Morgunblaðið - 09.12.2010, Side 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 2010
salka.is • Skipholti 50c • 105 Reykjavík
Salka
/
M
EL
Loksins fáanleg aftur, full af góðum heimilisráðum og
uppskriftum að fiskréttum, kjötréttum, brauði, súpum
og grænmetisréttum sem auðvelt er að fylgja.
Einnig geymir hún leiðbeiningar um
hagkvæm matarinnkaup,
þvotta og þrif.
Hagnýtar og
heimilislegar
Hlýjar
hendur
Unga fólkið og
eldhússtörfin
Hlýjar hendur seldist tvisvar upp á
síðasta ári. Nú er hún komin aftur –
endurbætt og í gormi til hagræðis. Bókin
er með 53 fallegum og frumlegum
vettlingauppskriftum
í öllum stærðum.
Handa
þeim sem eru
að byrja að búa
Frábær
gjöf fyrir
hannyrðafólk
Rithöfundurinn Kristín Eiríksdóttir
er ein þeirra höfunda sem eiga smá-
sögur í safnritinu Best European
Fiction 2011 sem út kom á dögunum
og er breski rithöfundurinn Hilary
Mantel meðal höfunda einnig. Í
gagnrýni ritsins Open Letters
Monthly er Kristínu líkt við Mantel
og skrif hennar sögð stórkostleg, að
því er fram kemur í tilkynningu frá
Forlaginu. Mál og menning gaf ný-
verið út smásagnasafn Kristínar,
Doris deyr.
Saga Kristínar í Best European
Fiction 2011 heitir Holur í menn,
eða Holes in People upp á enskuna,
og er hana að finna í Doris deyr.
Best European Fiction 2011 var rit-
stýrt af rithöfundinum. Bókin hefur
að geyma 35 sögur evrópskra höf-
unda frá 32 löndum og er gefin út af
Dalkey Archive Press.
Í gagnrýni á Doris deyr í Morg-
unblaðinu sagði m.a: „Sögurnar tíu í
safninu eiga það sameiginlegt að
fjalla um fólk sem er ekki heilt og
persónurnar eru oftar en ekki leit-
andi, óttaslegnar eða brotnar á ein-
hvern hátt. Tengsl milli fólks, sam-
bönd þeirra, samskipti og sam-
skiptaleysi, nánd og skortur á henni
eru yrkisefni Kristínar.“ Bókin
hlaut þrjár stjörnur af fimm mögu-
legum. Lof Skrif Kristínar eru stórkostleg að mati Open Letters Monthly.
Líkt við Mantel
Morgunblaðið/Ómar
Forsætisráðherra Ítalíu, Silvio Ber-
lusconi, er gert að sök að hafa kraf-
ist þess að kvikmyndin Goodbye
Mama eftir Michelle Bonev yrði
sýnd á síðustu kvikmyndahátíð í
Feneyjum og einnig að hafa krafist
þess að Bonev fengi „einhvers kon-
ar verðlaun“, að því er fram kemur
í frétt á vef dagblaðsins Guardian.
Rannsókn er hafin á málinu og talið
að Berlusconi hafi sótt allt að 400
þúsund evrur í sjóði ríkisins til að
flytja 40 manna sendinefnd tengda
myndinni til Feneyja, m.a. Bonev.
Bonev segir þetta alrangt, hún hafi
greitt flugfargjaldið sjálf en þau
Berlusconi munu vera vinir.
Neitar Bonev verst allri sök.
Feneyja-
hneyksli
Í gær voru 30 ár liðin frá því að
tónlistarmaðurinn John Lennon
var skotinn til bana fyrir utan
heimili sitt í New York. Hundruð
tónlistarmanna komu saman í gær
í heimaborg Lennons, Liverpool,
til að minnast hans og endurskapa
ljósmynd Astrid Kircherr frá
árinu 1964 af Bítlunum og fjölda
tónlistarmanna á tröppum St.
George’s Hall. Þá var haldin
minningarathöfn um kvöldið í
Chavasse-garðinum. Minningar-
athafnir voru haldnar víðar um
heim, m.a. við Lennon-minnisvarð-
ann Strawberry Field í Central
Park í New York.
30 Lennon var myrtur 8. des. 1980.
Lennons
minnst
Breska málmsveitin Judas Priest
hefur tilkynnt að væntanleg heims-
tónleikaferð sveitarinnar verði sú
síðasta og að sveitin ætli að henni
lokinni að leggja niður störf. Judas
Priest hefur verið að í ein 40 ár og
selt um 40 milljónir platna. Loka-
tónleikaferð sveitarinnar ber yfir-
skriftina Epitaph eða Grafskrift,
sem er einkar viðeigandi.
Harðir Rokkararnir í Judas Priest.
Judas Priest
segir bless