Morgunblaðið - 16.05.2011, Page 17

Morgunblaðið - 16.05.2011, Page 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. MAÍ 2011 ✝ Páll Þórðarsonfæddist að Hjallhóli á Borg- arfirði eystri 10. ágúst 1944. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Skógarbæ 5. maí 2011. Foreldrar Páls voru Þórður Jónsson skrif- stofumaður, f. 23. janúar 1918, d. 10. janúar 2009, og Sigrún Pálsdóttir kennari, f. 15. apríl 1917, d. 1. mars 2004. Systkini Páls eru Sigurlaug, f. 28. október 1945, Birna, f. 26. febrúar 1949, og Jón, f. 21. apr- íl 1954. Hinn 11. febrúar 1967 kvænt- ist Páll eftirlifandi eiginkonu sinni, Þorbjörgu Einarsdóttur, f. 17. janúar 1945. Hún er dóttir Einars Sigurðssonar, bónda í Miðgarði í Stafholtstungum, f. 9. júlí 1920, d. 12. nóvember 2010, og Kristínar Þ. Ottesen, forstöðukonu, f. 29. ágúst 1926. Páll og Þorbjörg eignuðust þrjár dætur. Þær eru: 1) Sigrún rekstrarfræðingur, f. 25. ágúst 1967, maki Ólafur Arason rekstrarfræðingur, börn þeirra eru Skúli, f. 1990, faðir Halldór Skúlason, Ýmir, f. 1998 og Mar- grét, f. 2000, d. 2000. 2) Kristín læknir, f. 9. júlí 1971, maki Árna Halldórssonar með há- skólanámi. Eftir lögfræðinámið hóf Páll störf hjá skrifstofu borgarstjórans í Reykjavík í júní 1971 og var skrifstofustjóri Félagsmálastofnunar Reykja- víkurborgar frá september 1971 til 1. mars 1972 er hann var ráðinn framkvæmdastjóri Læknafélags Íslands og Lækna- félags Reykjavíkur. Því starfi gegndi hann mestan hluta starfsævi sinnar eða til ársins 1999. Þá var hann fram- kvæmdastjóri Sjúkrahúss Suð- urlands í eitt ár og starfaði um skeið í launanefnd hjá Sam- bandi íslenskra sveitarfélaga. Síðast starfaði Páll hjá fyr- irtækjaskrá Hagstofu Íslands þar til hann lét af störfum vegna veikinda árið 2003. Páll rak jafnframt eigin bókhalds- og framtalsþjónustu frá 1974 til 2003. Páll gegndi fjölmörgum félags- og trúnaðarstörfum í gegnum tíðina. Hann var meðal annars varaformaður Orators, félags laganema, og ritstjóri Úlfljóts, tímarits laganema, 1968-69 og í stjórn stúdenta- félags HÍ 1969-70. Páll sat í undirbúningsnefnd fyrir stofn- un NEMA 1974, í ritnefnd Fréttabréfs lækna frá upphafi 1983-85 og í fyrstu stjórn Fé- lags um heilbrigðislöggjöf 1991. Útför Páls fer fram frá Digraneskirkju í dag, 16. maí 2011, og hefst athöfnin kl. 13. Hörður Sigurðs- son dýralæknir, börn þeirra eru Védís, f. 2002, Arnar Páll, f. 2006, og Sig- urður Kári, f. 2006. 3) Arna lögfræðingur, f. 20. febrúar 1975, maki Halldór Haraldsson bif- vélavirki, börn þeirra eru Hlín, f. 1998, Hlynur, f. 2000, og Hugrún Hekla, f. 2008. Páll ólst upp hjá foreldrum sínum í Sigtúni á Borgarfirði eystri og gekk þar í barna- skóla. Hann fór ungur í Alþýðu- skólann á Eiðum, þá í Mennta- skólann á Akureyri og lauk stúdentsprófi þaðan 1964. Páll flutti til Reykjavíkur 1964 þar sem hann bjó alla tíð. Hann stundaði nám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands 1964-65 og í lögfræði við sama skóla 1965- 71 er hann lauk kandídatsprófi. Einnig stundaði hann nám við Norræna heilsuverndarháskól- ann í Gautaborg nóvember- desember 1980. Páll vann í frystihúsinu á Borgarfirði á sumrin og var einnig í mörg sumur í brúarvinnuflokki Sig- urðar Jónssonar frá Sólbakka. Hann vann á lögfræðistofu Elsku pabbi, nú ertu loksins