Morgunblaðið - 16.05.2011, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 16.05.2011, Qupperneq 23
DAGBÓK 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. MAÍ 2011 Sudoku Frumstig 8 3 6 2 5 7 5 1 9 8 9 6 3 5 2 3 2 8 7 1 2 5 9 8 1 1 3 7 5 2 8 3 8 4 8 6 3 5 2 9 9 5 8 2 6 1 5 9 1 1 4 3 2 6 7 1 2 9 4 9 2 7 8 7 9 3 4 9 6 3 1 4 9 8 6 1 6 3 4 6 7 1 2 9 3 8 5 8 2 9 5 6 3 4 1 7 1 3 5 8 4 7 2 6 9 2 5 1 4 3 6 7 9 8 3 9 8 2 7 5 1 4 6 7 4 6 9 1 8 5 2 3 6 1 3 7 8 4 9 5 2 5 7 4 6 9 2 8 3 1 9 8 2 3 5 1 6 7 4 8 6 5 1 7 9 2 4 3 9 3 4 2 6 5 7 1 8 7 1 2 8 3 4 5 6 9 2 5 6 9 8 7 4 3 1 3 4 9 5 1 2 8 7 6 1 8 7 3 4 6 9 2 5 6 7 8 4 5 1 3 9 2 4 9 3 6 2 8 1 5 7 5 2 1 7 9 3 6 8 4 6 7 3 4 5 1 2 8 9 5 1 4 2 9 8 6 7 3 2 9 8 3 7 6 4 1 5 8 3 7 5 2 4 1 9 6 1 5 9 7 6 3 8 2 4 4 2 6 1 8 9 3 5 7 3 6 2 9 1 7 5 4 8 9 8 5 6 4 2 7 3 1 7 4 1 8 3 5 9 6 2 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er mánudagur 16. maí, 136. dag- ur ársins 2011 Orð dagsins: Vaknið því, þér vitið eigi, hvaða dag Drottinn yðar kemur. (Matth. 24, 42.) Víkverji er mikill sælkeri ogáhugamaður um matreiðslu. Tímamót urðu í lífi hans þegar hann heimsótti í fyrsta sinn versl- unina Pylsumeistarann sem er við Hrísateig í Laugardalnum. x x x Verslunin Pylsumeistarinn sér-hæfir sig í framleiðslu og sölu á ýmiskonar pulsum, eins og nafn- ið gefur til kynna. Í versluninni má finna pulsur sem eiga rætur að rekja til helstu varnarþinga pulsugerðar í Evrópu. x x x Víkverji naut þess að grillaþessar frábæru pulsur um helgina og fagnar því að loksins séu komnir valkostir við þessar hefðbundnu pulsur sem hafa nán- ast eingöngu fengist í kjörbúðum borgarinnar um áratugaskeið. x x x Ekki varð gleði Víkverja minniþegar hann steikti beikonið sem hann keypti í Pylsumeist- aranum. Þá varð honum ljóst að loksins er hægt að komast yfir al- mennilegt beikon á Íslandi. x x x Pylsumeistarinn er góð viðbót ívaxandi flóru sérhæfðra verslana með matvöru. Þeirri þró- un ber að fagna enda hefur til- koma þessara verslana aukið á fjölbreytnina, ekki síst þegar kemur að innlendri framleiðslu og þá sérstaklega landbúnaðar- afurðum. x x x Víkverji myndi hinsvegar fagnaað slíkar búðir myndu setja meiri metnað í sjávarfangið. Á síð- ari tímum er nánast ómögulegt að verða sér úti um sólþurrkaðan saltfisk – sem ætti með réttu að teljast krúnudjásn íslenskrar mat- vælaframleiðslu svo dæmi sé tek- ið. Að sama skapi er lostæti á borð við skötuselskinnar nánast aldrei sjáanlegt þó svo um sé að ræða eitthvert besta sjávarfang sem völ er á. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 kuldaskjálfta, 4 stilltur, 7 Gyðingar, 8 samsinnum, 9 skýra frá, 11 lögun, 13 hugboð, 14 kjánar, 15 raspur, 17 svanur, 20 eldstæði, 22 manna, 23 nabbinn, 24 nagdýr, 25 mál. Lóðrétt | 2 óslétt, 2 minnist á, 3 numið, 4 áreita, 5 hljóðfæri, 6 kvæðið, 10 hátíðin, 12 nestispoka, 13 hvítleit, 15 gangfletir, 16 gjafmild, 18 dáin, 19 áma, 20 árna, 21 tarfur. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 vitskerta, 8 volar, 9 gamla, 10 góu, 11 terta, 13 rymja, 15 mótum, 18 kamar, 21 áll, 22 kapal, 23 aftan, 24 grunnfæra. Lóðrétt: 2 illur, 3 sarga, 4 elgur, 5 tæmum, 6 hvít, 7 gata, 12 tíu, 14 yla, 15 maka, 16 tapar, 17 málin, 18 klauf, 19 mætir, 20 röng. