Morgunblaðið - 26.07.2011, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 26.07.2011, Blaðsíða 11
en tók mér reyndar hlé þegar ég eignaðist strákinn minn. Ég keppti svo þegar hann var orðinn eins árs og vann Íslandsmeistarmótið í vor, en þá vann ég líka fyrsta sætið í „over all“- keppninni. En þetta verður vissulega harðari keppni í haust, því kepp- endum hefur fjölgað mjög mikið.“ Gengur fyrir öllu Þær systur eru því kappsamar og eru í þessu til að vinna. „Við höfum fórnað miklu fyrir þetta. Mér var nánast pakkað í bómull þegar ég var lítil, ég fékk aldrei að fara á skíði eða skauta því það var of mikil áhætta, ég mátti ekki slas- ast á fæti,“ segir Hanna Rún um lífið í samkvæm- isdansinum. „Vissulega var mikið í húfi, hingað komu þjálf- arar að utan sérstaklega til að kenna mér og stráknum sem dansaði með mér þegar ég var yngri. Ég man eftir því að hafa þurft að fara úr mínu eigin afmæli þegar ég var níu ára til að fara í einkatíma og gestirnir biðu á meðan. Dansinn hefur gengið fyrir öllu og þannig þarf það að vera ef maður ætl- ar að ná árangri,“ segir hún og bætir við að hún hafi flutt ein til Danmerk- ur eftir 10. bekk til að dansa þar, en þá var dansfélagi hennar rússneskur. Fann ástina í dansinum Hanna Rún hef- ur verið Íslands- meistari á hverju ári frá því árið 1997, undanfarin 14 ár. „Núna er ég eingöngu í latin- dansi en ég var alltaf líka í „ball- room“. Ég hætti í ballroom-dansinum fyrir tveimur árum þegar ég byrjaði að dansa með nýjum dansfélaga, Sig- urði Þór Sigurðssyni, af því hann dansar einvörðungu latin.“ Í dansinum kviknaði ástin og nú eru þau Sigurður og Hanna Rún ekki aðeins dansfélagar heldur líka kær- ustupar. „Á æfingum erum við í vinnunni okkar en við erum kær- ustupar þegar við komum heim,“ seg- ir Hanna Rún sem fer líka í ræktina og hleypur, enda krefst dansinn mik- ils styrks og þols. Þau keppa einnig mikið í útlöndum, núna síðast fóru þau til Blackpool í sumar og náðu fjórða sæti í sínum flokki. Um síðustu páska kepptu þau í Frakklandi og náðu sextánda sætinu; það er besti árangur sem Íslendingar hafa náð í slíkri keppni. Gullsmíðin heillar „Núna erum við að undirbúa okkur fyrir heimsmeistaramót í Singapúr í haust. Við ætlum alla leið,“ segir Hanna Rún sem var valin íþróttakona Garðabæjar fyrr á þessu ári. Þrotlausar æfingar liggja á bak við svo góðan árangur, þau Sigurður mæta fjórum sinnum í viku á hóp- æfingar, þar fyrir utan eru einka- tímar og þau æfa líka ein. Það er því nóg að gera hjá þeim systrum, Unnur lyftir lóðum 4 sinn- um í viku, æfir súlufitness 2-4 sinnum í viku sem hún segir mjög erfiða íþrótt og eigi ekkert skylt við súlu- dans, og hún fer í pallatíma tvisvar í viku. „Ég er í fullri vinnu og á barn og mann, svo þetta er dálítið mikið. Mig vantar eiginlega nokkra tíma í sólar- hringinn í viðbót.