Morgunblaðið - 22.01.2011, Page 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 2011
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Hún Eivör okkar Pálsdóttir er ávallt
aufúsugestur hingað upp að strönd-
um. Hún festi rætur hér fyrir um tíu
árum og hefur verið með aðra löpp-
ina hér síðan, okkur og henni til
ómældrar ánægju. Hún býr nú í
Kaupmannahöfn en svífur á milli
landanna þriggja; Íslands, Dan-
merkur og heimalandsins Færeyja
eins og hún á eðli til, frjáls og engum
háð nema auðvitað listgyðjunni.
Er kannski að rifja
upp gamla takta
Hingað er hún nú komin til að
spila djass og það með engum auk-
visum. Þeir Sigurður Flosason,
Kjartan Valdemarsson, Einar Valur
Scheving og Þorgrímur Jónsson
ætla að leika með henni lög eftir
hana, Sigurð og Kjartan en auk þess
fá standardar og þjóðlög að fljóta
með.
„Ég og Siggi höfum verið að tala
um þetta lengi,“ segir Eivör glaðvær
en hún kom til landsins nú á þriðju-
daginn.
„Loksins settum við tímasetningu
á þetta og nú er þetta orðið að veru-
leika.“
Blaðamaður spyr hvort hún sé að
rifja upp takta frá fyrstu plötunni,
Eivör Pálsdóttir (2000), en hún var í
senn djassskotin og þjóðlagabundin.
„Já …kannski?“ segir hún og
hlær sínum dillandi hlátri.
Annars var síðasta plata Eivarar,
Larva, í dálítið öðrum gír; dramatísk
og nokkuð dökkleit rokkplata; með
miklum hávaða og orkusprettum á
köflum.
„Ég hef mikið verið að spila hana
á Norðurlöndunum. Ég kem svo aft-
ur til Íslands og mun leika efni af
henni í mars. En ég set þetta upp
sem dúett núna, Mikael Blak er með
mér og hann spilar á bassa, hljóm-
borð og það sem þarf. Þetta er því
mun lágstemmdara en var á plöt-
unni.“
Kemur reglulega til Íslands
Eivör segir að þetta stílaflökt sitt
haldi sér gangandi sem listamanni.
„Þannig held ég fókus einhvern
veginn og þetta kveikir í mér sköp-
unarþörfina. Leiðir mig í núið og
heldur mér á tánum …berum tánum
(hlær).“
Eldgamla Ísafold er Eivöru hug-
leikið og hún segist þurfa að koma
hingað reglulega, annars fengi hún
heimþrá.
„Þetta árið er ég líka að semja inn
á næstu plötu. Meðfram öðru. Hún
verður blandaðri en síðasta. Og að-
eins ljúfari, ekki eins hörð. Annars á
ég frekar erfitt með að tala um eitt-
hvað sem er ekki orðið til ennþá.“
Hún segist sátt í sínu skinni og
þakklát fyrir að eiga kost á því að
stunda sína köllun árið um kring.
„Ég er heppin að fá að geta gert
það sem mig hefur alltaf dreymt um
að gera. Það er mér mikils virði og
ég tek því ekki sem gefnu.“
Tónleikarnir hefjast kl. 20.
Færeyska
drottningin
snýr aftur
Eivör heldur tónleika í Langholts-
kirkju á sunnudaginn ásamt djasssveit
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lánsöm „Ég er heppin að fá að geta gert það sem mig hefur alltaf dreymt um að gera.“
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Á hátíðinni Við Djúpið er boðið
upp á fjölda tónleika og nám-
skeiða, sk. masterklassa í klass-
ískri tónlist. Hún er haldin í
samvinnu við Listaháskóla Ís-
lands og tónlistardeild hans veit-
ir nemendum hennar einingar
fyrir þátttöku
á námskeið-
unum. Fram-
kvæmdastjóri
hátíðarinnar
er Greipur
Gíslason og
er hátíðin í ár
sú sjöunda
sem hann sér
um.
Greipur
segir námskeiðin, masterklassana,
grunnstef hátíðarinnar og það
sem skapi henni sérstöðu. Þá hafi
myndast hefð fyrir því að tónlist-
armennirnir sem kenni á nám-
skeiðunum haldi tónleika líka og
úr því hafi myndast tónleikaröð.
„Svo hafa hlaðist ofan á þetta alls
konar verkefni í gegnum tíðina
þannig að hátíðin hefur orðið sí-
fellt viðameiri. Við erum í sam-
vinnu við Háskólasetur Vestfjarða
á Ísafirði með opna hádegistón-
leika og fyrirlestraröð, einskonar
músík og mas, og það er frítt inn
á það fyrir alla. Svo erum við
með tónskáldakeppni og „works-
hop“ fyrir þau tónskáld. Þannig
að það hefur hlaðist utan á þetta
og svo höfum við reynt að hafa
líka öðruvísi tónlist, annað en
klassík, djass, popp eða annað,“
segir Greipur.