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Rétt fyrir lokun. Norður ♠Á5 ♥76 ♦943 ♣KD9752 Vestur Austur ♠K864 ♠10973 ♥985 ♥G2 ♦G6 ♦K872 ♣10643 ♣ÁG8 Suður ♠DG2 ♥ÁKD1043 ♦ÁD105 ♣– Suður spilar 6♥. Í tíundu umferð Íslandsmótsins – rétt áður en hafrarnir skildu sauðina eftir – kom upp slemmufæri, sem fáir nýttu sér. Aðeins þrjú pör af tólf sögðu 6♥ og höfðu tveir sagnhafar erindi sem erfiði, en einn fór niður. Hvernig á að spila með trompi út? Spaðasvíning er sjálfgefin byrjun, en svo er spurning hvernig nota eigi inn- komuna á ♠Á. Tvöföld svíning í tígli kemur varla til greina (af ótta við ann- að tromp) og því sakar ekki að spila ♣K og kanna viðbrögð austurs. Ef hann leggur á er nóg að hitta í tígulinn síðar. En austur ætti hiklaust að dúkka, því sagnhafi hefði spilað laufinu að heiman ef hann gæti. Í því tilfelli trompar sagnhafi ♣K, stingur spaða í borði og spilar loks tígli á drottn- inguna. Þannig má ráða við flestar stöður, meðal annars ♦Gx í bakhönd. 16. maí 1901 Tuttugu og sjö manns drukkn- uðu þegar skip, sem var á leið frá sandinum undan Eyjafjöll- um til Vestmannaeyja, sökk skammt austur af Heimaey. Einum manni var bjargað. 16. maí 1952 Bandarísk flugvél fórst í norð- anverðum Eyjafjallajökli og með henni fimm menn. Eitt lík fannst strax eftir slysið, annað árið 1964 og þrjú í ágúst 1966. 16. maí 1966 Karnabær var opnaður í Reykjavík. Verslunin hafði mikil áhrif á tísku unga fólks- ins í mörg ár. 16. maí 1972 Kona úr Bárðardal ól þyngsta barn sem vitað er að fæðst hafi hér á landi, 6.590 grömm eða 26 merkur og 90 grömm. Þetta var 65 sentimetra drengur sem skírður var Stefán. For- eldrar hans eru María Helga- dóttir og Hallur Jósepsson. 16. maí 2009 Jóhanna Guðrún Jónsdóttir varð í öðru sæti í Evrópu- söngvakeppninni með lagið Is it true? Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … „Ætli ég noti ekki tækifærið og skreppi í Vínbúð- ina,“ segir Ingunn Kristjánsdóttir sem fagnar tví- tugsafmæli sínu í dag. Hún hyggst halda veislu- höldum í lágmarki þennan daginn enda aðeins mánudagur „en ég læt mömmu samt elda þriggja rétta máltíð fyrir mig,“ segir Ingunn og tekur fram að hún kaupi því drykkjarföngin með matn- um. „En ég stefni á að halda stórt partí í sumar, ég á bara eftir að ákveða hvort það verði í sveitinni eða höfuðborginni.“ Ingunn, sem býr á Ölkeldu í Snæfellsbæ, er ný- komin heim á ný eftir að hafa verið veturlangt í Reykjavík en hún nam förðun við Snyrtiakademíuna og útskrifaðist fyrir helgi. Hún sótti svo um í Tækniskólanum og reiknar með að hefja nám þar næsta haust. Í sumar starfar Ingunn á veitingastaðnum Snjófell sem staðsettur er á Arnarstapa. Veitingastaðurinn þykir nokkuð óvenjulegur en hann er byggður í stíl gömlu torfbæjana. Ingunn segir að tilvalið hefði verið að halda upp á afmælið og tengja Söngvakeppni evrópskra sjón- arpsstöðva en hún hafi hins vegar tekið vinnuna fram yfir þar sem hún var alla helgina. andri@mbl.is Ingunn Kristjánsdóttir tvítug í dag Læt mömmu elda þríréttað Flóðogfjara 16. maí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 5.05 3,8 11.20 0,2 17.34 4,1 23.52 0,1 4.10 22.39 Ísafjörður 1.11 0,1 6.59 2,1 13.25 0,0 19.35 2,3 3.49 23.10 Siglufjörður 3.04 0,0 9.24 1,2 15.31 0,1 21.43 1,3 3.31 22.54 Djúpivogur 2.15 2,1 8.20 0,4 14.42 2,4 21.00 0,3 3.33 22.15 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þér finnst engu líkara en þú getir sigrað heiminn. Spáðu í listir, trúmál, ljóð, tónlist og óvenjuleg viðfangsefni. Komdu á óvart og þú slærð í gegn. