Morgunblaðið - 26.07.2011, Blaðsíða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚLÍ 2011
Nú eru liðin yfir tuttugu ár síðan
Kvikmyndaskóli Íslands var stofn-
aður. Fyrst var þetta hálfgert nám-
skeið, varla skóli nema að nafninu
til. Engu að síður náði hann strax
að verða vettvangur þar sem ungir
kvikmyndaáhugamenn hittu fyrir
þá reyndari í faginu og fengu leið-
sögn. Með aukinni reynslu batnaði
skólinn mjög með árunum og hefur
náð að festa sig í sessi sem af-
bragðs menntastofnun.
Á fyrstu árunum var mikill byrj-
endabragur á myndum sem komu
úr skólanum en á síðustu árum
hafa stórgóðar stuttmyndir komið
þaðan. Til að mynda voru um 70%
þeirra stuttmynda sem fengu þátt-
tökurétt á mjög góðri stutt-
myndahátíð ársins í ár í Reykjavík
frá Kvikmyndaskóla Íslands. Skól-
inn er orðinn mikilvægur vett-
vangur kvikmyndamenningarinnar.
Þar kenna reyndir listamenn eins
og Einar Kárason, Hilmar Oddsson
og Lárus Ýmir Óskarsson. Þar
nema efnilegir listamenn framtíð-
arinnar. Þekkingunni er miðlað til
þeirra sem taka við.
Ekkert borgað
Nú bregður svo við að Kvik-
myndaskólinn er í kröggum. Þær
fréttir berast að kennarar skólans
hafi ekki fengið greidd laun sín.
Hilmar Oddsson, skólastjóri Kvik-
myndaskólans, staðfesti það í sam-
tali við Morgunblaðið. „Já, ég verð
að gera það. Við höfum ekki greitt
laun síðan í maíbyrjun.“ Hilmar
sagði að málið væri á viðkvæmu
stigi í augnablikinu og vildi ekki
láta hafa meira eftir sér í bili. En
hann bætti við að þeir væru í
samningaviðræðum við menningar-
og menntamálaráðuneytið og væru
vongóðir um lausn á sínum málum.
borkur@mbl.is
Kvikmyndaskóli
Íslands í kröggum
Kvikmyndaskólinn orðinn að sterkri
menningarstofnun í samfélaginu
Skólinn berst nú fyrir lífi sínu
Morgunblaðið/Jim Smart
Edduverðlaunahafinn Hilmar Oddsson er skólastjóri Kvikmyndaskóla Íslands.
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Íslenska rokkhljómsveitin Coral hefur verið
starfandi síðan árið 2000, en þá byrjuðu
söngvarinn Gunnar Jónsson, gítarspilarinn
Steinar Guðjónsson, bassaleikarinn Andrés
Hlynsson og trommarinn Þorvaldur Kári Ingv-
eldarson að spila saman. „Já, þetta var voðalega
klunnalegur hittingur,“ segir Gunnar um það
þegar hljómsveitin fór fyrst að spila.
„Við vorum allir í tónskóla Eddu Borg, sem
var í Seljahverfinu. Í skólanum vorum við settir
saman og þvingaðir til að spila einhverja mjög
órokkaða tónlist. Við fórum síðan að hittast upp
frá því og spiluðum Weezer, Nirvana og Metal-
lica. Síðan fórum við að semja okkar eigin lög,“
segir Gunnar.
Árið 2002 gaf sveitin út smáskífu sem innihélt
útvarpssmellinn Arthur og árið 2007 kom fyrsta
breiðskífan út sem nefndist The Perpetual
Motion Picture. Platan var tekin upp í gróður-
húsi Bedroom Community manna og fengu
hljómsveitarmeðlimirnir Tómas R. Einarsson
kontrabassaleikara, Davíð Þór Jónsson píanó-
leikara og bandaríska tónskáldið Nico Muhly til
liðs við sig við upptökurnar.
Þétt rokk
Nú er komin út önnur breiðskífa sveitarinnar
sem nefnist Leopard Songs. Í fréttatilkynningu
frá sveitinni segir: „Hinir íburðarmiklu hljóð-
heimar The Perpetual Motion Picture eru nú
víðsfjarri og þétt rokkið sem hefur einkennt
bandið frá upphafi er í forgrunni. Leopard
Songs tekst þannig að fanga kraft Coral eins og
sveitin hljómar á tónleikum, á náttúrulegan og
dýnamískan hátt. Platan er níu lög, fjörutíu og
tvær mínútur að lengd og inniheldur hrátt rokk
og texta sem harma og fagna hinu dýrslega eðli
mannsins. Fyrsta smáskífa plötunnar ber heitið
The Underwhelmer og birtist á facebooksíðu
Coral.“
Aðspurður hvernig hann lýsi tónlist þeirra,
segir Gunnar að þeir spili hrátt og drífandi rokk.