frjáls og laus við allar þjáningar. Ótal minningar þjóta um í höfði mér og eru þær allar ótrúlega dýrmætar. Ég minnist sunnu- dagsmorgna þegar ég var lítil stelpa, þá var venjan að skríða upp í rúm hjá þér og hlusta á Jón spæjó í útvarpinu, enda hvergi öruggara að vera en í pabbaholu. Þær voru einnig ófáar stundirnar sem við spiluðum „skrafl“, bæði í bústaðnum og heima í Strýtusel- inu og þú varst nú venjulega í hærri kantinum. Ég man líka hvað þú varst stoltur þegar ég komst inn í lögfræðina. Þá grófstu upp allar gömlu bækurn- ar þínar, sem voru reyndar flest- ar danskar og mismikið úreltar og vildir endilega að ég fengi þær. Ekki veit ég hvort er sárara að missa ástvin langt um aldur fram eða horfa á hann hverfa hægt og bítandi inn í eigin heim og sjá allan þrótt og lífslöngun hverfa smátt og smátt. Þvílík skelfing sem það er að vera með- vitaður um eigið ástand og upp- lifa einangrunina sem fylgir því að geta ekki tjáð sig. Það er nokkuð sem enginn ætti að þurfa að upplifa. Elsku pabbi, söknuðurinn er mikill en minningarnar margar og þær mun ég varðveita um ókomin ár. Ég hugga mig við það að nú líður þér vel. Þú ert eflaust farinn að margfalda stórar og miklar tölur í huganum og það kjaftar á þér hver tuska. Sumir hverfa fljótt úr heimi hér skrítið stundum hvernig lífið er, eftir sitja margar minningar þakklæti og trú. Þegar eitthvað virðist þjaka mig þarf ég bara að sitja og hugsa um þig, þá er eins og losni úr læðingi lausnir öllu við. Þegar tími minn á jörðu hér liðinn er þá er ég í burtu fer þá ég veit að þú munt vísa veg og taka á móti mér. (Ingibjörg Gunnarsdóttir) Þín dóttir, Arna. „Hans skal eg ávallt að góðu geta er eg heyri góðs manns get- ið.“ Þessi orð Jóns biskups helga um fóstra sinn, Ísleif biskup, vil ég gera að mínum, nú er ég kveð tengdaföður minn og vin hann Pál Þórðarson. Engum manni öðrum hef ég kynnst sem þessi orð hæfa eins vel og honum. Palli var góður maður í eiginlegri merkingu þess orðs, grandvart ljúfmenni sem vildi öllum vel. Hann var látlaus í fasi og fram- komu, var ekki mikið fyrir að vekja á sér athygli og vann störf sín í hljóði. Palli var snyrtimenni fram í fingurgóma, vinnusamur, vandvirkur og nákvæmur. Hann var ekki maður margra orða en tekið var eftir því sem hann sagði. Hafði hann góða nærveru og leið mér vel í návist hans. Palli hafði gaman af bridds og stundaði það í góðra vina hópi. En lífið er flókið spil þar sem ólíkt er gefið. Fyrir um áratug kom í ljós að spilin sem Páll hafði á hendi voru því miður ekki mjög góð. Í rauninni bara eintómir hundar. Palli þjáðist af heilabil- unarsjúkdómi sem hægt og síg- andi rændi hann persónuein- kennum og möguleikanum á því að lifa innihaldsríku lífi og und- anfarin ár var hann algjörlega upp á aðra kominn sem olli hon- um ómældum þjáningum. Bar- áttan var löng og ströng en hann gafst ekki upp fyrr en í fulla hnef- ana. Ég þakka fyrir þau ár sem leiðir okkar lágu saman. Þig sem í fjarlægð fjöllin bak við dvelur, og fagrar vonir tengir líf mitt við. Minn hugur þráir, hjartað ákaft saknar, er horfnum stundum, ljúfum, dvel ég hjá. Heyrirðu ei, þig hjartað kallar á? Heyrirðu ei storm, er kveðju mína ber? Þú fagra minning eftir skildir eina, sem aldrei gleymist, meðan lífs ég er. (Valdimar Hólm Hallstað) Ólafur