Morgunblaðið - 22.01.2011, Blaðsíða 36
36 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2011
✝ Ingibjörg Marsibil(Ebba) fæddist á
Saurum í Súðavík 11.
september 1926. Hún
lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Ísa-
firði 23. desember
2010.
Foreldrar hennar
voru Ólafur Jónsson,
kennari og skóla-
stjóri, f. 27. 3. 1893, og
Margrét Þorláks-
dóttir húsmóðir, f.
19.1. 1902. Ebba, eins
og hún var jafnan
kölluð, ólst upp í Súðavík ásamt
systur sinni Ragnheiði Ólafsdóttur,
f. 28.12. 1927. Ebba bjó lengst af ævi
sinni í Súðavík. Ebba eignaðist dótt-
urina Hildi með Maríasi Þ. Guð-
mundssyni, f. 13.4. 1922, d. 17.3.
2010. Hildur er fædd 25.9. 1944.
Hún á dótturina Lindu Báru Þórð-
son, f. 27.5. 1991. 3) Margrét
Guðrún Elíasdóttir, f. 2.4. 1964. Hún
á þrjú börn, a) Sindri Hans Guð-
mundsson, f. 29.6. 1982, b) Gunn-
hildur Eik Svavarsdóttir, f. 29.11.
1986, c) Douglas Ben Elías Eddy, f.
30.11. 1995. 4) Sigurjón Vífill Elías-
son f. 7.7. 1966. Hann á tvö börn, a)
Andri Vífilsson, f. 24.11. 1988, b)
Birta Vífilsdóttir, f. 22.2. 1998.
Ebba gekk í skóla í Súðavík en að
honum loknum var hún við nám í
Héraðsskólanum Reykjanesi. Síðar
nam hún við Húsmæðraskólana í
Laugalandi í Eyjafirði og á Hall-
ormsstað. Á yngri árum var hún um
tíma í síld á Siglufirði. Einnig vann
hún á þeim árum við fiskvinnslu í
Vestmannaeyjum auk þess sem hún
vann við verslunarstörf bæði í
Reykjavík og í Súðavík. Árið 1961
flutti hún til Súðavíkur ásamt manni
sínum og börnum. Hún vann síðar
ýmis störf í Súðavík, m.a. við fisk-
vinnslu í Frosta í Súðavík. Þegar
yngstu tvö börnin voru í skóla í
Reykjavík fluttist hún með þeim og
hélt þar heimili með þeim í nokkur
ár.
Útför Ebbu fór fram frá Súðavík-
urkirkju 30. desember 2010.
ardóttur, f. 10. 4.
1968.
Ebba giftist á vor-
dögum árið 1959
Elíasi Ben Sigurjóns-
syni, f. 1.7. 1927, þau
slitu samvistir. Þau
eignuðust fjögur
börn. Þau eru: 1) Sig-
ríður Hrönn, f. 6.8.
1959. Hún á tvö börn
og þrjú barnabörn, a)
Alda Björk Ósk-
arsdóttir, f. 17. 1.
1979, hún á soninn
Ezekiel Karl Owolabi,
b) Örvar Snær Óskarsson, f. 25.5.
1981, hann á börnin Breka og Ísold
Emmu. 2) Ólafur Elíasson, f. 6.12.
1960. Hann á þrjú börn og eitt
barnabarn, a) Aldís Ýr Ólafsdóttir,
f. 22.9. 1983, hún á dótturina Ragn-
heiði Helgu, b) Hlynur Berg Ólafs-
son, f. 7.2. 1988, c) Ívar Örn Ólafs-
Amma mín.
Þú varst mér sem móðir og ég gat
alltaf reitt mig á þig. Þú hugsaðir um
alla aðra en þig og stundum vildi ég
óska þess að þú hefðir verið eigin-
gjarnari og gert fleiri hluti fyrir sjálfa
þig, en ég veit að þér leið best þegar
okkur leið vel.
Elsku amma mín, ég sakna þín sárt
og hefði viljað hafa þig lengur. Ég er
mjög þakklát fyrir að hafa fengið
tækifæri til að koma til Íslands fyrr í
vetur til að hitta þig og ná að kveðja
þig. Það var alls ekki létt því þú hefur
alltaf verið til staðar fyrir mig.
Lífið mun verða erfitt án þín, ég
mun ávallt hafa þig í hjarta mínu og
ég veit þú munt fylgja mér. Mér til
hughreystingar þá veit ég að þú hefur
það mun betra núna, þar sem það var
erfitt fyrir þig að kljást við erfiðan
sjúkdóm.
Takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir
mig, amma. Þú gerðir allt til að ég
hefði það gott, ég veit ekki hvar ég
væri stödd án þín.
Ég áttaði mig aldrei á því að þetta
myndi gerast strax, því í mínum aug-
um hefur þú alltaf verið svo hraust,
hugrökk og aldrei kvartað yfir neinu.
Ég er svo stolt yfir því að þú sért
amma mín og ég á svo margar góðar
minningar um þig sem ég mun aldrei
gleyma.
