Morgunblaðið - 24.12.2010, Síða 32

Morgunblaðið - 24.12.2010, Síða 32
32 24. desember 2010 Á rið 2007 var árið sem örfáir menn á Ís- landi sáu að líkur stæðu til þess að ís- lenska bankakerfið hryndi nema efna- hagsleg heimsþróun myndi snúast til hagstæðari þróunar, sem gæti frestað hinu íslenska hruni um allmörg ár, þótt það yrði að lokum óum- flýjanlegt. 2008 Árið 2008 var árið þar sem hver mánuður styrkti hina fáu framangreindu í sinni trú eftir því sem mánuðurnir liðu. Bankarnir þrír voru þá lang- stærstu og „ríkustu“ fyrirtæki landsins. Eigendur þeirra voru af öðrum ástæðum ríkustu menn landsins, með aðgang að heiminum öllum og allt sem þeir snertu á virtist heppnast. Við vitum núna að þar voru ekki kraftaverk á ferðinni, heldur tak- markalaus aðgangur að lánsfé bankanna, sem fengið var með gegndarlausri sókn í skammtíma- lánsfé erlendis. Samanlagt höfðu þessir aðilar tugi þúsunda manna í vinnu og borguðu góð laun og í furðumörgum tilfellum svimandi há laun. Svo var og komið að varla nokkur maður komst áfram í prófkjörum flokkanna nema hafa velvild þessara eigenda, eins eða fleiri. Við bréfritara sagði ungur maður á uppleið: „Það sem þú skilur ekki er að á undraverðum tíma hefur það gerst að enginn, ENGINN, kemst til áhrifa í íslenskri pólitík nema hafa stuðning einhvers þeirra sem þú hefur eytt ómældum tíma í að slást við. Sá sem vill ekki sætta sig við það verður að fara að gera eitthvað annað. Og annað hvað? Þeir eru þar líka.“ Stjórnarflokk- arnir sem sátu í ríkisstjórn þáðu um þessar mundir báðir tveir ótrúlegar fjárhæðir frá einstökum fyrir- tækjum. Hærri fjárhæðir hlutfallslega en nokkur flokkur í hinum vestræna heimi hafði nokkru sinni þegið. Enginn myndi leggja trúnað á að slíkum fjárhæðum fylgdu engar skuldbindingar. Sömu öfl stjórnuðu nú öllum frjálsu fjölmiðlunum, svo engrar gagnrýni var að vænta. En Ríkisútvarpið? Í slíkri stöðu hefði það getað gegnt lykilhlutverki. Það hefði getað sannað tilverurétt sinn. Það hefði getað gegnt stöðu sem neyðarfjölmiðill, en það brást og ekki nóg með það því það dansaði viljugt með. Á því og hinum keyptu fjölmiðlum var eng- inn munur. Ömurlega frammistöðu almennu fjöl- miðlanna mátti vissulega útskýra en ekki afsaka. Þeir urðu að lifa. Fólk varð að treysta á að fá mán- aðarlaunin sín úborguð. Ríkisútvarpið var í varinni stöðu. Réttlæting fyrir tilveru þess var einmitt sú að það þyrfti ekki að vera háð slíkum öflum. Því stóð það sig mun verr en hinir fjölmiðlarnir sem brugðust samanlagðir. Samviskubitið hefur vænt- anlega ekki verið nægjanlegt. Réttlætingin hafði enn yfirhöndina þegar kom að skýrslu rannsókn- arnefndar Alþingis. Þá varð eitt versta hneyksli í 80 ára sögu Ríkisútvarpsins, þegar það reyndi að snúa skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis á haus, meira að segja kynningu nefndarmanna hennar sjálfrar á skýrslunni og koma ábyrgðinni af falli bankanna af mönnunum sem höfðu étið þá að innan og stolið úr þeim hundruðum milljarða króna að mati skila- stjórna, yfir á þá embættismenn sem spyrnt höfðu við fótum, og þá helst yfir á þá aðila sem nú er al- mennt viðurkennt að voru þeir einu sem vöruðu við en töluðu fyrir daufum eyrum. Og ástæðurnar fyrir því að talað var fyrir daufum eyrum voru margar. Fyrst má nefna hina miklu hagsmuni sem lýst var að framan