Morgunblaðið - 26.07.2011, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 26.07.2011, Blaðsíða 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 2011 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Bækur C.P. þjónusta. Veiti bókhalds-, eftirlits- og innheimtustörf. Hafið samband í síma 893 7733. Veitingastaðir HUMARHLAÐBORÐ Humarhlaðborð á Hafinu Bláa öll kvöld frá kl. 18.00 - 21.00. Aðeins 35 min frá Reykjavík. Við Óseyrarbrú, milli Þorlákshafnar og Eyrarbakka Borðapantanir í síma 483 1000 og www.hafidblaa.is Húsnæði óskast Óskar eftir stúdíó/lítilli íbúð 103-108 Rvk Ung, reglusöm, áreiðanleg og snyrti- leg kona í fastri vinnu óskar eftir stúdíó/lítilli íbúð til leigu í 105, 103, 108, 104 Rvk. S. 846 2516. Atvinnuhúsnæði Um 300 m2 veitinga- eða verslunar- húsnæði að Bæjarhrauni 26, Hafnar- firði til leigu eða sölu. Upplýsingar í símum 664 5900 og 664 5901. Óska eftir Kaupi silfur Vantar silfur til bræðslu og endur- vinnslu. Fannar verðlaunagripir. Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi. fannar@fannar.is - s. 551-6488. KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfur- borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar- leg viðskipti. Aðeins í verslun okk- ar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Bílaþjónusta Húsviðhald Laga ryðbletti á þökum. Hreinsa þakrennur og tek að mér ýmis smærri verk. Upplýsingar í síma 847 8704 eða manninn@hotmail.com. Þakvernd - þakviðgerðir Ryð- og lekavarnir. 100% vatnsþétt- ing með Pace-aðferðinni. 10 ára ábyrgð. Margir litir í boði. Tilboð í síma 777 5697. lekabani@gmail.com Astral 390 hjólhýsi Hef til sölu eldra Astral 390 hjólhýsi m. svefnpláss f. 2. Þarfnast aðhlynn- ingar og fer á 300 þús. S. 846-4510. Hjólhýsi Ég kynnist Guðna þegar ég kom til Ólafsfjarðar sumarið 2001 en hann starfaði sem lög- reglumaður þar og hafði gert um árabil ásamt félaga sínum Jóni Konn. Ég var nokkuð kvíðin fyr- ir því hvernig lögreglumenn sem höfðu búið nánast alla sína ævi á staðnum og gjörþekktu, tækju nýjum yfirmanni en sá kvíði reyndist algjörlega ástæðulaus. Guðni var einstaklega þægilegur í umgengni, hann rækti starfa sinn af þeirri alúð sem hægt er að hugsa sér og aldrei datt dag- ur úr hjá honum. Þegar ég flutti norður, var húsnæði það sem hýsti lögreglustöðina, kannski ekki það fullkomnasta og mátti gera það vistlegra en fjárveit- ingar voru takmarkaðar. Með einróma samþykki alls starfs- fólksins var ákveðið að betrum- bæta aðstöðuna, taka til, smíða, Friðbjörn Guðni Aðalsteinsson ✝ FriðbjörnGuðni Aðal- steinsson fæddist á Fáskrúðsfirði hinn 27. júní 1938. Hann lést á Dvalarheim- ilinu Hornbrekku 7. júlí 2011. Útför Guðna fór fram frá Ólafs- fjarðarkirkju 18. júlí 2011. mála o.fl. Var þetta hægt með því að all- ir legðu vinnu sína fram í sjálfboða- vinnu en ráðuneytið greiddi efniskostn- að. Við þessa fram- kvæmd lét Guðni sitt ekki eftir liggja. Var það algjör unun að sjá hvað allir voru samtaka og viljugir í að bæta vinnuaðstöðuna, bæði hjá lög- reglunni og inni á sýsluskrifstof- unni. Ég man, þegar verið var að ljúka við setustofuna í húsinu seint um kvöld og komið fram í desember, og Jón var að setja upp gardínur og segir þá við Guðna. Jæja, þá er ekkert eftir nema að búa til jólaskrautið. Já einmitt, svaraði Guðni, það er ekkert mál, við gerum það. Þannig kynntist ég Guðna, alltaf tilbúinn að leggja sitt af mörk- um, beðinn og óbeðinn. Í frítíma sínum, smíðaði og innréttaði Guðni húsbíl fyrir sig og fjölskyldu sína. Hann var afar stoltur af bílnum þegar hann sýndi mér hann enda mátti hann vera það. Handbragðið og allur frágangur var líka eftir fag- mann, enda var hann lærður bílasmiður. Ég starfaði einnig með Guðna í Rótarýklúbbi Ólafsfjarðar og lét hann sitt aldrei eftir liggja á fundum eða í starfi fyrir klúbb- inn. Þegar Guðni hætti að starfa sem lögreglumaður sökum ald- urs, fann ég að