Morgunblaðið - 09.12.2010, Side 40
FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 343. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3990 HELGARÁSKRIFT 2500 PDF Á MBL.IS 2318
1. Grunaðir menn í haldi vegna ráns
2. Tekinn af sömu löggunni
3. Menn frá Visa til landsins
4. Öruggur sigur á Norðmönnum
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Melchior heldur jólafiskisúpu-
tónleika sem fara fram í hinum
huggulega matsal Landnámsseturs-
ins. Sérstakur gestur á tónleikunum
verður Ólafur Flosason, en hann lék á
óbó með sveitinni fyrir 30 árum.
Tónleikar Melchior
í Landnámssetrinu
Franska forlag-
ið Éditions Mé-
tailié hefur fest
sér útgáfuréttinn
á Morgunengli,
sakamálasögu
Árna Þórarins-
sonar, aðeins
nokkrum vikum
eftir að hún kom
út hérlendis við afbragðs viðtökur
lesenda og gagnrýnenda. Fyrri
bækur höfundarins hafa átt mikilli
velgengni að fagna á erlendri
grund.
Árni Þórarinsson
vinsæll í Frakklandi
Blúsfélagið heldur úti öflugu starfi
í desember. Eftir slétta viku verður
jólablúsgjörningur Vina
Dóra í Rúbín, í kvöld
leika Lame Dudes á
Paddy’s í Reykjanesbæ
og á morgun verða hinir
árlegu jólablús-
tónleikar á
Café Rót,
Hafnarstræti
17. Blúsaður
desember!
Blúsfélagið blúsar af
krafti í desember
Á föstudag Vestan 10-18 m/s og rigning. Hiti 0 til 8 stig, kaldast austan til.
Á laugardag Vestan- og norðvestanátt, 8-15 m/s en lægir síðdegis. Skýjað og þurrt að
kalla en léttskýjað austan til. Hiti 0 til 6 stig en vægt frost austan til.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Rigning eða súld með morgninum. Úrkomulítið austanlands og
dregur úr frosti en hiti 0 til 8 stig um landið vestanvert.
VEÐUR
„Ég fékk svör við ýmsum
spurningum að þessu sinni
og út frá því var þátttakan í
leikjunum tveimur mik-
ilvæg,“ sagði Guðmundur
Þórður Guðmundsson,
landsliðsþjálfari í hand-
knattleik karla, eftir að ís-
lenska landsliðið hafði unn-
ið Norðmenn í
lokaleik sínum á
heimsbikar-
mótinu í Svíþjóð í
gærkvöldi. »4
Guðmundur fékk
svör í Svíþjóð
Það verður á brattann að sækja fyrir
stelpurnar okkar í íslenska kvenna-
landsliðinu í handknattleik í kvöld en
þá etur það kappi við firnasterkt lið
Svartfjallalands í öðrum leik sínum á
Evrópumótinu í Danmörku. Vonandi
gengur betur en í fyrsta leiknum. »3
Á brattann að sækja
gegn Svartfellingum
Sigurganga kvennaliðs Hamars í úr-
valsdeild kvenna heldur áfram. Í gær
lenti liðið þó í kröppum dansi þegar
það sótti Hauka heim. Grípa þurfti til
framlengingar til þess að knýja fram
úrslit. Hamars-stúlkur sögðust prísa
sig sælar yfir að hafa tekið með sér
stigin tvö þegar þær yfirgáfu Ásvelli í
leikslok. Svo kröftug var mótspyrna
Haukaliðsins. »2
Sigurgangan heldur
áfram hjá Hamri
ÍÞRÓTTIR
Una Sighvatsdóttir
una@mbl.is
„Tónlistin er mjög tengd okkur öll-
um, sjaldan fellur eplið langt frá eik-
inni, en það er ánægjulegt að fá tæki-
færi til að vera öll saman á svona
hálfgerðri uppskeruhátíð, það höfum
við aldrei gert áður,“ segir Margrét
Pálmadóttir kórstjóri.