og teygðust um allt þjóðfélagið. Þeir hagsmunir náðu nú til tugþúsunda manna. Og má þá ekki gleyma þeim tugum þúsunda sem sáu hlutabréfin sín hækka í verði jafnt og þétt (sem við vitum nú að var byggt á sýndargerningum) og tóku í krafti þeirrar „eignar“ lán fyrir fjárfestingum og eyðslu sem menn höfðu í engri annarri tíð horft upp á. Það gat varla nokkur maður hugsað sér að öll þessi velsæld væri á sandi byggð. Seðlabanki Ís- lands hafði með lögum verið sviptur allri eftirlits- skyldu með fjármálastofnunum fyrir tæpum ára- tug í samræmi við þá tísku sem hafði orðið ofan á í þeim efnum í Evrópu. Svo langt var gengið að ekki er á bankann minnst í lögum um eftirlit með fjár- málastofnunum. Óljóst orðalag í lögum um hann sjálfan um að bankinn eigi að fylgjast með fjár- málastöðugleika án nokkurra þvingunarúrræða af neinu tagi hefur verið notað til að falsa þessa mynd af þeim sem hafa einbeittastan brotavilja. Bank- anum voru engar heimildir fengnar til að gæta þess „eftirlitshlutverks“. Hvers vegna ekki? Vegna þess að eftirlitshlutverkið með fjármálafyrirtækjum hafði með lögum alfarið verið flutt annað. Íslensku ljósvakamiðlarnir tveir tala jafnan um eftirlits- stofnanirnar tvær þegar þeir fjalla um mál sem snerta íslenska bankahrunið. Þegar þeir fjalla hins vegar um sambærilega atburði erlendis og ná- kvæmlega sömu aðstæður og sama efni þá tala þeir um fjármálaeftirlitin og minnast ekki á seðlabank- ana í viðkomandi löndum. Af hverju? Vegna þess að þá þýða þeir fréttir og í hinum þýddu fréttum hefur enga nauðsyn borið til að koma villandi upplýs- ingum til skila. Seðlabankanum tókst að halda öll- um greiðslukerfum opnum og peningalegu sam- bandi við umheiminn þrátt fyrir alhrun íslensks bankakerfis. Hvernig mátti það takast? Seðlabank- inn var viðbúinn hinu versta, sankaði að sér hæf- asta mannnskap á auga lifandi bragði, kallaði til sín reynda eftirlaunamenn og notaði sambönd sín við umheiminn og í nokkra daga og nætur skeytti bankinn hvorki um skömm né heiður, lög, reglur eða aðrar samþykktir, ef þær vöfðust fyrir. Sjálfsagt væri hægt að fá langhundsmenn til að rannsaka það allt og finna að í fimm hundruð síðum. Og á sama tíma mótaði Seðlabankinn þá stefnu að ekki skyldi hlaupa út í foraðið og reyna að bjarga bönkunum og henda hverjum eyri á bálið eins og núverandi seðlabankastjóri taldi a.m.k. um hríð skynsamleg- ast. Þá væri Ísland verr statt en Írland. Ríkisstjórnin gekk inn í þennan ramma sem SÍ hafði mótað, þótt bankanum með sitt öfluga lið væri að kröfu Sam- fylkingar, sem vísaði eingöngu í persónulega heift- rækni, vikið til hliðar. Af því hlaust skaði sem ekki sér enn fyrir endann á. 2009 Árið 2009 hefði átt að vera árið sem Ísland hóf að feta sig upp úr fallinu, sem var miklu auðveldara í raun heldur en lýðskrumarar og kjarkleysingjar vildu vera láta. En þau öfl sem náðu í ringulreiðinni tökum á landstjórninni illu heilli ákváðu að kasta árinu á glæ. Það skyldi notað til hefndaraðgerða. Það skyldi notað til að klína sök á pólitíska and- stæðinga og fela þá sem höfðu skipað hljómsveitina sem spilaði allan tímann undir og klappstýruna sem gaf bankaræningjunum siðferðisvottorðið sem þeir þurftu svo mjög á að halda. Jafnframt skyldi Reykjavíkurbréf 23.12.10 Árin líða

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.