Morgunblaðið - 02.04.2011, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. APRÍL 2011
Ingibjörg Jónsdóttir, Imma á Hernum, verður 90 ára
5. maí 2011. Af því tilefni kemur út bókin Konan
með opna faðminn, líf og starf Immu á Hernum
eftir Sigríði Hrönn Sigurðardóttur.
Verið er að safna áskrifendum að bókinni og kostar
hún 5.000 krónur. Þau sem vilja fá nafn sitt í heilla-
óskaskrá og með því einnig styrkja starf Hersins
í tilefni af afmælinu og útkomu bókarinnar greiða
10.000 kr ekki síðar en 8. apríl.
Vinsanlegast leggið inn á reikning 513-26-003414,
kt. 620169-1539. Gott er að senda staðfestingu
um greiðslu á ester@herinn.is eða á Hjálpræðis-
herinn, Flugvallarbraut 730, 235 Reykjanesbæ.
Konan með opna faðminn - Heillaóskaskrá
Salt ehf
útgáfufélag
Hjálpræðisherinn
á Íslandi
FRÉTTASKÝRING
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Háskóli Íslands á aldarafmæli í sumar og verður
þessara tímamóta minnst með margvíslegum
hætti. Mun starfsfólk verkfræði- og náttúruvís-
indasviðs meðal annars efna til vikulangrar dag-
skrár og opna dyr sínar fyrir gestum og gang-
andi.
Almenningur getur heimsótt húsakynni
raunvísindadeildar og Raunvísindastofnunar í
dag, hægt er að skoða „stjörnuver, tilraunastofur
og kafbát á þurru landi,“ eins og segir á vefsíðu
sviðsins. Margir kannast við sjónvarpsþætti dr.
Davids Suzuki sem er prófessor í líffræði við Há-
skólann í Bresku Kólumbíu í Kanada. Á mánudag
flytur hann fyrirlestur með aðstoð fjarfundabún-
aðar og svarar síðan spurningum úr sal, að sögn
Inga Rafns Ólafssonar, markaðs- og kynningar-
stjóra verkfræði- og náttúruvísindasviðs.
Laugardaginn 9. apríl verður boðið upp á
skoðunarferð um Reykjanes þar sem jarðfræði
og fuglalífi verða gerð góð skil undir leiðsögn
fræðimanna, einnig verður fræðsluferð um
Reykjavík.
Árið 2008 var skipulagi Háskólans breytt og
sett á laggirnar fimm fræðasvið en undir þau
heyra síðan deildir skólans. Forseti verkfræði- og
náttúruvísindasviðs er nú Kristín Vala Ragn-
arsdóttir og er hún eina konan í röðum forset-
anna, raunvísindadeildir H.Í. hafa lengi verið
mikill karlaheimur. Um 70% nemenda skólans í
heild eru nú konur en hlutfallið er þó mun lægra
í ýmsum raunvísindagreinum eins og eðlisfræði
og mun fleiri karlar en konur annast kennsluna.
Alls eru nú 111 fastir kennarar á sviðinu, þar af
21 kona en engar konur kenna sem stendur eðl-
isfræði, stærðfræði og efnafræði, að sögn Krist-
ínar Völu.
Stelpurnar vantar fleiri fyrirmyndir
„Það vantar fleiri fyrirmyndir fyrir stelp-
urnar,“ segir hún. En hvernig tók karla-
samfélagið henni sem forseta?
„Ég get ekki kvartað, þeir eru allir
ágætir,“ svarar Kristín Vala hlæjandi
„Ég tók við strax 2008 og heyrði þá
að einhverjir verkfræðingar hefðu
áhyggjur af því að fá konu sem
yfirmann. En ég hef ekki orðið
vör við það í samskiptum mínum
hér við verkfræðingana. Og það
hefur gengið ágætlega, samstarfið
milli náttúruvísindamanna og
verkfræðinga.“
Kristín Vala lauk doktorsprófi í
jarðefnafræði við Northwestern-
háskólann í Evanston í Illinois 1984.
Hún hefur m.a. rannsakað sjálfbærni
og vistfótspor, þ.e. ummerki sem at-
hafnir manna skilja eftir sig í nátt-
úrunni.
Íslenskt stjörnuver og
kafbátur á þurru landi
Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskólans kynnir starfsemi sína
Morgunblaðið/Kristinn
Tilraunir Ávallt er góð aðsókn þegar háskólafólk býður almenningi að kynna sér starfsemina, hér eru
áhugasöm ungmenni að ræða við kennara á rannsóknastofu á Háskóladeginum í fyrra.
Ritfangaverslunin Griffill, sem er í
eigu Pennans, hefur flutt sig um set
í Skeifunni. Verslunin fór þó ekki
langt heldur er áfram starfandi í
sama húsnúmeri, Skeifunni 11. Var
verslunin flutt úr austurhlutanum
yfir í vesturhluta hússins, þar sem
verslun BT hefur verið til húsa. Um
sameiginlega verslun BT og Griffils
verður því að ræða og tók þetta
gildi í gær, 1. apríl, en leigusamn-
ingur Griffils í fyrra húsnæði rann
út um mánaðamótin.
Það húsnæði kemur ekki til með
að standa lengi autt því til stendur
að opna þar nýja matvöruverslun.
