Morgunblaðið - 24.12.2010, Síða 43
24. desember 2010 43
J
ú, nú hellast þau barasta yfir mann eina ferðina enn,
jólin dásamlegu, þessi tími þegar mannskepnan legg-
ur sig fram um að vera almennileg við sína eigin teg-
und og jafnvel hin dýrin líka.
Faðmar opnast, kossar og knús skella á fólki hvert sem
það snýr sér, bros fljúga um loftin blá.
Okkur hefur verið kennt að láta allt það besta í okkur
njóta sín á þessum árstíma og því er um að gera að vera alls
ófeiminn við að láta væmnina ná tökum á sér.
Sagði ekki góður maður einhvern tíma að sá sem ekki
þyrði að vera væminn hann missti af miklu.
Missið því alls ekki af öllum þeim sykursætu tilfinningum
sem flæða um líkamann þegar
við opnum fyrir heilastöðina
sem hýsir væmnina.
Horfum í augun á öllum þeim
sem við elskum mest og látum
fallegu orðin óma frá innstu
hjartarótum, eins og hvern
annan fjölradda kórsöng.
Gröfum djúpt í sálina þar sem
við erum mýkst og finnum eitt-
hvað frumlegt, væmnin hefur
frekar gott af því að fara í nýjan
og litríkan búning.
Ausum af gnægtabrunninum okkur sjálfum.
Öll sú sæla í mat og drykk sem fylgir jólunum kveikir
heldur betur á nautnastöðinni og ekkert því til fyrirstöðu að
opna þær rásir upp á gátt og njóta holdlegs samræðis í hví-
vetna yfir hátíðirnar. Þetta fer jú allt svo ágætlega saman,
andleg sæla og holdleg.
Jólapakkar geta verið margskonar og vissulega er alltaf
gaman að leika með nýtt dót og af nægu er að taka í úrvali á
þeim vettvangi. Sumir fá titrandi jólapakka frá einhverjum
sem titrar af hvílubragðatilhlökkun. Aðrir fá kannski far-
seðil á einhvern stað sem báða aðila hefur lengi dreymt um
að heimsækja. Það skerpir ævinlega á ástarbrímanum að
upplifa saman ókannaðar slóðir, hvort sem þær eru á landa-
kortinu eða annars staðar.
En bestu jólapakkarnir eru yfirleitt þeir sem enga hafa
lögun og kosta ekki krónu.
Gerum saman, verum saman, tölum saman.
Snertumst, strjúkum, gælum og kyssumst.
Sprautum úr límtúpunni og bætum á brúsann sem geymir
þetta sem heldur fólki saman.
Við skulum líma okkur sem mest saman á jólunum, njóta
þess að klístrast saman, giljagaurast og bjúgnakrækjast,
opna hjörtun, láta kærleikann flæða frá okkur og inn í okk-
ur.
Halelúlja!
Unaður og
ást á jólum
Stigið í
vænginn
Kristín Heiða
khk@mbl.is
’
Sprautum
úr límtúp-
unni og
bætum á brúsann
sem geymir þetta
sem heldur fólki
saman.
Gatan mín
B
yggðin í Vallahverfinu í Reykjanesbæ
sker sig úr að því leyti að óvíða eru
eins fallegar jólaskreytingar. Nánast í
hverju húsi hefur fólk skreytt húsin
sín með þeim hætti að eftirtekt vekur. „Jú, það
er búinn að vera heilmikill rúntur um hverfið
að skoða ljósadýrðina,“ segir Ásdís Erla Guð-
jónsdóttir. Þau Sölvi Rafn Rafnsson, eiginmaður
hennar, búa á Óðinsvöllum 17 í Reykjanesbæ og
fengu á dögunum viðurkenningu bæjaryfirvalda
fyrir Ljósahúsið 2010.
Húsið við Óðinsvelli þykir skreytt afar glæsi-
leika og sama má raunar segja um ýmis fleiri
við þessa götu sem er U-laga og fékk við-
urkenningu Reykjanesbæjar fyrir þessi jólin
sem fallegasta skreytta gatan. Árið 2008 unnu
Ásdís Erla og Sölvi til aukaverðlauna fyrir fal-
lega skreytingu við Hólagötu í Njarðvík þar sem
þau bjuggu þá. Sama var upp á teningnum
meðan þau bjuggu á Selfossi, þá vakti hús
þeirra athygli fyrir fallegar skreytingar og
fengu eigendurnir tvívegis verðlaun sveitarfé-
lagsins Árborgar.
„Mér finnst gaman að skapa og búa til eitt-
hvað fallegt í kringum mig, í garðinum eru til
dæmis jólakarlar sem sagaðir eru út úr krossvið
og málaðir og svo lýstir upp með kösturum.