“ Unnur lauk sveins- prófi í gullsmíði í vor. „Ég ætla í meistaraskólann í haust og þá verður enn meira að gera. Ég var mjög ung þegar ég ákvað að verða gullsmiður en pabbi er gullsmiður og mamma hefur starfað við gullsmíði með hon- um alla tíð í Gullsmiðju Óla. Fyrir vikið erum við stundum kallaðar gull- stelpurnar,“ segir Unnur og hlær en hún ætlar að keppa á Norðurlanda- móti í gullsmíði í ágúst í Danmörku, þar sem tveir hæstu í sveinsprófi frá hverju landi taka þátt. Systurnar eiga ekki langt að sækja áhugann á dansi og öðrum íþróttum, því pabbi þeirra, Óli Jóhann Daníelsson, var dansari á sínum yngri árum, sýndi rokk og ról og æfði auk þess frjálsar íþróttir. Dans Þau Hanna Rún og Sigurður hafa náð mjög góðum árangri í dansinum, hér eru þau að dansa til sigurs á Íslandsmeistaramótinu í febrúar. Sterk Unnur lyftir lóðum fyrir módelfitness. Unnur hampar bikurum tveim síðast liðið vor. Ljósmynd/Jónas Hallgrímsson DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 2011 Þegar bæklunarskurðlæknir ráðlagði hlauparanum og íþróttalífeðlisfræð- ingnum Hirofumi Tanaka, sem var að jafna sig á hnémeiðslum, að forðast að hlaupa á malbiki og halda sig frek- ar á mjúku undirlagi eins og grasi eða mold, ákvað Tanaka að sjálfsögðu að hlýða honum. Hann forðaðist malbik- aðar stéttir og hljóp þess í stað á moldarstígum sem óteljandi ferðir hlaupara, sem trúa að mjúkt undirlag komi í veg fyrir meiðsli, höfðu mynd- að. Skömmu síðar sneri hann sig á ökkla og hnémeiðslin urðu verri. Þrátt fyrir mikla leit sagðist Tan- aka ekki finna neinar vísindalegar sannanir þess efnis að mjúkt undir- lag sé betra fyrir hlaupara. Í raun fannst honum allt eins líklegra að hlauparar yrðu fyrir meiðslum á mjúku undirlagi, sem oft er óreglu- legt, frekar en á hörðu og sléttu und- irlagi. Rannsóknir hafa leitt í ljós að lík- aminn aðlagar sig ólíku undirlagi til að taka sem best við högginu sem fóturinn fær þegar hann snertir jörð- ina. Dr. Stuart J. Warden, hjá Háskól- anum í Indiana, segir þá niðurstöðu rökrétta. Ætli maður að stökkva af borði niður á gólf beygi maður sjálf- krafa hnén þegar maður lendir. Hins- vegar sé hægt að læsa hnjánum þeg- ar verið er að hoppa á trampolíni. Svipað gerist þegar hlaupið er á ólík- um undirlögum. „Ef þú hleypur á hörðu undirlagi er líkaminn ekki eins stífur. Hnén og mjaðmirnar gefa bet- ur eftir,“ segir Warden. „Á mjúku undirlagi verða fótleggirnir stífari. Í raun er það allt öðruvísi hlaup.“ Warden segir að sumir séu fljótari en aðrir að aðlagast ólíku undirlagi. Hann ráðleggur því hverjum sem vill breyta úr hörðu í mjúkt, eða öfugt, að fara varlega og leyfa breytingunni að gerast smám saman. Að breyta um sé eins og að hlaupa lengra eða skipta um skó. Skyndileg breyting geti verið áhættusöm. Warden segir að þar sem ekkert bendi til þess að betra sé að hlaupa á mjúku undirlagi, þá sé engin ástæða til þess nema hlauparinn vilji það. Líkaminn aðlagast undirlaginu Morgunblaðið/Frikki Á hlaupum Sumir nýta malbikaða stíga en aðrir vilja mjúkt undirlag. Algeng mýta að mjúkt undirlag sé betra fyrir hlaupara Patti Húsgögn Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Opið : Mánud. - Föstud. frá 9 til 18 Basel Aspen Þú velur og drauma sófinn þinn er klár GERÐ (fleiri en 90 mismunandi útfærslur) STÆRÐ (engin takmörk) ÁKLÆÐI (fleiri en 2000 tegundir) Sófinn þinn útfærður eftir þínum óskum Landsins mesta úrval af sófasettum Íslensk framleiðsla Torino Rín Roma Ljósmynd /Jónas Hallgrímsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.