Morgunblaðið - 24.12.2010, Page 27
24. desember 2010 27
T
röllkerlingin Grýla kemur fyrst fyrir á 13. öldinni í
nafnaþulu í Snorra-Eddu. Rúmum 400 árum síð-
ar bregður henni aftur fyrir en þá hefur hún tekið
upp ljóta siði og leggur sér óþekk börn til munns.
Margar sögur fara af Grýlu. Í gömlum þulum er henni lýst
sem ógurlegu skrímsli, ein segir hana hafa fimmtán hala, á
hverjum hala séu hundrað belgir og í hverjum belg tuttugu
börn. Á öðrum stað segir að hún hafi marga hausa og þrenn
augu á hverju höfði. Hún er sögð hafa átt þrjá menn; þá
Bola, Gust (sem sumir segja að hún hafi étið) og hinn lang-
þjáða núverandi eiginmann Leppalúða. Grýla á tugi barna;
jólasveinana þrettán sem allir þekkja og af hinum eru
sennilega þekktust þau Leppur, Skreppur og Leiðinda-
skjóða. Fróðustu mönnum ber saman um að kerla haldi bú
sitt í Esjunni en leggi leið sína reglulega til byggða í von um
að einhver óþekk börn verði á vegi hennar. Síðustu fregnir
herma þó að Grýla hafi misst ófá kíló síðustu áratugina og
að hún hafi ekki farið sjálfviljug á þann megrunarkúr.
Hjónakornin mættu í myndatöku á Þjóðminjasafnið um ár-
ið en Grýla var illa stemmd og lét Leppalúða finna fyrir því.
Tryggvi Magnússon teiknaði þessa mynd af Grýlu að elta vesalings börnin fyrir Jólin koma, ljóðabók Jóhannesar úr Kötlum.
Bókin er eflaust ein vinsælasta ljóðabók sem komið hefur út á Íslandi og mörg börnin sem lesa hana fyrir hver jól.
Útgefendum þótti þessi teikning af Grýlu svo ógnvekjandi að Brian Pilk-
ington þurfti að gjöra svo vel að teikna frúnna upp á nýtt.
Grýla liggur banaleguna með Leppalúðann sinn sér við hlið. Myndskreyt-
ing eftir Tryggva Magnússon úr bókinni Jólin koma.
Jólasveinarnir hafa í mörg ár lagt leið sína í Þjóðminjasafnið þegar þeir hafa gefið öllum ís-
lenskum börnum í skóinn. Grýla hefur líka fengið að þvælast með, kerlingaranginn.
Grýla í gamla
hellinum
Myndaalbúmið
Tröllkonan Grýla er móðir jóla-
sveinanna, eiginkona Leppalúða
og barnaskelfir mikill.
Halldór Pétursson teiknaði þessa mynd af Grýlu
fyrir Vísnabókina sem eflaust margir eiga.
Teikningar af Grýlu og Leppalúða eftir
Ólaf Pétursson prýddu frímerki árið 2000.
Önnur mynd eftir Brian Pilkington úr bókinni
Hringaló og Grýla eftir Steinar Berg.
Ljósmyndari Morgunblaðsins náði þessari
mynd af Grýlu á leið til byggða eitt árið.
Grýla, Leppalúði og Jólakötturinn sátu fyrir hjá Stephen Fairba-
irn sem teiknaði þau fyrir Mjólkursamsöluna. Sjá jolamjolk.is.