Eiríkur Sigurðsson, stofnandi og
fyrrverandi eigandi 10-11 versl-
ananna, staðfesti í samtali við
Morgunblaðið að hann myndi opna
þarna verslun á vordögum. Gaf
hann þá til kynna að verslunin
myndi hrista upp í matvörumark-
aðnum og veita raunverulega sam-
keppni. bjb@mbl.is
Griffill flutti inn
í verslun BT
Morgunblaðið/Ómar
Griffill Verslunin flutti sig yfir
í vesturhlutann í Skeifunni 11.
Félag viðskipta-
fræðinga og
hagfræðinga
efnir til hádeg-
isverðarfundar
á Grand hóteli
þriðjudaginn 5.
apríl, kl. 12-
13.30. Á fund-
inum verður
leitast við að
svara þeirri
spurningu hvers vegna stór fyrir-
tæki íhuga að flýja land og koma
sér í stærra skjól. Er það vegna
gjaldeyrishafta, skattahækkana
eða erfiðleika við að nálgast fjár-
magn? Eða er rótin annars stað-
ar?
Ræðumenn fundarins verða
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, Helgi Hjörv-
ar alþingismaður, Alexander Eðv-
ardsson, sviðstjóri skattasviðs hjá
KPMG, og Guðbjörg Edda Egg-
ertsdóttir, forstjóri Actavis.
Hádegisfundur um
starfsumhverfi ís-
lenskra fyrirtækja
Bjarni
Benediktsson
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra og Magnús Gunnarsson,
formaður Skógræktarfélags Ís-
lands, hafa undirritað samning um
atvinnuátaksverkefni Skógræktar-
félags Íslands fyrir árið 2011.
Tekur Skógræktarfélagið að sér
að bjóða fram mannaflafrek verk-
efni á sviði skógræktar, m.a. stíga-
gerð, skógrækt, áburðargjöf, um-
hirðu og smíðavinnu og eru þau
flest unnin á tímabilinu 1. maí til
31. október. Alls er fjárframlag til
atvinnuátaksins 200 milljónir
króna.
Átak í skógrækt
Menningar- og safnanefnd Garða-
bæjar stendur fyrir opnum fundi
um menningarmál í Garðabæ.
Fundurinn verður haldinn mánu-
daginn 4. apríl nk. í samkomuhús-
inu á Garðaholti í Garðabæ og
stendur frá kl. 20.00 til 21.30.
Á fundinum gefst fólki tækifæri
til að koma hugmyndum og skoð-
unum á framfæri á óformlegan og
auðveldan hátt.
Niðurstöður fundarins munu nýt-
ast fyrir menningar- og safnanefnd
til að vinna áfram að því að efla
menningarlíf í Garðabæ.
Opinn fundur um
menningarmál
„Þetta byrjaði eiginlega árið 2000, þá urðu þáttaskil í lífi mínu,“ segir Kristín Vala um áhuga sinn á
sjálfbærni og umhverfismálum. „Ég hitti mann sem var að vinna fyrir félag sem heitir Schumacher
Society í Bretlandi. Bæði vorum við að vinna að umhverfismálum, ég var að kanna hvernig meng-
unarefni hegða sér í umhverfinu en hann var að horfa á stóru myndina og hvert við stefndum. Allt í
einu gerði ég mér grein fyrir því að ég hafði misst af stóru myndinni.“
Hún segist hafa orðið fyrir nokkru áfalli en síðan farið að velta því fyrir sér hvað hún gæti gert.
Þá um haustið hafi hún farið á vegum Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNEP, til Kosovo
þar sem rannsakað var hvaða umhverfis- og heilsufarsleg áhrif hefðu orðið af skertu úrani, sem
notað var í sprengjur gegn herliði Serba 1999.
„Síðan fór ég að skoða hvaða kennslu og rannsóknir ég gæti stundað með minni þekkingu
og komst að því að helstu vandamál heimsins tengjast því að jarðvegur er að eyðast mjög
hratt en fáir vinna að jarðvegsrannsóknum. Ég fór inn á það að tengja saman jarðvegs-
fræðinga í Evrópu og er nú með stórt verkefni, stutt af ESB, þar sem minn þáttur felst í
því að skoða hvernig við getum nýtt jarðveg á sjálfbæran máta til framtíðar.“
Hún segir vandann mikinn, síðustu 30 ár hafi menn eytt um 25% af jarðvegi hnattarins,
svo mikið hafi skolast í sjó og vötn, aðallega í tengslum við landbúnað. Hundruð eða þús-
undir ára getur tekið að mynda jarðveg á ný. Eyðingin hefur verið geysimikil hér á Íslandi
gegnum aldirnar, einkum vegna sauðfjárbeitar, slík eyðing telst vera hluti af manngerðri
eyðingu á jarðvegi vegna landbúnaðar.
„Við töpuðum miklu af okkar jarðvegi fyrir löngu og erum enn að ganga á hann,“
segir Kristín Vala. „Við sjáum enn rofabörð víða, höfum ekki enn náð tök-
um á þessu og þyrftum að gera meira af því að binda jarðveginn okkar.“
„Ég hafði misst af stóru myndinni“
EYÐUM STÖÐUGT JARÐVEGI SEM NÁTTÚRAN ÞARF ÓRATÍMA TIL AÐ ENDURNÝJA
Kristín Vala
Ragnarsdóttir
STUTT