Arason. Það var eitt kvöld að mér heyrðist hálfvegis barið, ég hlustaði um stund og tók af kertinu skarið, ég kallaði fram, og kvöldgolan veitti mér svarið: Hér kvaddi Lífið sér dyra, og nú er það farið. (Jón Helgason) Gættu þess vin yfir moldunum mínum að maðurinn ræður ei næturstað sínum og þegar þú hryggur úr garðinum gengur ég geng þér við hlið þó ég sjáist ei lengur. En þegar þú strýkur burt tregafull tárin þá teldu í huganum yndisleg árin sem kallinu gegndi ég kátur og glaður það kætir þig líka minn sam- ferðamaður. (James McNulty) Elskulegur bróðir er fallinn frá langt um aldur fram, hans verður sárt saknað af fjölskyldu og vinum. Minningin um góðan dreng lifir. Sigurlaug (Systa). Páll Þórðarson, einn minn allra besti vinur, er látinn. Hann barðist hin síðustu ár við mikil veikindi og fyrir allnokkru var öllum ljóst að hverju stefndi. Palli var mikill sómadrengur og afar traustur vinur enda hefur sú vinátta varað í hálfa öld. Okk- ar kynni hófust í MA og þar sát- um við saman tvö síðustu skóla- árin. Eins og gengur hjá ungum mönnum þá var oft glatt á hjalla hjá okkur og margt brallað. Það kom snemma í ljós að við áttum mörg sameiginleg áhugamál og nægir í því sambandi að nefna bæði skák og brids. Mikill áhugi var á þessum árum fyrir skákinni og oft komu þekktir skákmeist- arar norður og tefldu þá gjarnan fjöltefli við nemendur í MA. Einn þeirra var stórmeistarinn Róbert Wade og mættum við félagarnir í fjölteflið. Mér er það mjög minn- isstætt að við héldum vel í við meistarann og vorum nokkuð vissir um að halda jöfnu, en allt í einu sá Palli að stórmeistarinn lék nokkuð ónákvæmum leik og þá var ekki að sökum að spyrja, Palli leiddi hann í gildru og stór- meistarinn gafst upp nokkrum leikjum seinna. Þannig var Palli, fljótur að hugsa og framkvæma hlutina. Bridsinn var okkur mikið hjartans mál og áttum við eftir að spila saman í marga áratugi ásamt þeim Einari Hafliðasyni og Ingvari Viktorssyni. Saman fórum við ásamt mök- um í ógleymanlega draumaferð um Dóná. Já, það er margs að minnast og þá ekki síst hversu gott var að leita til hans þegar á þurfti að halda, því Palli gat gengið í hvað sem var og leyst verkefnin með miklum sóma. Þegar við vorum að byggja húsið okkar í Fögrubrekkunni vantaði mig smið og auðvitað leitaði ég til Palla og saman slógum við upp fyrir neðri hæðinni og eins þegar ég var í Háskólanum og þurfti að lesa undir próf, þá fékk ég Palla til að kenna fyrir mig í nokkra daga, þó hann hafi ekki mikið fengist við þá iðju þá leysti hann það með stæl. Palli var einstaklega talnag- löggur og það var með ólíkindum að fylgjast með honum leggja saman heilu talnarunurnar á ör- skotsstund. Fljótlega eftir að lög- fræðináminu lauk fór hann að starfa fyrir Læknafélag Íslands sem framkvæmdastjóri og vann við það mestan hluta starfsæv- innar. Þá vann hann árum saman við að telja fram til skatts fyrir ýmsa aðila. Palli var mikill fjölskyldumað- ur og saman eiga þau Obba þrjár dætur, sem allar eru í dag há- menntaðar. Þar vorum við vinirn- ir einnig samstiga í fjölda barna og af sama kyni. Auðvitað væri gaman að rifja upp hinar ýmsu ferðir sem við fórum saman, en trúlega stendur ferðin sem við fórum í til Austurríkis og Ítalíu um árið nokkuð upp úr, en þar lentum við í þeim