það var bæði söknuður hjá honum og líka til- hlökkun. Söknuður þar sem hann gat ekki sinnt því starfi sem hann hafði lagt sig allan í um áraraðir og líka tilhlökkun vegna þess sem framundan væri. Ætlaði hann að halda áfram að smíða sér húsbíl og einnig að hjálpa syni sínum á bifreiðaverk- stæði hans. Af minni hálfu var sárt að sjá á eftir Guðna úr lögreglustarf- inu, því eins trúir starfsmenn og hann var eru vandfundnir. Það var mikil gæfa að kynnast Guðna, ég lærði margt af honum. Blessuð sé minning hans. Ástu, eftirlifandi eiginkonu Guðna og fjölskyldu votta ég mína dýpstu samúð. Ástríður Grímsdóttir. Guðni Aðalsteinsson á Ólafs- firði er látinn eftir hetjulega bar- áttu við illvígan sjúkdóm. Guðni rak bílaverkstæðið Múlatind um árabil ásamt félögum sínum. Hann var lærður bílasmiður og fékkst við þá iðn samfara al- mennum bílaviðgerðum framan af starfsævinni eða þar til hann söðlaði um, fór í lögregluskólann og varð síðan lögreglumaður á Ólafsfirði. Guðni sinnti bílasmíð- inni þó samhliða í hjáverkum alla tíð. Húsbíllinn Bláklukka er síð- asti bíllinn og góður vitnisburður um einstaka fagmennsku hans. Guðni var reyndar ekki aðeins frábær bílasmiður, það var raun- ar sama hvað hann tók sér fyrir hendur, allt lék í hans stóru styrku höndum, hvort sem var á tré eða járn og þegar hann tók sig til á seinni árum og setti í jólaköku, randalínur eða annan bakstur, var sem hann hefði eig- inlega aldrei annað gert. Guðni var afar virtur í samfélagi sínu. Hann var líka mannasættir og tilkvaddur á þeim vettvangi að leysa erfið úrlausnarefni. Eftirlætis tómstundaiðja Guðna var gönguferðir, einkum fjallgöngur og hann hafði afar gott lag á að hrífa með sér sam- ferðamenn sína, einnig börnin og barnabörnin sem þannig nutu hinn seinni ár aukinna samvista við þennan góða og trausta mann. Ásta og Guðni voru afar samhent og hafa líklega komist öðrum hjónum nær því að kallast eitt. Þau höfðu yndi af ferðalög- um, bæði hérlendis og erlendis en nutu sín hvað best í hópi ætt- ingja og vina. Elsku Ásta, orð mega sín lítils á stundum sem þessum og við finnum til smæðar okkar að geta ekkert gert ykkur til stuðnings. Við vitum þó að inntakið í þess- um fallegu ljóðlínum er ástvinum Guðna ofarlega í huga í dag: „Þú gafst mér skýin og fjöllin og Guð, til að styrkja mig.“ Við vottum þér, og afkomendum þín- um öllum, okkar innilegustu samúð. Sigríður og Þorvaldur, börn og barnabörn. Það koma í hug- ann ljúfar minningar um hana Stínu frænku við að setja þessi minningarorð um hana niður á blað. Ég kynntist henni þegar ég var sem strákur í sveit hjá ömmu og afa á Hamri. Hún kom þar á hverju sumri að heim- sækja foreldra sína og dvaldi um tíma þar, ásamt Ingvari. Stína bar alltaf umhyggju fyrir okkur og Sigrúnu og börn- um okkar, sem við erum þakklát fyrir og hélst svo alla tíð. Hún sýndi okkar velferð alltaf áhuga. Ingvar lést fyrr á þessu ári og nú er hún einnig horfin yfir móð- una miklu þar sem endurfundir þeirra eru, en þau voru ákaflega samrýnd hjón og miðluðu mikl- um kærleika og velvild til sinna samferðarmanna. Gestrisni var þeim einlæg svo að það var alltaf ánægjulegt að heimsækja þau og hitta. Kristín Magnúsdóttir ✝ Kristín Magn-úsdóttir fædd- ist 25. október 1929. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 9. júlí 2011. Útför Kristínar fór fram frá Foss- vogskirkju 19. júlí 2011. Við viljum biðja góðan guð að geyma þau heiðurshjón og vottum við ykkur Magga, Maju og Bjarna okkar dýpstu samúð. Kristinn og Sigrún. Elsku amma mín, þið afi voruð gift í sextíu ár og eftir fjögra mánaða aðskilnað þá ákvaðstu að bíða ekki lengur heldur fara til hans. Þú varst nákvæmlega þannig að ef þú varst búin að ákveða eitt- hvað þá framkvæmdir þú það strax. Þið afi voru ólík en ótrúlega samhent og þið gerðu allt saman. Á meðan afi lék við okkur og gantaðist, þá varst þú sú sem lagðir lífsreglunar og settir