Morgunblaðið - 22.01.2011, Qupperneq 52
LAUGARDAGUR 22. JANÚAR 22. DAGUR ÁRSINS 2011
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 590 ÁSKRIFT 3990 HELGARÁSKRIFT 2500 PDF Á MBL.IS 2318
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Skandinavar eyðileggja handbolta
2. Hedin: Berjið Alexander
3. Andlát: Óli G. Jóhannsson
4. Of glaður Íslendingur
Eivör Pálsdóttir ætlar að spila
djass í Langholtskirkju nú á sunnu-
daginn ásamt valinkunnum Íslend-
ingum. Arnar Eggert Thoroddsen
ræddi við söngkonuna. »46
Morgunblaðið/Golli
Eivör heldur tónleika
í Langholtskirkju
Síðasti sýning-
ardagur Sögu-
staða – í fótspor
W.G. Coll-
ingwoods verður í
Þjóðminjasafninu
á morgun, sunnu-
dag. Þá mun Einar
Falur Ingólfsson,
ljósmyndari og
sýningarhöfundur, veita leiðsögn um
sýninguna. Leiðsögnin hefst kl. 14 og
er öllum opin. Samnefnd bók Einars
Fals hlaut tilnefningu til Íslensku
bókmenntaverðlaunanna.
Sögustaðir – í fótspor
W.G. Collingwoods
Þættirnir Makalaus, byggðir á bók
Tobbu Marinós, hefjast í febrúar. Vel
er í lagt hvað mannskap varðar en
Helgi Björns, Guðmundur
Ingi, Vigdís Hrefna, Þor-
grímur Þráins, Karl
Berndsen og Sveinn Ólaf-
ur Gunnarsson
munu m.a. koma
við sögu. Að sögn
Tobbu er þó
vika í að upp-
lýst verði um
aðalleikkonuna.
Spennandi!
Makalaus
febrúarmánuður
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Sunnan og suðvestanátt, 10-18 m/s NV-til, annars víða 8-13. Rigning eða súld með köfl-
um, en yfirleitt þurrt NA- og A-lands og þar léttir til á morgun. Hiti 3 til 10 stig.
Á sunnudag SV 5-13 m/s og rigning eða súld, en yfirleitt þurrt A-lands. Hiti 3 til 8 stig.
Á mánudag Suðvestan 5-10 m/s. Léttskýjað á NA- og A-landi, annars skýjað og dálítil
væta. Hiti 0 til 7 stig, en í kringum frostmark NA-til.
Á þriðjudag og miðvikudag SV-átt og vætusamt, en úrkomulítið A-lands. Fremur hlýtt.
„Það var gaman að skora fyrsta mark
landsliðsins í innifótbolta en það tel-
ur ekki mikið í tapinu, ég hefði getað
bætt við fleiri mörkum og geri það í
næsta leik,“ sagði Keflvíkingurinn
Magnús Sverrir Þorsteinsson. Ísland
tapaði fyrir Lettum, 4:5, í hörkuleik í
fyrsta leik sínum í Evrópukeppninni í
innifótbolta en leikið var á Ásvöllum í
gærkvöld. »4
Magnús skoraði fyrsta
mark Íslands innanhúss
Ísfirðingar sitja eftir í erf-
iðri stöðu á botni úrvals-
deildarinnar í körfuknatt-
leik eftir ósigur gegn ÍR í
gærkvöld, 92:82. „Mark-
miðin eru skýr. Við viljum
vera á meðal þeirra bestu,
hvað sem það kostar,“
sagði Shiran Þórisson,
þjálfari Ísfirðinga. Snæfell
vann nauman sigur á
Njarðvík og Fjölnir vann
Hamar. »4
Viljum vera meðal
þeirra bestu
„Það eru helst Danirnir sem hafa
sýnt góða frammistöðu ásamt okkur
og eins og þetta lítur út fyrir mér
þykir mér Frakkar, Danir og Íslend-
ingar líklegastir,“ segir Patrekur Jó-
hannesson, fyrrum landsliðsmaður
og núverandi þjálfari Emsdetten í
Þýskalandi, um stöðu mála á HM í
handbolta, en Ísland og Þýskaland
eigast við kl. 17.30 í dag. »2-3
Frakkar, Danir og Ís-
lendingar líklegastir
Kristján Jónsson í Jönköping
kris@mbl.is
Guðmundur Þórður Guðmundsson,
landsliðsþjálfari karla í handknatt-
leik, hefur helgað handboltalandslið-
inu drjúgan hluta ævinnar. Lengi vel
sem leikmaður en einnig sem þjálfari
og aðstoðarþjálfari. Leikurinn gegn
Þjóðverjum á HM í Þýskalandi í
kvöld er merkilegur fyrir þær sakir
að hann er 400. landsleikurinn sem
Guðmundur tekur þátt í sem leik-
maður, þjálfari eða aðstoðarþjálfari.
