Morgunblaðið - 22.01.2011, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 22.01.2011, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2011 VIÐTAL Guðni Einarsson gudni@mbl.is Peningalyktin heyrir nú sögunni til í Siglufirði. Stóra fiskimjölsverk- smiðjan, sem er sú síðasta í þessum fyrrverandi helsta síldarbæ lands- ins, hefur verið seld til útlanda. Þar með lýkur meira en 80 ára sögu síld- ar- og loðnubræðslu á Siglufirði. Fyrsta fiskimjölsverksmiðjan var reist þar 1929. Brotthvarf verk- smiðjunnar markar skil í sögu Siglu- fjarðar en mikil tímamót lífi Þórðar Georgs Andersen, verksmiðjustjóra. Hann hefur varið allri starfsævinni í verksmiðjunni og tengdum rekstri. „Ég hef ekki unnið annars staðar síðan ég var níu ára,“ sagði Þórður í samtali við Morgunblaðið. Þegar hann byrjaði á barnsaldri að vinna hjá Síldarverksmiðjum ríkisins (SR) rak fyrirtækið þrjár fiskimjölsverk- smiðjur í Siglufirði. Mikilli síld var landað í bræðslu á síldarárunum og eins var unnið úr afskurði frá síld- arplönunum. Þórður hóf störf sem sendill á rannsóknastofu SR og hljóp á milli verksmiðjanna og rann- sóknastofunnar með sýni. Hann sagði að kannski hafi klíkuskapur ráðið því að hann fékk vinnuna. „Annars var þetta ekki fyrsta árið sem maður byrjaði að vinna,“ sagði Þórður, sem er fæddur árið 1950. „Maður byrjaði sex ára á síldarplön- unum.“ Þar lét hann síldarstúlkur fá tunnuhringi og var látinn pækla, það er að hella saltpækli á síldartunnur, og ýmislegt fleira. Mamma Þórðar vann um tíma á síldarplani en pabbi hans var rennismiður hjá SR. Á yngri árum Þórðar veiddist síld- in aðallega yfir sumarið fyrir Norð- urlandi. Hann vann í sumarfríinu og var í skóla á veturna. Svo fór síld- veiðin að teygjast meira fram á haustið. „Það var stundum fengið frí fyrir mig í skólanum þegar þannig stóð á,“ sagði Þórður. Síldarverksmiðjur SR á Siglufirði voru sameinaðar í eina stóra verk- smiðju upp úr 1980, seinna samein- aðist SR svo Síldarvinnslunni á Nes- kaupstað (SVN) og hefur verksmiðjan verið rekin undir merkjum SVN um árabil. Tæki verksmiðjunnar voru mikið endurnýjuð 1985 og aftur var gagn- ger endurnýjun 1999. Þá voru m.a. settir upp nýir mjölþurrkarar sem gerðu kleift að framleiða verðmeira LT-mjöl. Tæki verksmiðjunnar sem sett voru upp 1999 eru ekki mikið notuð, að sögn Þórðar. Hún hefur ekki verið gangsett síðan 12. mars 2005 að síðustu vaktinni var slitið klukkan 19.30 eftir bræðslu á loðnu. Verksmiðjan er knúin svartolíu og brenndi 70-80 tonnum af olíu á sól- arhring þegar allt var í gangi. Þórð- ur kvaðst hafa lagt metnað sinn í að hafa allt hreint og fínt enda er verk- smiðjunni vel við haldið, allt mjög snyrtilegt og tækin fægð og strokin. „Það þýðir ekkert annað, þetta er matvælaframleiðsla,“ sagði Þórður Var fjölmennur vinnustaður Undir það síðasta unnu 15-16 manns í verksmiðjunni sem þá var orðin sjálfvirk að stórum hluta. Í byrjun unnu þar miklu fleiri. „Hér voru allt upp í 600 manns á vöktum á stríðsárunum,“ sagði Þórður. „Þegar ég byrjaði gætu hafa verið um 100 manns á vöktum.“ En hvernig tilfinningu vekur það að vinnustaður manns í meira en hálfa öld heyri brátt sögunni til? „Ja, hún er svolítið skrítin. En maður er búinn að sætta sig við þetta fyrir þónokkru síðan. Það má segja að maður hafi séð í hvað stefndi,“ sagði Þórður. Hann sagði ekkert hafa verið rætt um hvað yrði gert við verksmiðjuhúsin sem eru gríðarstór. Þurrkarahúsið var byggt 1999 en verksmiðjuhúsið 1946 og soðstöðin var byggð 1985. Mjölskemman, sem er frá 1946, er ein meira en 6.200 fermetra stór. Þórður segist ekki hafa hugmynd um hvað tæki við hjá honum. Hann verður þó ekki alveg iðjulaus því hann hefur rekið gistihús á Siglu- firði meðfram verksmiðjustjórninni. Undanfarið hefur hann verið að endurnýja gistihúsið. Þótt verksmiðjan fari verður ýmislegt eftir í bæn- um sem minnir á forna frægð síldarbræðslu á Siglufirði. Síldarminjasafn- ið hefur fengið ýmsa muni úr gömlu síldarverk- smiðjunum sem menn vildu ekki láta fara for- görðum. Morgunblaðið/Sigurður ÆgissonVerksmiðjustjórinn Þórður G. Andersen verksmiðjustjóri hefur séð um að öllu sé vel viðhaldið og að allt sé hreint og fínt enda eru framleidd matvæli í verksmiðjunni. Tímamót í sögu síldarbæjarins  Meira en 80 ára sögu fiskimjölsframleiðslu í Siglufirði er að ljúka  Þórður G. Andersen verk- smiðjustjóri hefur varið allri starfsævinni í verksmiðjunni, frá því hann byrjaði þar níu ára gamall Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Búnaður Verksmiðjan er gríðarlega stór og mikill búnaður innandyra. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Vaktarlok Síðustu vaktinni var slitið kl. 19.30 þann 12. mars 2005. Tæki og búnaður úr fiskimjöls- verksmiðju Síldarvinnslunnar (SVN) á Siglufirði hefur verið seldur til spánsks fyrirtækis. Gert er ráð fyrir að kaupend- urnir sæki hann í vor eða sumar. Þeir ætla að nota tækin í mjöl- verksmiðjum á Spáni og í Vene- súela. Kaupendurnir reka þrjár mjölverksmiðjur á Spáni sem framleiða aðallega kjötmjöl úr kjúklingaúrgangi. Gengið var frá kaupunum fyrr í þessum mánuði. Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri SVN, sagði að kaupendur hefðu óskað eftir því að söluverðið yrði trúnaðarmál. Hann sagði að verksmiðjan væri mjög öflug og gæti unnið úr um 1.500 tonnum af hráefni á sólarhring. „En það er sama hvað afköst- in eru mikil og verksmiðjan góð – ef hún fær ekki hráefni þá er hún ekki til neins,“ sagði Gunn- þór. Hann sagði að mjölverk- smiðjur SVN sem eftir eru í landinu nægðu fyrirtækinu vel og rúmlega það. „Við áætlum á þessu ári rúm- lega 80.000 tonn inn í þessar verksmiðjur okkar. Við tókum 420.000 tonn í gegnum verk- smiðjurnar árið 2002. Þetta er einfalt reikningsdæmi. Við horfum nú fram á að þurfa að leggja uppsjávarveiðiskipum í einhverja mánuði á þessu ári. Það hefur ekki sést svona hörmung, eins og stefnir í á þessu ári í uppsjávargeir- anum, í 10-15 ár.“ Hráefnið skortir ÖFLUG VERKSMIÐJA Gunnþór Ingvason

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.