Morgunblaðið - 24.12.2010, Page 42

Morgunblaðið - 24.12.2010, Page 42
42 24. desember 2010 G ömlu klassísku ævintýrin eins og Róbinson Krúsó, Gulleyjan og Gúlliver í Putalandi, svo einhver séu nefnd, eru ekki síður sígilt efni til kvikmyndagerðar en lestrar. Þau stinga markvisst upp koll- inum á hvíta tjaldinu, reyndar er talsvert um liðið síðan meistaraverk höfundarins Jonathans Swifts, Gúlliver í Putalandi, var filmað síðast, eða árið 1977 – ef und- an er skilin útgáfa frá tamílum sem lokið var árið 2007. Hörkuvinsældir tveggja jólamynda á síðustu árum, Night at the Museum og Night at the Museum: Battle of the Smithsonian, hafa örugglega kitlað framleiðandann, 20th Century Fox, til að halda áfram á sömu braut. Safnamynd- irnar rökuðu saman á annan milljarð dala, en þar koma mikið við sögu aðferð- ir og tæknibrellur sem eru kjörnar til að nýta við gerð myndar á borð við Gúll- iver. Að sjálfsögðu er um að ræða staf- rænar hátæknibrellur sem gera myndir á borð við Gúlliver í Putalandi mögulegar, umræddar brellur eru svo eðlilegar, eins og sjá má svo ljóslega í safna-mynd- unum, að risar og dvergar eru minnsta mál að skapa. Það eina sem þarf að ákveða er stærð tölvuteiknuðu persón- anna og útkoman verður álíka trúverðug og blákaldur raunveruleikinn. Fæddur í starfann Leikstjóri nýju myndarinnar er Rob Let- terman, sem hefur heldur betur sannað sig við gerð tveggja tölvuteiknaðra gam- anmynda, The Shark Tale (’04) og Mon- sters and Aliens, sem sló eftirminnilega í gegn á síðasta ári. Með sög- una, leikstjórann og brell- urnar á þurru var ekkert annað stórverkefni eftir en að finna heppilegan gamanleikara í titilhlut- verkið. Það vafðist ekki fyrir kvikmyndagerð- armönnum, æringinn Jack Black er sem fæddur í starfann. Þessi fer- tugi leikari er á toppi ferilsins sem hefur verið með ólíkindum anna- samur; á um 20 árum hefur hinn þybbni Black komið fram í yfir 300 kvikmyndum og sjón- varpsþáttum (að flestöllu með- töldu). Geri aðrir betur og margar hafa slegið eftir- minnilega í gegn. Black er músíkalskur og í fyrstu myndunum kom hann gjarnan fram ásamt hljóm- sveitinni The Tenacious D, sem hann rekur með félaga sínum og kemur öðru hvoru fram á sviði, tjaldinu og skjánum. Black komst með léttu móti inn í kvik- myndaheiminn því hann nam við UCLA og einn af bekkjarfélögum hans var Tim Robbins sjálfur. Hann bauð Black að koma fram í Bob Roberts (’92), sem Robbins leikstýrði, og síðan hefur gatan verið greið. Hann vakti fyrst ómælda athygli fyrir High Fidelity (’00). Alltof langt mál yrði að telja upp smellina hans Blacks, en það má nefna Anchorman: The Legend of Ron Burgundy, The School of Rock, Kung Fu Panda og Tropic Thunder, sem allar eru fis- léttar gamanmyndir. Eina myndin þar sem Black hefur brugðist aðdáendum sínum er í hlutverki leikstjórans í mistökum Peters Jacksons, King Kong. Ég held að við þurfum ekki að óttast hann í sambærilegum misgán- ingi í framtíðinni. Kjaftaglaður Gúlliver Það hefur ekki spurst mikið út um efni Gúllivers í Putalandi, en mótleikarar Blacks eru m.a. Emily Blunt, Amanda Peet og Billy Connolly, en okkar maður mun leika póstburðarmanninn Lemuel Gulliver, sem reynir að fara á fjörurn- ar við ferðasölustúlkuna Darcy (Peet), með því að ljúga því að hann sé upp- rennanndi höfundur ferðabóka. Gúll- iver er kjaftaglaður og tekst að sann- færa stúlkuna sem ræður hann til að skrifa um ferð til Bermúda, þar sem Bermúda-þríhyrningurinn leynd- ardómsfulli á að koma við sögu. Auðvitað lendir Gúlliver á Putalandi, óþekktri eyju í Þríhyrningnum miðjum. Þar unir hann sér hið besta í allri athygl- inni sem hann fær þar sem hann gnæfir eins og reykháfur yfir dvergvaxna íbúana. Hann lendir í tvísýnum