Morgunblaðið - 26.07.2011, Blaðsíða 28
28 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
KANNSKI ÆTTI ÉG
AÐ GEFA LÍSU ILMVATN?
HLJÓMAR
STERKT
„GETUR
VALDIÐ
ÓHÓFLEGU SLEFI
HJÁ KARL-
MÖNNUM”
ÚTSA ÚT ÚTSA
„EAU DE
VÁ VÁ VÁ”
ÞAÐ ER EITTHVAÐ SKRÝTIÐ
VIÐ ÞAÐ AÐ SETJA SAMAN
HAFNABOLTALIÐ, EN
VONAST SVO EFTIR
RIGNINGU SVO VIÐ ÞURFUM
EKKI AÐ SPILA
ÉG HELD AÐ VIÐ ÞURFUM AÐ
BREYTA HUGARFARI OKKAR.
VIÐ ÞURFUM AÐ VERA
SJÁLFSÖRUGG
ÉG VONA AÐ ÞAÐ
RIGNI LÍKA Á MORGUN
ÉG LEGG MIG Í
LÍMA VIÐ ÞAÐ AÐ SJÁ
FYRIR FJÖLSKYLD-
UNNI MINNI...
...OG
HVAÐA
ÞAKKIR
FÆ ÉG?
KLAPP!
KLAPP!
KLAPP!
KLAPP!
KLAPP!
KLAPP!
KLAPP!
KLAPP!
HEFURÐU
SÉÐ
RUNÓLF?
HANN
FÓR Í
BRÚÐKAUP
HJÁ VINI
SÍNUM SEM
ER BÆNA-
BEIÐA
HVAÐ
MEÐ AÐ
VIÐ VERÐUM
BARA VINIR
Á FACEBOOK
Í STAÐINN?
ÞESSI VIKA ER GOTT
TÆKIFÆRI FYRIR OKKUR
TIL AÐ KYNNAST BETUR
ÉG VEIT AÐ ÞIÐ GERIÐ
FLEIRA EN AÐ HORFA BARA Á
SJÓNVARPIÐ. HVAÐ HAFIÐ ÞIÐ
VIRKILEGA GAMAN AF AÐ GERA
HORFA Á
„BEN 10”, HANN
ER ALVEG AÐ
BYRJA
GÆTI
MEIRA AÐ
SEGJA VERIÐ
ÞÁTTUR SEM ÉG
ER EKKI BÚINN
AÐ SJÁ
FYRIRGEFÐU KALLINN, EN ÉG GET EKKI
LEYFT ÞÉR AÐ SKEMMA BÚNINGINN MINN
ENGINN
HEFUR
GETAÐ
VIKIÐ SÉR
UNDAN
MÉR
ÞÚ
HEFUR
GREINILEGA
VERIÐ AÐ BERJ-
AST VIÐ
VIÐVANINGA
EN NÚNA ERTU AÐ FÁST VIÐ
KÓNGULÓARMANNINN
...ÞANGAÐ
TIL BEGGA BÍTUR
AF ÞÉR HÖFUÐIÐ
Á BRÚÐKAUPS-
NÓTTINNI
...BOGGI, VILT
ÞÚ MEÐ GUÐS HJÁLP
REYNAST HENNI TRÚR,
ELSKA HANA OG VIRÐA
Í HVERJUM ÞEIM
KJÖRUM SEM GUÐ
LÆTUR YKKUR AÐ
HÖNDUM BERA...
Gleraugu töpuðust
Lesgleraugu týndust
nýlega í Grasagarð-
inum í Laugardal eða
í Kringlunni. Uppl. í
síma 896-1199.
Reykjavík subbu-
legasta höfuðborg
í Evrópu?
Sem íbúi í Reykjavík-
urborg sl. 40 ár tekur
mig sárt að sjá
hversu subbuleg
borgin er orðin. Eitt-
hvað er stórlega að í
rekstri borgarinnar,
það er alveg ljóst.
Það hefur litla þýðingu fyrir
Versta flokkinn að reyna að skýla
sér á bak við margumtalað hrun.
Við höfum oft, borgarbúar, sem og
aðrir landsmenn, gengið í gegnum
tíð fjárhagslegra erfiðleika, án þess
að rýra þau gildi sem prýða fagra
borg sem Reykjavík var. Illa slegnir
blettir og skrúðgarðar borgarinnar
svo ég tali nú ekki um njóla og ann-
að illgresi sem vex taumlaust með-
fram flestum aðalumferðargöturnar
og borgarbúar hafa daglega fyrir
augum er til skammar. Útlendingar
sem sækja borgina heim aka flestir
þessar götur. Hvað hugsa þeir? Eru
borgarbúar sóðar og letingjar sem
nenna ekki að rækta vel garðinn
sinn? Er sparað á réttan hátt með
því að leyfa illgresinu að taka völd-
in? Eða er Versti
flokkurinn bara ekki
að vinna verkin sem
honum voru falin?
