Morgunblaðið - 22.01.2011, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 22.01.2011, Blaðsíða 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2011 strákana okkar í handbolta og fylgd- ist með hverjum einasta leik af brennandi áhuga. Ég sá þig síðast rétt fyrir jól og þú varst orðin dálítið slöpp. Ég vona að þú sért komin á betri stað, elsku amma mín. Hvíldu í friði. Sigurþór. Elsku amma mín. Það var alltaf svo yndislegt að heimsækja þig norður í Skagafjörð. Þegar ég kom vildir þú allt gera fyrir mig. Þér fæ ég aldrei þakkað fyrir allar þær góðu stundir sem ég átti með þér. Eins og þegar við spiluðum saman og þú sagðir mér sögur. Ég mun aldrei geta litið aðra manneskju sömu augum og þig, því þú gerðir svo margt fyrir mig og hugsaðir alltaf svo vel um mig. Eins og okkur öll barnabörnin. Arngunnur. Elsku amma. Takk fyrir allt. Í dagsins önnum dreymdi mig þinn djúpa frið, og svo varð nótt. Ég sagði í hljóði: Sofðu rótt, þeim svefni enginn rænir þig. En samt var nafn þitt nálægt mér og nóttin full af söngvaklið svo oft, og þetta auða svið bar ætíð svip af þér. Og þungur gnýr sem hrynji höf mitt hjarta lýstur enn eitt sinn: Mín hljóða sorg og hlátur þinn, sem hlutu sömu gröf. (Steinn Steinarr) Þín Melkorka. Elsku amma Fjóla. Það tekur mig sárt að þú sért farin frá mér, hefði viljað hafa þig hér svo miklu lengur. Þú varst alveg einstök amma, tókst það hlutverk mjög alvarlega og ég hefði ekki getað óskað mér betri ömmu en þín. Ég gat alltaf komið til þín og spjallað um hvað sem er í heiminum, þú varst alltaf til í að hlusta og hafðir svo mikinn áhuga á öllu sem ég tók mér fyrir hendur, hvort sem það var skólinn, vinirnir, vinnan eða bara það sem ég var að fara að gera um helgina. Uppáhalds- minningin um okkur saman er þegar við sátum oftar en ekki inni í eldhúsi í kaffitímanum og spjölluðum um heima og geima, gátum setið þarna tímunum saman og bablað út í eitt. Þú varst smekkmanneskja amma og hafðir auga fyrir klæðaburði annarra, þú hrósaðir mér alltaf fyrir hvernig ég var klædd og fannst allt svo smart og hafðir gaman af því að sjá mig í einhverju fínu. Ég man eftir því þegar ég var lítil og var úti í garði að hanga í snúru- staurunum og gera alls konar listir og alltaf varst þú mætt út að horfa og fannst allt sem ég gerði æðislegt. Einnig er mér ennþá minnisstætt þegar við frændsystkinin fórum í bú- ið okkar og gerðum fyrir þig drullu- köku og buðum þér svo í kaffi. Hjá þér og afa var alltaf best að vera í sveitinni, spila, drekka kaffi eða bara sitja úti í garði í góðu veðri. Og þegar ég kom dauðþreytt úr vinnunni á sumrin var svo gott að koma til ykk- ar og fá kaffi og með því og leggja sig svo í sófanum inni í stofu. Þú varst svo skemmtileg og fyndin, komst oft með brandara sem ég hafði ekki hugmynd um að gætu komið frá þér. Þú varst alltaf ljúf og góð og ég held að ég hafi aldrei séð þig reiða. Þú varst svo góð við mig, elsku amma, eiginlega of góð, vildir alltaf vera að gera eitthvað fyrir mig, gaukaðir að mér pening eða vildir kaupa eitthvað handa mér þótt mig vantaði ekki neitt. Ég sakna þín svo mikið, elsku amma mín, en ég vona að þú sért komin á betri stað og fylgist með mér áfram. Þín ömmustelpa, Guðbjörg Fjóla Ægisdóttir. Elsku Fjóla mín. Nú ert þú horfin okkur eftir löng og erfið veikindi. Mig langar til að þakka þér alla vináttuna og allar samverustundirnar okkar alla tíð. Ég veit að hugur þinn og hjarta var í Messuholti hjá fjölskyldunni, sem þér þótti svo vænt um. Ég kveð þig, kæra frænka mín, með söknuði, en ég veit að nú líður þér vel og vel hefur verið tekið á móti þér og það er ynd- isleg minning að hafa átt vináttu þína, frænka mín. Mínar innilegustu samúðarkveðjur til Sigurþórs og dætra og fjölskyldna þeirra. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem) Erla Gígja. Nú þegar ég kveð Fjólu vinkonu mína með nokkrum orðum koma ótal hlýjar og skemmtilegar minningar upp í hugann. Ég kynntist Fjólu fyrst þegar hún kom á heimili svila míns, Sigurþórs Hjörleifssonar í Messu- holti, haustið 1967, til að annast dæt- ur hans þrjár, Arngunni og Steinunni sem voru þá á sjötta ári og Ingibjörgu sem var tæpra tveggja ára. Sigurþór var kvæntur Guðbjörgu Hafstað frá Vík, en hún lést sumarið 1966. Dæt- urnar höfðu verið hjá móðurfólki sínu í Vík og Útvík um nokkurt skeið frá því móðir þeirra veiktist og um tíma var Ingibjörg hjá Sigríði móðursyst- ur sinni á Tjörn. Sigurþór heimsótti dætur sínar oft, en auðvitað vildi hann hafa þær alveg hjá sér. Fjóla var alin upp á Sauðárkróki og hafði haldið heimili með móður sinni og síðan annast hana sjúka þar til hún lést, en faðir hennar var þá löngu dá- inn. Hún vann ýmis tilfallandi störf utan heimilis, var verkhög og sérlega lagin við börn og alls staðar mjög vel látin. Þegar leitað var til Fjólu að taka að sér heimili Sigurþórs tók hún sér nokkurn umhugsunarfrest, enda fylgdi slíku mikil ábyrgð. Það var mikið gæfuspor sem hún sté þegar hún gekk inn í húsið á Messuholti. Allt gekk svo fumlaust hjá Fjólu. Fyrst tók hún Ingibjörgu til sín og þegar þær höfðu kynnst vel komu tví- burarnir líka til hennar. Þeim öllum hefur hún reynst sem móðir. Heimili Sigurþórs og Fjólu var sér- lega vistlegt og notalegt. Þar höfðu allir hlutir sinn stað og það var eins og heimilisstörfin ynnust af sjálfu sér og alltaf var nægur tími fyrir litlu systurnar. Börn okkar hjóna og Messuholtssystur eru á svipuðum aldri og alltaf var mikill samgangur og vinátta milli frændsystkinanna og er svo enn. Þegar ég fór að vinna utan heimilis fór Árni, yngsta barnið okk- ar, í dagvistun til Fjólu allt þar til hann byrjaði í skóla. Alltaf fór hann glaður til hennar. Eftir að stelpurnar stálpuðust nokkuð var oft leitað til Fjólu og hún beðin um að taka börn til sumardvalar. Þeim sinnti hún einnig af þeirri alúð og lagni, sem henni var svo eiginleg. Fjóla, þessi fínlega, heimakæra og frekar hlédræga kona, kom mér á óvart með áhuga sínum á óbyggðum Íslands, enda hafði hún ekki gert víð- reist um ævina. En Sigurþór er mikill áhugamaður um fjöll og óbyggðir og fór gjarnan í jeppa- og vélsleðaferðir. Einar bestu stundir Fjólu voru þegar Sigurþór bauð henni í óbyggðaferðir. Hún hafði áhuga á þjóðlegum fróðleik og las mikið af ævisögum. Fyrir utan óbyggðaferðirnar voru árlegar ferðir til Borgarfjarðar eystri ómissandi, en þangað heimsóttu þau góða vini af Króknum, sem þar höfðu sumardvöl. Í meira en fjörutíu ár höfum við hjónin verið í Messuholti á gamlárs- kvöld. Þar höfum við setið dýrðlegar veislur, kvatt liðin ár og fagnað nýj- um. Börnin voru líka með framan af, þá var mikil kátína og flugelda- sprengjur, en seinni árin hafa bræður Sigurþórs, þeir Jón og Hróðmar, einnig átt með okkur friðsæl og einkar ánægjuleg áramót. Við Hall- dór og fjölskylda okkar þökkum inni- lega fyrir langa samfylgd og allar góðu minningarnar, sem lifa með okkur. Solveig Arnórsdóttir. Fjóla kom inn í líf fjölskyldunnar í Messuholti og um leið okkar líf á erf- iðum tímum skömmu eftir andlát Guðbjargar föðursystur okkar árið 1966. Guðbjörg lést langt um aldur fram frá Sigurþóri manni sínum og þremur ungum dætrum. Í veikindum Guðbjargar og eftir lát hennar voru þær tvíburasysturnar, Arngunnur og Steinunn, einskonar fóstursystur okkar krakkanna í Vík þar sem þær dvöldu heima hjá okkur í um það bil tvö ár, en Ingibjörg, sú yngsta, var hjá Solveigu og Halldóri í Útvík. Þá tók Fjóla að sér að annast heimilið