Elska þig, Ebba amma mín.
Þín dótturdóttir,
Gunnhildur Eik Svavarsdóttir.
Elskuleg amma mín er gengin á vit
feðra sinna. Komið er að kveðjustund
og margs er að minnast. Þeir sem
þekktu Ebbu ömmu vita að þar var á
ferðinni kraftmikil og virkilega dug-
leg kona. Amma hafði áður sigrast á
þeim illvíga sjúkdómi sem varð henni
nú óyfirstíganlegur.
Margar af mínum skemmtilegustu
minningum með ömmu eru á Aðal-
götunni á sumrin. Þegar ég mætti í
úlpu og húfu var það fyrsta sem hún
gerði að skella mér í stuttermabol og
stuttbuxur, á sólríkum sumardegi
átti maður að vera léttklæddur og
leika sér úti. Amma var nú ekki mikið
fyrir að liggja í sólbaði heldur var hún
önnum kafin við hitt og annað. Hún
var mikil blómakona og átti mörg
pottablóm og fallegan garð. Þegar ég
hugsa til baka man ég sjaldan eftir
ömmu öðruvísi en sinnandi einhverj-
um verkum, í garðinum eða annars
staðar. Eftir að húsið á Aðalgötunni
fór í snjóflóði flutti amma tímabundið
í sumarbústað og byggði sér fallegt
kanadískt hús í „nýju“ Súðavík. Þar
bjuggu þær systur, amma og Ragna,
hlið við hlið.
Amma var með ættfræðina á
hreinu og sagði mér oft sögur frá því í
gamla daga sem gaman var að hlusta
á. Í haust fórum við saman í kirkju-
garðinn í Súðavík þar sem hún setti
niður lauka á leiði hjá ættingjum og
vinum. Það er lýsandi dæmi um það
hversu dugleg amma mín var, hún
var orðin veik og gekk við göngu-
grind en lét það ekki á sig fá heldur
skreið á fjórum fótum um garðinn og
lauk verkinu. Þó að maður hafi verið
allur af vilja gerður til að hjálpa
fannst henni jafnan best að gera
hlutina bara sjálf. Amma og Ragna
systir hennar hafa skapað mér
ákveðinn heim sem var svo gott að
koma í, það verður því skrítið að
koma til Súðavíkur næsta sumar.
Þegar ég kom vestur núna til að
vera um jólin með ömmu og Rögnu
gerði ég mér ekki grein fyrir því
hversu veik amma var orðin og mér
brá mikið að sjá hana. Henni versn-
aði með hverjum deginum og kvaddi
seint á Þorláksmessukvöld. Ég bjóst
engan veginn við því að í þessari
vesturferð myndi ég fylgja ömmu til
grafar. Ég þakka þeim sem veittu
henni hjálparhönd í veikindunum.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum.)
Það er komið að kveðjustund
elsku amma mín, nú ertu sofnuð
svefninum langa og hefur fengið
hvíld frá erfiðum veikindum. Minn-
ing þín lifir.
Þín sonardóttir,
Aldís Ýr Ólafsdóttir.
Ingibjörg Marsibil
Ólafsdóttir (Ebba)
– – –
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Hörður var bróðir ömmu minnar
Döbbu og meiripart ævi minnar
þekkti ég hann sem slíkan, þ.e.a.s.
sem ömmubróður minn, þann sem
brýndi hnífana fyrir mömmu, bjó í
Garðabæ og smíðaði líkkistur. Það var
ekki fyrr en fyrir um fimm árum að ég
kynntist Herði fyrir alvöru og þá var
ég fljót að ýta þessari gömlu og úreltu
túlkun minni á honum til hliðar. Hörð-
ur var svo miklu meira en það og ofan
á allt var hann líka afar ljúfur og góð-
ur maður sem vildi öllum í kringum
sig vel. Meira að segja dýrin nutu góðs
af góðmennskunni og þá sérstaklega
Nína, hundurinn minn, sem dýrkaði
Hörður Björnsson
✝ Hörður Björnssonfæddist í Sól-
heimum á Borgarfirði
eystra 18. desember
1931. Hann lést á
Hrafnistu í Hafn-
arfirði 10. janúar
2011.
Hörður var jarð-
sunginn frá Bakka-
gerðiskirkju á Borg-
arfirði eystra 21.
janúar 2011.
hann og dáði. Á Arnar-
hrauninu klóraði hann
henni hvenær sem hún
vildi og á Hrafnistu var
henni boðið í hálfgert
harðfiskshlaðborð í
hvert skipti sem hún
kom í heimsókn.
Hörður var ekki
lengi að laga sig að
nýrri tækni. Eitt sinn
hitti ég hann í Smára-
lind. Þá var hann nýbú-
inn að kaupa sér nýjan
farsíma og nýtti sér
tækifærið og bað mig
um að kenna sér örlítið á hann, hann
væri nefnilega ekki eins og fyrri sím-
inn hafði verið og auk þess miklu
minni. Og tölvumálin voru ekki vanda-
málið. Að sjálfsögðu hafði Hörður
kynnt sér þau vel og keypt sér tölvu
með neti. Í tölvunni skoðaði hann allt-
af færðina á Austfjörðum, fréttirnar
og vefmyndavélina á Borgarfirði
eystra í hvert skipti sem hann gat.