hremmingum að panta okkur kjötsúpu á Mark- úsartorginu í Feneyjum, en við fundum aldrei kjötið í þeirri ágætu súpu. Páll Þórðarson var maður þeirrar gerðar að öllum sem kynntust honum þótti vænt um hann. Hann var mikill ljúflingur og ég er afar þakklátur fyrir að hafa átt hann sem góðan vin alla ævi. Obba mín, Sigrún, Kristín og Arna, við Sóley sendum ykkur öllum og fjölskyldum ykkar okk- ar innilegustu samúðarkveðjur. Megi minningin um góðan dreng lifa með okkur öllum. Guðmundur Oddsson. Góður vinur okkar og spila- félagi til áratuga, Páll Þórðarson, er nú genginn til feðra sinna eftir langt og erfitt veikindastríð. Kynni okkar hófust við bridge- borðið í Bridgefélagi MA og í tvo vetur vorum við saman í sveit sem herjaði af og til í Bridge- félagi Akureyrar. Makker Palla, eins og hann var nefndur í okkar hópi þá, var Haraldur Jóhannes- son sem lést fyrir aldur fram í bíl- slysi í Þýskalandi þar sem hann hugðist stunda framhaldsnám eftir stúdentspróf. Oft fórum við léttstígir heim á leið þegar heppni byrjendanna lék við okk- ur og við þóttumst vera að ná tök- um á þessari erfiðu íþrótt. Veru- leikinn laukst þó upp fyrir okkur síðar þegar við að afloknum há- skólaprófum tókum til við spilin aftur, þá orðnir heldur sjóaðri, en nú hafði Guðmundur Oddsson slegist í hópinn. Nú dugði ekkert minna en að taka í notkun ítalskt meistarakerfi og til að hafa taum- hald á glannaskapnum fara að spila í bridgefélaginu Ásunum í Kópavogi. Við unnum ekki til margra verðlauna á ferlinum en kostir Palla nutu sín þar vel með agaðri spilamennsku og næmi í úrspilun. Eftir að keppnistímabili okkar lauk voru veturnir styttir með spilakvöldum heima fyrir í hart- nær 30 ár með dyggri aðstoð og veitingum eiginkvenna okkar. Palli var mikill rólyndismaður og hafði einstakt jafnaðargeð og aldrei minnumst við þess að hann hafi æst sig yfir spilamennsku okkar hinna þótt stundum hafi sjálfsagt verið ástæða til. Aðdragandi veikindanna sem Palli glímdi við að lokum fór ekki fram hjá okkur þegar færni hans til að spila fór að minnka. Við vor- um auðvitað í afneitun til að byrja með og töldum að þetta hlyti að lagast en annað kom því miður í ljós. Það er margs að minnast eftir áralanga vináttu og samveru. Oftast var borgað í sjóð eftir spilakvöldin en Palli sá um að ávaxta sjóðinn. Árið 2000 var svo ákveðið að fara í siglingu á Dóná með eiginkonunum. Siglt var frá Passau til Búdapest (auðvitað var spilað á dekkinu í sólinni) og síð- an rútuferð til Prag, Dresden og Berlínar. Ógleymanleg ferð. Við spilafélagarnir sitjum eftir og söknum góðs vinar og félaga en sárastur er þó söknuður fjöl- skyldu hans. Elsku Obba, við og konur okk- ar Sigrún og Birna vottum þér og fjölskyldu þinni okkar dýpstu samúð og biðjum Guð að styrkja ykkur. Einar Hafliðason og Ingvar Viktorsson. Páll Þórðarson tók við stöðu framkvæmdastjóra Læknafélags Íslands 1972 þá tæplega þrítugur að aldri. Á þessum árum var tals- verð uppbygging í heilbrigðis- þjónustunni, læknar voru eftir- sóttur vinnukraftur og margvísleg ný þekking barst til Íslands með ungum læknum, sem höfðu aflað sér hennar með öðr- um þjóðum. Af sjálfu sér leiddi að bjartsýni og mikill hugur ein- kenndi læknastéttina á þeim ára- tugum, sem í hönd fóru. Lækna- félag Íslands var í senn stéttar- og