Á ferðalögum er-
lendis heimsækir mað-
ur einkum höfuðborg-
ina. Ekki fer á milli
mála að samanburð-
urinn er neikvæður
þegar Reykjavík á í
hlut. Að höfuðborgin
sé hrein og snyrtileg
með græna bletti,
blóm og tré er raunar
sjálfsagt og öllum til
yndisauka. Hver man
ekki eftir „Hrein borg
– fögur torg“?
Þið hjá Versta flokknum, komið
ykkur í gírinn og fegrið borgina. Þið
voruð áreiðanlega ekki kosin til að
gera Reykjavík að subbulegustu
höfuðborg Evrópu.
Mann undrar ekki að Reykvík-
ingar bíða þess að geta kosið á ný til
borgarstjórnar. Og víst er að marg-
ir sem létu atkvæðin sín til ykkar
sjá mikið eftir því. Við verðum að
afbera þessa hörmung til næstu
kosninga. Alla vega eru ekki í sjón-
máli breytingar til hins betra. Þó
svo að flokkurinn kalli sig Besta
flokkinn, sem er nú næstum „djók“.
Reykvíkingur.
Ást er…
… að kynnast hvort öðru.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefn-
aður og myndlist kl. 9, ganga kl. 10, ka-
nasta kl. 13.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Jónshús opið kl. 9.30-16. Bónusrúta frá
Jónshúsi kl. 14.45.
Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarn-
arnesi | Vatnsleikfimi kl. 7.15, kaffispjall
í Króknum Skólabraut 3-5, kl. 10.30,
jóga kl. 11, samverukaffi karla í safn-
aðarheimili kirkjunnar kl. 14-16. Pútt-
leikur/mót við Skólabraut kl. 14.
Hraunbær 105 | Kaffi og blöð liggja
frammi, púttvöllur er opinn alla daga.
Tímapantanir hjá Helgu fótafræðingi í
síma 698-4938. Bónusbíll á þriðjud. kl.
12.15. Hárgreiðslustofan opnuð eftir
sumarleyfi 18. júlí, sími 894-6856.
Hvassaleiti 56-58 | Opið kl. 8-16. Böð-
un fyrir hádegi. Hádegisverður, miðdags-
kaffi, hársnyrting.
Íþróttafélagið Glóð | Pútt á æf-
ingasvæðinu við Kópavogslæk kl. 17.
Uppl. í síma 554-2780 og á www.glod.is.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Ferð um
Snæfellsnes fimmtudaginn 28. júlí, allir
velkomnir. Upplýsingar í síma 411-9450.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Vist í dag.
Pétur Stefánsson er sleginn óhugeftir voðaverkin í Noregi og
vottar norsku þjóðinni sína dýpstu
samúð:
Af illum fréttum er ég nú
allri gleði rændur.
Ég óska Guð, að eflir þú
okkar norsku frændur.
Davíð Hjálmar Haraldsson
bregður á leik í limru:
Sífellt um króka og kima
í kringum sig gætinn að skima
og horfa og gá
að hættu og vá,
Lárus dó loksins úr svima.
Gylfi Þorkelsson orti er hann
kom heim af Kili, en svona var
stemningin í Áfangafelli:
Dillandi góðhross og dásemdartíð,
dýrðlegur söngur um móa og hlíð.
Í Áfanga kem
og algleymið nem.
Skínandi glaður í pokann ég skríð.
Á Vísnavef Héraðsskjalasafns
Skagfirðinga má finna þessar vísur
sjómannsins Hafliða Nikulássonar:
Treysti á eigin mann og mátt.
Misskilinn af flónum.
Nú er kappinn lagstur lágt
sem lifði og dó á sjónum.
Þekkti mannlegt strit og stríð,
stóð mót beittum geiri.
Einstæðingur alla tíð
eins og margir fleiri.
Mörg eru spjöllin mannlegs lífs.
Margra er gölluð kæti.
Styrjarvöld í stormi lífs
stíga höllum fæti.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Allri gleði rændur
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
–– Meira fyrir lesendur
- nýr auglýsingamiðill
...þú leitar og finnur