinu og með kyn-
lífið. Það væri rosalega gaman að
gera það en það væri eiginlega ekk-
ert hægt að tala um það,“ segir
Björn og hlær.
Leikhúsið á við þorp
Á síðustu áratugum hefur tæknin
breyst gríðarlega mikið og nú eru
hátt í 700 hátækniljós yfir Stóra
sviðinu í Borgarleikhúsinu en leik-
húsið notar árlega álíka mikið raf-
magn og meðalþorp á landsbyggð-
inni. Með því að nota gamla
ljósgjafa í bland við nýja vilja menn
ná hlýrri og nostalgískri áferð í
myndina.
Forn ljós lýsa á ný í leikhúsinu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ljóslistin Björn Bergsteinn Guðmundsson ljósameistari Borgarleikhússins
hengir hér upp ljóskastara sem hann gróf upp í geymslu leikhússins.“
Freyr ekki vita það. „En hugs-
anlega hefur verið þörf fyrir svona
þátt um tónlist. Í sjónvarpinu hefur
verið hægt að sjá marga mismun-
andi matreiðsluþætti með öllum
bragðtegundum, golfrásir og þætti
um tölvuleiki en engan um tónlist.
Þótt allir geti samsamað sig með
tónlistinni. Svo erum við með af-
slappað viðmót í þáttunum, tökum
okkur hvorki hátíðlega né erum við
að finna upp hjólið. Við hittum tón-
listarmennina oft í óvenjulegum að-
stæðum, sjáum hinn hluta lífs
þeirra. Því margir þeirra eru í fullri
vinnu við eitthvað allt annað en
sinna síðan tónlistinni í frítíma sín-
um,“ segir Kristján.
Fyrst Kristján segist ekki vera
að finna upp hjólið liggur beinast
við að spyrja hvaða þáttur eða hver
sé þá fyrirmyndin og það er þá
Skúli Helgason, segir Kristján.
„Þátturinn hans Skúla á sínum tíma
var mikill áhrifavaldur fyrir mig.
Hann er mín fyrirmynd. Hann var
með þátt sem hét Tíðarandinn og
hann sýndi hvað var í gangi hverju
sinni. Þar heyrði maður fyrst um
margar hljómsveitir sem síðar urðu
í uppáhaldi hjá manni. Hann kynnti
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Sjónvarpsþátturinn Rokk og Tjat-
jatja sem sýndur er á ÍNN hefur
vakið mikla athygli. Talað er vel um
þáttinn bæði á meðal tónlistar-
manna og á meðal almennings enda
fjölbreyttur þar sem gestir þátt-
arins hafa verið allt frá reynslubolt-
um eins og Ragga Bjarna og til fjör-
kálfa krúttkynslóðarinnar eins og
Braga Baggalúts. Þátturinn hefur
verið í gangi í fimm vikur og er
strax orðinn einn vinsælasti þátt-
urinn á sjónvarpsstöðinni. Kristján
Freyr sér um þáttinn en hann er
líklega þekktastur fyrir að vera
trommarinn í þungarokkshljóm-
sveitinni Reykjavík! en hefur komið
víða við í tónlistarbransanum. Hann
aðstoðar meðal annars við rekstur
plötufyrirtækisins Kimi Records og
er einn þeirra sem hafa staðið að
tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suð-
ur sem hefur verið haldin árlega við
Ísafjarðardjúp.
Í slippinn með tónlistina
Aðspurður hvers vegna þættirnir
séu svona vinsælir segist Kristján
mann fyrir því hvað var í gangi á
hverjum tíma. Við erum að gera það
sama að fara yfir það sem er á döf-
inni hverju sinni. Kíkja á tónleika
og tónlistaruppákomur eða jafnvel
ráðstefnur um tónlist, áritanir og
þess háttar. Ég var til dæmis núna
að koma frá því að hitta Valgeir
Guðjónsson í Slippsalnum þar sem
gamli slippurinn var. Hann er með
tónleikasal þar sem eru hans bæki-
stöðvar. Hann er með margar
skemmtilegar tónlistaruppákomur
eins og til dæmis eitt reglulegt
kvöld hjá honum sem hann nefnir
Lifandi útvarp. En þá koma tónlist-
armenn til hans í salinn og ræða
lögin sín og sýna tóndæmi,“ segir
Kristján.