fagfélag lækna og kröfur voru gerðar að það mætti þörfum lækna bæði til munns og handar ef svo má að orði komast. Páll leiddi starf Læknafélags Íslands á þessum árum undir traustri leiðsögn formanna þess svo sem Snorra Páls Snorrason- ar, Tómasar Árna Jónassonar, Þorvaldar Veigars Guðmunds- sonar og annarra mætra lækna, sem á eftir þeim komu. Páll var góður lögfræðingur og jafnan samstiga þeim lögmönnum, sem LÍ kallaði til þjónustu sinnar. Hann var samviskusamur og ósérhlífinn og kröfuharður um nákvæmni í öllu reiknishaldi. Hann var vel virtur innan stjórn- sýslunnar og átti greiðan aðgang að heilbrigðisstjórninni, sem læknum er ómetanlegt til að koma fram sjónarmiðum sínum um skipulag heilbrigðisþjónustu. Ég kynntist Páli þegar á kandidatsári mínu er ég tók sæti í stjórn Læknafélags Íslands 1979. Samvinna okkar var eftir atvik- um mikil upp frá því vegna fé- lagsstarfsemi lækna og bar þar aldrei skugga á. Páll var ráðagóð- ur og ráðhollur og leitaðist frekar við að leysa mál með lagni en ofsa. Páll var félagslyndur og átt- aði sig vel á mikilvægi örvandi umgjörðar fyrir félagsstarf lækna. Hann var ætíð virkur þátttakandi í skipulagi funda og fundvís á leiðir, sem voru lækn- um að skapi. Margir læknar minnast hjálpar Páls við framtöl, sem ætíð vefjast fyrir mönnum. Þar gerði Páll sér glögga grein fyrir skyldum sínum og hélt mönnum innan ramma laga og reglugerða traustri hendi. Páll hvarf frá Læknafélagi Ís- lands fyrri part árs 1999. Þegar frá leið áttuðum við okkur á, að starfsþrek hans hafði bliknað síð- ustu misserin í starfi fyrir lækna, enda þurru starfskraftar hans al- veg fáum árum síðar. Við læknar þökkum framlag Páls til málefna okkar sem tók yfir lungann úr starfsævi hans á meðan þrek hans var óskert. Megi minningin um góðan dreng lifa. Sigurbjörn Sveinsson. Horfinn er sjónum góður vin- ur, Páll Þórðarson lögfræðingur. Kynni okkar hófust, þegar hann var ráðinn framkvæmdastjóri læknafélaganna árið 1972. Þar áttum við farsæla samvinnu við útgáfustarfsemi lækna í rúmlega tuttugu ár. Naut sín þar dugn- aður hans og elja, samviskusemi og hreinlyndi. Við Áslaug sendum Þorbjörgu og dætrunum samúðarkveðjur okkar. Örn Bjarnason. Páll Þórðarson HINSTA KVEÐJA Vænn er farinn vinur minn vinsæll var og góður minning lifir merk um sinn hann mætur var og fróður. (N.J.) Nanna. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför föðursystur okkar JENNÝJAR JÓHANNESDÓTTUR frá Egilsstöðum Við viljum einnig þakka starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Hvammstanga fyrir góða umönnun. Erna Snorradóttir, Jóhannes Snorrason, Elín Rósa Snorradóttir, Eggert Snorrason, Hulda Snorradóttir. Ástkæri eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, RAGNAR ÁGÚSTSSON frá Mávahlíð, Engihlíð 16D, lést á Dvalarheimilinu Jaðar föstudaginn 13. maí. Sigrún Ólafsdóttir, Þuríður Ragnarsdóttir, Guðmundur Ólafsson, Brynja Ragnarsdóttir, Kristmundur Sigurðsson, Hjörtur Ragnarsson, Sigrún Þórðardóttir, Jóhannes I Ragnarsson, Anna Valvesdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgun- blaðsins. Smellt á reitinn Senda inn efni á forsíðu mbl.is og viðeigandi efnisliður valinn. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðju- degi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.