Morgunblaðið - 26.07.2011, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 26.07.2011, Blaðsíða 27
DAGBÓK 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 2011 Sudoku Frumstig 3 1 7 6 2 8 5 4 1 2 6 5 6 4 5 4 3 8 7 2 8 3 5 1 8 6 4 5 6 9 7 9 6 3 1 8 7 8 1 6 8 4 3 5 4 6 7 5 3 9 6 4 3 2 7 2 3 5 1 7 2 9 2 6 8 1 8 3 5 2 4 7 5 9 6 1 9 5 3 6 8 2 4 7 6 8 2 4 1 7 5 9 3 4 7 3 5 2 9 8 6 1 5 1 7 6 9 4 3 2 8 3 2 6 8 7 5 9 1 4 9 4 8 2 3 1 6 7 5 2 6 4 7 5 3 1 8 9 7 5 1 9 8 6 4 3 2 8 3 9 1 4 2 7 5 6 8 5 4 9 1 6 3 7 2 1 3 7 5 2 4 8 9 6 6 9 2 3 7 8 1 5 4 9 6 5 4 3 1 2 8 7 4 2 3 8 9 7 6 1 5 7 8 1 6 5 2 9 4 3 2 1 6 7 4 9 5 3 8 5 7 9 2 8 3 4 6 1 3 4 8 1 6 5 7 2 9 4 1 5 8 2 9 6 7 3 8 6 3 7 4 1 2 5 9 7 2 9 3 6 5 4 1 8 3 7 4 2 1 8 9 6 5 9 8 2 6 5 4 1 3 7 1 5 6 9 7 3 8 4 2 6 3 8 1 9 7 5 2 4 2 4 7 5 8 6 3 9 1 5 9 1 4 3 2 7 8 6 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er þriðjudagur 26. júlí, 207. dagur ársins 2011 Orð dagsins: Ef þér elskið mig, munuð þér halda boðorð mín. (Jóhannes 14,15.) Þú tekur 3 milljóna króna lán til 7ára og þú sparar 52.500.“ Þann- ig hljómar auglýsing frá fjármála- fyrirtæki sem hvetur landsmenn til að taka lán. Halló Hafnarfjörður. Er ekki allt í lagi heima hjá þér? Víkverji lét reikna út hvað það kostar að taka svona óverðtryggt lán. Svarið er 773.882 krónur í vexti ef lánið er óverðtryggt og 1.007.377 krónur í vexti og verðbætur ef lánið er verð- tryggt, miðað við 2,5% verðbólgu. Væri ekki nær fyrir fyrirtækið að auglýsa: „Þú sparar 1.007.377 krón- ur með því að taka ekki 3 milljóna lán til 7 ára.“ x x x Hin íslenska umræðuhefð erþannig að sæmilega skynsamt fólk forðast að taka þátt í um- ræðunni, ekki síst þegar tilfinningar blandast inn í málið. Að taka þátt í umræðu um Evrópumál er eins og að detta í fjóshaug. Maður kemur skítugur og hræddur upp úr haugn- um. Einn og einn reynir þó að leggja málið upp með málefnalegum hætti, en það reynir Tómas Ingi Olrich, fyrrverandi ráðherra, að gera í Morgunblaðinu. Hann bendir t.d. á að þó illa gangi hjá Evrópuríkjunum að reka sameiginlega mynt þá hafi ástandið alls ekki verið gott áður en evran var tekin upp. „Áður en sameiginleg mynt var tekin upp 1999, hafði ESB búið við mikil átök um gjaldeyrismál. Marg- ar ESB-þjóðir stunduðu það að fella gjaldeyri sinn til að bæta samkeppn- isstöðu viðkomandi lands. Olli þetta sveiflum og óróleika á markaði, sem átti að vera sameiginlegur. Var slíkt ástand að líkum illa séð af þeim sem við stöðugara gengi bjuggu,“ segir Tómas Ingi. Hann bendir á að geng- isfellingar séu að vísu aðeins form- leg viðurkenning á veiku efnahags- lífi. „Viðskiptahalli, erlend skuldasöfnun og verðbólga valda ástandi sem gengisfelling er við- urkenning á en ekki orsök, innan hvaða gjaldeyrissvæðis sem er.“ Víkverji veltir fyrir sér hvað taki við ef myntsvæðið leysist upp. Mun dauði evrunnar bæta hag okkar Ís- lendinga? víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 skálma, 4 rófa, 7 vistir, 8 trylltur, 9 bjarg- brún, 11 svara, 13 fall, 14 snáði, 15 gína við, 17 þekkt, 20 nöldur, 22 fim, 23 örlaga- gyðja, 24 dýrin, 25 skóla- gengna. Lóðrétt | 1 bresta, 2 ræfils, 3 lengdareining, 4 flasa, 5 snákur, 6 ljósið, 10 forsjón, 12 herma eftir, 13 töf, 15 þenjast út, 16 giftast aldrei, 18 hylur grjóti, 19 kroppa, 20 reiða, 21 málmur. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 notadrjúg, 8 gætna, 9 fífan, 10 nót, 11 raupa, 13 aum- ur, 15 basla, 18 halar, 21 far, 22 ólæst, 23 æstar, 24 nafnkunna. Lóðrétt: 2 ostru, 3 afana, 4 rifta, 5 úlfum, 6 Ægir, 7 knár, 12 pól, 14 una, 15 brók, 16 skæla, 17 aftan, 18 hræðu, 19 látin, 20 rýrt. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Hjartatían. A-Allir. Norður ♠G108752 ♥4 ♦KD107 ♣ÁK Vestur Austur ♠KD63 ♠4 ♥9 ♥KDG7652 ♦G53 ♦864 ♣DG653 ♣104 Suður ♠Á9 ♥Á1083 ♦Á92 ♣9872 Suður spilar 3G. Peter Weichsel sat í suður með ás- ana þrjá. Austur vakti á 3♥, Weichsel passaði, vestur líka, en norður kom inn á 3♠. Spilið er frá bandarísku landsliðs- keppninni í vor. Eftir sömu byrjun á hinu borðinu hækkaði suður í 4♠, sem unnust með yfirslag. Weichsel var hins vegar skotinn í ♥10 og veðjaði á 3G. Útspil í hjarta hefði verið meinlaust, en vestur byrjaði á litlu laufi. Weichsel spilaði spaða á níuna og vestur braut laufið til baka. Spaðalegan kom í ljós í næsta slag og nú var útlitið orðið veru- lega dökkt. Weichsel tók fjóra slagi á tígulinn, spilaði svo hjarta að ♥Á1083. Austur fylgdi með smáspili án þess að hiksta, en Weichsel hafði gert upp hug sinn – lokaði augunum og lét ♥10. Eini möguleikinn var stök nía í bakhönd- inni. 26. júlí 1930 Jón Sveinsson, Nonni, 72 ára rithöfundur og prestur, var kjörinn heiðursborgari Akur- eyrarbæjar þegar hann kom til Eyjafjarðar í fyrsta sinn síðan hann hélt til útlanda, sextíu árum áður. Í ályktun bæjarstjórnar sagði að Jón hefði „borið nafn bæjarins víða um heim, bænum og þjóð- inni til vegsauka og gleði“. 26. júlí 1957 Mynd var send þráðlaust til út- landa í fyrsta sinn. Um var að ræða mynd af forseta Íslands, sem send var til sænska blaðs- ins Dagens Nyheter. 26. júlí 1959 Til mikilla átaka kom á dans- leik á Siglufirði þar sem á ann- að hundrað skip voru í höfn vegna brælu á síldarmiðunum. Tólf menn slösuðust. „Róstu- samasta nótt í sögu Siglu- fjarðar,“ sagði í Morg- unblaðinu. 26. júlí 1963 Kona á sjötugsaldri, Jóna Sig- ríður Jónsdóttir, fannst heil á húfi á Arnarvatnsheiði eftir víðtæka leit. Hún hafði verið á ferð á hesti sínum, Ljóma, en misst hann frá sér og legið úti í fimm nætur. 26. júlí 1997 Laugavegsmaraþon var þreytt í fyrsta sinn. Tæplega fimmtíu manns luku hlaupinu sem er 55 kílómetrar, frá Land- mannalaugum í Þórsmörk. Rögnvaldur Ingþórsson kom fyrstur í mark eftir 5 klukku- stundir og tæpar 20 mínútur. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… Auður Dóra Franklín, lífeindafræðingur á sýkla- fræðideild Landspítalans og tveggja barna móðir, er þrjátíu ára í dag. Hún segist alla jafna bjóða í kökur og kaffi þegar hún á afmæli en í þetta sinn verður veisluhöldum frestað um nokkra daga. „Dóttir mín á afmæli 4. ágúst þannig að við ætlum að halda upp á þetta saman. Hún er að verða tveggja ára,“ segir Auður og bætir því kankvís við að líkur séu á því að yngri afmælisskvísan muni fá alla athyglina þann daginn. Það kemur þó ekki að sök því í kvöld ætlar hún út að borða með mann- inum, Magnúsi, móður sinni og systur en dæturnar tvær, hin er fjögurra ára, eru í pössun hjá afa og ömmu á Ísafirði. „Þetta er í fyrsta sinn sem þær fá að vera einar hjá þeim og þeim finnst það mjög spennandi. Það er búið að vera svo mikið að gera hjá þeim að þær hafa ekkert haft tíma til að sakna okkar,“ segir Auður en hjónakornin notuðu einnig tækifærið um helgina og skelltu sér í ferðalag um Vestfirðina og Snæfellsnesið. Frítíma sínum eyðir Auður með fjölskyldunni og vinum, fer í bíó og stundar útivist. Hún hefur líka gaman af því að ferðast erlendis og fer oft til Svíþjóðar. „Faðir minn býr þar og við vorum bæði í námi þar þannig að við þekkjum marga þar úti.