Morgunblaðið - 24.12.2010, Page 38
38 24. desember 2010
L
iðið Norðurljós var stofnað fyrir
tveimur og hálfu ári, að sögn þjálfara
liðsins, Kristínar Ómarsdóttur, og er
eitt af fjórum liðum í samhæfðum
skautadansi sem til eru á Íslandi.
Samhæfður skautadans er ung grein innan
skautaíþróttarinnar en er í örum vexti um allan
heim. Ólíkt því sem gerist í listhlaupi og ísdansi
rennir stór hópur skautara sér samtímis á svell-
inu.
Hópurinn framkvæmir spor, mynstur og
ýmsar æfingar þar sem hraði, nákvæmni og
samvinna skipta mestu máli. Liðin skauta við
tónlist og mynda með mismunandi skiptingum
hvert mynstrið á fætur öðru. Reynd og vel sam-
hæfð lið geta náð upp miklum hraða og skipt svo
snilldarlega á milli mynstra að áhorfendur átta
sig sjaldnast á hvernig skiptingar fóru fram.
Í Norðurljósaliðinu eru 15 stelpur en þar af
keppa 12 á ísnum en hlutverk varamanna er
mikilvægt því ekkert má út af bregða í pró-
gramminu. Liðið stefnir á að fara í fyrstu
keppnisferðina fljótlega á nýju ári.
Kristín segir að eitt það skemmtilegasta við
íþróttina sé félagsskapurinn og góð liðsheild.
Margar í liðinu keppa líka í listhlaupi á skautum
sem einstaklingar og æfa allt að tuttugu tíma á
viku.
Kristín keppti sjálf í samhæfðum skautadansi
fyrir nokkrum árum en eftir að það lið fór af
ísnum var ekkert samhæft skautadanslið á Ís-
landi um langt skeið. Hún ætlar síðan að stofna
fleiri lið á komandi ári í þessari skemmtilegu
íþrótt, sem er sannarlega í sókn.
Hér má sjá allar stelpurnar í liðinu sem mættar voru þegar Sunnudagsmogginn heimsótti Skautahöllina. Stelpurnar eru á fleygiferð í æfingu sem heitir „hreyfandi hringur“.
Norðurljósin
skína skært
Sunnudagsmogginn fylgdist með Norðurljósunum skína
skært á æfingu í samhæfðum skautadansi í Skautahöll-
inni í Reykjavík.
Texti: Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Myndir: Eggert Jóhannesson eggert@mbl.is
Þessi æfing heitir „beint hjól“ (tveggja
arma). Hér sjást frá vinstri : Karítas, Ka-
milla, Drífa, Hrafnhildur, Hulda, Kristín, Elva,
Ragnhildur, Valgerður, Maya og Halla.
Elva og Halla sýna handahlaup á ís.