Morgunblaðið - 24.12.2010, Qupperneq 10
10 24. desember 2010
Á
fimmtudag í síðustu viku, þann 16. desember, gerð-
ust þau stórtíðindi að þrír þingmenn Vinstri hreyf-
ingarinnar – græns framboðs, studdu ekki fjárlaga-
frumvarp formanns síns og fjármálaráðherra,
Steingríms J. Sigfússonar, heldur sátu hjá við atkvæðagreiðsluna.
Þetta voru þingmennirnir Atli Gíslason, Ásmundur Einar
Daðason og Lilja Mósesdóttir. Þetta er vitaskuld stórviðburður
og eftir situr ríkisstjórn löskuð og lömuð og annar stjórnarflokk-
urinn, VG, er ekki bara í sárum. Þar ríkir upplausn og kaos og
enginn veit hvað við tekur.
Það sem gerir þennan fáheyrða atburð enn fréttnæmari er sú
staðreynd að það var einnota þingmaðurinn Þráinn Bertelsson,
sem nýlega gekk til liðs við
þingflokk VG, eftir að full-
reynt var, að hann og hinir
þrír þingmenn Hreyfing-
arinnar gætu ekki starfað
saman undir sömu pólitísku
formerkjunum á Alþingi, sem
hélt lífi í ríkisstjórn þeirra Jó-
hönnu Sigurðardóttur og
Steingríms J. Sigfússonar,
með því að styðja fjárlaga-
frumvarpið. Þráinn hinn ein-
nota var vitanlega að reyna að
framlengja sitt pólitíska, ein-
nota líf og ekkert annað.
Þannig féllu atkvæðin: 32
þingmenn stjórnarinnar
studdu frumvarp fjár-
málaráðherrans en 31 þing-
maður sat hjá, 28 þingmenn
stjórnarandstöðunnar og 3
stjórnarþingmenn. Tæpara
gat það ekki staðið, því ef
Þráinn einnota Bertelsson,
hefði ekki leitað sér að nýrri heimilisfesti á Alþingi hefði stjórnin
fallið.
Lilja Mósesdóttir gerði grein fyrir afstöðu VG þingmannanna
þriggja á fimmtudagsmorgun og greindi m.a. frá því að þau
hefðu lagt fram tillögur um breytingar á frumvarpinu í þing-
flokki VG, en þeim hefði verið hafnað. „Það eru mikil vonbrigði
að varnaðarorð um að fjárlögin muni dýpka kreppuna hafi ekki
verið tekin alvarlega. Haldið er dauðahaldi í efnahagsáætlun AGS
þrátt fyrir að hagvaxtarforsendurnar séu brostnar. Niðurskurður
ríkisútgjalda við slíkar aðstæður mun stækka fjárlagafrumvarpið
á næsta ári og krefjast meiri niðurskurðar en nú er gert ráð fyr-
ir,“ sagði Lilja þegar hún gerði grein fyrir atkvæði sínu.
Vitanlega hefur sú niðurstaða að ná rétt með herkjum meiri-
hluta fyrir fjárlagafrumvarpinu stórlaskað og veikt þá ríkisstjórn
sem nú er við völd. Vandséð er hvernig þeim Atla, Ásmundi og
Lilju á að verða líft áfram í þingflokki VG.
Skemmst er þess að minnast hversu Steingrímur J. og hans
þéttasta stuðningslið voru kokhraust, jafnvel rígmontin, eftir að
óánægjuraddir VG höfðu verið kveðnar í kútinn á flokksráðs-
fundi VG þann 19. og 20. nóvember sl.
Er því nú haldið fram fullum fetum að Steingrímur J. og félagar
hafi gerst of sigurvissir of snemma. Það hafi bara myndast svika-
logn um hríð, eða í rétt tæpar fjórar vikur og atkvæðagreiðslan
um fjárlögin hafi sýnt fram á það, að þótt formaðurinn hafi verið
svona líka rífandi ánægður með flokksráðsfundinn í nóvember,
þá hafi hann haft hæpið tilefni til þess að fagna með þeim hætti
sem hann og nánustu samstarfsfélagar í flokknum gerðu á laug-
ardagskvöldið, 20. nóvember, að afloknum flokksráðsfundinum.
Nú eru ýmsir í VG sem segja: Flokksforystunni var nær að
hlusta ekki á grasrótina í flokknum; það var ekki hlustað á efa-
semdir grasrótarinnar um stefnuna í Evrópusambandsmálum;
það var yfirhöfuð ekki hlustað á nokkurn skapaðan hlut og nú
situr hálflömuð ríkisstjórn eftir með sárt ennið og veit ekki sitt
rjúkandi ráð.
Heimilisböl þeirra Jóhönnu og Stengríms J. á stjórnarheim-
ilinu er orðið svo margbreytilegt og óendanlegt, að það hljóta
margir að spyrja sig að því, hversu lengi hún mun hanga við
völd, á vananum einum og málningunni.
En þar fyrir utan, kæru lesendur: Nú er aðfangadagur jóla og
því segi ég við ykkur: Gleðileg jól.
Mörðu það á
einu atkvæði
Agnes segir
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Steingrímur J.
