Morgunblaðið - 22.01.2011, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 22.01.2011, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2011 ÚR BÆJARLÍFINU Reynir Sveinsson Sandgerði Ýmsir spekingar telja að nú fari kreppunni að ljúka og á árinu sem nú er gengið í garð hefjist betri tíð fyrir fólkið í landinu, en svo er nú ekki alls staðar. Hér í bæ er lítið að gera hjá iðnaðarmönnum og ekkert stórt verk framundan. Bæjaryfir- völd hafa þurft að skera mikið niður á mörgum sviðum og nú er bara að þreyja þorrann og vona að senn komi betri tíð.    Útibú umboðsmanns skuldara hefur verið opnað á Suðurnesjum. Útibúið er í sama húsi og sýslumað- urinn í Keflavík. Þar munu tveir starfsmenn umboðsmanns skuldara hafa aðsetur, en báðir eru þeir bú- settir á Suðurnesjum.    Ljósmyndaklúbburinn 245 pixlar sem hefur starfað hér í um 2 ár og staðið fyrir ljósmyndasýn- ingum og fræðslu fyrir áhuga- ljósmyndara gaf nýlega út ljós- myndabók þar sem félagar sýna hvað auga ljósmyndara nemur í bæj- arfélaginu. Ljósmyndabókin er gefin út með styrk frá menningarráði Suð- urnesja.    Kolbeinsstaðanámur eru í landi Sandgerðis við landamörk Garðs. Á undanförnum áratugum hefur mikið efni verið tekið úr nám- unum. Nú er efnistöku hætt þar, en ýmsir hafa nýtt þær til að losa sig við allskonar drasl til margra ára. Þó vegslóði hafi verið læstur hafa menn komist í námurnar til að henda rusli. Nú er svo komið að Heilbrigðiseft- irlit Suðurnesja hefur óskað eftir að námurnar verði hreinsaðar. Þá er hafin lögreglurannsókn á því hverjir hafi verið stórtækastir í að henda drasli í námurnar.    Atvinnumálin hafa verið mikið í umræðu hér á Suðurnesjum enda mest atvinnuleysi hér á landinu. Margir virðast bíða eftir að ríkis- stjórnin geri eitthvað í málunum, sumt er komið í farveg og fer von- andi að birta til í atvinnumálum Suð- urnesjamanna.    Saga húsanna í Sandgerði er nafnið á nýjum vef sem hefur verið opnaður á vefslóðinni husin245.is. Vefurinn er tileinkaður sögu húsanna í Sandgerði, sem er marg- breytileg, þar sem saga þeirra og íbúanna tvinnast saman með ýmsum hætti. Tilgangurinn er að safna sam- an sögulegum upplýsingum til varð- veislu, auk þess að gera þær að- gengilegar lesendum til fróðleiks og skemmtunar. Það eru hjónin Selma Hrönn Maríudóttir og Smári Valtýr Sæbjörnsson sem reka fyrirtækið Tónaflóð veflausnir sem eiga vefinn. Vonast eftir betri tíð Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Sagan Vefurinn husin245.is segir sögu húsanna í Sandgerði. Á þriðjudag sl. afhenti Ingibjörg R. Magnúsdóttir, velunnari Háskóla Íslands og stofnandi Rannsóknar- sjóðs Ingibjargar R. Magnúsdóttur, 500 þúsund krónur í peningagjöf sem Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, tók við. Gjöfin rennur beint til sjóðsins. Sjóðurinn var stofnaður 29. júní árið 2007 en tilgangur hans er að efla rannsóknir í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum. Úthlutað hefur verið úr sjóðnum árlega frá stofnun hans og alls hafa verið veittir sjö styrkir til doktorsverkefna í hjúkr- unar- og ljósmóðurfræðum. Frá upphafi hefur sjóðurinn verið fjár- magnaður af Ingibjörgu sjálfri og nokkrum öðrum velunnurum. Morgunblaðið/Kristinn Kristín Ingólfsdóttir rektor, Ingibjörg R. Magnúsdóttir og Guðrún Kristjánsdóttir, deildarforseti hjúkrunarfræðideildar. Peningagjöf Á þriðjudag sl. birti hinn þekkti frímerkjavefur StampNews.com úrslitin í vali sínu á óvenjuleg- ustu frímerkjum ársins. Þriðja árið í röð urðu íslensk frímerki í verðlaunasætum. Í ár urðu í 2. sæti þrjú frímerki sem Íslandspóstur gaf út í ár í til- efni af eldgosinu í Eyjafjallajökli. Það sem þykir óvenjulegt við frí- merkin er að þau eru öll með gosösku úr jöklinum. Árið 2009 varð frímerki sem Ís- landspóstur gaf út og bar heitið „Verndun jökla og heim- skautasvæða“ einnig í 2. sæti. Það óvenjulega við frímerkið er að það er prentað með hitasæknu bleki sem breytir um lit eftir hitastigi. Árið 2008 varð frímerki Ís- landspósts í 3. sæti. Frímerkið er tileinkað Friðarsúlunni í Viðey og það óvenjulega er að myndin af súlunni á frímerkinu glóir í myrkri. Einnig er andlitsmynd af John Lennon prentuð á frímerkið sem sést í útfjólubláu ljósi. Íslensk frímerki vinna til verðlauna Barnaheill - Save the Children á Ís- landi og Afríka 20:20 - félag áhugafólks um málefni Afríku sunnan Sahara, standa fyrir Afr- íkudögum dag- ana 22.