Margrét heldur í kvöld tvenna að-
ventutónleika þar sem fram koma,
auk fjölmennra kóra sem hún stjórn-
ar, fjögur af fimm börnum hennar.
Elsti sonur hennar, Maríus Sverris-
son, verður einsöngvari á tónleik-
unum, dæturnar Sigríður Soffía og
Matthildur syngja með Stúlknakór
Reykjavíkur og yngsti sonurinn,
Kristján, spilar á trommur.
Fimmta barn Margrétar, sonurinn
Hjalti, á raunar líka sinn þátt í tón-
leikunum þótt hann stígi ekki sjálfur
á svið, því hann er markaðsfræðingur
og hefur aðstoðað við að fjármagna
tónleikana. Það er því mikil stemning
í fjölskyldunni vegna samvinnunnar
þessa aðventuna.
Aðventutónleikar í 45 ár
„Þetta er alveg makalaust að geta
náð öllum svona saman, ekki síst
vegna þess að Maríus er búsettur í
Berlín. Ég er afskaplega þakklát fyr-
ir að fá þetta tækifæri með öllu mínu
frábæra söngfólki, ég er svo stolt af
konunum mínum,“ segir Margrét og
vísar þar í fríðan hóp hátt í 200 söng-
kvenna úr söngskólanum Domus Vox
sem syngja á tónleikunum.
Aðventan
hefur ein-
kennst af
tónleika-
haldi hjá
Margréti
nánast síð-
an hún fyrst
man eftir
sér. „Ég var
9 ára þegar
ég kom fram á fyrstu aðventutónleik-
unum í Hafnarfjarðarkirkju og lék þá
vitring í helgileiknum. Mig grunaði
ekki þá að mín biðu stanslausar að-
ventuveislur bæði hér heima og er-
lendis, en það sem er sérstaklega
ánægjulegt er að nú þegar ég er búin
að syngja á aðventutónleikum í 45 ár
fæ ég að upplifa þetta, að hafa alla
kórana mína með og börnin mín líka.“
Hátíðlegt og órafmagnað
Það er því óhætt að segja að að-
ventan sé eitt af uppáhaldstímabilum
Margrétar og segir hún tónlistina
eiga stóran þátt í því. Tónleikarnir í
kvöld verði sérstaklega hátíðlegir, og
órafmagnaðir.
„Alveg eins og ég vil hafa það,
þannig að mín vegna má rafmagnið
alveg detta út á meðan, það skiptir
engu máli,“ segir Margrét og hlær.
Börnin með í tónleikahaldinu
Hefur sungið á
aðventutónleikum
samfleytt í 45 ár
Morgunblaðið/Golli
Fjölskyldan Margrét Pálmadóttir ásamt börnum sínum 5, þeim Kristjáni, Hjalta, Sigríði Soffíu, Matthildi og Mar-
íusi, sem öll styðja við bakið á móður sinni á tónleikunum í Hallgrímskirkju í kvöld, hvert með sínum hætti.
Yfirskrift tónleikanna er „Yfir
fannhvíta jörð“ og koma þar
fram kvennakórarnir Vox fem-
inae og Cantabile, auk Stúlkna-
kórs Reykjavíkur. Sam-
tals eru það því hátt í
200 konur sem
syngja saman undir
stjórn Margrétar í
kvöld og er sú
yngsta aðeins 5 ára
gömul. Mikið er um
mæðgur og systur í
hópnum og syngja
meðal annars þrjár kynslóðir
kvenna úr sömu fjölskyldunni
saman. Auk söngsins kemur
fram strengjatríó og spilað verð-
ur á óbó og orgel. Komið verður
víða við í tónlistarsögunni, allt
frá barokk til klassíkur og róm-
antíkur og endað með hópsöng á
Heims um ból. Tvennir tónleikar
verða haldnir og eru þeir hvorir
tveggju í Hallgrímskirkju í kvöld
kl. 18 og 20:30 en uppselt er á
þá seinni.
Um 200 konur syngja saman
SANNKÖLLUÐ TÓNLISTARVEISLA