Morgunblaðið - 25.03.2011, Blaðsíða 34
34 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MARS 2011
Sudoku
Frumstig
2 8 6 4
4 6 1 9
7
7
8 1 6 3
3 2 8
3 7 4 1
4 1 2 9
1 9 2
5
4 8 9
9 3 5 6
6 9
9 5 4
7 5
7 9 3
2 3
4 5 8 6 2
9 3
7 5 6 1
3 5 2 9
2 1 6
6 4 2 3 9
7 5
5 3 2 1
2 3 7
8 9 3 4 2 5 7 1 6
6 4 1 7 3 9 8 5 2
5 2 7 6 8 1 9 3 4
2 1 4 3 7 8 6 9 5
9 5 6 1 4 2 3 7 8
7 3 8 5 9 6 2 4 1
3 7 5 2 6 4 1 8 9
4 6 9 8 1 3 5 2 7
1 8 2 9 5 7 4 6 3
6 5 2 4 9 3 1 7 8
3 7 1 8 2 5 4 9 6
8 4 9 1 6 7 5 2 3
5 8 4 6 1 9 7 3 2
7 9 6 3 5 2 8 4 1
2 1 3 7 4 8 6 5 9
1 2 7 5 3 6 9 8 4
9 6 5 2 8 4 3 1 7
4 3 8 9 7 1 2 6 5
3 4 6 2 5 8 7 1 9
5 9 7 6 4 1 2 8 3
8 1 2 9 3 7 4 6 5
1 6 4 8 9 3 5 7 2
9 5 3 1 7 2 6 4 8
2 7 8 5 6 4 3 9 1
6 3 9 4 8 5 1 2 7
4 2 5 7 1 9 8 3 6
7 8 1 3 2 6 9 5 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 25. mars, 84. dagur
ársins 2011
Orð dagsins: En hvert tré þekkist af
ávexti sínum, enda lesa menn ekki
fíkjur af þistlum né vínber af þyrni-
runni. (Lúkas 6, 44.)
Víkverji tekur eftir því að nú erallt annað mál að kaupa inn-
pakkað kjöt heldur en í fyrra mán-
uði. Áður þurfti viðskiptavinur að
tefja sig á því að kanna og bera sam-
an verð, en nú er bara að taka kjötið
innpakkað og borga með brosi á vör
uppsett verð, hvert sem það er
hverju sinni.
x x x
Eftir að strákarnir á stóru jepp-unum hreinsuðu allt sem
hreinsa mátti í helstu fyrirtækjum
og bönkum landsins treystir ekki
nokkur maður öðrum. Samkeppnis-
stofnun virðist sannfærð um að allir
framleiðendur svindli með samráði
eða öðru og því er klókt hjá henni að
banna verðmerkingar á innpökk-
uðum kjötvörum. Þá sitja allir neyt-
endur við sama borð og síðan ræður
heppni framhaldinu. Færðu lærið á
1.000 krónur kílóið eða 2.000 kr. kíló-
ið eða 3.000 kr. kílóið? Enginn veit
svarið fyrr en við kassann og þá er of
seint fyrir framleiðendur að breyta
verðinu.
x x x
Fram hefur komið að formerking-arnar fólu í sér ólögmætt verð-
samráð sem varð að stöðva, að mati
Samkeppnisstofnunar. Auðvitað
gengur ekki að viðskiptavinur geti
fengið vöru ódýrari hjá einum fram-
leiðanda þegar hinn framleiðandinn
hefur ákveðið hærra verð.
Reyndar fylgir böggull skammrifi.
Kaupmönnum er gert að verðmerkja
vörurnar sjálfir og koma fyrir sér-
útbúnum skönnum í verslunum sín-
um. Kostnaðurinn leggst að sjálf-
sögðu á vörurnar. Ekki verður hægt
að koma fyrir skönnum úti um allt og
því er hætta á að margir neytendur
fari með innpakkað kjötið beint á
kassa án þess að fara fyrst með það í
skanna. Þá vandast málið, þegar
kaupa átti læri sem kostaði 1.000 kr.
kílóið en uppgefið verð á kassanum
er 3.000 kr. kílóið. Gera má því skóna
að margir hætti við og þá hlaðast
upp óseld læri við kassana. Vegna
mannfæðar þiðna þau þar, verða
ósöluhæf og óhæf til matar. Gamla,
góða kjötfjallið birtist á ný og þá
verður fjör á Fróni. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 íþróttagreinar,
4 aga, 7 skóflar, 8 sáum,
9 kvendýr, 11 sterk, 13
lítill, 14 logið, 15 skeiða-
hníf, 17 huguð, 20 brodd,
22 rýr, 23 mannlaus, 24
dans, 25 stó.