í Messuholti og um leið uppeldi stelpn- anna og er það engan veginn ofmælt að það hafi orðið þeim til gæfu og raunar öllum, sem nutu návistar hennar og handleiðslu. Hún varð þeim systrum sem besta móðir og þegar árin liðu varð hún börnum þeirra systra yndisleg amma. Fjóla gætti líka fjölda annarra manna barna og var dagmóðir frænd- barna sinna og á tímabili tók hún einnig börn til sumardvalar. Við öll þessi börn var hún nærgætin og góð og öll dáðu þau og virtu Fjólu vegna elskusemi hennar og hlýju. Alltaf var hún Fjóla hógvær og prúð í allri framkomu, en að eðlisfari var hún glaðlynd og einkar hlýleg í viðmóti. Hún var greind og fróð, hún las mikið og kunni það sem hún hafði lesið, enda var minni hennar með afbrigð- um gott. Fjóla var afar snyrtileg í allri umgengni og hún var góð hús- móðir, enda var það ævinlega gott að koma í Messuholt, ekki síst á kaffi- tímum, sem voru hvenær sem er. Hún hafði yndi af öllu, sem fagurt er, og sinnti garði og gróðri í kringum bæinn meðan heilsa leyfði. Fjóla var að sönnu heimakær og gerði ekki víð- reist um dagana. En skemmtilegt þótti henni að ferðast um landið, ekki síst óbyggðir, en það gerðu þau Sig- urþór talsvert um árabil. Við systkinin frá Vík hugsum til Fjólu með þakklæti og gleði. Um leið sendum við Sigurþóri, dætrunum og fjölskyldum þeirra innilegar samúð- arkveðjur. Minningin um góða konu lifir. Þórólfur, Ingibjörg, Ásdís og Steinunn. Elsku Fjóla, ég kveð þig í dag með þessu ljóði: Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Takk fyrir allt. Hulda Hreinsdóttir. likkistur.is Íslenskar kistur og krossar. Hagstæð verð. Sími 892 4605 ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, GUÐBJÖRG SALÓME ÞORSTEINSDÓTTIR, lést á heimili sínu á Ísafirði miðvikudaginn 19. janúar. Útför hennar fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugar- daginn 29. janúar kl. 14.00. Sigríður H. Sigfúsdóttir, Björn Gíslason, Ingibjörg E. Sigfúsdóttir, Jón Víðir Njálsson, Þorsteinn Sigfússon, Rósa Kjartansdóttir, Jóhann G. Sigfússon, Margrét Eyjólfsdóttir, Ósk Óskarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær maður minn, faðir, fósturfaðir, tengdafaðir og afi, HELGI GARÐARSSON, Bakkastíg 1, Eskifirði, sem andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu Neskaup- stað að morgni fimmtudagsins 20. janúar, verður jarðsunginn frá Eskifjarðarkirkju laugardaginn 29. janúar kl. 14.00. Sérstakar þakkir til starfsfólks Fjórðungssjúkrahússins Neskaupstað fyrir einstaka umönnun og hlýhug. Jóna Herdís Hallbjörnsdóttir, Jens Garðar Helgason, Sturla Már Helgason, Ingibjörg Gunnarsdóttir, Guðbjörg Gunnarsdóttir, Sveinbjörg Gunnarsdóttir og aðrir aðstandendur. ✝ Elskuleg móðir okkar, HELGA GUÐRÚN JAKOBSDÓTTIR, Ljósheimum 4, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Mörk mánudaginn 10. janúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. þeim sem vildu minnast hennar er bent á Kristniboðssambandið, Háaleitisbraut 68. Gréta S. Haraldsdóttir, Sigrún J. Haraldsdóttir, Friðþjófur D. Friðþjófsson og fjölskyldur.                                   ! ""              !"  #   ✝ Elskulegur eiginmaður minn, pabbi okkar, sonur og bróðir, SIGURJÓN BRINK tónlistarmaður, varð bráðkvaddur að heimili sínu mánudaginn 17. janúar. Hann verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 27. janúar kl. 15.00. Þórunn Erna Clausen, Róbert Hrafn Brink, Haukur Örn Brink, Kristín María Brink, Aron Brink, Bjarney Sigríður Sigurjónsdóttir, Filippus Gunnar Árnason, Róbert Magnús Brink, Þóranna Bjarnadóttir, Árni Filippusson, Nína Dögg Filippusdóttir, Róbert Aron Brink, Rannveig Hrönn Brink, Magnús Þór Brink.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.