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú ert í toppformi bæði andlega og lík- amlega og vekur almenna athygli. Einhver ná- kominn á í baráttu, réttu hjálparhönd. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Hlaupabraut atvinnulífins reynir meira á en vanalega. Ef þú trúir að þú sért það sem þú borðar ættirðu að draga úr neyslu á óhollustunni. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú ert staðráðin/n í að leggja mikið á þig til þess að auka tekjurnar. Þú ert prakt- ísk/ur að eðlisfari og vilt geyma það sem þú heldur að þurfi að nota seinna meir. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Láttu ekki vinsældir meðal samstarfs- manna þinna stíga þér til höfuðs. Vinur þinn reynir að fá þig í ferðalag, láttu slag standa. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þegir þú þegar þörf er á að þú leggir eitthvað til málanna? Það er mjög ólíkt þér. Opnaðu fyrir kærleikann sem umlykur þig. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú áttar þig á hvenær makinn skilur ekki eitthvað, sem er lykillinn að því að skilja. Fáir þú eitthvað lánað ber þér að skila því aftur. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Stuðningur annarra er þér mikils virði, því án hans stæðir þú ekki í þeim spor- um sem þú ert. Farðu í ferðalag eða reyndu á einhvern annan hátt að brjóta upp daginn. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Aftur koma upp mál um sam- anburð og sjálfsálit, og þú kannt nýja aðferð til að taka á þeim. Allir hlutir kosta sitt en það er forgangsröðin sem skiptir öllu máli. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Heimsmálin eru þér ofarlega í huga og þú finnur til vanmáttar gegn órétt- lætinu. Hlustaðu og reddaðu svo málunum fyrir þá sem þú getur aðstoðað. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Nú er kjörið að beina athyglinni að heimilinu og sinna jafnvel garðinum eða taka til í geymslunni. Einhver tekur þig á taugum. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Barn er ekki auðvelt í taumi þessa dagana. Þetta ástand tekur brátt enda. Teldu upp að fimm áður en þú gerir eitthvað í fljót- færni og gættu tungu þinnar. Stjörnuspá 1. d4 Rf6 2. Rc3 d5 3. Bg5 c6 4. Dd2 Bf5 5. f3 Rbd7 6. 0-0-0 h6 7. Bh4 e6 8. He1 Bh7 9. e4 dxe4 10. fxe4 Bb4 11. Bd3 g5 12. Bg3 De7 13. Rf3 0-0-0 14. h3 Rh5 15. Bh2 f6 16. a3 Ba5 17. Kb1 e5 Staðan kom upp í síðari hluta fyrstu deildar Íslandsmóts skákfélaga sem lauk fyrir nokkru í Rimaskóla. Danski alþjóðlegi meistarinn Thorbjorn Bromann (2.433) hafði hvítt gegn ís- lenskum kollega sínum Guðmundi Kjartanssyni (2.373). 18. Rd5! cxd5 19. Dxa5 dxe4 20. Bxe4 Bxe4 21. Hxe4 f5 22. Bxe5! Rc5 23. Hee1 og svartur gafst upp. Áskorendaeinvígi FIDE eru nú í fullum gangi en þau eru haldin í Kazan í Rússlandi. Sigurvegari keppn- innar mun etja kappi við Vishy Anand um heimsmeistaratitilinn. Nánari upp- lýsingar um mótið er að finna á www.skak.is. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Hvítur á leik Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.