Morgunblaðið - 22.01.2011, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 22.01.2011, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2011 Helgi Garðarsson raf- virki og ljósmyndari á Eskifirði lést fimmtu- daginn 20. janúar. Helgi var fæddur á Eskifirði 10. nóvember 1938, sonur hjónanna Jensínu Maríu Karls- dóttur, húsfreyju, og Garðars Helgasonar, bifreiðastjóra og öku- kennara. Eiginkona Helga er Jóna Herdís Hall- björnsdóttir, lengst af starfsmaður í Hulduhlíð á Eskifirði. Synir þeirra eru Jens Garðar, fram- kvæmdastjóri Fiskimiða ehf. og for- maður bæjarráðs Fjarðabyggðar, og Sturla Már, háskólanemi. Helgi lauk gagnfræðaprófi frá Eiðum og námi í rafvirkjun frá iðn- skólanum á Norðfirði. Hann starfaði sem rafvirkjameistari á Eskifirði í áratugi og þau hjónin ráku versl- unina Rafvirkjann samhliða til árs- ins 2000. Helgi virkjaði Grjótá 1986, en áin rennur meðfram húsi hans á Eskifirði. Virkjunin sá heimili hans og verslun fyrir hita og rafmagni til 2008. Helgi var mikill áhugamaður um ljós- myndun alla tíð og fékk fyrstu myndavélina 12 ára gamall. Honum var mjög annt um varð- veislu gamalla mynda frá Eskifirði og öðrum bæjarkjörnum á Aust- fjörðum. Hann hélt um árabil úti heimasíðu með yfirgripsmiklu myndasafni, www.sim- net.is/hgard. Frá upphafi byggingar álvers Alcoa Fjarðaáls skrásetti Helgi í myndum framvindu þess verks, bæði fyrir Bechtel og Alcoa. Helgi Garðarsson var ötull frétta- ljósmyndari fyrir Morgunblaðið og margar mynda hans hafa birst á síð- um blaðsins á liðnum árum. Síðustu myndina tók hann fyrir blaðið 18. desember er eldur kviknaði í ál- verinu í Reyðarfirði. Við leiðarlok þakkar Morgunblaðið Helga störf hans fyrir blaðið og sendir fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur. Helgi Garðarsson Andlát BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Stóru áföllin í atvinnusögu Flateyrar voru þegar Hjálmur seldi togarann Gylli fyrir tæpum tuttugu árum með stórum hluta kvótans og þegar eigend- ur Kambs ákváðu öllum að óvörum að hætta fiskvinnslu 2007. Flateyri við Önundarfjörð byggðist upp á fiskveiðum og fiskvinnslu á nítjándu og tuttugustu öld, eins og önnur þorp á Vestfjörðum. Upp úr miðri síðustu öld voru þar mörg fisk- verkunarfyrirtæki. Það stærsta var Hjálmur sem gerði út togarann Gylli og byggði upp glæsilega fiskvinnslu. Fyrirtækið lenti í fjárhagserfiðleikum. Togarinn var seldur 1992 með helm- ingi veiðiheimilda en hann hafði fiskað 4 þúsund tonn árið áður. Hjálmur var síðan sameinaður mun minna fyrir- tæki á staðnum, Kambi, sem var í eigu Hinriks Kristjánssonar. Í mikilli sameiningarhrinu rann Kambur og fleiri vestfirsk sjávarút- vegsfyrirtæki inn í samsteypuna Básafell. Rekstur hennar gekk illa og þegar Básafell stefndi í þrot keypti Hinrik Flateyrareignirnar út úr sam- steypunni, án kvótans. Hann byrjaði á að byggja fyrirtækið á Flateyri upp á nýjan leik og gekk vel. Kambur keypti kvóta og var kominn með 2700 þorsk- ígildistonn á árinu 2007. Má segja að þar hafi hann keypt fiskveiðiheimild- irnar í annað sinn. Að auki voru leigðar heimildir og hráefni keypt svo að unn- ið var úr þrefalt meira hráefni en nam fiskveiðiheimildum félagsins. Dæmið gekk ekki upp Mikið fjaðrafok varð þegar það spurðist út á árinu 2007 að Hinrik Kristjánsson og fjölskylda hans hefðu ákveðið að hætta fiskvinnslu og selja allar eignir sínar á Flateyri og kvót- ann. Hinrik