Morgunblaðið - 26.07.2011, Blaðsíða 36
ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 207. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Sá 11 ára dreng biðja sér griða
2. „Mamma Útey“ var skotin fyrst
3. Stjúpbróðir prinsessu meðal…
4. Kallaði sig Sigurð Jórsalafara
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Á miðvikudag Suðlæg átt og vætusamt, en úrkomulítið á Norður-
landi. Hiti 12 til 20 stig. Á fimmtudag og föstudag Suðvestanátt
og dálítil væta á vestanverðu landinu, en bjartviðri fyrir austan.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Gengur í suðaustan 10-15 m/s með rigningu
sunnan- og vestanlands, en hægara og þurrt norðaustantil fram á
kvöld. Hiti allt að 23 stigum norðaustantil.
VEÐUR
Ísland vann sinn fyrsta leik
á Norðurlandamóti karla í
körfuknattleik í Sundsvall í
Svíþjóð í gærkvöldi. Ísland
vann Danmörku 85:76 en
hafði áður tapað fyrir Sví-
þjóð og Finnlandi. Þetta var
einnig fyrsti sigurleikurinn
undir stjórn sænska lands-
liðsþjálfarans, Peters
Öqvist sem tók við liðinu í
sumar. Ísland mætir Nor-
egi í síðasta leik sínum á
mótinu. »2
Fyrsti sigurleik-
urinn hjá Öqvist
„Þetta er örugglega mitt besta tíma-
bil og ég er í toppformi. Þá hef ég
mjög gaman af þessu, það er lykill-
inn,“ segir KR-ingurinn, Guðmundur
Reynir Gunnarsson,
sem í gær var valinn
besti leikmaður fyrri
hluta úrvals-
deildar karla í
knattspyrnu,
Pepsi-
deildar-
innar. »3
„Ég hef mjög gaman af
þessu, það er lykillinn“
FH komst upp í þriðja sæti úrvals-
deildar karla í knattspyrnu, Pepsi-
deildarinnar, í gærkvöldi eftir hörku-
leik við Val, 3:2, í Kaplakrika.
FH-ingar misstu Pétur Viðarsson
út af á 56. mínútu og voru þá marki
undir, 2:1. Þeir lögðu ekki árar í bát
og mörk Matthíasar Vilhjálmssonar
og Atla Guðnasonar tryggðu FH-
ingum sigurinn. »4
FH lagði Val manni
undir í Kaplakrika
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Það gerði skúrir víða um land síðast-
liðna helgi, þótt ekki rigndi eins mik-
ið og margir hefðu vonað. Veðurfarið
hefur í mörgum sveitum leikið bænd-
ur grátt, með kulda lengi framan af
en síðan með þurrkum þegar loks fór
að hlýna. Nær alls staðar á landinu
hafa menn gengið til heyverka seinna
en ella en nú biðja bændur um þurrk
á Suðurlandi á meðan frændur þeirra
á Vesturlandi bíða óþreyjufullir eftir
að geri almennilega rigningu.
„Þetta var nú eiginlega engin úr-
koma að gagni um helgina, þetta guf-
ar strax upp,“ segir Trausti Jónsson,
veðurfræðingur, sem hefur aðeins
verið að kynna sér þurrkana hér á
landi.
Víða á Vesturlandi hefur úrkoma
frá 1. júní til 20. júlí verið aðeins um
15-30% af meðaltali áranna 1971-
2000 en þrátt fyrir að þessar tölur
virðist afar lágar segir Trausti þó að
alvarlegri séu langvinnir þurrkar.
„Í Skagafirði hefur úrkoman síð-
astliðið eitt og hálft ár verið 60% af
meðaltalinu. Það er alvarlegur
þurrkur. Og síðastliðin þrjú og hálft
ár hefur hún verið 80% af meðal-
árinu,“ segir hann.
Keyptu hey í fyrsta sinn
Hegranes í Skagafirði er eitt
þeirra svæða þar sem ástandið er
hvað verst en þar hefur nánast ekk-
ert rignt í tvo mánuði.
