Morgunblaðið - 22.01.2011, Blaðsíða 19
Morgunblaðið/Jim Smart
Duftker Bálfarir eru að vinna á.
Bálfarir hafa færst í vöxt á síðustu
árum og er nú svo komið að
tæplega 40% jarðsetninga á höf-
uðborgarsvæðinu eru duftker,
samkvæmt upplýsingum Kirkju-
garðasambandsins.
Ef teknar eru meðaltalstölur ár-
anna 2005-2010 um jarðsetningar
hjá Kirkjugörðum Reykjavík-
urprófastsdæma (KGRP) kemur í
ljós að hlutföllin eru 69% kistu-
grafir og 31% duftgrafir.
Á síðasta ári voru þessi hlutföll
63% kistugrafir og 37% duftgrafir.
Aukning bálfara er því mjög hröð
og með sama áframhaldi er áætlað
að hlutföllin verði 50:50 árið 2018.
Að frumkvæði KGRP gerði
Gallup þrjár skoðanakannanir um
viðhorf almennings til bálfara
(1998, 2000 og 2002) og var nið-
urstaðan sú að 70% spyrjenda
höfðu jákvætt viðhorf til bálfara
sem útfararsiðar.
Ekkert er því til fyrirstöðu að
þeir sem búsettir eru úti á landi
óski eftir þessari þjónustu og hafa
Kirkjugarðasamband Íslands og
KGRP samvinnu um að auðvelda
öllum Íslendingum að velja bálför
án tillits til búsetu og hvar duft-
kerið verði jarðsett, segir í til-
kynningunni. Duftker eru að jafn-
aði grafin í sérstaka duftgarða
sem eru í tengslum við kirkju-
garða en einnig er algengt að
duftkerin séu grafin ofan á kistu-
grafir með leyfi umsjónarmanns
leiðis og er þannig hægt að útbúa
fjölskyldugrafreiti. sisi@mbl.is
Bálfarir hafa færst í vöxt
Áætla að bálfarir verði helmingur
allra útfara hérlendis árið 2018
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2011
viska í
fjármálum
www.arionbanki.is/uglan
Námskeið byggð á sjónvarpsþáttunum vinsælu
Námskeið um fjármál - á mannamáli
Breki Karlsson vakti mikla athygli með sjónvarpsþáttunum
Ferð til fjár. Nú gefst þér kostur á að sækja námskeið hjá
Breka þar sem hann fer betur í saumana á fjármálum
einstaklinga og fjallar um peninga, sparnað og eyðslu
- sem sagt skemmtileg fræðsla á mannamáli.
26. jan. Borgartúni 19, Reykjavík
02. feb. Háskólanum á Akureyri
10. feb. Hafnarborg, Hafnarfirði
16. feb. Borgartúni 19, Reykjavík
23. feb. Bifröst, Borgarfirði
Þættirnir Ferð til fjár eru nú
aðgengilegir á arionbanki.is
Breki Karlsson,
forstöðumaður
Stofnunar
um fjármálalæsi
Ferð til fjár
Nánari upplýsingar og skráning á arionbanki.is/uglan
Boðið er upp á
táknmálstúlkun
Boðið er upp á
táknmálstúlkun
Ingibjörg J.
Guðmundsdóttir
hefur útskrifast
með dokt-
orsgráðu í
hjartalækn-
ingum frá Ed-
inborgarháskóla. Hún vann
doktorsverkefni sitt um áhrif
þrombín-viðtaka í æðakerfi
manna á árunum 2004-2007.
Niðurstöðurnar hafa verið birt-
ar í ýmsum læknaritum og
kynntar á alþjóðlegum ráð-
stefnum.
Ingibjörg lauk stúdentsprófi
við MR 1992 og prófi frá
læknadeild Háskóla Íslands
1998. Á námstímanum á Íslandi
stundaði hún rannsóknir á boð-
leiðum í æðaþeli.
Ingibjörg hefur búið í Edinborg
frá 2001 og stundað sérnám í lyf-
lækningum og hjartalækningum
og starfað að hjartalækningum.
Maður hennar er Kristján Orri
Helgason læknir, sérfræðingur í
smitsjúkdómum og sýklafræði.
Synir þeirra eru Kjartan Þorri og
Agnar Guðmundur.
» FÓLK
Doktor í
læknisfræði
Hinn 11. desem-
ber síðastliðinn
varði Rósa Rut
Þórisdóttir dokt-
orsritgerð sína í
mannfræði og fé-
lagsvísindum
með sjónræna mannfræði að
sérsviði við Parísarháskóla.
Doktorsritgerðin, „Norð-
urslóðir í myndum, greining á
heimildarmyndum Jean Mala-
urie og gildi sjónrænna heim-
ilda“, fjallar um norðurslóða-
heimildarmyndir gerðar af
menningarlandfræðingnum
Jean Malaurie. Myndirnar gefa
þverskurð af samfélögum Inúíta
á árunum 1969 til 1976. Þær eru
gerðar í samstarfi og samráði
við íbúa hvers samfélags og eru
að mati Rósu ómetanlegur
menningararfur þessara svæða.
Rósa Rut er dóttir hjónanna Þór-
is Haraldssonar, líffræðikennara
við MA, og Unu Sigurliðadóttur,
skólafullrúa við VMA. Eiginmaður
Rósu er dr. Marwan Soliman hag-
fræðingur og eiga þau einn son,
þau eru búsett í Brussel.
Doktor í
mannfræði
Magnús Gestsson
brautskráðist
með doktorspróf
frá safna-
fræðideild Uni-
versity of Leic-
ester í Englandi
og varð fyrstur Íslendinga til að
ljúka doktorsprófi í safnafræði.
Í doktorsritgerð Magnúsar
eru galleristar skoðaðir í sam-
hengi við kenningar fræðimanna
um listheiminn. Rannsóknin
beindist sérstaklega að samspili
menningarumhverfis og athafna
gallerista í Kaupmannahöfn,
Austur-London og Reykjavík og
tekur hæðina út frá svokölluðum
„Young British Artists“ og efl-
ingu myndlistarmarkaðarins.
Með viðtölum við listaverkasala í
borgunum og rannsóknum á
borgarmenningu og menningar-
umhverfi sýnir ritgerðin að gall-
eristar eru drifnir áfram af sköp-
unarkrafti og listrænni sýn sem
er oftast á kostnað markaðs-
vitundar.
Foreldrar Magnúsar eru
Sigurjóna Gyða Magnúsdóttir og
Gestur Hallgrímsson (1929-1996).
Doktor í
safnafræði