Morgunblaðið - 24.12.2010, Side 48

Morgunblaðið - 24.12.2010, Side 48
48 24. desember 2010 S hakespeare byggði verk sitt um Lé konung (King Lear) á kelt- neskri goðsögn um Leir konung sem hegðaði sér heimskulega á síðustu metrum síns valdatíma. Lér kon- ungur Shakespeares skiptir konungdæmi sínu milli tveggja dætra sinna sem mest smjaðra en gerir þriðju dótturina, sem er hreinskilin og góð, arflausa. Þegar dæt- urnar eru komnar með völdin í sínar hendur missa þær virðinguna fyrir föður sínum og hrekja hann einsamlan á ver- gang. Valdagræðgin og sviksemin smitar út frá sér og brátt brýst út stríð í ríkinu og bræður og systur berast á banaspjót. Verkið er svo mikill harmleikur að skrif- aður var nýr endir á það eftir lát Shake- speares og um tíma var hann ávallt not- aður til að áhorfendur færu ekki niðurbrotnir heim til sín. Lér konungur er reglulega sýndur út um allan heim og hefur haft gríðarleg áhrif á velflestar listgreinar samfélagsins. Ótalmargar bíómyndir hafa verið gerðar beint eftir verkinu og síðan nokkrar frægar sem eru byggðar á því. Dæmi um slíkt er fjórða dogmamyndin, The king is alive, indverska bíómyndin The Last Lear og Ran eftir Akira Kurosawa þar sem hann færir Lé konung inní japanska Sengkoku-tímabilið á 17. öld. En sú áhrifamikla mynd sem er frá 1985 er sá brunnur sem Steven Spielberg átti síðar eftir að ausa úr við gerð Saving Private Ryan. Verkið á langa sögu hér á landi. Ein þekktasta sýning á Lé var árið 1977 þegar Líbanski Armeninn Hovhannes var feng- inn til að stýra verkinu. Sumir sem störf- uðu með honum sögðu að það hefði breytt lífi sínu en þeir sem sáu sýninguna lofuðu hana mjög. „… hátindur á ferli Þjóðleikhússins og tímamótaviðburður í íslensku leikhúslífi,“ skrifaði Sverrir Hólmarsson í Þjóðviljann. Nú í ár er það Ástralinn Benedict Andrews sem leikstýrir verkinu en það er skemmtileg tilviljun að það verk sem verður í hvað mestri samkeppni um áhorfendur er Shakespeare-verkið Of- viðrið sem hinn vinsæli leikstjóri Oskaras Koršunovas setur á svið á sama tíma í Borgarleikhúsinu. Andrews er bæði vin- sæll og virtur leikstjóri og verður áhuga- vert fyrir áhorfendur að sjá nálgun hans á verkinu. Þýðingin Þórarinn Eldjárn var fenginn til að þýða verkið og hefur hann þegar fengið til- nefningu til Þýðingarverðlaunanna fyrir þýðingu sína. Í tilnefningunni segir: „Þróttur og dirfska einkenna þýðingu Þórarins öðru fremur, og ber hún þess Lér konungur á annan í jólum Lér konungur mun stíga á svið Þjóðleikhússins á sunnudaginn í leikstjórn Benedicts Andrew. Not- ast verður við nýja þýðingu verksins eftir Þór- arinn Eldjárn. Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Lesbók S agnfræðingar eru líklega bún- ir að skrifa meira um Komm- únistaflokk Íslands en nokk- urn annan stjórnmálaflokk á Íslandi. Það er skiljanlegt enda er saga flokksins saga átaka og flokkurinn var með sterk tengsl við erlenda syst- urflokka og þá sérstaklega sovéska kommúnistaflokkinn. Því fer hins veg- ar fjarri að sagnfræðingar séu að öllu leyti sammála um hvernig eigi að skrifa sögu þessa umdeilda flokks. Þór Whitehead hefur skýra sýn á starf kommúnista á Íslandi. Í bók sinni, Sovét Ísland óska- landið – aðdragandi byltingar sem aldrei varð, fjallar hann um markmið komm- únista, að koma á byltingu á Íslandi og þá einkum um hversu langt þeir voru til- búnir til að ganga í að beita ofbeldi til að ná þessu markmiði sínu. Þór velkist ekki í neinum vafa um að ofbeldi var hluti af stjórnmálastarfi íslenskra kommúnista líkt og í öðrum löndum. Hann vitnar til orða komm- únista sjálfra máli sínu til stuðnings og fjallar um starf Varnarliðs verkalýðsins, en það var sveit kommúnista sem æfði sig í átökum og beitti sér oftar en einu sinni þegar barist var í Reykjavík. Markmið Þórs með bók sinni er þrí- þætt; að segja heildstæða sögu komm- únista fram yfir seinni stríð, að benda á hversu ofbeldi var ríkur þáttur í stjórn- Óskalandið sem aldrei varð Bækur Sovét-Ísland óskalandið – Að- dragandi byltingar sem aldrei varð bbbbn Eftir Þór Whitehead Bókafélagið Ugla 2010. 