Nýjast var það samskiptavefurinn
Facebook. Hörður var skráður þar
inn og kunni vel við. Þar fylgdist hann
með umræðunni og skoðaði myndir af
ættingjunum og austfirsku menning-
arlífi. Síðast bað hann um að sett yrði
inn áramótakveðja til ættingja og
vina. Sú kveðja var skrifuð orðrétt
upp fyrir frænda minn sem átti orðið
erfitt með að tjá sig og draga andann
vegna veikinda sinna.
Eins og allir, sem þekkja Hörð,
vita þá var hann mjög þrautseigur í
veikindum sínum og kom okkur ætt-
ingjunum oft og mörgum sinnum á
óvart. En síðustu jól áttaði ég mig á
því að það væri í alvörunni ekki langt
eftir. Með hamborgarhrygginn á
diskinum helltust yfir mig minningar
um liðna tíð, sár söknuður og ótti um
það sem væri framundan, en líka
þakklæti og hlýja. Þakklæti fyrir það
að hafa kynnst Herði og eytt með
honum mörgum stundum. Þetta
kvöld kvaddi ég Hörð en hann kom
hins vegar á óvart eins og svo oft áð-
ur.
Sigfinnur Þorleifsson skrifaði í bók
sinni, Í nærveru, að um áramót væru
tilfinningar áberandi, þá liði tíminn
frá manni, árið liðið og heilsubótin
sem beðið var um og vonast var eftir
hefði brugðist.
Tími Harðar rann út 10. janúar sl.
Hann hefur nú fengið hvíldina, rödd-
ina, þrekið og ánægjuna aftur. Hans
veröld er björt á ný eins og Þórunn
Sigurðardóttir segir í ljóði sínu.
Að lokum vil ég kveðja Hörð með
fallegustu bæninni og vona að ljós
hans skíni skært meðal okkar sem
höldum minningu hans á lífi.
Megi gæfan þig geyma,
megi Guð þér færa sigurlag.
Megi sól lýsa þína leið,
megi ljós þitt skína sérhvern dag.
Og bænar bið ég þér,
að ávallt geymi þig
Guð í hendi sér.
(Þýð. Bjarni Stefán Konráðsson.)
Þórunn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
STEINUNNAR EGILSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar H-1
á Hrafnistu í Reykjavík fyrir kærleiksríka umönnun
og ástúð.
Guð blessi ykkur öll.
Eygló S. Stefánsdóttir, Þórhallur Sveinsson,
Hafþór R. Þórhallsson, Sæunn Jóhannesdóttir,
Hafsteinn G. Þórhallsson,
Berglind Þórhallsdóttir, Ragnar Guðjónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar,
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
SIGRID KARLSDÓTTUR,
Mávahlíð 4,
Reykjavík.
Garðar Sigurðsson,
Sigurður Egill Garðarsson,
Karl Friðrik Garðarsson, Áslaug Guðjónsdóttir,
Guðrún Garðarsdóttir, Snæbjörn Kristjánsson,
Gunnlaugur Garðarsson, Sigríður Halldórsdóttir,
Kristín Fríða Garðarsdóttir, Ólafur Fannberg,
Anna María Garðarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýnt hafa okkur samúð
og heiðrað minningu okkar kæru móður,
ÖNNU ÞORSTEINSDÓTTUR
frá Laufási
í Vestmannaeyjum.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Elínborg Jónsdóttir,
Ólafur Jónsson,
Jóhann Jónsson.
✝
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför tengdamóður,
ömmu og langömmu,
ÓLAFÍU KATRÍNAR HJARTARDÓTTUR,
Lóu,
frá Fremri-Hrafnabjörgum,
Dalabyggð.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki 4. hæðar á
hjúkrunarheimilinu Skjóli fyrir einstaka alúð og
umhyggju.
Ólafía Bjargmundsdóttir,
Ólafía Magnea Hinriksdóttir,
Halldóra G. Hinriksdóttir, Páll L. Sigurðsson,
Bjargey Una Hinriksdóttir, Róbert Einar Jensson,
Hinrik Ingi Hinriksson
og langömmubörn.
✝
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem
heiðruðu minningu og sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
KJARTANS SÖLVA EINARSSONAR,
Hólavegi 39,
Siglufirði.
Sérstakar þakkir sendum við læknum, hjúkrunar-
fræðingum og öðru starfsfólki á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar,
Siglufirði, sem og starfsfólki Heimahlynningar Landspítalans fyrir einstaka
umönnun og hlýtt viðmót.
Guð blessi ykkur öll.
Brynja Stefánsdóttir,
Herdís Kjartansdóttir, Guðmundur Þór Axelsson,
Kristrún Kjartansdóttir, Ingi Már Aðalsteinsson,
Ása Fríða Kjartansdóttir, Víglundur Pétursson,
afa- og langafabörn.