„Það er mikill kraftur í þessu hjá okkur, þannig
að þetta sé rokk- og ról-upplifun fyrir hlust-
endur. Þessi plata sem við gerðum 2007, það var
miklu meira húllumhæ á henni, en við héldum
okkur hógværari núna. Á plötunni hljómum við
meira einsog við hljómum á tónleikum.“
Hávaðastríðið
Gunnar gerir töluvert úr því að þeir hafi hafn-
að hinu svokallaða hávaðastríði við upptökur á
plötunni. Til útskýringar tekur hann blaðamann
Morgunblaðsins í stutta sögukennslu. „Uppúr
miðri síðustu öld þegar menn voru að gera vín-
ylplötur fór fólk að taka eftir því að ef platan var
hljóðblönduð hærra, þá stukku lögin með meiri
krafti útúr tækjunum. Plötuútgefendur fóru að
notast við þessa aðferð til að vera samkeppn-
ishæfari, þannig að lögin þeirra heyrðust skýrar
plöturnar okkar að við erum komnir langt
á leið með næstu plötu sem við erum að
velta fyrir okkur að taka upp í jólafríinu.
Gítarleikarinn okkar er að fara í nám til
Danmerkur, þannig að við nýtum tímann
núna í að kynna þessa plötu og getum svo
vonandi farið að taka næstu upp þegar
hann kemur heim um jólin,“ segir Gunn-
ar.
Aðspurður hvort þeir sinni einhverjum
öðrum störfum en tónlistinni segir hann
að það sé allur gangur á því. „Þorvaldur,
trommarinn okkar, er trommukennari,
bassaleikarinn okkar er menntaður raf-
magns- og tölvuverkfræðingur og gít-
arleikarinn líka. Sjálfur er ég að vinna
með geðfötluðum og er í háskólanum að
klára tvöfalt B.A. próf, annarsvegar í
ensku og hinsvegar í ritlist. Skrif og tón-
list er það eina sem ég er að sinna um
þessar mundir,“ segir Gunnar.
Record Records dreifir plötunni og hönnun
umslagsins sá Rut Sigurðardóttir um. Að-
spurður hver hafi séð um upptökuna segir
Gunnar að það hafi verið Friðrik Helgason.
„Við tókum plötuna mest upp sjálfir ásamt
Friðriki í hljóðstofunni hans og víðar. Við tók-
um reyndar upp trommurnar í Hinu húsinu því
það er svo frábær hljómur á þriðju hæðinni
þar. Við fórum með allt draslið þangað og
gerðum alla starfsmenn Hins hússins brjálaða.
Því við byrjuðum að taka þetta upp á skrif-
stofutíma og það fór allt á hvolf í húsinu við
dúndrandi hljóminn í okkur. Við vorum stopp-
aðir og fórum að fá okkur að borða og klár-
uðum síðan restina af upptökunum þegar fólk
hafði lokið vinnu sinni,“ segir Gunnar.
Verkfræðingar og skáld
Aðspurður hvort þeir séu tilbúnir með
næstu plötu segir hann að þeir séu komnir vel
á veg með hana. „Við erum það lengi að vinna
í útvarpinu og þessháttar. Þeir fóru að nota
compressara til að hækka alla hluta lagsins,
þannig að rólegu kaflarnir fóru líka upp. En með
því dýnamíkinni í laginu rústað. Við tókum með-
vitaða ákvörðun um að gera plötu sem væri
dýnamísk, þannig að lágu kaflarnir fengju að
vera lágir. Hún er því örlítið lægri en aðrar plöt-
ur en þá eiga menn bara að hækka hljóðstyrkinn
í tækjunum sínum,“ segir Gunnar.
Útgáfutónleikar eru á dagskrá hjá þeim í
byrjun ágúst á Faktorý en áður munu þeir með-
al annars spila í tónleikaveislu á Dillon sem
verður um verslunarmannahelgina. Aðspurður
hvort þeir séu með einhverjar aðrar hljóm-
sveitir í gangi segir Gunnar að þeir hafi verið
mjög duglegir í hliðarverkefnum á milli þessara
platna. „Einn okkar var í sveitinni Jón Þór, með
Trausta Laufdal. Gítarleikarinn er búinn að
vera í djassbandinu Skver. Sjálfur er ég búinn
að vera að syngja og spila með sveitinni Bob og
Japanese Super Shift,“ segir Gunnar.
Rokksveitin Coral
búin að gefa út nýja
plötu Stefnir á út-
gáfutónleika í ágúst
Ljósmynd/Loren Brown
Stuð Hér spilar Coral á Dillon en frá vinstri má sjá Gunnar Jónsson, Þorvald Kára Ingveldarson, Andrés Hlynsson og Steinar Guðjónsson.
Sveittir Hér er Coral að spila á Faktorý en þar munu þeir halda útgáfutónleika sína.
„Gerðum starfsmenn Hins hússins brjálaða“
Flottur Gunnar Jónsson spilar á gítar.