„Við erum miðsvæðis og hér gerir
engar fjallaskúrir þannig að það er
brunnið á stórum hluta túnanna hjá
okkur,“ segir Guðrún Lárusdóttir,
bóndi í Keldudal.
Hún segir þau hafa fengið 500 rúll-
ur í fyrri slætti en þær hafi verið 700
í fyrra. Hún hafi aldrei í sínum bú-
skap séð fram á heyskort en nú hafi
þau þegar keypt 100 rúllur og kunni
að þurfa að kaupa fleiri.
„Það var ofboðslega kalt í vor, al-
veg út júní, og svo loks þegar kemur
hiti þá er enginn raki til að hjálpa
þessu af stað,“ segir Guðrún. Hún
segist þó ekki úrkula vonar, ef veður
verði hagstæð gæti ræst úr seinni
slætti og uppskeran orðið þokkaleg.
Það sé lán í óláni að kornuppskeran
hafi tekið við sér þegar hlýnaði, þrátt
fyrir að regnið hafi vantað.
Ólafur Steinar Björnsson, bóndi á
bænum Reyni í Vík, segir sig og ná-
granna sína hins vegar biðja um
þurrt veður á næstunni. „Þetta leit
ekki vel út í vor en það rættist úr því.
Það hefur rignt vel hér og við þurfum
ekki að kvarta miðað við ástandið
annars staðar á landinu,“ segir hann.
Nú sé komið gras alls staðar og vanti
bara þurrk.
Loksins vökna sárþyrst tún
Það er úrkoma í kortunum og henni
verður víðast hvar tekið fagnandi
Morgunblaðið/Eggert
Rigning Það eru ekki allir á eitt sáttir um ágæti sumarskúranna, margir vilja sjá aftur til sólar sem fyrst en gleðjast yfir að grasið fái loksins sopann sinn.
Í dag er spáð lítilsháttar rigningu
sunnan- og vestanlands og sam-
kvæmt spánni mun rigningin
ágerast eftir því sem líður á dag-
inn, nema á Norðausturlandi, þar
sem verður þurrt en skýjað.
Er útlit fyrir að veðrið á morg-
un verði með svipuðu móti. Þá er
spáð lítilsháttar úrkomu sunnan-
og vestanlands en heldur meiri
úrkomu um hádegisbilið á Suð-
austurlandi.
Spáð er úrkomu á vestanverðu
landinu fram að hádegi á föstu-
dag en þá styttir upp og spáir
þurru á laugardaginn.
Spáir úrkomu
næstu daga
VÆTUSÖM VIKA
Hópur íslenskra tónlistarmanna
heldur kammertónleika í Selinu við
Stokkslæk í kvöld. Flytjendur verða
Þórunn Vala Valdimarsdóttir sópran-
söngkona, Gróa Margrét Valdimars-
dóttir fiðluleikari, Geirþrúður Ása
Guðjónsdóttir fiðluleikari, Þóra Mar-
grét Sveinsdóttir víóluleikari og Ásta
María Kjartansdóttir sellóleikari og
þá munu Sólborg Valdimarsdóttir og
Kristján Karl Bragason leika á píanó.
»29
Kammertónleikar í
Selinu í kvöld
Önnur breiðskífa
rokkhljómsveitarinnar Coral hefur
verið gefin út. Hljómsveitin hefur
starfað frá árinu
2000 þegar
söngvarinn
Gunnar Jóns-
son, gítarleikarinn
Steinar Guðjónsson,
bassaleikarinn Andrés
Hlynsson og trommar-
inn Þorvaldur Kári
Ingveldarson byrjuðu
að spila saman. »30
Önnur breiðskífa
Coral komin út
Lík söngkon-
unnar Amy Wine-
house var krufið í
gær og formleg
rannsókn hófst á
dánarorsökinni.
Fjölskylda Wine-
house vísaði á
bug orðrómi um
að söngkonan hefði tekið of stóran
skammt af eiturlyfjum.
Dánarorsök Wine-
house rannsökuð