Morgunblaðið - 22.01.2011, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2011
Fyrir þá sem vantar hugmyndir að
lesefni gæti vefslóðin Thebrow-
ser.com/fivebooks verið eitthvað til
að kíkja á.
Þar birtast reglulega viðtöl, oftast
nær, við sérfrótt fólk sem stingur upp
á fimm bókum innan ákveðins geira
og útskýrir í nokkuð löngu máli af
hverju það mælir með þeim.
Þetta er stórsniðugt og gaman að
því hversu breiður hópur fólks mælir
þarna með bókum, svo allir ættu að
finna eitthvað við sitt hæfi.
Þegar þetta er skrifað er nýjasta
viðtalið við Evgeny Morozov sem er
rithöfundur, fræðimaður og bloggari
sem einbeitir sér að því að skoða
pólitísk áhrif netsins. Hann mælir
með fimm bókum sem fjalla um
heimspeki tækninnar. Bækurnar sem
hann mælir með eru; Technics and
Civilization, Autonomous Techno-
logy, Technology and the Character
of Contemporary Life, Does Techno-
logy Drive History og Philosophy of
Technology: 5 Questions. Hljómar allt
spennandi.
Á síðunni er hægt að skoða alla þá
sem hafa mælt með bókum og þarna
má sjá fólk mæla með bókum um
upplýsingatæknina, um tilgang lífs-
ins og hungur svo eitthvað sé nefnt.
Vefsíðan www.thebrowser.com/fivebooks
Morgunblaðið/Kristinn
Unun Fátt er betra en að lesa góða og áhugaverða bók.
Mælt með fimm bókum
Þorrinn hófst í gær á bóndadegi og
fagna honum eflaust margir, nú hefst
tímabil súrsaða matarins sem mörg-
um finnst góður í laumi en borða að-
eins á þorranum.
Þorrablót eru líka haldin víða
næstu vikur og hvað er skemmtilegra
en að borða íslenskan mat saman,
hlæja að heimatilbúnum skemmti-
atriðum og dansa svo ræl og polka
við misgóða dansmenn!
Í Sögu daganna eftir Árna Björns-
son segir að þorri hefjist föstudaginn
í 13. viku vetrar og er fjórði mánuður
vetrar að forníslensku tímatali og við
upphaf hans telst vetur hálfnaður.
Endilega …
… þreyið
þorrann
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Þorri Frá þorrablóti Lions klúbbs í
Reykjavík árið 1972.
PRUFUTÍMINN
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
H
eimsóknin í Hjarta-
vernd skiptist í tvo
hluta; í fyrri heim-
sókninni er grunn-
skoðun þar sem ein-
staklingurinn er mældur og vigtaður,
blóð dregið til mælinga og tekið
hjartalínurit. Í síðari heimsókninni
eru niðurstöðurnar komnar og þá er
rætt við lækni þar sem farið er yfir
áhættuþætti og sjúkdómseinkenni.
Heimsókn mín í Hjartavernd
byrjaði á biðstofunni en sú bið var
ekki löng, Bylgja Rún Stefánsdóttir
hjúkrunarfræðingur bauð mig vel-
komna, útskýrði ferlið fyrir mér og
rétti mér bláan slopp til að klæðast.
Bylgja byrjaði á að spyrja mig út í
ættarsöguna í sambandi við hjarta-
og æðasjúkdóma, lífsstíl minn og
fleira. Svo mældi hún blóðþrýsting og
tók blóðprufur. Ég hafði fastað frá
því kvöldinu áður svo blóðsykurinn
væri ekki rokkandi.
Þau ráðleggja öllum yfir fertugu
að koma í áhættumat og öllum 35 ára
og eldri ef það er ættarsaga hjarta-
sjúkdóma. „Það koma hingað að
meðaltali um þrettán manns á dag yf-
ir árið. Sumir koma einu sinni á ári,
aðrir á nokkurra ára fresti. Oftast er
fólk að koma í fyrstu heimsókn á milli
fertugs og fimmtugs, en við fáum
hingað fólk frá átján ára og upp úr.
Það eru alltaf einhverjir sem við
greinum á staðnum með krans-
æðasjúkdóma og eru sendir beint
upp á spítala. Þeir sem koma illa út
úr áhættumatinu fara næst í
áreynslupróf þar sem sést hvort
hjartavöðvinn verður fyrir súrefn-
isskorti við áreynslu,“ sagði Bylgja
mér áður en hún sendi mig yfir til
Sigríðar P. Ragnarsdóttur.
