Morgunblaðið - 25.03.2011, Side 38

Morgunblaðið - 25.03.2011, Side 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MARS 2011 Getið þið lýst ykkur í fimm orðum? Partíljón og grúskarar með geggjaðan tónlist- arsmekk. EÐA Grúskarar, stuðboltar, nördar, áhugasamir, seigir (að halda þetta svona lengi út). Hefur þú komið í Veiðivötn? (spyr síðasti að- alsmaður, Sigurður Sigurjónsson leikari) Báðir: Nei. Hvað fáið þið ekki staðist? Funky bassalínu og gott house. Ískaldur bjór í lok vinnuviku fer á listann líka. Eigið þið ykkur leynda hæfileika og ef svo er þá hverja? Tilfinningu fyrir intrói! (útvarpsmál) … og fáránlega góða næmi fyrir ósviknu stuði. Gott partí er …? Skemmtilegt fólk, ósvikin stemning og gott grúv. Eruð þið ekki orðnir of gamlir fyrir reif? Nei, munum sjá um partíin á elliheimilunum í framtíðinni … sé pósterinn fyrir mér „Reif á Grund“. En að öllu gríni slepptu … reyndu að hanga í okkur á lauga- dagskvöldið. Hvað er það neyðarlegasta sem þið hafið lent í? Gerist margt neyðarlegt í útvarpi sem gleymist samt fljótt. Helgi: Mér tókst einu sinni að fara í buxum af konunni minni í vinnuna … ég er ennþá að spá í hvernig mér tókst það. En það var ákveðið afrek að fara í gegnum daginn. Hvert er mesta partíljón allra tíma? Hér á Íslandi er Diskó Margeir holdi klætt stuð. Sjá hér: http:// www.margeir.com. Annars ætti Mick Jagger að vera „default“- svar hérna þó svo Charlie Sheen sé déskoti seigur líka. Hvaða lag kemur öllum í partístuð? Stardust – „Music Sounds Better With You“ (til að nefna eitthvað). Helgi: Ég veit ekki af hverju, en kúa- bjöllur koma mér alltaf í ban- anastuð. Gott delalegt diskó líka. Eve Online fanfest: sveittir og taktlausir nördar? Sveitt og skemmtilegt fólk að dansa við Booka Shade. Helgi: Fólk verður bara að velja hvort það er TÖRD eða NÖFF. Skiljiði?! Hvað ætluðuð þið að verða þegar þið yrðuð stórir? Of gamlir til að muna það, hehe. Helgi: Ég man reyndar að einhvern tíma langaði mig að vera einræðisherra eða íþróttafréttamaður, hvort sem kæmi á undan. Getið þið lýst dansstíl ykkar á djamminu? Taktfastur og afslappaður … gríðarlega hoknir af reynslu auðvitað og þar af leiðandi með́etta. Á hvaða útvarpsstöð hefur PartyZone ekki verið? Bylgjunni, FM957 og Rás 1. Versta partílag allra tíma? Það er ekki hægt að spila meiri viðurstyggð en Grease-megamixið … já eða til að nefna eitt lag þá má nefna Meat Loaf – „Paradise By The Dashboard Light“ … úff. Í danstónlistinni vís- um við á fjölmörg lög sem við völdum í dags- skrárliðnum „Gubba vikunnar“ hér í den. Hvers viljið þið spyrja næsta aðalsmann? Ertu áskrifandi að podkasti Party Zone? Hlust- ar þú á dansþátt þjóðarinnar, Party Zone? Grease-megamixið og Meatloaf-lag viðurstyggð Svalir Party Zone- bræðurnir Kristján og Helgi. Ljósmynd/Atli Már Hafsteinsson Aðalsmenn vikunnar eru umsjónarmenn útvarpsþáttarins Party Zone, þeir Helgi Már Bjarnason og Kristján Helgi Stef- ánsson. Þeir fagna þúsundasta þættinum með skífuþeytingum í lokahófi Eve Fanfest í Laugardalshöll annað kvöld.  Toppstöðin, orkuver hugvits og verkþekk- ingar í gömlu rafstöðvarbyggingunni í Elliða- árdal, blæs til opnunarhófs í dag kl. 16 og sýninga sem eru hluti af hönnunarhátíðinni HönnunarMars. 