Lóðrétt | 1 gervitann-
garður, 2 náum, 3 svert-
ingja, 4 þýðanda, 5 þrætum,
6 sár, 10 afturhald, 12 dá, 13
eldstæði, 15 úrskurður, 16
förgum, 18 kaðall, 19 var-
kár, 20 grenja, 21 rudda.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 rytjulegt, 8 lýkur, 9 tafla, 10 nær, 11 skans, 13 aug-
un, 15 hossa, 18 ágætt, 21 not, 22 stöng, 23 teigs, 24 rumm-
ungur.
Lóðrétt: 2 yrkja, 3 járns, 4 lötra, 5 göfug, 6 glás, 7 garn, 12
nes, 14 ugg, 15 hýsi, 16 skötu, 17 angum, 18 áttan, 19 æðinu,
20 Tass.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. d4 exd4 4. Rxd4
Rxd4 5. Dxd4 d6 6. Rc3 Rf6 7. Bg5 Be7
8. 0-0-0 0-0 9. f4 Be6 10. Bc4 c5 11. Dd3
Rg4 12. Bxe7 Dxe7 13. Hd2 Hfd8 14. h3
Rf6 15. g4 Bxc4 16. Dxc4 b5 17. Dxb5
Rxe4
Staðan kom upp á MP Reykjavík-
urskákmótinu sem lauk nýverið í Ráð-
húsi Reykjavíkur. Alþjóðlegi meist-
arinn Bragi Þorfinnsson (2.417) hafði
hvítt gegn Þjóðverjanum Jens Reipsch
(2.247). 18. De2! He8 19. He1 Db7 20.
Rxe4 d5 21. Rd6! og svartur gafst upp
enda taflið tapað eftir t.d. 21. … Hxe2
22. Hdxe2. Evrópumeistaramót ein-
staklinga fer fram þessa dagana í
Frakklandi en Hannes Hlífar Stef-
ánsson er fulltrúi Íslands í opnum
flokki og Lenka Ptácníková í kvenna-
flokki. Nánari upplýsingar um mótið er
að finna á www.skak.is.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Heimasmíðað kerfi. S-Allir.
Norður
♠Á10
♥872
♦ÁG32
♣G965
Vestur Austur
♠94 ♠G63
♥ÁK1065 ♥DG943
♦K8 ♦1094
♣K1084 ♣D3
Suður
♠KD8752
♥--
♦D765
♣Á72
Suður spilar 4♠.
Samkvæmt heimasmíðuðu kerfi
Fantoni og Nunes sýnir opnun á tveim-
ur í hálit 5-6 spila lit, ójafna skiptingu
og 10-13 punkta. Fljótt á litið virðist sú
skilgreining nógu nákvæm til að setja
svarhönd í góða stöðu til að meta slag-
kraftinn, en það er afleitt að vita ekki
fyrir víst um litarlengd opnara. Sjötta
spilið gjörbreytir sóknareðli hand-
arinnar.
Í leiknum við Jón Baldursson og
Þorlák Jónsson í Louisville vakti Nu-
nes í suður á 2♠. Jón kom inn á 3♥ og
Fantoni í norður sagði pass – átti
greinilega enga sögn eftir kerfinu. Þor-
lákur lyfti í 4♥ og aftur sögðu allir
pass. Jón fór hægt og hljótt tvo niður,
sem reyndist 10 stiga virði, því á hinu
borðinu spiluðu N-S 4♠ og unnu fimm.
Eitthvað er greinilega bogið við
kerfi Ítalanna.
25. mars 1959
Íslensk flugvél lenti í fyrsta
sinn á Mallorka. Þetta var Sól-
faxi, sem var með sextíu ferða-
menn í páskaferð.
25. mars 1975
Samþykkt var að friðlýsa
Vatnsfjörð í Barðastrandar-
sýslu. Friðlandið er um eitt
hundrað ferkílómetrar.
Hrafna-Flóki nam land í
Vatnsfirði „og nefndi landið
Ísland,“ eins og segir í Land-
námu.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„Það er bræla í dag en við förum á sjó á morgun.
Þetta verður stuttur dagur, við komum í land um
tvöleytið,“ sagði Heimir Örn Hafsteinsson, útvegs-
bóndi í Grindavík, sem verður fertugur í dag, í sam-
tali í gær. Hann starfar sem stýrimaður á rannsókn-
arskipinu Árna Friðrikssyni en tekur sér frí á vorin
til að stunda grásleppuveiðar með föður sínum á
trillunni Trylli. „Svo á ég eina kind, Blómey, til að
geta komist í leitirnar,“ sagði Heimir um útvegs-
bóndatitilinn sem hann notar í símaskrá.