-28. jan- úar nk. Meðal þess sem boðið verður upp á eru tvær málstofur um málefni Afríku, Bíó Paradís mun sýna myndir um lífið í Afríku og börn og unglingar hér og þar um borgina setja sig í einn dag í spor ungviðis í Afríku. Markmiðið með Afríkudögunum er að vekja athygli á málefnum Afr- íku og afla fjár til stuðnings mennt- unarverkefni Barnaheilla í Úganda. Afríkudagar til styrktar menntun STUTT Síminn harmar að hafa nýtt fjarskiptaum- ferðarupplýs- ingar með þeim hætti sem gert var þegar búnir voru til úthring- ilistar yfir viðskiptavini annarra fjarskiptafyrirtækja. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá fyrirtækinu í gær. Fram kemur í yfirlýsingunni að Persónuvernd hafi tilkynnt Síman- um að stofnunin hefði í hyggju að kæra fyrirtækið vegna ólögmætr- ar notkunar samtengiupplýsinga. Rannsókn Póst- og fjarskipta- stofnunar byggðist meðal annars á gögnum sem Samkeppniseftirlitið lagði hald á í húsleit hjá Símanum. Síminn harmar að hafa misnotað upplýsingar Vinningur fyrir 10 rétta á enska getraunaseðlinum náði ekki lág- marksútborgun um síðustu helgi og því bætast 52 milljónir við fyrir 13 rétta. Ennfremur bæta Íslenskar get- raunir og Svenska Spel 34 millj- ónum aukalega við fyrsta vinning sem verður því um 160 milljónir króna og hefur fyrsti vinningur í Getraunum aldrei verið svona hár. Allur hagnaður af starfsemi Ís- lenskra getrauna rennur til íþrótta- hreyfingarinnar á Íslandi. Enn fitnar verð- launapotturinn Hægt er að leita upplýsinga um ofangreind atriði á heimasíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is Álagningarseðlar fasteignagjalda í Reykjavík 2011 verða sendir til íbúa á næstu dögum. Fasteignagjöldin verða innheimt í gegnum heimabanka þar sem jafnframt er hægt að prenta út greiðsluseðil. Greiðsluseðlar verða ekki sendir út en hægt er að óska eftir heimsendum greiðsluseðlum í gegnum þjónustuver Reykjavíkurborgar í síma 411 11 11. Fjármálaskrifstofa Reykjavíkurborgar annast álagningu og innheimtu á fasteignaskatti, lóðaleigu og sorphirðugjaldi. Þeir sem fengu lækkun á fasteignaskatti á liðnu ári, fá einnig lækkun á árinu 2011. Við álagningu fasteignagjalda nú í janúar verður afsláttur elli- og örorkulífeyrisþega til bráðabirgða miðaður við tekjur ársins 2009. Þegar álagning vegna tekna ársins 2010 liggur fyrir næsta haust, verður afslátturinn endanlega ákvarðaður og verða þá allar breytingar tilkynntar bréflega. Fjármálaskrifstofa Reykjavíkurborgar framkvæmir breytingar á fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega og þarf því ekki að sækja sérstaklega um lækkun eða niðurfellingu þessara gjalda. Skilyrði lækkunar eru að viðkomandi elli- eða örorkulífeyrisþegi eigi lögheimili í Reykjavík og sé þinglýstur eigandi viðkomandi fasteignar og/eða geti átt rétt á vaxtabótum vegna hennar skv. B-lið 68. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt og eignaskatt. Einungis er veitt lækkun vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota. Borgarráð hefur ákveðið að tekjumörk elli- og örorkulífeyrisþega vegna niðurfellingar/lækkunar fasteignaskatts á árinu 2011 verði eftirfarandi: 100% lækkun: Einstaklingar með tekjur allt að 2.460.000 kr. Hjón með tekjur allt að kr. 3.440.000. 80% lækkun: Einstaklingar með tekjur á bilinu 2.460.000 til 2.830.000 kr. Hjón með tekjur á bilinu 3.440.000 til 3.840.000 kr. 50% lækkun: Einstaklingar með tekjur á bilinu 2.830.000 til 3.290.000 kr. Hjón með tekjur á bilinu 3.840.000 til 4.580.000 kr. Umhverfissvið Reykjavíkurborgar, Höfðatorg, Borgartúni 12-14, veitir allar upplýsingar varðandi álagningu og breytingar á sorphirðugjaldi í síma 411 1111. Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á netfangið sorphirda@reykjavik.is. Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, annast álagningu og innheimtu vatnsgjalds og fráveitugjalds og veitir upplýsingar í síma 516 6000. Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á netfangið or@or.is. Fjármálaskrifstofa Reykjavíkurborgar, Höfðatorg, Borgartúni 12-14, veitir upplýsingar varðandi álagningu fasteignaskatts og lóðarleigu og breytingar á þeim í síma 411 1111. Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á netfangið fasteignagjold@reykjavik.is. Gjalddagar ofangreindra gjalda umfram kr. 25.000 fyrir árið 2011 eru: 1. febrúar, 1. mars, 1. apríl, 1. maí, 1. júní, 1. júlí, 1. ágúst, 1. september og 1. október. Gjalddagi gjalda undir kr. 25.000 og gjalda þeirra gjaldenda er völdu eingreiðslu fasteignagjaldanna er 1. maí. Borgarstjórinn í Reykjavík, 22. janúar 2011. FASTEIGNAGJÖLD

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.