“ holmfridur@mbl.is Auður Dóra Franklín er þrítug í dag Dóttirin fær alla athyglina Hlutavelta Bryndís Eva Stef- ánsdóttir, Þórdís Ósk Stefánsdóttir, Kolbrún Bjarkey Matthíasdóttir og Thelma Þöll Matt- híasdóttir héldu tombólu fyrir utan verslunina Samkaup strax í Byggðavegi á Akureyri. Þær söfnuðu 7.459 krón- um sem þær styrktu Rauða krossinn með. Flóðogfjara 26. júlí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 2.31 2,8 8.47 1,4 15.15 3,1 21.41 1,4 4.16 22.54 Ísafjörður 4.45 1,6 11.02 0,8 17.33 1,8 3.54 23.26 Siglufjörður 1.04 0,6 7.19 1,0 13.10 0,6 19.44 1,2 3.35 23.10 Djúpivogur 5.38 0,8 12.19 1,7 18.49 0,9 3.38 22.30 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Einhver verður þér ósammála í dag og þú hefur tilhneigingu til að taka það óstinnt upp. Verkefnin þín eru ekki nógu heillandi núna. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú ert áhugalaus og hefur enga burði til að leysa málin. Einvera og fallegt umhverfi munu endurnæra þig. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú tekur leiðbeiningum vel, sér- staklega frá einhverjum með blikandi og góð- leg augu. Þú ert með ýmislegt á stefnu- skránni sem þú hefur unun af. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Allt hefur sinn stað og tíma. Láttu ekki kæruleysið ná tökum á þér, þá er verr farið en heima setið. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þér hættir til fullmikillar aðhaldssemi gagnvart sjálfum þér og öðrum. Hvaðeina sem viðkemur heimilinu mun gleðja þig. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Tíminn er dýrmætur og þú hefur eng- an tíma til þess að sökkva þér niður í eigin hugsanir. Taktu þig á og náðu fyrra formi. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Það er ekki rétta leiðin til þess að koma skoðunum sínum á framfæri að stilla öðrum upp við vegg og predika. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Gerðu ekki meiri kröfur til sjálfs þín en þú ert fær um að standast. Einhver kemur með uppástungu sem vert væri að skoða því þar gæti leynst gott tækifæri. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Það er engin ástæða fyrir þig til þess að bera ábyrgð á öllum sem í kringum þig eru. Í stað þess að kvarta undan tiltekinni manneskju átt þú að koma hreint fram. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Það þýðir ekkert að stinga höfðinu í sandinn; vandamálin hverfa ekki. Láttu það ekki blekkja þig þótt þú eigir auðvelt með að koma skoðunum þínum á framfæri. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Það hjálpar þér mikið að vera já- kvæður þótt ýmis vandamál kunni að koma upp. Sýndu því skoðunum annarra þá virð- ingu sem þú vilt að menn sýni þér. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Það væri ekki úr vegi að verja deg- inum til þess að fara í gegnum málin og finna út, hvað þú vilt og hvert skal stefna. Kveddu þér bara til samstarfsmenn og allt fer vel. Stjörnuspá 1. d4 d5 2. Rf3 Rf6 3. c4 c6 4. Rc3 e6 5. Dd3 dxc4 6. Dxc4 b5 7. Dd3 Rbd7 8. Bg5 Bb7 9. e4 h6 10. Bh4 b4 11. Ra4 Da5 12. b3 Rb6 13. Rb2 Be7 14. Rd2 0-0 15. e5 Rfd5 16. Bxe7 Rxe7 17. Re4 Had8 18. Rd6 Ba8 19. Da6 Dd5 20. 0- 0-0 Rbc8 21. Rxc8 Rxc8 22. f3 Dd7 23. Da5 De7 24. Dc5 Dg5+ 25. Kb1 Hd5 26. Dxb4 c5 27. dxc5 Hxd1+ 28. Rxd1 Hd8 29. De1 Re7 30. h4 Dg6+ 31. Kb2 Rf5 32. Hh3 Hd5 33. g4 Rd4 34. Dc3 Rxf3 35. h5 Dg5 36. Hxf3 Hxd1 37. c6 Hd2+ 38. Ka3 a5 39. Hd3 De7+ 40. Ka4 Staðan kom upp á úkraínska meist- aramótinu sem lauk fyrir skömmu í Kænugarði. Anton Korobov (2.660) hafði svart gegn Yuri Vovk (2.550). 40. … Bxc6+! og hvítur gafst upp þar sem hann yrði mát eftir 41. Dxc6 Db4# og einnig eftir 41. Kxa5 Hxa2+ 42. Kb6 Ha6+! 43. Kxa6 Db7+ 44. Ka5 Db5#. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Svartur á leik.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.