Bax, Nikkanen og Sæunn
Í ár munu þrír tónlistarmenn
halda námskeið, þau Alessio Bax
píanóleikari, Kurt Nikkanen
fiðluleikari og Sæunn Þorsteins-
dóttir sellóleikari en ekkert
þeirra hefur áður haldið nám-
skeið hér á landi.
Alessio Bax hefur komið víða
fram, bæði sem einleikari og
flytjandi kammertónlistar og
hefur leikið með yfir 80 hljóm-
sveitum víðsvegar um heiminn
og unnið til verðlauna fyrir leik
sinn, m.a. Avery Fisher Career
Grant verðlaunin árið 2009.
Nikkanen er reyndur einleik-
ari, hefur komið fram með fjöl-
mörgum hljómsveitum og unnið
með Vladimir Ashkenazy og
Andrew Davis, svo eitthvað sé
nefnt. Sæunn hefur komið fram
víðsvegar um heim, unnið til
verðlauna og frumflutt fjölmörg
verk og má þar nefna verk sér-
staklega samin fyrir hana eftir
Daníel Bjarnason og Nicholas
Csicsko.
Kvartett frá New York
Greipur segir einnig búið að
ráða óbókvartett frá New York
til að leika á hátíðinni en kvart-
ettinn mun flytja ný verk eftir
tónskáld sem valin verða í tón-
skáldakeppni hátíðarinnar, þrjú
talsins, en keppnin verður haldin
í þriðja sinn í ár. Kvartett þenn-
an skipa hljóðfæraleikarar úr
The Academy, verkefni á vegum
listaháskólans Juilliard og
Carnegie Hall-tónlistarhússins.
„Þetta er dálítið þekkt verkefni.
Krakkar sem útskrifast úr Juilli-
ard, afburðanemendurnir, fá
vinnu við þetta verkefni í tvö ár
eftir útskrift hjá Carnegie Hall
og vinna við það að spila kamm-
ermúsík í stærri og minni hópum
í New York, fyrir skólakerfið og
í Carnegie Hall,“ útskýrir Greip-
ur. Úr þessu verkefni komi
kvartett til Ísafjarðar, skipaður
óbó-, fiðlu-, víólu- og sellóleikara
en sellóleikarinn er Sæunn Þor-
steinsdóttir. „Nú er einmitt verið
að leita að þessum tónskáldum
og umsóknarfresturinn rennur út
17. febrúar,“ bætir Greipur við.
Viðburðir hátíðarinnar fara
fram á nokkrum stöðum: í Tón-
listarskóla Ísafjarðar, tónlist-
arsalnum Hömrum og í Ed-
inborgarhúsi en dagskrána má
kynna sér á vef hátíðarinnar,
viddjupid.is.
Námskeiðin eru grunnstefið
Tónlistarhátíðin Við Djúpið verður haldin 21.-26. júní nk. á Ísafirði Hátíðin haldin í níunda sinn
Óbókvartett frá New York leikur verk ungra tónskálda Kvartettinn skipa afburðatónlistanemar
Píanó Alessio Bax kennir á tónlistarhátíðinni Við Djúpið í sumar.
Greipur Gíslason
Tónlistarhátíðin Við
Djúpið stendur nú í
þriðja sinn fyrir leit að
nýjum tónskáldum og
nú í samstarfi við Rás
1 og sendiráð Banda-
ríkjanna á Íslandi. Nýj-
um tónskáldum er
boðið að senda inn
umsóknir til þátttöku
og mun dómnefnd
velja þrjá þátttak-
endur úr umsóknum.
Þeir sem fyrir valinu
verða þurfa að semja
verk fyrir óbókvartett og mun óbókv-
artett frá The Academy í New York
flytja verkin og æfa með tónskáldunum.
Verkin verða frumflutt á lokatónleikum
hátíðarinnar, 26. júní 2011 og síðar á
Rás 1. Tilgangurinn með þessari keppni
er að gefa ungum tónskáldum tækifæri
til að vinna mjög náið með reyndum
tónlistarmönnum, mun nánar en undir
venjulegum kringumstæðum, að því er
fram kemur á vef hátíðarinnar. Í dóm-
nefnd sitja Daníel Bjarnason tónskáld
sem er jafnframt formaður nefnd-
arinnar, Dagný Arnalds, listrænn stjórn-
andi hátíðarinnar,
Sæunn Þorsteinsdóttir sellóleikari,
Haukur Tómasson tónskáld og
Ólafur Óskar Axelsson tónskáld. Skil-
frestur er til 17. febrúar.
Þrír valdir úr
LEIT AÐ NÝJUM TÓNSKÁLDUM
Tónskáld Högni Eg-
ilsson úr Hjaltalín er
eitt þeirra ungskálda
sem hefur lagt á
„Djúpið“.