Morgunblaðið - 09.12.2010, Síða 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2010
Kvikmyndin Life as WeKnow It er mjög fyr-irsjáanleg, það eina semkemur á óvart er hvað
hún er góð miðað við aðrar róm-
antískar gamanmyndir sem hafa
verið á boðstólnum að undanförnu.
Ekkert meistarastykki er þó hér á
ferð, aðeins fín kvöldskemmtun fyrir
þá sem sækja í rómantískar gam-
anmyndir.
Í Life as We Know It segir frá
Holly Berenson (Heigl) og Eric
Messer (Duhamel) sem eru ólíkir
einstaklingar sem hatast frá fyrstu
kynnum. Messer vinnur við sjón-
varpsútsendingar frá leikjum Atl-
anta Hawks og er upprennandi út-
sendingarstjóri en óttalegur slóði í
einkalífinu, er hinn hefðbundni
kvennabósi. Berenson rekur bakarí
og veisluþjónustu sem gengur mjög
vel enda um skipulagða og formfasta
konu að ræða. Besta vinkona Beren-
son og besti vinur Messers eru gift
og því komast þau ekki hjá því að
umgangast hvort annað þónokkuð.
Vinirnir eiga dótturina Sophie og
eru Berenson og Messer guðfor-
eldrar hennar. Þegar foreldrar
hennar látast í bílslysi kemur í ljós
að þau hafa falið Berenson og Mes-
ser að sjá um dótturina ef eitthvað
kæmi fyrir þau. Berenson og Messer
svíkjast ekki undan því og flytja
saman inn á heimili Sophie til að lífs-
rútínan breytist sem minnst hjá
henni eftir lát foreldranna. Sam-
búðin gengur erfiðlega enda eru þau
bæði að reyna að reka aðskilið líf sitt
ásamt því að ala upp barn saman.
Árekstrarnir verða margir en óbeit-
in sem þau hafa á hvort öðru breyt-
ist smátt og smátt í ást og að lokum
eru þau orðin samheldin fjölskylda.
Þótt Life as We Know It fari alveg
eftir formúlunni að hinni klassísku
klisjukenndu rómantísku gaman-
mynd hefur hún eitthvað svo maður
gengur ekki út að lokum með gubbið
í hálsinum. Staða Berenson og Mes-
sers er ekki ótrúverðug og glíman
við uppeldið eitthvað sem margir
foreldrar kannast við.
Katherine Heigl og Josh Duhamel
eru fín í hlutverkum sínum. Heigl er
orðin eins og Jennifer Aniston, alltaf
eins í eins myndum. Svo sætar og
svipbrigðalausar. Ég væri alveg til í
að sjá aðrar leikkonur en þær tvær í
rómantískum gamanmyndum. Eins
væri ég til í að sjá slíka mynd með
engu flugvallaratriði, hvað er þetta
með að átta sig allt í einu þegar hinn
aðilinn er kominn út á flugvöll á leið-
inni langt, langt í burtu og þurfa að
drífa sig út á völl til að játa honum
ást sína?
Duhamel er alveg óhemju mynd-
arlegur maður og þrátt fyrir það
getur hann leikið ágætlega, hann er
trúverðugur í hlutverki sínu og get-
ur sýnt sannfærandi tilfinningar og
svipbrigði. Blake Neely sér um tón-
listina í myndinni og tekst vel til, það
eru engar sykurhúðaðar sinfóníur
með bleikum hjörtum, heldur popp-
og rokktónlist sem gerir myndina
ekki eins væmna. Life as We Know
It er fín fyrir þá sem vilja létta og
hjartnæma skemmtun til að gleyma
sér yfir í jólastressinu.
Ást og árekstrar
Sambíóin
Life as We Know It bbbnn
Leikstjóri: Greg Berlanti. Aðalhlutverk:
Katherine Heigl og Josh Duhamel.
Bandaríkin 2010. 75 mínútur.
INGVELDUR
GEIRSDÓTTIR
KVIKMYND
Breytingar Það breytist margt þegar barn kemur til sögunnar.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
BRUCE WILLIS,
MORGAN FREEMAN,
JOHN MALKO-VICH OG
HELEN MIRREN ERU
STÓRKOSTLEG Í ÞESSARI
ÓTRÚLEGA SKEMMTILEGU
GRÍN HASARMYND
HHHH
- HOLLYWOOD REPORTER
HHHH
- MOVIELINE
HHHH
- NEW YORK POST
SÝND Í ÁLFABAKKA
ROBERT DOWNEY JR.
OG ZACH GALIFIANAKIS
EIGA EFTIR AÐ FÁ ÞIG TIL
AÐ GRENJA ÚR HLÁTRI
FRÁ TODD PHILIPS, LEIKSTJÓRA THE HANGOVER
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG KRINGLUNNI
HHHHH
- ANDRI CAPONE -- RÁS 2
SÝND Í KRINGLUNNISÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI 7 SÝND Í EGILSHÖLL
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
MIÐASALA Á SAMBIO.IS Í BEINNI ÚTSENDINGU FRÁNATIONAL THEATER 9. DES KL. 19.00
Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI
MIÐASALA Á
WWW.SAMBIO.IS
TRYGGIÐ YKKUR MIÐA Í TÍMAHAMLET NT Leikrit í beinni útsendingu kl. 7 L
THE JONESES kl. 5:50 - 8 - 10:20 12
HARRY POTTER and the Deathly Hallows kl. 10:10 10
DUE DATE kl. 8 - 10:20 10
THE SWITCH kl. 5:50 10
/ KRINGLUNNI
LIFE AS WE KNOW IT kl. 6 - 8 - 10:10 L
HARRY POTTER kl. 6 - 9 10
/ AKUREYRI
Í KVÖLD
kl. 19:00