Raunar tökum við svolítið langan tíma í að
koma skreytingunum upp. Ég er svolítið smá-
munasöm með þær og reyni að halda
ákveðnum heildarstíl. Fyrstu jólaljósin hengir
bóndinn upp fyrir bæjarhátíðina Ljósanótt sem
er fyrstu helgina í september. Svo erum við
smám saman að bæta við þetta allt haustið. Þá
er hefð á heimilinu að kveikja á öllu fyrsta
sunnudag í aðventu. Við gerum smá úr þeirri
athöfn, fáum okkur kakó og smákökur, fögnum
ljósinu og því að aðventan sé að ganga í garð.
Mér finnst ljósagleðin lengja daginn og stytta
skammdegið enda tökum við skreytingarnar
ekki niður fyrr en líða tekur á janúar og komið
fram á þorra. Þessi mikla jólaljósadýrð hér í bæ
virðist vera sterk hefð og sífellt fleiri láta ljósin
loga lengur, sem mér finnst af hinu góða,“ seg-
ir Ásdís Erla sem meðal annars fæst við að
hanna bútasaumssnið á vinnustofu sinni sem
seld eru undir merkjum www.fondur.is hér
innanlands en aðalmarkaðurinn er þó í Banda-
ríkjunum undir merkjum www.disadesigns-
.com.
„Að skreyta húsið sitt fallega fyrir jólin og
fást við bútasaum er ekki svo ólíkt. Þetta þarf
að vera fallega gert en mest um vert er að
leggja sig 100% fram,“ segir Ásdís Erla sem er
grunnskólakennari að mennt og starfaði lengi
sem slík. Suður með sjó hefur hún einkum og
helst sinnt búi, börnum og vinnustofunni auk
þess að vera í hálfu starfi hjá Varnarmálastofn-
un. Er í fæðingarorlofi sem sakir standa en þau
Sölvi eiga fjögur börn sem eru átján, tólf og
átta ára og það yngsta fimm mánaða.
Þau Ásdís og Sölvi fluttu í Reykjanesbæ fyrir
um fjórum árum þegar atvinna og aðrar þeirra
aðstæður breyttust. „Við fluttum hingað með
opnum huga. Vorum tilbúin að gefa þessu
tækifæri og höfum ekki orðið fyrir von-
brigðum. Áður en við fluttum hingað höfðum
við heyrt að bærinn væri fjölskylduvænn eins
og gjarnan er sagt, enda eru hér góðir skólar,
fín íþróttaaðstaða, ókeypis fyrir börnin í sund
og strætó og fleira. Þá er þetta afskaplega
snyrtilegur bær – og þeir sem hafa búið hér
lengur en ég segja að í þeim efnum hafi orðið
stakkaskipti á undanförnum árum.“
sbs@mbl.is
Jólaljósin í bænum
1. Meðfram ströndinni frá Gróf að Stapa hér í Reykja-
nesbæ liggur skemmtilegur stígur. Þessi framkvæmd
býður upp á einstaka möguleika til útivistar. Sjálfri
finnst mér til dæmis afar ljúft að hlaupa þessa leið.
Þræða ströndina. Á dimmum vetrardögum, núna þeg-
ar jólaljósin eru orðin yfir og allt um kring, er sér-
staklega gaman að fara þarna um. Hughrifin jafnast
stundum á við góðan jógatíma.
2. Nú á aðventunni hefur mér fundist gaman að
þræða göturnar hér í bænum og sjá hve ótrúlega fal-
lega sum húsin hér eru skreytt. Göturnar í Vallahverf-
inu finnst mér mjög fallega skreyttar og lengi hefur
húsið á Týsvöllum 1 vakið athygli fyrir ljósadýrð.
Stundum virðist sem íbúar í þessu hverfi séu í keppni
sín á milli en ég held að svo sé nú ekki, þótt áhuginn
smiti e.t.v. út frá sér. Fyrst og fremst er þetta brenn-
andi áhugi fólks fyrir því að búa sér fallegt umhverfi.
Uppáhaldsstaðir
1
Reykjanesbær
Óðinsvellir
Vesturbraut
Veturga
ta
H
elgu
víkHeiðarbraut
Aða
lgat
a
Tja
rna
rga
ta
Skó
lav
egu
r
Æ
gisga
ta
S
u
ðu
rve
llir
Heiðarb
erg
K
irkju
vegu
r
Aða
lgat
a
Þve
rho
lt
Lyngholt
Fuglavík
Selv
ík
2
Að skreyta húsið sitt fyrir jólin og fást við bútasaum er ekki svo ólíkt, segja Ásdís Erla og Sölvi á Óðinsvöllum.