Morgunblaðið - 22.01.2011, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 22.01.2011, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2011 Borgarbúar geta glaðst yfir einuþegar þeir taka á móti hærri reikningum frá Reykjavíkurborg þessa dagana. Þeir geta glaðst yfir því að borgin fer vel með skattfé þeirra.    Eitt dæmi umánægjulega meðferð er sú ákvörðun Mannrétt- indaráðs Reykjavík- urborgar að styrkja súpufundi Kvenréttindafélags Ís- lands um eina milljón króna.    Það sem eykur enn á ánægjuna erað enginn er betur til þess fall- inn en einmitt Mannréttindaráð Reykjavíkurborgar að styrkja þessa tilteknu súpufundi.    Enginn þekkir betur til mik-ilvægis þessara súpufunda en Mannréttindaráð, enda er sami for- maður í Mannréttindaráðinu og Kvenréttindafélaginu.    Þess vegna þarf enginn að velkj-ast í vafa um að milljón króna súpan er hverrar krónu virði.    Það eina sem skyggir örlítið áánægjuna hjá skattgreiðendum í Reykjavík er að formaður beggja, Margrét Sverrisdóttir, taldi sig van- hæfa við afgreiðslu þess dag- skrárliðar þegar atkvæði voru greidd um súpuna.    Hún vék því að eigin sögn affundi, að minnsta kosti í anda, þó að þess sé að vísu ekki getið í fundargerð.    Þess vegna er ákveðin hætta á aðsúpan kunni að vera lítillega of- metin hjá þeim sem eftir sátu á fundi Mannréttindaráðs og ráðfærðu sig að sjálfsögðu ekki við vanhæfan for- manninn. Margrét Sverrisdóttir Sat (hjá) í súpunni STAKSTEINAR Veður víða um heim 21.1., kl. 18.00 Reykjavík 8 alskýjað Bolungarvík 8 rigning Akureyri 6 skýjað Egilsstaðir 6 heiðskírt Kirkjubæjarkl. 4 rigning Nuuk -12 skafrenningur Þórshöfn 7 skýjað Ósló -8 skýjað Kaupmannahöfn -1 heiðskírt Stokkhólmur -2 skýjað Helsinki -5 þoka Lúxemborg 0 heiðskírt Brussel 1 léttskýjað Dublin 2 skýjað Glasgow 2 léttskýjað London 3 léttskýjað París 1 skýjað Amsterdam 3 léttskýjað Hamborg 1 þoka Berlín 0 skýjað Vín 0 snjókoma Moskva -12 alskýjað Algarve 16 heiðskírt Madríd 6 heiðskírt Barcelona 8 léttskýjað Mallorca 7 léttskýjað Róm 6 skýjað Aþena 12 skýjað Winnipeg -23 snjókoma Montreal -11 snjókoma New York -1 heiðskírt Chicago -16 léttskýjað Orlando 18 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 22. janúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 10:38 16:42 ÍSAFJÖRÐUR 11:05 16:24 SIGLUFJÖRÐUR 10:49 16:06 DJÚPIVOGUR 10:13 16:06 Viðureign Íslend- inga og Spán- verja á heims- meistaramótinu í handbolta verður sýnd í ólæstri dagskrá á Stöð 2 sport. Leikurinn fer fram um miðj- an mánudag næstkomandi. Pálmi Guð- mundsson, framkvæmdastjóri dag- skrársviðs 365 miðla, segir að dag- setningin hafi verið valin áður en ljóst var hvaða þjóðir myndu mæt- ast. Því sé það tilviljun að leikurinn gegn Spánverjum sé í opinni dag- skrá, en ekki einhver annar. Þetta er eini leikurinn í milliriðli mótsins sem Stöð 2 sport sýnir í ólæstri dagskrá. Til stendur að sýna einnig úrslitaleikinn í ólæstri dag- skrá – að því gefnu að Íslendingar leiki til úrslita. Íslenska handboltalandsliðið hef- ur farið á kostum á heimsmeist- aramótinu hingað til og hefur unnið alla sína leiki. Fyrsti leikur liðsins í milliriðli er gegn Þýskalandi í dag. gislibaldur@mbl.is Spánarleik- ur í ólæstri dagskrá Pálmi Guðmundsson E N N E M M / S ÍA / N M 4 5 0 5 8 Samtök verslunar og þjónustu og Samtök heilbrigðis- fyrirtækja standa fyrir opnum morgunverðarfundi þriðjudaginn 25. janúar nk. kl. 8.30 í Gullteig A, Grand Hóteli Reykjavík. Framsögumenn: Katrín Ólafsdóttir, lektor við Háskólann í Reykjavík Margs ber að gæta þegar byggt er sjúkrahús Gunnar Svavarsson, verkfræðingur NLSH ohf. Nýr Landspítali – byggingarframkvæmdin Að framsöguerindum loknum verða pallborðsumræður. Í pallborði sitja, auk framsögumanna, Kristján Guðmundsson, læknir og Gunnar Ármannsson, framkvæmdastjóri PrimaCare. Fundarstjóri: Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ Þátttökugjald með morgunverði: 2.500 kr. Vinsamlega tilkynnið þátttöku á netfangið svth@svth.is eða í síma 511 3000. Skráning og morgunverður hefst kl. 8.00. Fundurinn er opinn öllum. Er hátæknisjúkrahús skynsamleg fjárfesting? Orðinu „ekki“ ofaukið Þau mistök urðu í frétt um óánægju dagforeldra með borgarstjórn í Morgunblaðinu í gær að orðið „ekki“ slæddist inn þar sem það átti ekki að vera. Hið rétta er að viðmælendur blaðsins sögðu Oddnýu Sturludóttur fara með rangt mál þegar hún sagði dagforeldra að meðaltali hafa hjá sér þrjú börn, en langflestir annist fimm börn, þótt þau séu kannski ekki á skrá hjá borgaryfirvöldum þar sem sum þeirra búa í nágrannabæjar- félögum. Ásvegur var það Í frétt um snjómokstur á Dalvík í blaðinu í gær misritaðist götunafn. Það voru íbúar við Ásveg sem gripu til sinna ráða og létu sjálfir moka snjó af götunni. LEIÐRÉTT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.