480 bls. H vað einkennir jól samtímans? Dægurmenningin gefur vís- bendingu um það. Þess vegna er áhugavert að skoða jólin í spegli kvikmynda og vinsællar tónlistar. Það eru ljóð og frásögur okkar tíma. Love Actually er ein vinsælasta jóla- mynd síðari ára. Sambönd fólks eru við- fangsefni myndarinnar og bakgrunnur hennar eru jólin. Eftir því sem sögunum vindur fram kemur grunnafstaða per- sónanna til jólanna í ljós – og það er aug- ljóst að jólin sjálf hafa áhrif á gang mála. Jólin í Love Actually snúast um tvennt: að segja það sem manni býr í brjósti – segja sannleikann – og að vera hjá þeim sem maður elskar. Þetta tvennt knýr myndina áfram, vegna þess að það eru jól. Þegar við förum að segja það sem okkur í brjósti býr, horfumst í augu við tilfinningar, brotna erfið og gömul sam- skiptamynstur upp og nýir hlutir fá rými í lífinu. Að viðurkenna hvernig manni líður og segja frá því getur valdið manni sjálfum og öðrum erfiðleikum, eins og sumar persónurnar reyna. En jólin eru tími sannleikans og það er þess virði að mæta hindrunum til að uppfylla köllun jólastundarinnar. Geislaplatan Nú stendur mikið til kom út fyrr í vetur og inniheldur flutning Sig- urðar Guðmundssonar á nýjum söng- perlum með klassísku yfirbragði, ekki síst fyrir tilstilli texta Braga Valdimars Skúlasonar. Kunnugum myndum og táknum bregður fyrir á plötunni, eins og jólastjörnunni, jólasnjónum, drekk- hlöðnu allsnægtaborði, stjörnueygðum strák og ferðamanni sem brýst í gegnum vetrarstormana til að vera hjá henni sem hann elskar. Söngvar Sigurðar og Braga Valdimars hitta beint í hjartastað – vegna þess að þeir slá á strengi sem tengja okkur við jólin. Þessir strengir ná enda alla leið til jólaguðspjallsins, þaðan sem þeir spretta, upp úr frummyndunum sem þar koma fyrir og allar kynslóðir kannast við. Í jólaguðspjallinu mætum við þrá okk- ar fyrir öryggi, skjól og hlýju, í fjárhúsinu sem Jesúbarnið kom í heiminn, þar brýst ljósið fram úr myrkviðum næturinnar, jatan er tákn um næringu og umhyggju sem við þurfum til að lifa af og síðast en ekki síst er nýfædda barnið tákn um líf og upphaf, hreinleika og ást. Þessar myndir hitta tilfinningar okkar fyrir og taka form í minningum okkar og reynslu. Það hvernig við höldum jólin tjáir þetta að einhverju leyti. Þörfin fyrir öryggi og næringu kemur fram í áhersl- unni á þægindi og góðgerðir sem ein- kennir hátíðahaldið. Köllunin til að sýna kærleika og veita umhyggju sýnir sig í því að við viljum gefa gjafir og gera öðr- um gott. Að gefa og þiggja helst því í hendur og einkennir jólin, eins og segir í einum söngnum á Nú stendur mikið til: Því jólin eru tími til að þakka og taka ofan fyrir þeim sem ber. Meðan ég hef matarögn að smakka og meðan ég fæ risavaxinn pakka – þá mega jólin koma fyrir mér. (Bragi Valdimar Skúlason) Jólin í Love Actually snúast um tvennt: að segja það sem manni býr í brjósti – segja sann- leikann – og að vera hjá þeim sem maður elskar. Tími þakka og pakka Jólin eru sú hátíð „sem hjartanu er skyldust“, orti Steinn Steinarr. Í kringum jólahátíðina eru iðulega dregin fram minningabrot eldri kynslóða í ljóðum og frásögnum, sem varpa ljósi á hughrif og merkingu jólanna á liðnum tímum. Árni Svanur Daníelsson og Kristín Þórunn Tómasdóttir Höfundar eru prestar Sigurður Guðmundsson söngvari.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.