gild- in. Mig langar til að kveðja þig með þessum orðum sem eiga vel við þig Kærleikur trúir öllu, kærleikur vonar allt, kærleikur hann umber allt og fellur aldrei úr gildi. (Úr Kórintubréfi Páls postula) Þín, Jenný. „Er þetta virkilega mynd af mér, ég man ekki eftir þessum rauðu skóm“ sagði hún kímin þegar hún leit á kortið sem ég rétti henni og sagði að væri minning úr fortíðinni. Nei, ekki alveg, en minnti skemmtilega á frúna uppábúna á leið á frumsýn- ingu eða eitthvað álíka fínt, á háum hælum fislétt og flögrandi í síðum kjól. Það var fróðlegt að fylgjast með hve næmt auga Fríða hafði fyrir straumum og stefnum í tískuheiminum þegar hún var og hét, enda annar eigandi versl- unarinnar Vogue á Skólavörðu- Hólmfríður Krist- jana Eyjólfsdóttir ✝ HólmfríðurKristjana Eyj- ólfsdóttir fæddist 23. september 1917. Hún lést á Hjúkrunarheim- ilinu Sunnuhlíð 13. júlí 2011. Útför hennar fór fram frá Foss- vogskirkju 19. júlí 2011. stíg 12. Nafnið franskt og þýðir tíska, því þau voru stórhuga hjónin, hún og Jón Einars- son sem stofnuðu verslunina á þeim árum þegar ýmis- konar hindranir og höft urðu á vegi þeirra er stunduðu atvinnurekstur og fluttu inn varning frá öðrum löndum. Stutt frá stríðslokum og heimsmyndin önnur en nú. Lengi framan af var hún ráð- andi í innkaupum fyrir versl- unina. Hún tók oftar en ekki með sér einhverja eina af sam- starfskonunum til að fá fleiri sjónarmið og um leið gera þær meðvitaðar um gerjunina er- lendis. Hún vissi sem var að sölumennska er sérgrein sem þarf að sinna. Hver af eldri kyn- slóðinni man ekki eftir ljósa- skiltinu uppi á húsinu með rauðu skærunum sem klipptu í sífellu? Eða púltunum sem sýndu í gegnum gler allar teg- undir af tölum og hnöppum sem til voru í skúffum á bakhliðinni. Fríða var ákaflega vinnusöm kona og hafði einnig gott lag á að starfsfólkið héldi sig að verki, jafnvel með athugasemdum sem hafa lifað áfram sem skemmti- sögur. Henni þótti vænt um fólkið sitt og lét sig varða líðan þess. Ég held að flestir sem unnu hjá henni hafi getað reitt sig á trúnað og hjálpsemi fjölskyld- unnar allrar ef á þurfti að halda. Ellin setti sitt mark á hana eins og aðra og var hvíldin henni örugglega kærkomin. Þegar ég heimsótti hana í Sunnuhlíð fyrir nokkru á afmælisdegi hennar mundi hún býsna margt og gat rifjað upp frá okkar fyrri samtíð og samveru, en hvíslaði svo að mér í spurnartón. „Hvaða mað- ur er þetta sem situr hjá henni Jessí?“ „Það er maðurinn henn- ar, hann Einar yngsti sonur þinn“ hvíslaði ég á móti. „Þarna sérðu hvað ég er að verða göm- ul“, hún hristi stuttklipptan koll- inn og glettnin skein úr aug- unum. Mín upplifun af Hólmfríði Kristjönu Eyjólfsdóttur var að þar fór hlý, skemmtileg, fram- sýn og dugandi kona sem auðg- aði líf þeirra sem kynntust henni. Vertu kært kvödd, Hrefna Kristbergsdóttir. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, "Senda inn minningargrein", valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar ✝ Alúðarþakkir sendum við öllum þeim sem heiðruðu elskulegan son, bróður, mág og frænda, BRAGA KRISTJÁNSSON, Sólvallagötu 9, Keflavík, við athöfn frá Keflavíkurkirkju 23. júní. Starfsfólk Sjúkrahúss Keflavíkur sýndi Braga og okkur fádæma umhyggju og virðingu. Fyrir það er þeim sérstaklega þakkað. Öllum ættingjum og vinum eru sendar þakkir fyrir hlýjar kveðjur. Guðbjörg Þórhallsdóttir, Baldur Kristjánsson, Svala Björgvinsdóttir, Sigríður og Sif Baldursdóttir. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, MARTA HANNESDÓTTIR, Sólvallagötu 60, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni, miðvikudaginn 27. júlí kl. 13.00. Margrét Jónsdóttir, Árni Ingólfsson, Gunnar Jónsson, Kristín Kristinsdóttir, Lárus Jónsson, Sonja Egilsdóttir, Ágúst Jónsson, Ingibjörg Benediktsdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Ari Guðmundsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.