sagði þá í samtali við Morgunblaðið að aðstæður hefðu breyst mjög til hins verra á nokkrum mánuðum. Verð á aflahlutdeild og aflamarki hefði farið upp úr öllu valdi, krónan væri mjög sterk, vextir í há- marki og atvinnuskilyrði á norðan- verðum Vestfjörðum hefðu farið versnandi. Þess vegna gengi dæmið ekki upp lengur. Ekki væri um annað að ræða en vera maður til að viður- kenna það í tíma, áður en í óefni væri komið. Hinrik náði að gera upp sínar skuldir og gott betur. Rekstrarskilyrði versnuðu enn og telja menn sem þekkja til þessa reksturs að Kambur hefði lent í miklum vandræðum og jafnvel þroti innan árs, ef fyrirtækið hefði ekki verið leyst upp í tíma. Um það er þó erfitt að fullyrða nú. Tilraun sem ekki tókst Kambur var langstærsti vinnuveit- andinn á Flateyri með á annað hundr- að starfsmenn á sjó og landi. Því blasti auðn við, ef ekki tækist að koma hjól- um atvinnulífsins af stað á ný. Einar Oddur Kristjánsson, alþing- ismaður og íbúi á Flateyri, beitti sér fyrir stofnun félags um kaup á fisk- vinnslu Kambs. Fékk hann frænda sinn, Kristján Erlingsson athafna- mann, til liðs við sig og fjölskylduna og fyrirtækið Eyraroddi hóf vinnslu á haustmánuðum. Vel gekk að keyra vinnsluna upp og voru 34 starfsmenn þar undir lok októ- ber. Áhersla var lögð á söltuð og laus- fryst þorskflök fyrir Spánarmarkað. Eyraroddi keypti kvótalausan hrað- fiskibát en leigði aflaheimildir og byggði tilveru sína að miklu leyti á því að kaupa hráefni á mörkuðum. Rekst- urinn gekk þokkalega fyrstu tvö árin. Nokkuð stöðug vinnsla var í fisk- vinnslunni. Síðan fór að halla undan fæti. Fyr- irtækið fékk heimild til greiðslustöðv- unar í maí á síðasta ári, til að end- urskipuleggja reksturinn. Sú vinna stóð fram á þetta ár. Öllu starfsfólkinu var sagt upp störfum í lok nóvember. Félagið fékk heimild til greiðslustöðv- unar og að lokum sáu stjórnendur fé- lagsins sig knúna til að óska eftir gjaldþrotaskiptum. Það var endap- unkurinn á rúmlega þriggja ára sögu. Til fyrirtækisins var stofnað af hug- sjón, eins og fyrr segir, til þess að tryggja atvinnu á staðnum. Eignirnar voru keyptar á 60-80 milljónir kr. á sínum tíma, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. Eigendurnir lögðu um 100 milljónir í fyrirtækið á þessum tíma. Hráefni fékkst ekki Hráefnisskortur er meginástæða þess að fyrirtækið gekk ekki, að sögn forsvarsmanna fyrirtækisins. „Í upp- hafi lá fyrir að rekstur fiskvinnslu án kvóta yrði mjög erfiður. Þrátt fyrir það reyndu forsvarsmenn félagsins að koma af stað rekstri á Flateyri en því miður tókst ekki að afla nægs hráefnis til þess að fiskvinnslan stæði undir sér,“ sagði í tilkynningu frá stjórn Eyrarodda um gjaldþrot félagsins. Ýmislegt hefur gerst á þessum tíma. Heimildir til veiða á mikilvæg- ustu tegundum hafa minnkað á und- anförnum árum, þótt stærsti skellur- inn hafi verið kominn þegar Eyraroddi tók til starfa. Það dró úr möguleikum útgerða til að leigja frá sér kvóta og gerði þeim erfitt fyrir sem treystu á að geta keypt sér eða leigt fiskveiðiheimildir. Þá dró vitan- lega mjög úr framboði á afla á fisk- mörkuðum og verðið hækkaði. Það kom illa við fiskvinnslur sem ekki höfðu aðgang að hráefni frá eigin út- gerð. Segja má að leigumarkaðurinn hafi síðan botnfrosið eftir að reglum um veiðiskyldu og framsal var breytt. Dregið var verulega úr möguleikum til að flytja aflaheimildir á milli ára og á milli