„En við bjóðum upp á ýmislegt
annað í þættinum en heimsóknir til
manna eins og Valgeirs,“ segir
Kristján. „Við erum til dæmis með
dagskrárlið sem heitir Fimman. En
þá köstum við á tónlistarmann fimm
spurningum og gefum honum alltaf
„high five“ í lokin. Söngvarinn í
Agent Fresco fékk slíkar spurn-
ingar á sig en við heimsóttum hann
einmitt þar sem hann vinnur í af-
greiðslunni á Hótel Hilton. Hann
notar síðan kvöldin í að spila geð-
veikt stærðfræðirokk. Þú þarft að
vera svolítið vel að þér í Pýþagórasi
til að skilja þetta rokk hans. Það er
mikið um hraðar taktskiptingar og
þess háttar í stærðfræðirokkinu,“
segir Kristján.
Kynslóð athyglisbrestsins
Fimmti þátturinn verður sýndur í
kvöld á ÍNN klukkan 21.30 og er
Kristján bjartsýnn á framhaldið.
„Já, viðtökurnar hafa verið það góð-
ar. Fólk hagar sér öðruvísi í dag en
þegar Skúli var með sinn þátt. Net-
ið er komið og flestir komnir með
nettan athyglisbrest og geta varla
komist í gegnum eitt myndband án
þess að vera farnir að leita eitthvað
annað. En þessi hálftímaþáttur er
upplagður fyrir fólk til að slappa af
og fá sér kakó,“ segir Kristján.
Loksins sjón-
varpsþáttur með
tónlistina í öndvegi
Morgunblaðið/Golli
Kristján Segir viðtökur við sjónvarpsþættinum hafa verið góðar.
Harry Potter, Hermione Granger, Ron
Weasley og Voldemort eru komin aftur í
magnaðasta ævintýri allra tíma
Aðsóknar-
mesta myndin
á Íslandi í dag
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI,
AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
HHHH
- BOXOFFICE MAGAZINE
HHHH
- Time Out New York
„IT’S THE BEST FILM IN
THE SERIES.“
- ORLANDO SENTINEL
HHHH
„ÞETTA ER KLASSÍK
VORRA TÍMA.“
- Ó.H.T. – RÁS 2
HHHH
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSKÖLL, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
„THE BEST ROMANTIC
COMEDY OF THE YEAR!“
- GREG RUSSELL,
MOVIE SHOW PLUS
„HIN FULLKOMNA
STEFNUMÓTAMYND.“
- BONNIE LAUFER, TRIBUTE CANADA
„KATHERINE HEIGL AND JOSH
DUHAMEL SIZZLE IN A COMEDY
THAT’S SURE TO WIN YOUR HEART.“
- JEANNE WOLF, PARADE
„SPRENGHLÆGILEG.“
- ALI GRAY, IVILLAGE.COM
„HEIGL AND DUHAMEL
ARE THE BEST ON-SCREEN
COUPLE OF THE YEAR.“
- JOAN ROBBINS, ENTERTAINMENT
STUDIOS
„YOU’LL FALL IN LOVE
WITH ‘LIFE AS WE KNOW IT.’“
- MARIA SALAS, THE CW
„FUNNY, SEXY AND
SURPRISINGLY SWEET!“
- SAINT BRYAN, NBC-TV
SÝND Í KRINGLUNNI
„EXCELLENT.
A ZEITGEIST FILM.“
- RICHARD CORLISS, TIMES
„SHARP, TIMELY
AND VERY FUNNY.“
- KAREN DURBIN, ELLE
BESTA SKEMMTUNIN
LIFE AS WE KNOW IT kl. 5:30 - 8 - 10:30 L DUE DATE kl. 5:50 - 8 - 10:20 10
HARRY POTTER kl. 5:30 - 7 - 8:30 - 10 10 RED kl. 8 - 10:20 12
HARRY POTTER kl. 5:30 - 8:30 VIP KONUNGSRÍKI UGLANNA kl. 5:50 ísl. tal 7
/ ÁLFABAKKA
LIFE AS WE KNOW IT kl. 5:30 - 8 - 10:30 L DUE DATE kl. 8 - 10:10 10
HARRY POTTER kl. 5 - 6 - 8 - 9 10 ÆVINTÝRI SAMMA ísl. tal 6 3D L
/ EGILSHÖLL