Morgunblaðið - 22.01.2011, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 22.01.2011, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2011 BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Ákvörðun um fyrirkomulag makríl- veiða verður tekin fljótlega, að sögn Jóns Bjarnasonar, sjávarút- vegsráðherra. Byggt verður á reynslu síðasta sumars og reynt að tryggja að veiðiskip af öllum stærðum fái möguleika og svigrúm til makrílveiða. Reynt verður að vinna sem allra mest af makrílnum til manneldis, en heildarútflutning- ur á frosnum makrílafurðum fyrstu ellefu mánuði síðasta árs nam tæp- um 48 þúsund tonnum, að verð- mæti um 7,9 milljörðum króna. Í greinargerð starfshóps um makrílveiðar og vinnslu, sem skilað var til ráðherra í fyrradag, kemur fram að vísindarannsóknir Íslands, Noregs og Færeyja sýna að um ein milljón tonna af makríl eða 23% af heildarstofninum gekk í íslenska lögsögu 2010 og dvaldi í henni yfir fæðuöflunartímann. Vegin þyngd- araukning á þeim tíma er talin nema 59%, segir í frétt frá sjáv- arútvegsráðuneytinu. Vinnuhópurinn var skipaður starfsmönnum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis, Fiskistofu, MATÍS, Hafrannsóknarstofnunar- innar og LÍÚ. Formaður hópsins var Jóhann Guðmundsson skrif- stofustjóri í ráðuneytinu. Unnið á samræmdan og skipulegan hátt Jón Bjarnason segir að grein- argerð starfshópsins sýni hversu vel hafi tekist til með veiðar og vinnslu á makríl. „Tekið hefur ver- ið á þessum þætti á samræmdan og skipulegan hátt, bæði hvað varðar skipulag veiðanna, eftirfylgni við veiðar og löndun, meðferð afla og vinnslu,“ segir sjávarútvegsráð- herra. „Það hefur verið sameig- inlegt markmið að skapa sem mest verðmæti úr makrílnum og það hefur tekist með aukinni vinnslu til manneldis, eins og verið hefur stefna ráðuneytisins frá upphafi. Þessi áhersla á heildarumgjörð- ina hefur verið verðmæt með tilliti til veiða og vinnslu. Það er líka af- ar mikilvægt að geta sýnt og sann- að fyrir öðrum makrílveiðiþjóðum að við erum í rauninni forgöngu- þjóð um það hvernig þessar veiðar eru stundaðar á ábyrgan hátt. Þessi árangur gerir samningsstöðu okkar enn sterkari.“ Í niðurlagi greinargerðar starfs- hópsins segir að reynsla síðustu vertíðar sýni „að mögulegt er að nýta ísfiskskip og frystitogara til makrílveiða“. Þar kemur líka fram að reynslan sýni að hægt sé að stunda krókaveiðar á makríl með árangri. Þar segir einnig að mik- ilvægt sé að fiskveiðistjórnunin stuðli að því að frysti- og vinnslu- geta á sjó og í landi verði nýtt eins og mögulegt er. Aðspurður segir Jón að fyrir- komulag verði kynnt á næstunni, en í greinargerðinni er lögð áhersla á að það liggi fyrir tím- anlega svo útgerðir geti skipulagt bæði makrílveiðar og aðrar veiðar sem hagkvæmast. „Við munum reyna að hafa reglurnar þannig að allt frá litlum bátum upp í stór vinnsluskip fái sína möguleika og svigrúm til að veiða makríl,“ segir Jón. Atvinna og verðmæti allt í kringum landið „Þetta er nauðsynlegt til að anna veiðum og vinnslu á sem arðbær- astan hátt og einnig til að skapa at- vinnu og verðmæti allt í kringum landið eins og var síðasta sumar. Útgerðir, hvort sem er á Rifi, Grundarfirði, Ísafirði, Þórshöfn, Norðfirði eða Fáskrúðsfirði og um allt land gátu brugðist hratt við og skapað dýrmæt störf yfir hásum- arið. Þess vegna mun við skipulag veiðanna einmitt verða lögð áhersla á að allir geti komið að þeim og þá verður tekið mið af reynslu síðasta árs,“ segir Jón og bætir því við að allar upplýsingar bendi til að mikið geti orðið af makríl á íslenska hafsvæðinu næsta sumar. Íslendingar hafa frá árinu 2005 aukið makrílveiði sína með hverju árinu, en makríllinn er flökkufiskur sem á undanförnum árum hefur aukið mjög útbreiðslu sína í NA- Atlantshafi. Þessi aukna útbreiðsla er talin komin til vegna vaxandi sjávarhita í norðanverðu Atlants- hafi en ef til vill hefur minnkandi áta í Noregshafi einnig áhrif til aukinnar útbreiðslu frá hefðbundn- um beitarsvæðum, segir í skýrslu starfshópsins. Byggt á reynslu síðasta árs  Ráðherra ánægður með hvernig til hefur tekist með heildarumgjörð makrílveiða  Góður árangur styrkir samningsstöðu Íslendinga  Þyngdaraukning makríls á íslensku hafsvæði um 59% í fyrrasumar Útbreiðsla kolmunna, makríls og norsk-íslensku síldarinnar í NA-Atlantshafi Norsk-íslensk síldMakríllKolmunni Stórir stofnar Útbreiðslusvæði makríls, norsk-íslensku síldarinnar og kolmunna voru að hluta til hin sömu í fyrra. „Ég harma svona umræðu og svona viðbrögð af hálfu Evrópusambands- ins gagnvart okkur vegna makrílveið- anna,“ segir Jón Bjarnason sjáv- arútvegsráðherra. Hann var spurður um fréttir þess efnis að lögfræðingar Evrópusambandsins væru nú að kanna svigrúm sambandsins til frek- ari aðgerða gegn íslenskum stjórn- völdum í makríldeilunni. ESB hefur þegar samþykkt bann við löndun makríls frá Íslandi í höfnum ESB. „Skipting makrílsins er verkefni strandríkjanna sem veiða makríl og það gerum við á ábyrgan hátt við samningaborðið. Slíkt gerist ekki með hótunum eða yfirgangi eða því að beita viðskiptaþvingunum. Slíkt þjón- ar málstaðnum engan veginn. Réttur okkar til þessara veiða er afdrátt- arlaus,“ sagði Jón Bjarnason. Ráðherra hefur ákveðið að makrílafli Íslands á þessu ári verði tæplega 147 þúsund tonn, en kvóti síðasta árs var 130.000 tonn. Hann náðist ekki allur og verður í ár heimilt að veiða þau um átta þúsund tonn sem upp á vantaði. Gerist ekki með hótunum RÁÐHERRA HARMAR VINNUBRÖGÐ ESB Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra. islandsbanki@islandsbanki.is www.islandsbanki.is Sími 440 4900 Það borgar sig að byrja strax að spara Það getur munað miklu að eiga viðbótarlífeyrissparnað við starfslok. Því fyrr sem þú byrjar að spara og safna, því betra – og inneign þín verður mun meiri við starfslok. Gakktu strax frá sparnaðinum hjá eigna- og lífeyrisþjónustu Íslandsbanka á Kirkjusandi eða í næsta útibúi. Lífeyrissparnaður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.