skipa. Það var gert til að tryggja að heimildirnar yrðu nýttar til veiða. Þá voru skyldur útgerða til að veiða eigin aflaheimildir auknar veru- lega. Erfitt er að segja að erfiðleikar þessa tiltekna fyrirtækis stafi af kvótakerfinu því það hóf starfsemi án þess að hafa tryggan kvóta. Hins veg- ar hefur óvissan um rekstrarumhverfi í sjávarútvegi gert erfiðara um vik að fá önnur fyrirtæki til samstarfs um að halda rekstrinum áfram. Áfall þegar Kambur hætti  Fiskvinnsla hefur átt erfitt uppdráttar á Flateyri í mörg ár  Sviptingar hafa verið í eignarhaldi  Tilraun til að reka vinnslu án öruggrar hráefnisöflunar lauk með gjaldþroti Eyrarodda Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Flateyri Íbúum Flateyrar hefur fækkað verulega. Síðasta áratuginn hafa þar oft verið um 300 íbúar en fjöldinn er nú kominn niður fyrir 200. Þegar umsvifin voru mest, á sjöunda áratugnum, bjuggu yfir 500 manns á Flateyri. Nokkur fyrirtæki í sjávarútvegi hafa sýnt áhuga á að hefja starf- semi á Flateyri, í fiskvinnslu þrotabús Eyrarodda. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er þar annars vegar um að ræða Storm Seafood sem er að hluta til í eigu kínverskra fyrirtækja og hins veg- ar samsteypu vestfirskra sjávar- útvegsfyrirtækja. Á Flateyri eru nokkrar litlar út- gerðir og eru tvær þeirra reknar í tengslum við harðfiskverkun. Kvóti staðarins var kominn niður í 240 þorskígildistonn á síðasta ári sem er tæplega 0,1% af út- inn í tölurnar koma kvótafærslur á báta sem skráðir eru á Flateyri en gerðir út frá öðrum stöðum. Ísafjarðarbær úthlutaði Eyr- arodda nokkrum skerf af byggða- kvóta. Það skilaði sér til fyrirtæk- isins í haust. Undir lok síðasta árs var reglum um byggðakvóta breytt þannig að hlutur minnstu byggðarlaganna jókst. Á næstu vikum og mánuðum munu því 300 tonn koma í hlut Flateyrar. Þótt það dugi ekki til margra vikna vinnslu er vonast til að aukningin geti laðað að útgerðir til samstarfs. hlutuðu aflamarki til skipa á Ís- landi. Tölur Fiskistofu sýna hærri tölu á yfirstandandi ári. Engin aukning hefur þó orðið í raun því Sýna áhuga á vinnslunni 300 TONNA BYGGÐAKVÓTI Í BOÐI Fyrrverandi samstarfsmenn ræða saman. Flateyri - úthlutað aflamark 2001-2002 2002-2003 2003-2004 2004-2005 2005-2006 2006-2007 2007-2008 2008-2009 2009-2010 2010-2011 * Fiskveiðitímabil Tonn % 0,1 0,2 0,4 0,5 0,6 0,6 0,3 0,1 0,1 0,4 468 870 1.633 1.792 2.075 2.378 862 230 241 982 * Aukning stafar af kvótafærslum tveggja báta sem skráðir voru á Flateyri en gerðir út frá öðrum stöðum. Heimild: Fiskistofa Vegfarendur hafa tekið eftir því að ekkert hefur ver- ið unnið að breikkun Suður- landsvegar síð- ustu daga. Verk- takinn Ingileifur Jónsson, sem vinnur að breikk- uninni, segir að frá upphafi hafi verið gert ráð fyrir hléi á vinnu á þessum tíma. „Ekki var reiknað með að unnið yrði við veginn í janúar, febrúar og mars. Ef við vinnum eitthvað við veginn á þessum tíma er það bónus,“ segir Ingileifur. „Við erum búnir með þann áfanga sem við vorum að rembast við að ná fyrir veturinn. Það er takmarkað sem við getum gert á næstu mánuðum.“ Ingileifur segir að frost í jörðu komi í veg fyrir að hægt sé að ráðast í næstu skref. Hann vildi þó ekki útiloka að hafist yrði handa fyrr, ef snemma þiðnaði. gislibaldur@mbl.is Hlé á vinnu við Suður- landsveg Suðurlandsvegur OPIÐ LAUGARDAG 12 -14

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.