Þar sem Heimir er á grásleppuveiðum á þessum
tíma er hann oftast á sjó á afmælisdaginn. Hann
sagði þá feðga þó yfirleitt reyna að koma snemma í land. Í dag gefst
honum til dæmis tækifæri til að fara með fjölskyldunni á Hamborg-
arafabrikkuna í tilefni dagsins. Kona Heimis er Helga Kristjánsdóttir
kennari og eiga þau þrjú börn. Svo verður eitthvað gert um helgina.
Heimir var í kaffi hjá N1 í Grindavík í gærmorgun með góðum hópi.
Að þessu sinni voru stríð í heiminum aðalumræðuefnið ásamt hækkuðu
olíuverði sem hefur víðtæk áhrif, meðal annars á verð veiðarfæra.
Heimir sagði að hópurinn væri búinn að leysa einhver heimsmál, en þó
varla öll. helgi@mbl.is
Heimir Örn Hafsteinsson fertugur í dag
Stuttur dagur á grásleppu
Flóðogfjara
25. mars Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 4.20 0,7 10.29 3,3 16.31 0,9 23.02 3,4 7.12 19.57
Ísafjörður 0.01 1,9 6.30 0,3 12.25 1,6 18.33 0,4 7.14 20.04
Siglufjörður 2.24 1,2 8.33 0,1 15.06 1,1 20.47 0,4 6.57 19.47
Djúpivogur 1.25 0,4 7.13 1,7 13.26 0,4 19.53 1,9 6.41 19.27
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Samræður munu snúast um allt ann-
að en hagnýta hluti í dag. Sýndu öðrum að þú
kunnir að meta þá.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú hefur tekið þá ákvörðun að láta
einkalífið ganga fyrir öllu öðru. Þér líður ein-
staklega vel þessa dagana.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú átt ýmsar hliðar til og getur sýnt
þær að vild. Skelltu þér á matreiðslunám-
skeið eða eitthvað þvíumlíkt.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Hnýttu lausa enda þar sem við á. Ein-
hver sem hugsar dæmið ekki til enda gerir
þér grikk. Ekki eyða peningum í eitthvað sem
ekki er nytsamlegt eða er óþarft.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú hefur verið í stöðugri sjálfsskoðun
frá því í fyrra þannig að nú veistu nákvæm-
lega hver þú ert og hvað þú vilt.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Stundum þarf að gera fleira en gott
þykir. En mundu að þú ert maður fyrir þinn
hatt og vel það! Einhverra hluta vegna ertu í
sviðsljósinu.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Hugulsemi og áhugi á öðrum er hluti af
kostum þínum. Hvíldu þig í kvöld og ekki
halda í ástæðulausar áhyggjur.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú lest eitthvað í blaði eða tíma-
riti í dag sem getur bætt heilsu þína. Fólk í
þessu stjörnumerki er stolt og vill ekki láta
segja sér fyrir verkum.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú ert fær um að afla þér tekna
með því einu að opna munninn. Ef þú ert
þreytt/ur skaltu hvíla þig og koma sjálfum
þér í betra jafnvægi.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Vinnan þín krefst meiri hæfni og
getu en þú telur þig búa yfir í dag. Það er eins
og þér verði ekkert úr verki, þótt nóga hafir
þú kraftana. Taktu einn dag í einu.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Hafið augun hjá ykkur og grípið
tækifærið þegar það gefst. Tveir kollar eru
betri en einn þegar unnið er að áhugaverðu
verkefni og enn betri ef það er leiðinlegt.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Gerðu þér grein fyrir því að þú nærð
engum árangri án fórna og fyrirhafnar. Tím-
inn hefur unnið með þér svo allt reynist auð-
veldara en þú bjóst við.
Stjörnuspá
Margrét K.
Sigurðardóttir,
húsmóðir og við-
skiptafræð-
ingur, verður
áttræð 27. mars
næstkomandi.
Fjölskyldan
fagnar þessum
tímamótum og tekur á móti gestum
í safnaðarsal Áskirkju á morgun,
26. mars eftir kl. 15. Afmælisgjafir
afþakkaðar.
80 ára
Margrét Elías-
dóttir (Lilla) frá
Ísafirði er áttatíu
og fimm ára í
dag, 25. mars.
Eiginmaður
hennar er Jón
Björgvinsson frá
Kirkjubóli við
Laugarnesveg. Þau fluttu til
Bandaríkjanna 1953 og hafa búið
þar síðan. Margrét dvelst nú á Ma-
nor care heimili fyrir aldraða í Du-
nedin, Flórída.
85 ára
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is