Morgunblaðið - 22.01.2011, Síða 9

Morgunblaðið - 22.01.2011, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2011 Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Persónuvernd hefur vísað frá máli Ágústs Sigurjónssonar rannsókn- arlögreglumanns en hann kvartaði yfir því að þingmaðurinn Þráinn Bertelsson áframsendi bréfasend- ingar þeirra á milli til lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins. Talið var að málið sneri ekki að lögum um per- sónuvernd og meðferð persónu- upplýsinga, sem embættið hefur eft- irlit með, en frekar að því hvort Þráinn hefði farið út fyrir ramma 73. gr. stjórnarskrárinnar um tján- ingarfrelsi, og það væri dómstóla að skera úr slíkum vafaatriðum. Forsaga málsins er sú að Ágúst sendi Þráni, ásamt átta öðrum þing- mönnum, tölvupóst í nóvember síð- astliðnum vegna aðkomu þeirra að þingsályktunartillögu um að fallið yrði frá kæru á hendur nímenning- unum svokölluðu. Þótti honum að þeir, sem fulltrúar löggjafavaldsins, væru að hafa óeðlileg afskipti af störfum dómsvaldsins. Niðurlag svars Þráins var á þessa leið: „Innihald skeytisins fannst mér vera með þeim hætti að það ætti erindi til yfirmanna í lögregl- unni. Frábið ég mér svo frekari bréfaskipti við þig.“ Tilraun til þöggunar Ágúst bar fram kvörtun til Per- sónuverndar 8. janúar, þar sem honum þótti Þráinn hvorki hafa haft tilefni né leyfi til að áframsenda póstinn. Hann hefði verið skrifaður utan vinnutíma og sendur úr einka- pósthólfi en ekki í krafti starfs- heitis, jafnvel þótt hann hefði talað um störf sín í tölvupóstinum. Í kvörtun sinni sagði Ágúst að miðað við það svar sem hann hefði fengið frá Þráni virtist ástæða þess að pósturinn var sendur til lög- reglustjóra vera sú að Þráni líkaði ekki aðfinnslur hans „og tilgang- urinn því líklegast sá að þagga nið- ur í mér eða hefna sín á einhvern hátt“. Út fyrir ramma stjórnarskrár? Persónuvernd ítrekar í úrskurði sínum að hlutverk sitt sé að hafa eftirlit með framkvæmd laga um persónuvernd og meðferð persónu- upplýsinga nr. 77/2000 en segir enn fremur: „Þrátt fyrir að í málinu sé að finna persónuupplýsingar lýtur kjarni úrlausnarefnis þess að því hvort Þ, þingmaður, hafi með tján- ingu sinni í orði og verki, þegar hann miðlaði bréfi yðar til lög- reglustjóra, farið út fyrir ramma 73. gr. stjórnarskrárinnar.“ Snýst um tjáningarfrelsi  Kvartaði yfir áframsendum tölvupósti  Sagði gróflega vegið að persónu- og skoðanafrelsi sínu  Málinu vísað frá Bréfaskriftir » Lögreglumaðurinn furðaði sig á því að Þráinn sendi afrit bréfaskriftanna til lög- reglustjóra og innti hann eftir skýringum. » Þráinn svaraði því til að þar sem bréfið væri stílað á „þing- mann“ og „handhafa löggjaf- arvalds“ liti hann svo á að ekki væri um persónulegt einkabréf að ræða. Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Allir kjólar og skokkar á hálfvirði Útsala Bæjarlind 6, sími 554 7030 Eddufelli 2, sími 557 1730 www.rita.is Gallabuxur með stretch bláar og svartar mörg snið 3 síddir www.gisting.dk/gisting.html sími: 499 20 40 (Íslenskt símanúmer) Ódýr gisting í Kaupmannahöfn Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 1200 Með breyttu hugarfari getur þú öðlast það líf sem þú óskar þér. NLP er notað af fólki um allan heim sem hefur náð frábærum árangri í lífinu. NLP er öflugasta sjálfstyrkingarnámskeið sem völ er á. Námskeið í NLP tækni verður haldið 18. - 20.feb. og 25. - 27.feb. 2011 www.ckari.com; Mail: rosamatt@gmail.com; Sími: 894-2992 NLP Practitioner „Hugurinn ber þig alla leið“ - Er sjálfstraustið í ólagi? - Viltu betri líðan? - Skilja þig fáir? - Viltu vinna bug á einhverju í fari þínu? - Gengur öðrum betur í lífinu en þér? - Gengur illa að klára verkefni? - Er erfitt að höndla gagnrýni? © cKari.com Kári Eyþórsson MPNLP Laugavegi 63 • S: 551 4422 MÖGNUÐ ÚTSALA ALLT AÐ 60% AFSLATTUR! Á klassískum og vönduðum kvennfatnaði frá þekktum framleiðendum. Síung í 70 ár laxdal.is FANNBERG FASTEIGNASALA ehf. Sími 487 5028 Guðmundur Einarsson, lögg. fasteignasali Jón Bergþór Hrafnsson, viðskiptafræðingur ÞRÚÐVANGI 18 - 850 HELLU Gistiheimili undir EyjafjöllumTil s ölu Til sölu er gistiheimili staðsett á Lambafelli í Rangárþingi eystra. Húsið sem er á tveimur hæðum, stærð 227 fm. byggt úr timbri og hefur nýlega verið klætt að utan með alusink- klæðiningu og settir í það nýir gluggar og gler. Á neðri hæðinni er móttaka, þvottahús, snyrting og sex gistiherbergi með sér baðherbergjum. Á efri hæð er eldhús, matsalur og setustofa. Óskað er eftir tilboðum í eignina og skal tilboðum skilað til Fannbergs fasteignasölu ehf, Þrúðvangi 18, 850 Hellu fyrir 5. febrúar n.k. Nánari upplýsingar og myndir eru á heimasíðu www.fannberg.is og á skrifstofu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.