22 frumkvöðlar og hönnuðir hafa aðsetur við nýsköpun og hönnun í Topp- stöðinni og verður opið hús þar í dag og á morgun, frá kl. 12-17. Vöruhönnuðurinn Sigga Heimis, sem m.a. hefur starfað fyrir IKEA, mun sýna hönnun sína; Anna María Sigurjóns býður upp á ljósmyndasýningu þar sem efnið er heimsþekkt húsgagnahönnun við óvenjulegar aðstæður; Ari Arnórs spyr hvernig fólk vilji hafa Strætó og Lúka Art & Design sýnir fatnað, prjónaefni, skart og tískuljósmyndir. Þá verður púslað með nátt- úru Íslands og fá gestir að spreyta sig á því og Vala Magg sýnir Ólátagarð, vöruþróun fyrir barna- og leikherbergi. Af öðrum hönn- unarviðburðum helgarinnar má nefna að myndverk Fatahönnunarfélagsins, SHAKE/ Hræringur, verður til sýnis í kjallara í 101 Hóteli til 3. apríl. Dagskrá HönnunarMars má finna á www.honnunarmidstod.is. Morgunblaðið/Kristinn Hönnunarveisla í Toppstöð- inni á HönnunarMars  Kvikmynd leikstjórans og listamannsins Ásgeirs Hvítaskálds, Glæpur og samviska, verður frumsýnd í kvöld í félagsheimilinu Valaskjálf á Egilsstöðum kl. 20. Myndin verður sýnd á morgun kl. 17 og 21 og á sunnudaginn kl. 14, 17 og 20. Myndin hefur verið fjögur ár í vinnslu, allt frá því að Ás- geir flutti til Egilsstaða og hóf að vinna að henni. Tökur á henni fóru fram á Austur- landi og áhugaleikarar að austan eru í öll- um hlutverkum, einkum þó úr Leikfélagi Fljótsdalshéraðs. Morgunblaðið/Steinunn Glæpur og samviska frum- sýnd í Valaskjálf í kvöld Listasmiðjan er tilraunaverkefni á vegum Velferðarsjóðs barna en sjóðurinn er orðinn ellefu ára og hefur lagt af mörkum 525 milljónir til verkefna þau ár sem hann hefur verið starfandi. Smiðjan varð til sem svar við kreppuástandi og niðurskurði í skólum og hefur að markmiði að efla þroska barna með því að bæta aðgengi þeirra að list, sköpun og tjáningu. Rann- sóknir benda til þess að þátttaka í leiklist og tjáningu geti eflt sjálfs- mynd barna. Velferðarsjóðurinn ákvað því að koma á fót lista- smiðju í þremur skólum á höf- uðborgarsvæðinu. Listin þroskar og bætir VELFERÐARSJÓÐUR BARNA Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Verkið sem um ræðir kallast Undranótt og var unnið í samvinnu við tólf ára krakka síðasta haust í sérstakri höfundasmiðju. Hlín Agnars- dóttir stýrði smiðjunni og vann leikgerð upp úr hugmyndum barnanna. Það er svo Margrét Kristín Blöndal, Magga Stína, sem semur tón- list, Alda Sigurðardóttir hannaði búninga en Inga Bjarnason sér um leikstjórn. Mannbætandi „Þegar ég byrjaði var þetta eins og að stíga inn í hænsnabú. Þetta eru krakkar á aldrinum 10 til 12 ára og þau voru út og upp um allt,“ segir Inga og hlær. „Svo vorum við að fara yf- ir þetta í gær og þá voru allir á sínum stað og með allt sitt á hreinu. Þannig að hænurnar breyttust í engla.“ Inga segir að það sé hreinlega mannbætandi að vinna með krökkum á þessum aldri, allt sé svo heiðarlegt, hreint og beint. „Reynslan sýnir að starfsemi af þessu tagi situr í fólki lengi og hefur mótandi áhrif. Ég setti upp sýningu með börnum árið 1980 í Flensborg og búningahönnuðurinn minn kem- ur þaðan. Velferðarsjóður barna kom af stað þessari leiksmiðju og hefur styrkt leiklist- arkennslu í þremur skólum í vetur. Leiksýn- ingin er afrakstur þess starfs. Það er verið að draga saman í allri listkennslu í grunnskólum og leiklistin hefur orðið hvað harðast úti. Það er því höfðinglegt af sjóðnum að styðja við þetta.“ Inga segir að verkið sé sett upp eins og um hverja aðra leiksýningu væri að ræða og það hafi mikil áhrif. „Krakkarnir skynja alvöruna og leggja sig öll fram!,“ segir hún. Hæfileikar Inga segist að lokum sjá leikhæfileika í hópnum, sum börn hagi sér eins og þau hafi verið í leikhúsi alla ævi. Það sé því dagljóst að börnin munu búa að þessari lífsreynslu og hún mun hafa mótandi áhrif á þroska þeirra þegar fram í sæki. Gleði „Krakkarnir skynja að það er markmið og mikilvægt að unnið sé saman til að dæmið klárist,“ segir Inga Bjarnason leikstjóri. Breyttust úr hænum í engla  7. bekkur Melaskóla sýnir frumsamið leikrit í Iðnó á laugardaginn  Verkið er afrakstur Listasmiðju Velferðarsjóðs barna Sýning fyrir almenning verður á sunnudaginn 27. mars kl. 15. Miðar seldir við innganginn. Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.