Sigfússon
Jóhanna
Sigurðardóttir
’
Skemmst er
þess að minn-
ast hversu
Steingrímur J. og
hans þéttasta stuðn-
ingslið voru kok-
hraust, jafnvel ríg-
montin …
07.45 Vakna við mikla
sprengingu og læti. Patti litli, sér-
legur aðstoðarmaður yfirhrein-
dýrameistarans, kemur hlaup-
andi inn til okkar og ber þær
fréttir að bangsafæriband nr. 4 í
Mjúkdýraframleiðslunni hafi bil-
að enn eina ferðina og að 325
Kærleiksbirnir endi nú í ruslinu.
08.30 Morgunmatur. Patti
færir okkur ilmandi nýtt innflutt
gras, snöggsteikt á pönnu með
gulrótum og eplum.
09.45 Tekið á því utandyra.
Hlaupum nokkra hringi í kring-
um leikfangaverksmiðjuna. Við
erum níu, hreindýrin sem draga
sleðann hans Sveinka, og hann er
mismikill áhuginn á hreyfingu í
hópnum. En börnunum fjölgar,
sleðinn þyngist og eins gott að
vera í formi til að draga herleg-
heitin þvert og endilangt yfir
himinhvolfið.
11.00 Það er kalt á norð-
urpólnum á þessum tíma og gott
að koma inn í hlýjuna aftur. Það
leggur ljúfan ilm af piparkökum
um allt og það er greinilegt að
piparkökukarlarnir og -kerling-
arnar koma nú í tugatali út úr
risastórum ofnunum í eldhúsinu.
Eftirvæntingin eftir hátíðinni
miklu magnast!
13.00 Mættur á fund strax
eftir hádegismat. Viðstödd eru
öll hreindýrin, jólasveinninn og
Bumbur, yfirhreindýrameistari.
Á fundinum er ætlunin að ræða
pirring sem kominn er upp
vegna Rúdolfs sem hefur verið
forystuhreindýrið síðastliðna
áratugi og þykir mörgum nóg
um stjörnustælana í honum. Við
ræðum að skiptast á um að vera í
forystuhlutverkinu. Rúdolf
bendir á að vissulega sé hann
einstakur út af þessu bjánalega
rauða nefi. Bumbur sussar á
hann og minnir á að öll séum við
á einhvern hátt einstök. Jóla-
sveinninn segir alla hafa nokkuð
til síns máls og lofar að finna
ásættanlega lausn á þessu fyrir
jól.
14.20 Bumbur og Patti ásamt
sérþjálfuðum heilbrigðisálfum
kíkja á mig fyrir kaffi. Er kominn
með ofnæmi fyrir stjörnurykinu
sem fær sleðann til að fljúga og
hnerra í sífellu. Var næstum því
búinn að draga sleðann niður af
þaki í Sao Paulo síðustu jól og
vakti börnin í húsinu. Við ræðum
ýmsa möguleika á meðferð.
15.00 Kaffitími. Við hrein-
dýrin fáum þessar síðustu vikur
fyrir jól heitt kakó í fötum og
piparkökur í jöturnar til að gæða
okkur á. Við erum náttúrlega eng-
in venjuleg hreindýr!
15.30 Tími fyrir stuttan lúr.
Þau okkar sem ekki geta sofið
slúðra um allt það nýjasta.
Ónefndur álfur var til dæmis flutt-
ur í Snjókarlagerðina eftir að upp
komst að hann sleikti alla brjóst-
sykurstafina sem hann átti að
gæðaprófa í Sælgætislandi. Svo
heyrðist því hvíslað að nýi gjafa-
pappírinn væri óendurnýtanlegur
en það er víst algjört bull.
17.00 Fer í göngutúr með
Patta. Hann þarf að ná sér í nýja
skó þar sem sylgjan datt af hvor-
um tveggja gömlu skónum. Við
komum líka við í jólatrjáa-
skógræktinni en ég bíð rólegur
fyrir utan skrifstofukofann á með-
an hann fer inn. Held nefnilega að
hann sé dálítið skotinn í henni
Súsí sem vinnur þar og vil gefa
þeim smátíma í friði.
20.00 Stutt flugæfing eftir mat.
Sleðinn er tómur þannig að æfing-
in reynir ekki mikið á en ég hnerra
og hnerra af stjörnurykinu.
21.30 Háttatími. Leggst á
mjúkt heyið og ætla að láta mig
dreyma um komandi jólanótt.
Gleðileg jól!
holmfridur@mbl.is
Dagur í lífi hreindýrs jólasveinsins
Mynd tekin í fríinu síðastliðið sumar. Desember er annasamur og við erum fram í september að jafna okkur.
Morgunblaðið/Eggert
Dagur á norðurpólnum
Skyldi skeggið vera ekta, gæti
þessi litli kínverski drengur
verið að hugsa þar sem hann
kemur við jólasveininn í mið-
borg Sjanghaí í gær. Sveinkinn
atarna er einn 50 jólasveina sem
eru í heimsókn í borginni sem
finnska ríkisstjórnin hefur
formlega viðurkennt sem slíka
en hann og kollegar hans hafa
fjögurra ára stranga jólasveina-
þjálfun að baki.
Veröldin
Gripið í nef
jólasveinsins
Reuters