kvenna- málum með prinsessunni (Blunt), dóttur konungs eyjunnar (Connolly). Þá fyrst taka málin að vandast þegar Gúlliver býðst til að leiða herför gegn erkióvin- um Putalands og ósanngjarnt að rekja þau mál frekar. Jack Black bregð- ur á leik fyrir frum- sýningu á Gúlliver í Putalandi í Holly- wood á dögunum. Gróðavænlegt hjá Gúlliver Sú jólamynd sem talið er að spjari sig hvað best þegar talið verður upp úr baukunum í ár er Gúlliver í Putalandi. Sæbjörn Valdimarsson saebjorn@heimsnet.is Síðasta spennumynd franska nýbylgju- meistarans Claudes Chabrols er komin á ferð og dreifingin teygir sig æ víðar um Evrópu. Chabrol, sem lést á 81. aldursári í september sl., naut þeirrar sérstöðu hérlendis meðal kollega sinna evr- ópskra, að myndir hans áttu gjarnan góðu gengi að fagna í kvikmynda- húsum borgarinnar. Oftar en ekki voru þær hörkugóðar, harðsoðnar glæpa- myndir þar sem menn voru drepnir á hugmyndaríkan hátt. Slík tilbreyting hefur löngum heillað afkomendur vík- inganna. Þá notaði hann heilmikið eig- inkonu sína, Stéphane Audran (f. 1932), stórglæsilega, fagurrauðhærða prýðisleikkonu. Köld fegurð hennar og þóttafullt yfirbragð hentaði vel hlut- verkum í myndum manns hennar þar sem hún var oftast kaldlynd, framhjá- haldandi tæfa, siðblind og spillt sem lét ekkert standa í vegi fyrir áformum sínum. Aukinheldur var Michel Piccoli (f. 1925), einn besti karlleikari Frakka fyrr og síðar, ósjaldan í móthlutverk- inu. Þessi frægu sjarmatröll léku m.a. í óhugnaðinum Les noces rouges (’73). Síðasta verk Chabrols, Inspector Bel- lamy, telst ekki með hans bestu myndum en óhætt er að skipa henni langt ofar miðju og gott dæmi um starfsþrekið og hugmyndaflugið þó að leikstjórinn væri kominn um áttrætt er hann vann við myndina. Hún er full af kostum sem settu gjarnan mark sitt á verk leikstjórans og einkenndu merk- an, langan og farsælan ferilinn. Að- alpersónan er hinn víðfrægi lög- reglustjóri Parísarborgar, Paul Bellamy (Gérard Depardieu), sem er tímabund- ið nýsestur að úti í sveit ásamt konu sinni. Verður það hinum þekkta rann- sóknarlögreglumanni um megn að hverfa úr ys og þys stórborgarlífsins og hvílast í sveitasælunni? Bellamy þykir ljómandi gott að fá sér neðan í því og klípa konu sína (Marie Bunel) í gump- inn. Einkum ef vandræðagripurinn litli bróðir hans (Clovis Cornillac) lætur sjá sig. Hann er að dudda við krossgátur þegar friðurinn er rofinn af dul- arfullum náunga (Jacques Gamblin), sem á eftir að hrista upp í hlutunum. Hann fer að læðast um í garði þeirra hjóna og ber að lokum fram játningu fyrir Bellamy, segir honum að nýaf- staðið bílslys hafi í raun verið morð sem hann lagði á ráðin um til að svíkja út tryggingarfé. Lengst af lýsir In- spector Bellamy skemmtilega notalegri sundurþykkju á milli bræðranna um lítið sem ekki neitt. Athugull áhorfandi á engu að síður að taka eftir að Cha- brol er iðinn við að læða inn vísbend- ingum sem segja ekki minna um per- sónuleika lögreglustjórans en gátuna um náungann sem er að læðupokast í garðinum. En Chabrol var greinilega mikill blekkingameistari til síðasta dags, það er ekki allt sem sýnist í In- spector Bellamy, frekar en flestum öðrum verkum hins nýlátna meistara frönsku glæpamyndarinnar. saebjorn@heimsnet.is Síðasta mynd Chabrols Nýbylgjumeistarinn Claude Chabrol. Le Voyage de Gulliver à Lilliput et chez les géants Novyj Gulliver (1935) Gulliver’s Travels (1939) The 3 Worlds of Gulliver Gulliver’s Travels (1977) Gulliver in Lilliput Arpudha Theevu (2007), tamílsk kvikmynd byggð á Gulliver’s Travel Gulliver’s Travels (sjónvarps- þættir) 2010-2012 Gulliver’s Travels 2010 Eldri myndir (þær helstu) Kvikmyndir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.