Morgunblaðið - 26.07.2011, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.07.2011, Blaðsíða 1
Reuters Minning Kveikt var á kertum fyrir framan dómkirkjuna í Ósló í gærkvöldi, en þar mynduðu rósir frá fólki úr fjöldagöngunni blómahaf. Önundur Páll Ragnarsson onundur@mbl.is Um tvö hundruð þúsund Óslóarbúar mættu í göngu í miðborginni í gær til að minnast fórnarlamba Anders Behring Breiviks. Tala hinna föllnu var lækkuð í gær, en þá sagði lögregla að búið væri að staðfesta 68 dauðsföll í og við Útey, þar sem Breivik gekk um og skaut fólk, en ekki 86 eins og áður var sagt. Í heildina er því búið að staðfesta 76 dauðsföll. Enn er fjölmargra þó saknað. Jens Stoltenberg forsætisráðherra ávarpaði mannfjöldann, og flestir höfðu með sér hvítar og rauðar rósir. Graf- alvarlegt yfirbragð var á samkomunni. „Illska getur orðið manneskju að bana, en hún getur ekki banað heilli þjóð,“ sagði Stoltenberg meðal annars í ávarpi sínu. Hann viðurkenndi að norska þjóðin væri breytt til frambúðar, en hét því að Nor- egur yrði áfram opið samfélag. Breivik var í gær úrskurðaður í átta vikna gæsluvarðhald og er í fjölmiðla- banni. Úrskurðurinn var kveðinn upp bak við luktar dyr og var Breivik meinað að mæta í heimagerðum einkennisklæðum, eins og hann hafði óskað eftir. Hann fékk að lesa upp úr stefnuyfirlýsingu sinni í tíu mínútur fyrir dómarana áður en hann var stoppaður. Kvaðst hann hafa framið ódæðin nauðugur viljugur, til að bjarga Noregi frá íslamsvæðingu. Norska rannsóknarlögreglan (Kripo) fer með vettvangsrannsóknina í Útey. Í gærkvöldi sagði yfirmaður hennar, Odd Reidar Humlegård, að allt benti til þess að Breivik hefði verið einn að verki. Einn- ig leiddi rannsóknin í ljós, að Breivik hefði ekki sýnt fórnarlömbum sínum neina miskunn. „Sérfræðingar okkar greina áverkana þannig að gerandinn hafi haft fulla stjórn á sér,“ sagði Humlegård. Sameinast í sorginni  Tvö hundruð þúsund manns í miðbæ Óslóar í gærkvöldi  „Illska getur banað mann- eskju, en ekki heilli þjóð“  Breivik einn að verki í Útey segir rannsóknarlögreglan Samstaða Um tvö hundruð þúsund manns mættu í göngu í Ósló.MFjöldamorð »4, 16-17, 18 Þ R I Ð J U D A G U R 2 6. J Ú L Í 2 0 1 1  Stofnað 1913  173. tölublað  99. árgangur  KAPPSAMAR GULLSYSTUR Í GARÐABÆ TÓNLISTARÆVINTÝRI Í ÆGIFAGURRI NÁTTÚRU LAXVEIÐI Í ÁGÆTU MEÐALLAGI BRÆÐSLAN 32 GÓÐAR LAXAGÖNGUR 12ÍSLANDSMEISTARAR 10  Þó fjárhags- staða margra heimila sé veik þá urðu þau tímamót á síð- asta ári að heild- arskuldir heim- ilanna í landinu minnkuðu. Fara þarf áratugi aft- ur í tímann til að finna dæmi um minnkun skulda milli ára. Skúli Eggert Þórðarson rík- isskattstjóri segir að skuldaaukn- ing heimilanna hafi verið gríð- arleg fyrir hrun, en þá jukust skuldirnar um 10% að jafnaði á ári. Eignir heimilanna hafa hins vegar líka rýrnað, en þær minnk- uðu um 9% í fyrra á meðan skuld- irnar minnkuðu um 0,8%. »14 Heimilin eru hætt að safna skuldum Skúli Eggert Þórðarson Þrátt fyrir umtalsverð útsölu- áhrif á verðlag mældist verðbólgan 5% í júlímánuði og hefur hún ekki mælst meiri síðan í júní í fyrra. Miklar hækkanir á innfluttum vörum í bland við hækkanir á inn- lendum vörum voru helstu áhrifa- valdar í aukningu verðbólgu í júlí. Jafnframt hefur kjarnaverðbólga aukist umtalsvert. Í gær var verð á bensínlítra hjá Skeljungi komið í 244,8 krónur. »15 Mesta verðbólga hérlendis í eitt ár Dýrt Óþægileg sjón fyrir bíleigendur. Tap Eden aldingarðs ehf. vegna brunans í Eden í Hveragerði aðfara- nótt föstudags hleypur á tugum milljóna króna. Innbúið í Eden var ótryggt og rekstrarfyrirtækið hafði ekki rekstrarstöðvunartryggingu. Eden aldingarður ehf., sem rak Eden, er í eigu Gunnars Magnússon- ar og fjölskyldu. „Þetta er mikill harmleikur hjá mér og minni fjöl- skyldu,“ segir Gunnar í viðtali við Morgunblaðið. Fjölskyldan hefur þó hug á að byrja aftur. „Nokkrir menn hafa hringt í mig og boðist til að vera með okkur í uppbyggingunni,“ segir Gunnar og bætir við að Eden verði til í framtíðinni í einhverri mynd. „Vonandi verður hægt að opna 1. maí.“ Sparisjóður Vestmannaeyja átti bygginguna. Bæjaryfirvöld í Hvera- gerði og sparisjóðurinn hafa lýst yfir vilja til að endurreisa Eden í ein- hverri mynd. »6 Tapar tugum milljóna  Innbúið í Eden í Hveragerði var ekki vátryggt Morgunblaðið/Ómar Bruni Rannsókn á orsök eldsvoðans í Eden er enn í fullum gangi. Norska lögreglan íhugar nú að ákæra Anders Behring Breivik fyrir brot gegn 102. grein norsku hegn- ingarlaganna, sem kveður á um glæpi gegn mannkyninu, meðal annars þjóðarmorð. Greinin er til- tölulega ný, en hún var sett inn í lögin árið 2008. Refsirammi vegna brota gegn greininni er þrjátíu ár, en hámarksrefsing fyrir hryðju- verk og sömuleiðis fyrir morð er 21 ár samkvæmt norskum lögum. Vefútgáfa Aftenposten greindi frá þessu í gærkvöldi. Glæpur gegn mannkyninu? LÖGREGLAN ÍHUGAR AÐ ÁKÆRA EFTIR NÝLEGRI LAGAGREIN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.