Guðmundur var hálfundrandi á þess-
ari tölu þegar Morgunblaðið innti
hann eftir viðbrögðum vegna þessa í
gær.
„Ég er búinn að vera lengi í þessu
og landsliðið hefur verið stór hluti af
mínu lífi. Ég lít á þetta sem mikil for-
réttindi. Þakklæti kemur upp í hug-
ann, fyrir að hafa fengið að vera þátt-
takandi í þessu bæði sem leikmaður
og þjálfari. Upp í hugann kemur einn-
ig þakklæti til þeirra sem hafa stutt
mig í þessu í áratugi. Þessu fylgir
mikil fjarvera frá fjölskyldu og börn-
um. Margir hafa því
þurft á sjá á eftir
manni í þetta.
Ég er því þakk-
látur fyrir það
traust sem ég hef not-
ið til að ná öllum þess-
um leikjum,“ sagði
Guðmundur við Morgunblaðið.
Glöggir áhorfendur hafa sjálf-
sagt tekið eftir því að Guðmundur
syngur ekki með í þjóðsöngnum
eins og margir íþróttamenn
gera. Morgunblaðinu reiknast
til að Guðmundur hafi staðið
undir þjóðsöngnum í meira en tíu
klukkustundir samanlagt.
Notalegt að hlusta
„Mér finnst nú bara notalegt
að hlusta á þjóðsönginn. Þegar
hann er spilaður hugsa ég um
ýmislegt sem ég ætla ekki að
deila með öðrum. Ég nota þennan
tíma sem ákveðna íhugun og hugsa
um eitt og annað. Ég nota þennan
tíma til að undirbúa mig fyrir leiki á
þennan hátt,“ sagði Guðmundur.
Hann bætti því við að honum hefði
þótt mikið til koma þegar íslensku
stuðningsmennirnir sungu með í
þjóðsöngnum fyrir leikinn gegn
Norðmönnum.
„Ég verð að játa að mér fannst
stórkostlegt að heyra þegar íslensku
áhorfendurnir tóku undir og þá fékk
ég gæsahúð. Mér fannst það setja
stórkostlegan svip á aðdraganda
leiksins. Ánægjulegt var að sjá Ís-
lendingana hópa sig saman og það
var eftirminnilegt. Mér hefur fundist
mjög sterkt þegar áhorfendur taka
sig til og syngja sönginn.“
Þakklátur fyrir traustið
Hefur hlustað á
þjóðsönginn í
meira en 10 tíma
Reuters
Einbeittur Guðmundur þjálfari tekur alltaf þátt í leiknum af lífi og sál, bæði í meðbyr og mótbyr.
Það verða tímamót hjá Guðmundi Guðmundssyni landsliðs-
þjálfara í dag þegar Ísland mætir Þýskalandi á HM. Hann mun
taka þátt í sínum 400. leik sem leikmaður og þjálfari.
Á árum áður var Guðmundur einn albesti hornamaður
heimsins með íslenska landsliðinu og félagi sínu Víkingi.
Guðmundur lék alls 230 landsleiki á árunum 1981-1990 og
skoraði í þeim leikjum 356 mörk. Mörg þessara marka voru
mjög mikilvæg og eftirminnileg.
Guðmundur hefur verið landsliðsþjálfari í 148 leikjum.
Liðið hefur sigrað í 78 leikjum, 20 endað með jafntefli og
50 leikir tapast. Þá var hann aðstoðarþjálfari Alfreðs Gísla-
sonar í 21 leik.
400. leikurinn í dag
TÍMAMÓT HJÁ LANDSLIÐSÞJÁLFARA ÍSLANDS