Morgunblaðið - 16.05.2011, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 16.05.2011, Qupperneq 24
24 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. MAÍ 2011 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand LÁTTU MIG HAFA ÞETTA ÞÚ SENDIR MÉR EKKI VALEN- TÍNUSARKORT ÉG VAR BÚIN AÐ SEGJA ÞÉR AÐ ÉG MYNDI EKKI GERA ÞAÐ MOÐHAUS! ÉG VEIT AÐ ÞÉR OG MÖMMU HEFUR EKKI ALLTAF KOMIÐ VEL SAMAN... EN HÚN VERÐUR BARA Í HEIMSÓKN Í NOKKRA DAGA... ÞANNIG AÐ REYNDU AÐ HAGA ÞÉR, RÉTT Á MEÐAN! MUNDU AÐ LOKA ALDREI TJALDINU Á EFTIR ÞÉR ÞEGAR ÞÚ HEIMSÆKIR „SÁ-SEM-TOGAR- Í-PUTTA” ÞETTA STAÐFESTIR AÐ ÞESSI HATTUR ER SVALUR SVALUR UNGUR GAUR MEÐ HATT EINS OG MINN RUSL ÉG HEFÐI EKKI ÁTT AÐ STINGA UPP Á ÞVÍ AÐ VIÐ BERÐUMST Í ÞYKJUSTUNNI SJÁ- UMST! HANN ER AÐ REYNA AÐ BÆTA RÁÐ SITT... OG ÉG STYÐ HANN Í ÞVÍ GÓÐA NÓTT OG GANGI ÞÉR VEL JÁ, ÉG VONA ÞAÐ. ÉG Á EFTIR AÐ ÞURFA Á ÞVÍ AÐ HALDA Á MORGUN AUÐ- VITAÐ! GOTT AÐ ÞÚ STENDUR VIÐ ÞAÐ SEM ÞÚ SEGIR Útigalli fannst Lítill rauður barna- útigalli ásamt lúffum fannst við rætur Úlf- arsfells. Uppl. í síma 899-0284. Af hverju grætur Jón Sigurðsson? Sumir vegfarendur þykjast sjá tár á hvarmi styttu Jóns Sigurðssonar þegar þeir eiga leið um Aust- urvöll þessa dagana. Getur það verið? Ja, því ekki það, alla vega í óeiginlegri merkingu. En hvers vegna ætti sómi Íslands að gráta? Hann grætur af því að það er viðurkennd staðreynd að sum okkar þurfa að betla til að eiga fyrir nauð- synjum. Hann grætur af því við Ís- lendingar erum svo miklir aumingjar að við virðumst ekki skilja þetta og viljum ekki breyta þessu. Hann græt- ur af því að þeir sem hafa meira en nóg eru alltaf að heimta meira og meira. Þetta lið vill ekki gefa tommu eftir. Þess vegna grefur það sína eig- in gröf. Hann grætur af því við Ís- lendingar, þjóðin hans, hendum mat alveg blygðunarlaust. Sennilega er ekki ofreiknað að einn þriðji af öllum matvælum sem við kaupum lendi í ruslatunnunni. Ætlumst við virkilega til að þeir sem eru bjargarlausir sæki sér næringu þangað? Mörg okkar, sem komin erum til vits og ára eins og sagt er, vissu hvað það var að hafa ekki alltaf nóg að borða. Við segjum: Hingað og ekki lengra. Nú er komið nóg. Styrmir Gunnarsson skrifaði í Sunnudags- moggann: En það er því miður raunveruleiki að of margir Íslend- ingar eiga ekki fyrir mat og afleiðingar fá- tæktarinnar koma fram með ýmsum hætti og alveg sérstaklega koma þær niður á börnum. Börnum sem munu aldrei gleyma þeirri lífsreynslu svo lengi sem þau lifa og mun fylgja þeim alla tíð. Sagt var um þau hjón, Jón forseta og Ingibjörgu, að allir Ís- lendingar væru börn þeirra. Háttalag okkar í dag, í miðjum allsnægtum, er okkur sem nóg höfum handa á milli, til háborinnar skammar og mun sú skömm fylgja okkur meðan landið er byggt. Nema við breytum til. Hallgrímur Sveinsson Brekku og Bjarni Georg Einarsson Þingeyri í Dýrafirði. Heyrnartæki fannst Heyrnartæki fannst 7. maí í anddyri á Vesturgötu 7. Uppl. í síma 5352740. Ást er… … þegar tíminn flýgur ef þið eruð saman. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9. Útsk./myndl. kl. 13. Félagsvist kl. 13.30. Árskógar 4 | Handav./smíði/útsk. kl. 9. Félagsvist kl. 13.30. Myndlist kl. 16. Bólstaðarhlíð 43 | Bútas., handav., leikfimi kl. 13.15, sögustund kl. 14. Dalbraut 18-20 | Myndlist og postulín kl. 9, leikfimi kl. 10, brids kl. 13. Dalbraut 27 | Handav. kl. 8, bæna- stund kl. 9.30, söngur á 2. hæð kl. 10.30, leikfimi kl. 11, uppl. kl. 14 á 2. hæð. Listamaður mánaðarins. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13. Kaffi/spjall kl. 13.30. Félagsheimilið Boðinn | Jóga kl. 9. Botsía kl. 11. Handv.kl. Valdórs kl. 13. Félagsheimilið Gjábakki | Botsía kl. 9.30, lomber kl. 13, kanasta kl. 13.15. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Postu- lín kl. 9, ganga kl. 10, handav/brids kl. 13, félagsvist kl. 20.30. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Kvennaleikfimi kl. 9.15, 10, 11. Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur kl. 9. Vatnsleikfimi kl. 9.50. Spilasalur frá hád. Gerðubergskór fer í heimsókn á Hvolsvöll kl. 12.30. Háteigskirkja - starf eldri borgara | Félagsvist kl. 13. Hraunbær 105 | Handav. kl. 9, bænast. kl. 10, Helga fótafræðingur á staðnum, pant. í s. 6984938. Hárgr.st. Fjólu er opin kl. 9-14, tímap. í s. 8946856. Hraunsel | Ganga kl. 10 frá Haukahúsi, kór kl. 10.30, glerbræðsla kl. 13, tré- skurður kl. 13, félagsv/botsía kl. 13.30, vatnsleikfimi kl. 14.40. Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30, 9.30 og 10.30. Vinnustofa kl. 9. Brids kl. 13. Hæðargarður 31 | Við Hringborðið kl. 8.50. Listasm. kl. 9. Félagsvist kl. 13.30. Skrán. í ferð 17. maí til Hrafnistu, Hafn. lýkur í dag. Rúta fer kl. 13 frá Hæðar- garði. Uppl. 411-2790. Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Smár- anum kl. 11.30. Korpúlfar Grafarvogi | Ganga kl. 10 í Egilshöll. Sundleikfimi kl. 9.30. Norðurbrún 1 | Botsía kl. 10, handav. kl. 9. Djákni kl. 14. Smíðastofa opin. Vesturgata 7 | Sameiginleg handverks- sýning Vesturgötu 7 og Lindargötu 57 verður á Lindargötu 57 dag. 19., 20. og 21. maí kl. 13-16.30 alla dagana. Skemmtiatriði kl. 15 alla dagana. Kór fé- lagsstarfs aldraðra í Reykjavík syngur 19. maí. Tískusýning, dömu-sumarfatn. frá Logý 20. maí kl. 15. Vitatorgs- bandið/dans 21. maí . Veislukaffi kl. 14.30-16.30 alla dagana. Handverks- sala. Handavinna, botsía, leikfimi kl. 9.15. Tölvukennsla kl. 12. Kóræfing kl. 13. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, bókband og postulín kl. 9. Morgunst. kl. 9.30. Botsía kl. 10. Framh.saga kl. 12.30. Handavinnust. kl. 13. Spil kl. 13. Stóladans kl. 13. Úrslit liggja fyrir í árlegri vísna-keppni Sæluviku Skagfirðinga. Alls sendu 22 höfundar efni í Vísna- keppnina, sem orðin er órjúfanlegur hluti Sæluvikunnar, og eru það nokkru færri en fyrri ár en á móti kemur að fleiri nýliðar tóku þátt í keppninni en stundum áður. Stefán G. Haraldsson í Víðidal átti bestu vísuna en óskað var eftir því að höfundar settu saman heilræði. Vísa Stefáns er eftirfarandi: Forðastu alltaf fals og spott þá friðar berðu merkin. Þú skalt öllum gera gott og Guð mun launa verkin. Þá áttu þeir Guðmundur Sveins- son Sauðárkróki og Pétur Stef- ánsson Reykjavík bestu botnana við fyrriparta Hjalta Pálssonar. Guð- mundur hafði sinn svona: Hugsun öll er horfin brott hausinn virkar lítið. Það sem áður þótti gott þykir núna skrítið. Og Péturs botn var við hring- hentan fyrripart: Ef að þjóðin ekki lætur örlög bjóða sér að þola. Léttist róður, þagna þrætur, þrautum óðar burt mun skola. Friðrik Hansen orti á sínum tíma að lokinni Sæluviku, eins og frá greinir á Vísnavef Héraðs- skjalasafns Skagfirðinga: Minnkar kvik á mönnum hér. Mærðar hikast rómur. Sæluvika enduð er. Ástarbikar tómur. Og Stefán Vagnsson orti í svip- uðum dúr: Sæluvika enduð er og ástarbikar tæmdur. Lengi og hiklaust lék ég mér lofnarbliki sæmdur. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af samkeppni og sæluviku

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.