Með hjarta við
hestaheilsu
Í janúar fara margir að huga að heilsunni, ekki er þá vitlaust að athuga stöðuna
á líkamanum með því að fara í áhættugreiningu í Hjartavernd og sjá svart á
hvítu hver er áhættan á að fá hjartasjúkdóma. Ég komst að ýmsu nýju um sjálfan
mig með því að fara í áhættumatið, t.d. að ég væri 1 cm hærri en ég hélt að ég
væri og það væru 0,1% líkur á að ég fengi kransæðasjúkdóm á næstu tíu árum.
Morgunblaðið/Golli
Blóðprufa Ekki er annað hægt en að gretta sig þegar nálinni er stungið inn.
Dagurinn byrjar á því að égvakna heima hjá mér meðdóttur minni. Ég var að
koma að norðan þar sem ég var að
sýna níu sýningar af Jesú litla í Hofi
og hef því ekki séð dóttur mína svo-
lítið lengi þannig að það verður bón-
usinn að hitta hana í kvöld [föstu-
dagskvöld] og fá að vakna með henni
á laugardagsmorguninn. Fram að
hádegi verðum við eitthvað að dúlla
heima, bökum jafnvel amerískar
pönnukökur að hætti hússins,“ segir
Kristjana Stefánsdóttir söngkona
beðin um að segja frá því hvernig
hún ætlar að eyða deginum í dag.
„Um hádegi fer ég í myndatöku
með Ellen Kristjánsdóttur og Guð-
rúnu Gunnars því við erum að fara
að halda tónleika þrjár saman í Saln-
um í febrúar þar sem við ætlum að
flytja uppáhaldslögin okkar.
Um miðjan daginn þarf ég að vera
mætt í Slippsalinn við Mýrargötu til
að taka hljóðprufu og stilla upp
græjunum fyrir kvöldið. Þá fer ég
heim og skelli upp andlitinu, kem
dóttur minni fyrir í pössun og svo
eru það tónleikarnir um kvöldið með
þessum snillingum. Ég hlakka ekk-
ert smá til enda langt síðan ég hef
sungið svona mikið af blús. Við mun-
um flytja bæði frumsamin lög og lög
annarra, þekktir blúsarar fá að
hljóma. Við erum líka með eitt lag
eftir Stevie Wonder og annað eftir
Paul Simon sem við laumum inn á
milli,“ segir Kristjana.
Hún sér um sönginn en um undir-
leik sjá þeir Agnar Már Magnússon
á píanó og hammond, Ómar Guð-
jónsson á gítar, Róbert Þórhalls á
bassa og Halldór G. Hauksson á
trommur. Eins og áður segir verða
blúsar á dagskránni ásamt fönki og
soul í bland við frumsamið efni. Tón-
leikarnir hefjast kl. 21 í kvöld og er
aðgangseyrir 1500 kr.
Þetta er í fyrsta skipti sem Krist-
jana syngur í Slippsalnum og kveðst
hún vera mjög spennt. „Ég hef bara
heyrt gott um þennan sal, strákarnir
hafa flestir spilað þarna og eru mjög
hrifnir.“ ingveldur@mbl.is
Hvað ætlar þú að gera í dag?
Söngkonan Kristjana Stefánsdóttir á góðan dag í vændum.
Amerískar
pönnukökur
og tregafullir
tónleikar
Frekari upplýsingar um viðburði í
Slippsalnum má finna á
www.nemaforum.web.is. Þar er
líka miðasala á tónleikana með
Kristjönu.
Sjóðurinn veitir tvennskonar styrki
Til rannsóknarverkefna sem tengjast vinnuumhverfi eða
aðbúnaði vélstjóra og vélfræðinga og þróun námsefnis
og kennsluaðferða til vélstjórnarnáms.
Til ýmiss konar brautryðjenda- og þróunarstarfs sem hefur
samfélagslegt gildi, menningarstarfsemi eða listsköpunar.
Einstaklingar, fyrirtæki, rannsókna- og menntastofnanir geta sótt
um styrk úr sjóðnum.
Umsóknir berist Akki, Styrktar og menningarsjóði vélstjóra og
vélfræðinga, eigi síðar en 21. febrúar 2011.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu VM, www.vm.is,
þar sem nálgast má umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar.
VM Stórhöfða 25 110 Reykjavík sími 575 9800 www.vm.is Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið virka daga 10–18, laugard. 11–14, sunnud. lokað
Næsta listmunauppboð 7. febrúar
Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu
Áhugasamir vinsamlegast hafið samband í síma
551-0400, 896-6511 (Tryggvi),
845-0450 (Jóhann)
Erum að taka á móti verkum núna í
Galleríi Fold við Rauðarárstíg